Morgunblaðið - 23.07.1947, Síða 8

Morgunblaðið - 23.07.1947, Síða 8
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikuclagur 23. júlí 1947 Bresk-bandaríska hernáms- svæðið hlynl endnrreisnar- s BERLlN í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. YFIRMENN hernámsliðs Breta og Bandarkjamanna í Þýskalandi fluttu í dag ræður, er efnahagsráð bresk-bandaríska hernámssvæðisins kom saman til fundar. Að ræðum þeirra loknum, samþykkti ráðið ályktun þess efnis, að Þjóðverjar \dldu fúslega senda sjerfræðinga á hverja þá ráðstefnu, sem haldin yrði um endurreisn Evrópu, og lýsti yfir fylgi sínu við endurreisnartillögur Marshalls utanríkisráðherra. Erfiðustu vandamálin. Shol'to Douglas, yfirmaður breska hernámsliðsins, sagði meðal annars, að alvarlegustu vandamál bresk-bandaríska hernámssvæðisins lytu að mat vælum, kolum og flutningum. Taldi hann nauðsynlegt að auka kolaframleiðsluna sem fyrst, þannig að lönd þau, sem keyptu kol frá Þýskalandi fyr ir styrjöldina, yrðu þeirra nú aftur aðnjótandi. Ilann ljet þess loks getið, að aukin fram leiðsla heimafvrir og bætt dreyfing matvæla mundi hafa í för með sjer aukinn matar- skammt. 40 miljónir. Clay, yfirmaður bandariska hernámsliðsins, benti meðlim um efnahagsráðsins á, að þeir hefðu nú í hendi sjer efnahags lega afkómu meir en 40 miljón manna. Þá gat hann þess og, að Bandaríkin hefðu nú lofað að senda 300,000 tonn af mat- vælum mánaðarlega til her- námssvæða Breta og Banda- ríkjamanna. Tveir þriðjungar dollaralánsins úlleknir TILKYNT hefur verið í Lon- don, að breska stjórnin hafi enn tekið út 150 þúsund dollara af láni því, sem Bandaríkjastjórn veitti Bretum í fyrra. Nemur út- tekt Breta í þessum mánuði ein- um 400 þúsund dollurum. Hafa þá samtals verið teknir út tveir þriðjungar allrar lánsupphæð- arinnar, en lánið átti að endast Bretum út árið 1948. — Reuter. «-------------------------- — Heðai annara orða Framh. af bls. 6 til skyldmennanna og vinanna 1 ljóðaformi. Okkur hvítum mönnum virð ist að trúarbrögð og skoðanir þessarra manna hafi verið ó- trúlega grimdarleg og okkur hryllir við ef við lesum sum- ar lýsingar úr fornbókmentum Japana. En eins verður að gæta. Samuraiar voru flokkur manna, sem hafði styrjaldir að atvinnu. Og þegar svo er verð ur lífið ekki eins mikils virði. Aður en við norrænir menn förum að dæma þessar aust- rænu þjóðir og hrópa upp um grimd þeirra, ættum við að minnast þess, að jafnvel okk- ar eigin forfeður voru eins grimmir þegar því var að skifta. Nægir þar að minnast á víkingana, sem einskis svif- ust á ránsferðum. MATVÆLI HANDA ÞJÓÐVERJUM LONDON — Fyrstu vikuna í júní voru flutt 141.000 tonn af matvæl- um til hafnarborganna Bremen, Hamborgar og Emden. Þetta kost- aði Bretland og Bandaríkin yfir 4.500.000 sterlingspund. i WIIMWIIIWMHWIWlllMllllWlllOTiailMWHMWlUIMIWMriW Stofur I 2 góðar stofur nálægt 1 miðbænum eru til leigu 1 fyrir einhleypa yfir tíma' f bilið frá 1. ágúst til 1. I okt. Stofurnar verða leigð f ar með vönduðum hús- [ pögnum og ræstingu. Til- j boð merkt: „Stofur •— \ 879“ sendist afgr. Mbl. j fyrir 27. þ. m. (Framhald af bls. 2). ur hafa ekki íæðst, og jeg vona að bænum takist að forðast þær í framtíðinni. Það er erfitt að komast hjá pví að minnast á eitt atriði — að vísu stórt atriði — og það er hin glæsilega og fagra kven þjóð. Það hefir bænum áskotn- ast að kostnaðarlausu, en af því getur hann stært sig engu minna en konurnar af hinum fögru silfurmunum sínum. Island og Reykjavík hafa færst oss miklu nær en var fyr- ir stríðið. A fáeinum klukku- stundum er hægt að fljúga hingað frá hinum mikla flug- völl frá Sóla-flugvelli. Sam- bandið er ekki lengur erfitt vegna fjarlægðar. Og jeg von- ast til þess, að Snorralíkneskið sem innan skamms verður reist í Bergen — og horfa mun í vest ur — verði ekki einmana, held Ur fái oft að heilsa löndum sínum. Bjarni Gíslason hefir sagt: „Þjóð, sem á sjer viljastyrk og óskar sjer hvorki hvíldar nje athafnaleysis, henni er engin hætta búin, þótt sum vanda- mál berji að dyrum“. — Af- komendur Skarphjeðins — mannsins, sem ekki vissi til hvers sjer skyldi bjargað — óttast heldur ekki framtíðina, því að þeir vita að með starfi og samheldni munu þeir kom- ast lengra. Og með þessum orðum vil jeg fyrir hönd gestanna lýsa óskum um áframhaldandi heill og framfarir Reykjavíkurbæj- ar, ósk um að framvegis megi einnig eitthvað nýtt gerast á hverjum degi til heilla fyrir land og bæ. Kveðja frá Oslo. Forseti bæjarstjórnar, Arn- finn Vik, flutti kveðju frá Oslo til Reykjavíkur og mælti nokkur vingjarnleg orð. Einnig flutti þingforseti Jakob Lothe kveðju frá Stórþinginu. Hann mintist líka á landnáms- mennina, sem fóru á litlum skip- um yfir ókunnugt haf til ókunns og óbyggðs lands til þess að setj- ast hjer að. Hann talaði um frels isbaráttu Norðmanna eftir 9. apríl 1940. Hann var ásamt mörgum öðrum fyrirmönnum Noregs í loftvarnabyrgi í Elver- um. Það var þá sem sagt var, að frelsi væri líf þjóða. Þá vissu Norðmenn það ekki eins vel og nú, hve þau orð eru sönn. Hann talaði um Gulaþingslög, sem voru fyrirmynd að Úlfljótslög- um, er sett veru á Alþingi, er íslenska lýðríkið var stofnað. Ræddi hann um ýms atriði rjett- arskipunarinnar, til dæmís það, hve kvenþjóðin var frjáls, en hjer var upphaf kvenfrelsis í heiminum. Gunnar Thoroddsen þakkaði ræoumönnum. En er leið fram yfir nón, gerð ust menn ókyrrir 1 sölum Val- hallar, sökum þess hve veður I var gott. Vildu menn heldur lit- ast um á hinum fornhelga sögu- stað. Þar var svo dvalið þangað til klukkan að ganga fimm. — Menn dáðust mjög að náttúru- fegurðinni og spurðu mikið um hina merkustu staði. Voru menn sammála um, að þeir hefðu ekki getað hugsað sjer Þingvelli eins tilkomumikla og þeir voru í sumarsólinni í gær. Rólegra í Burma London í gærkvöldi. STJÓRNARFULLTRÚI Burma í London lagði í dag af stað flugleiðis !il Rangoon, höf uðborgar Burma. Áður en hann steig upp í flugvjelina sagði hann blaðamönnum, að ástandið í Rangoon væri nú rólegra. svo að lögreglu virtist ekki ofvaxið að halda uppi lög um og reglu. Sú aðdróttun' kommúnista í Burma, að Bret ar mundu að emhverju leyti hafa staðið bak við morð ráð- herranna væri ótrúlega fjar- stæðukennd. Bretum væri á engan hátt hægt að kenna um þann verknað. — Reuter. ÁVARP PÁFA RÓM: — Páfinn hefur sent verk- lýðsmálaráðstefnunni í Genf á- varp. Segir hann þar, að allar þjóðfjelagslegar framfarir verði að byggjast á viðurkenningu á rjettindum einstaklingsins, hver svo sem staða hans í þjóðfjelaginu kunni að vera; á viðurkenningu á samábyrgð einstaklinga þjóðfje- lagsins og á nauðsyn þess að setja þjóðarheill ofar einstaklingshags- munum. Fimm mínúína krossgáían Lárjett: — 1. skemmast — 6. boiðandi — 8. tveir eins •—■ 10. söngfjelag - 11. sljettir - 12. fangamark — 13. tveir eins — 14. hamfletta — 16. afla. Lóðrjett: •— 2. kný — 3. mathákur — 4. frumefni — 5. fuglar — 7. bóla -<*- 9 kyn — fæðu 14. frumefni — 15. hvilt. Lausn á síðustu krossgátu:. Lárjelt: — 1. safír — 6. mas — 8. ér —10. óp 11. reyfari — 12. KK — 13. il — 14. agi — 16. galli. Lóðrjett: — A. M. — 3. farfuglar — 4. ís — 5. verka — 7. spila — 9. rek — 10. óri — 14. AA — 15 il. S' ^ 9 uom vestur um land til Akureyrar laugardaginn 26. þ. m. Tekið á móti flutningi á allar venju- legar viðkomuhafnir milli Patreksfjarðar og Akureyrar í dag og fram til hádegis á morg un. Skipið kemur við á Sandi, Ólafsvík, Stykkishólmi og Flatey vegna pósts og farþega. Pantaðir farseðlar óskast sótt- ir á morgun. m.b. N A N N A Tekið á móti flutningi til Snæfellsneshafna, Stykkishólms og Flateyjar í dag. Esja Brottför kl. 15 í dag. X-f £ Efiir Roberl Storor ' PHlL, TBE D.A. > QOT A LETTER TMl^ M0RNINQ,,. IT WA5 5UPP0GED TO’VE BEEN WRlTTEN BV PLEED/ BLA/V1IN6 vou— y &>\W WELL.THE EMANCIPATINQ - BUT IT WA<5 P05TED AFTER PLEED WA$ MURDEREO, WHlCH PR0VE4 THAT 50ME0NE TRIED 70 FRAME V0U ! FEEL FIT TO QET 0ACK v INT0 HARNE^? THE D0C 'SAVÍ ÍM A& FlT A& A BULL FIDDLE ! I WON'T RE5T TILL I CATCH UP WlTH THE DIRTV 5CUM THAT O / LET'é PULLED 7HIS CAPERÍ ^ DETECK, BY HECK! Lögregluþjónninn: Þjer eruð frjáls aftur, Corri- gan. Bróðir yðar er frammi. Bing: Opinberi ákær- andinn fjekk brjef í morgun. Svo átti að líta út sem það væri skrifað af Pleed, og sökinni var skellt á þig. En það var sett í póst eftir að Pleed var myrtur, en það auðvitað sannar það, að ein- hver var að reyna að fá þig dæmdan saklausan! Ertu reiðubúinn að taka til starfa ,aftur. Phil: Læknirinn segir, að mjer sje alveg batnað! Jeg skal ekkj hætta fyr en jeg næ í þorparana, sem standa á bak við þetta allt saman.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.