Morgunblaðið - 05.07.1947, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. júlí 1947. J
ÖRVÆNTINGARORÐ
KOMMÚNISTA
SAGAN SEGIR, að þegar tek
ist hafði að mynda ríkisstjórn
á síðastliðnum vetri án þátt-
töku kommúnista, hafi einn
valdamaður þeirra látið svo
ummælt: ,,Nú höfum við misst
það, sem við höfum unnið síð-
ustu 6 árin“.
Sex árum áður en þessi orð
voru mælt, var hagur komm-
únista vissulega ekki álitlegur.
Aldrei auðvirðilegri en þá.
í ársbyrjun 1941 hjeldu kom
múnistar enn uppi fjandskap
við bandamenn til varnar við
ófrið nasista Þá hömuðust þeir
á móti ,,landráðavinnunni“, er
þteir svo kölluðu, og voru því
andvígir, að við seldum Bret-
tim afurðir okkar. Þá var enn
lifandi í hugum manna hin
•auðvirðilega framkoma komm-
únista í Finnlandsstyrjöldinni.
Hin labbakútslegu skrif Halld.
Kiljan Laxness, er ráðist var
aftan að Pólverjum. þegar neyð
jpeirra var mest, voru þá eigi
heldur fallin úr minni manna.
Af öllu þessu voru kommún-
íistar í upphafi árs 1941 í al-
gerðri einangrun með þjóðinni
og enginn ærlegur maður vildi
nokkur mök við þá eiga. Það
er þess vegna harla fast að orði
kveðið, að segja, að staða kom-
múnista nú eftir áramótin hafi
verið hin sama og rjettum sex
árum áður.
Segja sex ára vinning
glataðan
W
ir lýðræðislegum stjórnarhátt- |
um og ekki ætlað sjer meiri hlut
en raunverulegu fylgi þeirra
með þjóðinni nam.
En ekkert var þeim fjær
skapi. Þeir ákváðu að kúga þjóð
ina til hlýðni, að sýna í eitt
skifti fyrir öll, að ekki væri
hægt að stjórn þessu landi án
síns atbeina.
Þær tilraunir þeirra hafa
staðið síðustu vikurnar. Verk-
föllin eru þau vopn, sem bíta
áttu á almenning. En allt hefur j
komið fyrir ekki.
Hin almenna verkfallaalda,
sem Einar Olgeirsson boðaði á
Alþingi og í útvarpi, reis aldrei.
Kommúnistar hafa stuðning
nokkurra fjelaga. Sumra þeirra
að vísu mjög þýðingarmikilla.
En þeir hafa hlotið yfirlýsta
andstöðu mjog margra verka-
lýðsfjelaga ,og í fyrsta skifti
virða mörg þeirra fyrirmæli A1
þýðusambandsins að vettugi. I
þeim fjplögum, sem kommún-
istar hafa hrifsað til sín ráðin,
er vaxandi óánægja og sann-
færing um, að fjelagsmenn hafi
verið leiddir út í ófæru.
förnu hefir beinlínis orð
ið til þess, að þeir hafa misst
af því, sem þeim er kærast,
stöðunum handa burgeisum
flokks síns. Ef kommúnistar
hefðu sýnt alúð í störfum og
einhvern heiðarleik í andstöðu
mundu þeir sjálfsagt hafa feng
ið sæti í Fjárhagsráði. Fram-
kormi þeirra hefir hinsvegar
orðið til þess, að svifta þá full-
trúum í þessari þýðingarmiklu
stofnun og svo mun um fleiri
fara.
Ómögulegt er að eiga nokkra
samvinnu við þá, sem sífelt
sitja á svikráðum við aðra og
sjaldnast nota þekkingu sína og
aðstöðu almenningi til góðs,
heldur oftast til sundrungar og
til að vega aftan að þeim mönn
um, sem einhvern trúnað hafa
sýnt þeim.
Það er eðlilegt að kommún-
istar uni því illa, að vera svift-
ir stöðunum. Þar er komið að
hjartarótum þeirra Óttinn við
þann missi er skýringin á ör-
væntingarorðunum, um að nú
væri ávinningur síðustu sex
ára glataður.
Örvæntu um völdin.
En því eftirtektarverðari eru
ummælin. Þau lýsa sem leiftur
á nóttu upp örvæntingu þess
manns, sem er að hverfa frá
völdum, og veit að hann hefur
þannig farið með þau, að ekki
er líklegt að hann eigi aftur-
.kvæmt til þeirra.
Örvæntingarorðin eru að þessu
leyti fremur einkennandi um
persónulegt viðhorf en afstöðu
flokksins í heild. Engu að síður
eru þau einnig lærdómsrík
varðandi flokkinn sjálfan.
Atburðir síðasta árs hafa |
íært mönnum heim sanninn um
að eigi tjáir í íslenskum stjórn- \
málum að beita þeim ráðum,
er kommúnistaflokkurinn hafði
ætlað sjer drýgst til framdrátt-
ar. Þegar til lengdar lætur una
menn því ekki, að einn taki sjer
alræðisvald og ætli að halda
'Jþví með hótunum og ofbeldi.
Ofsi sá og líkamlegt ofbeldi,
sem kommúnistar sýndu í sam-
bandi við flugvallarsamning-
inn á s.l. hausti, spilti mjög mál
stað þeirra og veikti stöðu
'Jþeirra í augum almennings. —
Hóflausar kröfur, ofmetnaður
og tvöfeldni í samningum, varð
þeim að falli við stjórnarmynd-
unina. Hegðun þeirra var slík,
að menn sáu, að hún var ein
mesta hættan, sem steðjaði að
íslensku þjóðinni, og þessvegna
varð að bindast samtökum, um
að bægja henni frá.
Höfðu ekki vit á að breyta um
aðferð.
Ef kommúnistar hefðu kunn-
að að læra af reynslunni,
mundu þeir þegar hjer var kom
ið, hafa breytt um starfsaðferð.
Þeir mundu hafa lagað sig eft-
Höggið, sem missti marks.
Kommúnistar ætluðu sjer að
reiða eitt aðalhöggið að Alþingi
og ríkisstjórn með verkfallinu
á síldarbátum víðsvegar um
land. Fyrirætlun þeirra var sú,
að sjómenn ljetu ekki úr höfn
fyrr en búið væri að nema úr
lögum fyrirmælin um, að af síld
arafurðum skyldi taka fjeð,
sem ríkissjóður þarf að greiða
vegna ábyrgðar á öðrum fisk-
afurðum. A þenna veg ætluðu
kommúnistar að kúga Alþingi
og ríkisstjórn til að hverfa frá
rjettum lögum.
Frá þessari kröfu og öðrum
þeim, er nokkra þýðingu höfðu
urðu kommúnistar gersamlega
að falla, en setja í þeirra stað
innantómt orðaskvaldur.
Á sama stendur hvernig verk
föllin, sem enn eru, verða leyst.
Kommúnistar hafa þegar misst
af höfuðmarkmiði sínu. Þeim
hefur ekki tekist að veikja eða
sundra ríkisstjórninni. Þvert á
móti, þá eru nú fleiri íslending
ar en nokkru sinni fyrr sann-
færðir um, að hvað sem á kann
að dynja, þá sjeu kommúnistar
höfuðhættan í stjórnmálum
landsins.
Kommúnistar eru þess vegna
fjær því nú en nokkru sinni
áður, að kúga sig inn í ríkis-
stjórn. Slíkt mun þeim aldrei
takast. Aðrir munu ekki fást
til að taka upp við þá samstarf
fyrr en þeir hafa lært að vinna
að nýtilegum málum eftir rjett
um lýðræðisreglum. Þangað til
hlýtur einangrun lcommúnista
að aukast dag frá degi.
Missa af því, sem þeir sækjast
mest eftir.
Framferði þeirra að undan-
Víkingur og Akur-
nesingar gerSu
jafntefli
NÍUNDI og næst síðasti leik
ur Knattspyrnumóts Islands fór
fram í gærkvöldi á milli Akur-
nesinga og Víkings, og endaði
með jafntefli, 1:1.
Leikurinn var heldur daufur
og minnti meira á I.-flokks, en
meistaraflokksleik. Þó sýndi
markmaður Víkings ágætan
leik og virðist þegar komirm í
hóp bestu markmanna hjer, svo
ekki sje meira sagt. Víkingar
settu bæði mörkin í leiknum og
það síðara með góðfúslegri að-
stoð dómarans, sem var Hrólfur
Benediktsson. Ragnar Emilsson
skoraði fyrra markið hjá Akur-
nesingum seint í fyrri hálfleik,
en síðara markið setti vinstri
bakvörður Víkings hjá Víking-
um. Ilann teygði sig eftir
knettinum með hendinni og
snerti þann á vallarhelmingi
Akurnesinga. Dómarinn dæmdi
auðvitað aukaspyrnu á Víking
fyrir tiltækið, en Ijet taka hana
á vallarhelmingi Víkinga um
10 metrum nær Víkingsmark-
inu en brotið var framið. —
Bakvörðurinn, sem gerði hend-
ina, ætlaði að verja mark sitt
með því að skalla knöttinn, en
tókst ekki að lyfta honum nóg.
svo að hann lenti í hans eigið
mark.
Stigin standa nú þannig, að
Fram hefur 6 eftir 3 leiki. Val-
ur 6 eftir 4 leiki, KR 5 eftir 3
leiki og ÍA og Víkingur 1 hvort
eftir 4 leiki. Úrslitaleikurinn
fer franVá mánudag. — Þ.
Ilndirbúeingur al þátttöku
íslands í Olympíuleikunum
;• : • : : ■: 'ýi
ÓLYMPÍUNEFND íslands
hefir nú verið starfandi á annað
ár. Starfi hennar hefir hingað
til verið svo háttað, að segja
mætti, að það hafi farið fram
í kyrrþey, án þess þó að nokk-
ur dul hafi verið þar á. Hún
hefir snúið sjer til þeirra aðilja
— æði margra —, sem þörf gerð
ist, til þess að koma áhuga- og
nauðsynjamálum sínum í kring
— og orðið vel ágengt. Þakkar
hún þennan góða árangur vel-
vild og skilningi viðkomandi
aðilja á hlutverki hennar og
starfi. Nú mun þó verða nokk-
ur breyting á starfsháttum
nefndarinnar, að því leyti, að
hún mun bráðlega leita hlut-
verki sínu meiri stuðnings hjá
almenningi en hingað til. Ólym
píunefndin ætlar að stofna til
happdrættis á næstunni.
Um leið og nefndin snýr sjer
til almennings í þessu efni, er
rjett að geta helstu málanna,
sem hún hefir haft með hönd-
um fram að þessu. Þau eru
þessi:
Stofnun og sameining skipu-
lagsskrár fyrir Olympíusjóð Is-
lands. Sjóður þessi er stofnaður
í þeim tilgangi, að tryggja þátt-
töku íslendinga í Olympíuleik-
unum- í framtíðinni. Sjóðurinn
er stofnaður með 10% af þeim
tekjum, sem Olympíunefnd afl-
ar hvert sinn, sem Islendingar
taka þátt í Olympíuleikunum.
Ætti með þessu móti að safnast
svo í sjóðinn, að hann gæti kom
ið að notum innan mjög langs
tíma.
Olympíunefndin sneri sjer
snemma til hæstv. Alþingis og
bæjarstjórnar Reykjavíkur með
beiðni um styrkveitingu til
starfs nefndarinnar. Var erindi
hennar vel tekið hjá báðum að-
ilum og hinn umbeðni styrkur
veittur. Er Olympíunefndinni
vel ljóst, hve mikils virði stuðn
ingur þessara aðilja er öllu
starfi hennar og mun kappkosta
að bregðast ekki því trausti,
sem henni er sýnt í þessu.
Nefndin hefir sent út boðs-
brjef til allra fjelaga innan vje-
banda Í.S.Í., óskað samvinnu
þeirra að undirbúningi og þjálf
un hæfustu íþróttamannanna
og vitneskju um hæfni þeirra
og getu. í brjefinu var einnig
skýrt lauslega frá starfssviði
nefndarinnar.
Nefndin hefir látið byrja að
þjálfa nokkra ’ íþróttamepn,
meðal þeirra, sem hæfastir eru.
Jón Pálsson, sundkennari, sem
Olympíunefnd hefir ráðið til að
þjálfa kappsundsmennina, er
þegar tekinn til starfs við undir
búning þeirra. Ennfremur hefir
Olympíunefndin fengið hingað
sænskan þjálfara, O. Ekberg,
til þess að þjálfa frjálsíþrótta-
menn okkar undir Olynipíu-
keppnina. Hefir hr. Ekberg nú
eftirlit með þjálfun frjálsíþrótta
manna hjer í bænum í sam-
vinnu við kennara fjelaganna,
en mun síðar taka við þjálfun
hinna hæfustu þeirra.
Olympíunefndin hefir skip-
að fulltrúa fyrir sig í London,
Björn Björnsson, stórkaupm.
Hefir starf hans verið nefnd-
inni mikilsvert.
Nefndin er nú að láta prenta
mjög smekkleg merki í Eng-
landi, Olympíumerki, sem verða
látin sem kvittun og viðurkenn
ing til- þeirra aðilja, sem styrkja
starf nefndarinnar fjárhagslega
en verða ekki seld. Ennfremur
á að gera Olympíunælur, sem
gert er ráð fyrir að selja al->
menningi.
Eins og þegar er sagt, ætlar
01ymp,íunefndin að stofna til
happdrættis, eins og fleiri að-
iljar, erstarfa að þjóðþrifarnál-
um. Hinn fyrsti vísir til þess
var það, að einhver ágætur og
velhugsandi áhugamaður um
íþróttamál vann aðaldráttinn í
happdrætti KR og ánaínaði
hann Olympíunefndinni til
happdrættisstofnunar. Vegna
hinnar miklu samkepni á þessu
sviði, treystist nefndin þó ekki
til að fara á stað með það fyrir-
tæki, nema eitthvað fleira yrði
á boðstólum — þótt hún hins-
vegar væri hinum ágæta og ó-
þekkta gefanda mjög þakklát
fyrir hugulsemi hans. Þegar svcs
var komið málum, ákvað nefnd
in að hafa einn vinninginn
fyrsta flokks 6-manna Hudson
bíl. Þriðji vinningurinn í happ-
drætti nefndarinnar, verður
frí ferð á Olympíuleikana og
ókeypis aðgangur að öllum
leikunum.
Olympíunefndin hefir gert
mikið, með aðstoð fulltrúa
nefndarinnar í London og á
annan hátt, til þess að koma
íslensku glímunni að á Olym-
píuleikunum sem sýningar-
íþrótt. M. a. með því að senda
kvikmynd af glímunni til framt
kvæmdarnefndarinnar. Það mál
er enn óútkljáð hjá framkvæmdi
arnefndinni og verður Olym-
píunefnd íslands látin vita um
úrslitin, þegar þau eru fullvís
orðin.
Olympínuefndin hefir skrif-
að Eimskipafjelagi íslands og
Skipaútgerð ríkisins og spurst
fyrir um farkost til leikanna,
bæði fyrir menn þá, sem nefnd-
in þarf að koma þangað og ef
til vill fleiri, en ekki getað
fengið loforð um hentugar ferð-
ir ennþá, en erindi nefndar-
innar var tekið af vinsemd og
skilningi.
Þetta er aðeins fáorð skýrsla
um helstu málin, sem Olympíu
nefndin hefir haft — og hefir
flest enn — til meðferðar. En
auk þessara aðalmála er fjöldi
annara mála, sem ekki þykir
ástæða til að skýra frá í þessus
fáorða yfirliti.
Að endingu skal hjer skýrt
frá mikilvægasta málinu, sem
Olympíunefnd íslands hefir tek
ið ákvörðun í: Nefndinni hafa
borist þátttökutilboð til íslend-
inga í Olympíuleikunum f
London á næsta sumri. Olym-
píuncfndin hefir tekið báðum
þessum boðum með þökkum og
Framh. á bls. 11. ^