Morgunblaðið - 05.07.1947, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.07.1947, Blaðsíða 1
íslandi boðið á Parísarráðstefnuna Sum ríki eru andvíg almennri endurreisn VtSreisn Evrópti iil umræðu SENDIHERRA Breta, Sir Gerald Shephard, og sendiherra Frakka, herra Henri Voillery, komu í aag á fund utanríkisráð- herra og færðu honum samhljóða oiðsendingar ríkisstjórna sinna, þar .sem Islandi er boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu -um viðreisn Evrópu, um áætlanir varðandi framleiðslumögu- leika og þarfir Evrópurikjanna og um nauðsynlega skipulagn- ingu í þvi skyni að koma þeim áformum fram. Til ráðstefnu þessarar, sem hefjast mun í París hinn 12. júlí n.k., er boðað á grundvelli þeirra hugmynda, sem fram komu í ræðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hinn 5. júní s.L, og er öllum Evrópuríkjum, nema Spáni, boðin þátttaka. Að sjálfsögðu hefur ríkis- stjórnin ekki haft tækifæri til þess ennþá að svara þessu boði en telja má víst, að íslenska þjóðin sje því mjög fylgjandi að því verði tekið. t----------------------- Ramaier $ær traushyfirlýsingu París í gærkvöldi. FRANSKA þingio sam- þykkti í kvöld traustsyfirlýs- ingu til handa Ramadier með 85 atkvæða meirihluta. Fór atkvæðagreiðslan um trausts ' yfirlýsinguna fram í sambandi ivið efnahagsprógram stjórn- arinnar. — Reuter. Oenskir prentarar fenp litlar kjarabtnr eftir 4 mánaða verkfali KAUPMANNAHÖFN í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins. PRENTARAVERKFALLINU í Kaupmannahöfn er nú lokið eftir 4 mánuði og hefja prentarar vinnu aftur á morgun (laug- ardag). Þeir fengu lítilfjörlegar kjarahætur hvað laun snertu, en alls ekki aðalkröfu sína um styttri vinnutíma, sem mestu deilurnar stóðu um. Tillaga sáttasemjara var samþykkt með allsherjarat- kvæðagreiðslu með 1957 at- kvæðum gegn 1812. Barátta milli kommúnista og jafnaðarmanna. Prentaraverkfallið var að lokum orðið meiri barátta milli kommúnista og jafnað- armanna en milli prentara og vinnuveitenda. Kommúnistar halda því fram, að það hafi verið stjórn verklýðssamtak- anna, sem hafi eyðilagt verk- fallið, m.a. með því að koma í veg fyrir að verkfallsmenn fengju bankalán. Formaður verklýðssamtak anna segir hinsvegar, að það sje kommúnistum að kenna, að ekki var samið fyrr um lausn deilunnar, þrátt fyrir að heilbrigð skynsemi hafi mælt með því að svo yrði gert. Kostaði prentara 15 millj. kr. Socialddemokraten, blað jafnaðarmanna, heldur því fram, að verkfallið hafi kost- að prentara 5 milljónir króna í verkfallsstyrki, en launatap prentara er talið nema 10 milljón krónum. Brelar misslu 2,500 skip London í gærkvöldi. SAMKVÆMT skýrslu, sem birt var hjer í London í dag, kemur í ljós, að Bretar misstu alls 2426 slcip á styrjaldarár- unum af styrjaldarorsökum. Versta árið — 1941 — niisstu þeir yfir 700 skip, en alls nam tjón þeirra IIV2 milljón smá lesta. 1 heimsstyrjöldinni fyrri sökktu Þjóðverjar 5,000 skip- um, eða því nær helmingi meira en bandamenn misstu í þetta skipti. Tonnafjöldinn var þó minni eða um 11 millj. tonn á móti 14VÓ milljón í síðari heimsstyrjöld. — Reuter. ItisMkis Karl Grubcr, utanríkiisráðherra Austurríkis, sem hjer birtist mynd af, hefir nú nýiega þakk- að Bandaríkjunum aðstoð þá, sem þau hafa látið landsmönn- uin hans í tje. Hæða Trumans á þjóðhátíðar- degi Bandaríkjanná CHARLOTTESVILLE í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. I ÞJÓÐHÁTÍÐARRÆÐU, sem Truman forseti, flutti á fæðingarstað Thomas Jefferson, aðalhöfundar frelsisyfirlýsingar Bandaríkjanna, skoraði hann á allar þjóðir að taka höndum saman um að varðveita friðinn, ekki aðeins á okkar tímum heldur ætíð. Lagði forsetinn mikla áherslu á það, að alheims- samvinna væri nauðsynleg, og nefndi fjögur skilyrði fyrir því að friðarvonin yrði að rannveruleika. Júgóslövum London í gær. BRESKIJ stjórninni hefir nú borist ný orðsending frá Júgó- slövum, vegna atburða, sem gerst hafa á landamærum Júgó slavíu og hernámssvæðis Breta í Austurríki. —Reuter. Seysilegir efnahags- örðugleikar Japana Tokio í gærkvöldi. JAPANSKA stjórnin hefur birt opinbera skýrslu um efna- hagsástand landsins. Segir þar, að þjóðin sje mjög illa stödd fjárhagslega, einkum vegna þess að dregið hafi úr fram leiðslunni sakir skorts á vjelum og hráefnum og vegna þess, að verkamenn vinni af lítilli trú mennsku. — Þá er ennfremur áætlað í skýrslunni, að fjórar milljónir íbúða þurfi að byggja til þess að bæta úr húsnæðis- vandræðunum. Skorar stjórnin á þjóðina að Veita sjer dyggi- lega liðveislu í baráttunni við erfiðleikana. — Reuter. Indland verður alfrjálst eftir 15. ágúst Indversku sjálfslæðislögin lil fyrstu umr. í breska þlnglnu LONDON í gær. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. FRUMVARP það, sem gera á Indland að frjálsu og fullvalda ríki eftir 15. ágúst, var til fyrstu umræðu í neðri málstofu breska þingsins í dag. Búist er við að allir flokkar þingsins sty'ðji frumvarpið, en önnur umræða um málið fer fram næst- komandi fimmtudag. Tvö ríki. Samkvæmt frumvarpinu verð ur Indland tvö ríki, annað undir heitinu Indland, en hitt mun nefnast Pakistan. Vesturhluti Punjabfylkis og Austur Bengal verða meðal hjeraða í Pakistan. Kcisaratitillinn hverfur. Úr titli Bretakonungs verða felld orðin „keisari yfir Ind- landi“, og þau bresk lög, sem samþykkt verða eftir 15. ágúst, gilda ekki í Indlandi eftir þann tíma. Landstjórar verða í báðum hinna nýju ríkja, en þó ætlast til þess, að sami landstjórinn geti verið fyrir Indland og Pakistan, ef þess er æskt. Skoðanafrelsi. Truman ræddi og um það, hversu mikil hætta fælist í því að hefta skoðanafrelsi og koma í veg fyrir það, að almenning- ur í öllum löndum fengi sem rjettastar upplýsingar. Lýsti hann því yfir, að slíkt ætti sjer því miður stað í nokkrum lönd- um, sem sum gengju jafnvel svo langt að banna þegnunum að ferðast til annara landa. Þessi sömu lönd, sagði forsetinn, kenndu svo íbúunum að van- treysta og fyrirlíta nábúa sína. Andvíg endurreisninni. Truman benti á, hversu Bandaríkin hefðu gengið á und- an við stofnun samtaka, sem vinna ættu að því að koma á algerum friði í heiminum. Gagnrýndi hann harðlega þau lönd, sem ófáanleg eru til að styðja skipulagða endurreisn, á þeim grundvelli, að slíkt mundi hafa í för með sjer af- skifti af innanlandsmálum ein- staka þjóða. Líkti hann þessu við það, að maður vildi ekki gánga í verslunarf jelag við ann" an mann, sökum þess að hann óttaðist afskifti hans af einka- lífi sínu. Skilyrði þau, sem forsetinn taldi nauðsynlegt að uppfylla, til þess að friður fengi að hald- ast, eru þessi: 1. Að þjóðirnar sjeu fylgjandi þeirri meginreglu, að ríkisstjórn hvers lands byggi völd sín á fylgi þegnanna. 2. Að full virðing sje borin fyrir almennum mannrjettind- um. 3. Að ekkert sje gert til að. koma í veg fyrir útbreiðslu hugrtiynda og upplýsinga. 4. Að þjóðirnar komi sjer saman um efnahagskerfi, sem grundvallist á alheimssjónar- miði en ekki hagsmunum ein- stakra þjóða. Fórst á tundurdufli. París: — Franska olíuskipið St. Yves fórst nýlega, er það rakst á tundurdufl í Biscayflóa. Áhöfninni var bjai gað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.