Morgunblaðið - 06.07.1947, Síða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
Norðankaldi Ijettskýjað.
LESBÓK fylgir ekki me3
blaðinu í dag. — Reykjavíkur-
brjef á bls. 7.
Hver verður
Islandsmeistari
í knattspymu?
ÚRSLITALEIKUR Knatt-
spyrnumóts íslands fer fram á
íþróttavellinum á mánudags-
kvöld á milli Fram og KR.
Leikar standa nú þannig, að
Fram hefur 6 stig eítir 3 leiki,
Valur hefur 6 stig eftir 4 leiki
og KR hefur 4 stig eftir 3 leiki.
Fram nægir því jafntefli við KR
til þess að vinna mótið. og ís-
landsmeistaratitilinn, en ef KR
vinnur verða þessi þrjú fjelög
jöfn að stigatölu, 6 stig hvert,
og verða að keppa að nýju. Vík-
ingur hefur 1 stig og Akurnes-
ingar 1 stig.
prentari, i
fyrverandi starfsmaður Morg- '
unblaðsins ljest að Vífilstöðum j
í gærmorgun. Angantýr hafði j
verið rúmfastur í tæpt ár.
Nýlt skip til landsins
NÝTT 340 smálesta skip kom
til Akureyrar í vikunni. Það var
bygt í Englandi og er ætlað til
síldveiða og vöruflutninga.
Skipið hefur 540 ha. Mirrlees
dieselvjel og er ganghraði þess
11,5 mílur. — Eigendur- eru
Straumey h.f. og er Hreinn Páls
son framkvæmdastjóri fjelags-
ins.
Skipstjóri á síldveiðum verð-
ur Haraldur Thorlacius. •
I ALÞJÓÐA-OLYMPÍUNEFND-
IN hjelt fund í Stokkhólmi í
síðastliðnum mánuði, til þess að
ganga endanlega frá ýmsu, er
snertir næstu leiki, sem haldnir
verða í London á næsta ári, og
ákveða stað fyrir leikana 1952.
Varð Finnland fyrir valinu fyrir
alt nema vetraríþróttirnar, en
þeim er ætlaður staður í Noregi.
Auk þess voru störf nefndarinn-
ar að ganga frá ýmsum þeim
málum, er snerta áhugamanna-
reglurnar (amatör), en þær eru
víða á reiki, bæði hjer og í
Rússíá.
Alþjóða-nefndin, sem heíur J
yfirumsjón með Olympíuleikun-'
um var stofr.að í Svarta skóla j
(Sorbonne) í París 23. júní 1894
og fyrstu leikirnir — í nútíma
skilningi-----voru haldnir í
Aþenu 1896, og hafa síðan ver-
ið haldnir f jórða hvert ár, nema
styrjöld hafi geysað. Þeir síð-
ustu voru haldnir í Eerlín 1936.
; Síðastliðið ár var haldinn sjer
J stakur fundur í Svisslandi til
minningar um að 50 ár voru lið-
in frá leikunum í Aþenu. Á þeim
| fundi var Benedikt G. Waage
kjörinn fulltrúi íslands í nefnd-
inni, ekki vegna þess, að hann
er forseti í. S. í., heldur fyrst
og fremst af því að hann er í-
þróttamaður í þess orðs besta
skilningi.
,,Bennó“ er vel að þessum
heiðri kominn — en að vera
kjörinn í C. I. O. (Comité Inter-
national Olympique) er mesti
heiður, sem nokkrum íþrótta-
manni getur hlotnast. Ben G.
Waage hefur, að öllum öðrum
ólöstuðum, unnið betra og van-
þakklátara starf en nokkur ann-
ar núlifandi íþróttamaður.
Myndin hjer að ofan er frá
fyrnefndum fundi í Stokkhólmi.
Á myndinn er B. G. W. annar
frá hægri, en við hlið hans er
fulltrúi Grikkja. — Fyrir enda
þess borðs er Lord Burleigh,
formaður ensku nefndarinnar.
En sá sem er á miðri myndinni
er umboðsmaður Norðmanna að
færa fram óskir um, að næstu
leikar fari fram í „ættlandi
skíðaíþróttarinnar."
lleUji frá Brennu.
Baitdarískur sjer-
fræðinpr annast
énýfingu sprengl-
kúina
VEGNA kvartana frá ýmsum
aðíljum út af sprengikúlum, er
fundist hafa í nágrenni Reykja-
víkur og víðar og ekki hafa
sprungið, sneri utanríkisráðu-
neytið sjer til ameríska sendi-
ráðsins og óskaði eftir að Banda
ríkjastjórn sendi hingað til
Iands sjerfróðan herforingja til
að annast brottflutning og ónýt-
ingu slíkra sprengja. Var þess-
ari málaleitun vel tekið, og er
sjerfræðingur kominn hingað til
lands. Það eru því tilmæli ráðu-
neytisins til ailra, sem orðið
hafa varir við slíkar sprengi-
kúlur, að þe.ir geri tafarlaust að-
vart til næsta lögreglustjóra eða
hreppstjóra og greini sem ná-
kvæmlegast, hvar sprengjurnar
er að finna. Sjerfræðingurinn
mun aðeins hafa hjer skamma
viðdvöl.
Frjettatilkynning
>, frá utanríkisráðuneytinu.
Drukknar í Thames.
Londort: — Nýlega drukknaði 11
Sra gamall drengur, sern var að baða
sig í árni Thames. — Var þetta í
grennd við barnaskóla einn. en þaðan
bafði drenguriiin stolist til að baða 1
íág.
Aðgerðir ríSrisstj'órnarinnar
vekja fögnuð i Horegi
ÞÆR RÁÐSTAFANIR ríkisstjórnarinnar, að senda varðskipið
Ægir til Bergen, hafa vakið mikinn fögnuð í Noregi. — Frá þessu
er sagt í símskeyti, sem íslenskú Snorranefndinni barst frá
þeirri norsku í gær.
í skeytinu segir ennfremur,
að ákveðið sje að hin fyrirhug-
aða heimsókn frá Noregi og öll
hátíðahöld í sambandi við af-
hendingu og afhjúpun Snorra-
líkneskisins, muni fara fram
t eins og í upphafi var ráð fyrir
gert.
í skeyti sínu lýsir nefndin á-
nægju sinni yfir þeirri ráðstöf-
un, að senda Ægir eftir líknesk-
inu. Hafi sú ráðstöfun þótt mjög
heppileg. Það veki mikinn fögn-
uð þar í landi að úr vandræðun-
um hafi verið leyst á þennan
hátt.
Þokur hamla síld-
veiðinni
FYRIR Norðurlandi var í gær
dag slæmt veiðiveður. — Var
bræla og þoka á miðum og fóru
bátar yfirleitt ekki út, en liggja
við bryggjur.
Samningaumleiianir
hjeldu nær óslilið
áfram á laugardag
SAMNINGAUMLEITANIR
milli verkfallsaðila hófust á
föstudagskvöld að nýju eins og
áður hefir verið skýrt frá.
Hjeldu fundir óslitið áfram
fram á laugardag. En þá var
hlje á samningaumleitunum, og
samningamenn fóru heim til
sín um stund. En gengu aftur
til funda kl. hálf tvö.
Þegar blaðið fór í prentun
kl. 4 e. h. í gær, var engin nið-
urstaða fengin og ekkert vitað
eða ekkert látið uppi um það
hvert útlit kann að hafa verið
á því, hvort nokkurt samkomu-
lag fengist að þessu sinni.
Fjekk 9G0 mál
við Skaga
í FYRRINÓTT kom til Djúpa
víkur m.s. Narfi frá Akureyri,
með 900 mál síldar. Síldin
veiddist austan Skaga seinni-
part dags á laugardag.
Skipstjórinn, Guðmundur
Jörundsson hefir skýrt svo frá,
að hann telji ,,síldarlegra“ en
verið hefir undanfarin sumur.
Byggir hann skoðun sína m. a.
á því, að þessi 900 mál veiddust
í óhagstæðu veiðiveðri.
Þálttaka áusfurríkis í
Parísarráðsiefn-
unni líkleg
Vínarborg í gær.
ÞRÁTT fyrir andstöðu komm
únista, var alment búist við því
hjer í Vínarborg í dag, að aust-
urríska stjórnin mundi þiggja
boð Frakka og Breta um þátt-
töku í Parísarráðstefnunni, sem
24 ríkjum er boðið til og f jalla á
um aðstoöartillögur Bandaríkj-
anna.
Líklegt er talið, að stjórnin
komi bráðlega til fundar, til
þess að taka ákvörðun um boð-
ið. — Reuter.
Söngur Einars
Krisljánssonar
vekur leikna hrifn-
ingu í Höfn
Kaupmannahöfn í gær.
Frá frjettaritara vorum.
EINAR KRISTJÁNSSON,
ópersöngvari söng í hljómskála-
sal Tivoli í Kaupmannahöfn í
gærkvöldi (föstudag). —• Blaðið
„Socialdemokraten“ segir, að
söngurinn hafi vakið feikna
hrifningu áheyrenda. — Einar
Kristjánsson sje frábær söngv-
ari, sem hafi afburða tenór, und
urfagra ítalska rödd, sem hann
beiti með snilli, en aldrei þó á
kostnað hins músikalska. Hann
sje fyrst og fremst óperusöngv-
ari, og minni rödd hans 4
fremstu óperusöngvara heims-
ins. En hinsvegar sje það mjög
undravert, að hann skyldi geta
gleymt óperusöngnum, er hann
túlkaði Schubertsöngva. — Þar
hafi músikin sjálf einnig setið
í öndvegi. „Nacht und Tráume“
hafi verið músikölsk fegurðar-
opinberun.
Nýframhaldssaga
I DAG hefst hjer í blaðinu ný
framhaldssaga, sem á ensku
heitir „The Ghost and Mrs.
Muir“, en hefur verið nefnd
„Vofan og frú Muir“ á íslensku.
— Þetta er sjerkennileg saga,
sem hefir hlotið miklar vinsæld-
ir í hinum enskumælandi heimi.
Hún segir frá ekkju, sem tekur
á leigu gamalt hús við strönd-
ina, sem enginn vildi búa í af
því að það gekk sá orðrómur að
þar væri reimt. En hún Ijet það
ekki á sig fá og rataði fyrir
bragðið í margskonar æfintýri.
Það var rjett, að það var
reimt i húsinu og vofan, sem
þar var á ferð er ein aðalsögu-
hetjan. Gamall skipstjóri ,sem
verður besti vinur frú Muir.
í öllu reifaraflóðinu mun les-
endum framhaldssögunnar vafa
laust tilbreytni í að lesa þessa
sögu, sem er frumlegri, en hin
sífeldu og endurteknu söguefni.
Það er óhætt, að ráða mönnum
til að fylgjast með þessari sögu
frá byrjun og þeir, sem það gera
munu fylgjast með henni til
söguloka.
Vofan og frú Muir verður
framhaldssaga sumarsins og
það verður mikið um hana rætt.
Nýkvikmyndáland-
búnaðarsýiiingunni
UM HÁDEGI í gærdag höfðu
um 33.000 sótt landbúnaðarsýn-
inguna og var aðsókn þá enn
að glæðast. Var frumsýning á
nýrri íslenskri kvikmynd sem
heitir „Mjólkuriðnaður á íslandi
1947.“
í dag verður mynd sú sýnd kl,
8 og 9. Klukkan 5 verða kyn-
bótanautin úr Hreppunum sýnd
og allan daginn verður sýndur
á svæðinu happdrættishesturinn
sem er sonur Skugga.
Allmargir erlendir gestir, sem
sótt hafa sýninguna hafa látið í
ljósi ánægju sína yfir henni.