Morgunblaðið - 29.08.1947, Qupperneq 1
34. árgangur
194. tbl. — Föstudagur 29. ágúst 1947.
ísafoldarprentsmiðja h.í.
II miljónir manna hafa tekið
þátt í skærum í Punjah
LAIIORE í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
10—15 þús. menn hafa verið drepnir í skærunum í Punjab
á undanförnum þremur til fjórum vikum. í rauninni hefur
geisað mikil borgarastyrjöld
manna hafa átt þátt í.
Flóttamenn.
1 miljón manna hefur verið
rekinn úr húsum sínum og er
nu kominn á vergang. Mikill
flóttamannastraumur hefur ver
ið til New Delhi og að öðru
leyti miklir mannflutningar
milli austur og vestur Punjab.
Landamæranefndin, sem á að
ákveða tii fullnustu skipting'u
landsins milli Indlands og
Pakistan starfar nú af fullum
krafti, en skiptingin virðist
ætla að verða mikið meira verk
en áður var talið.
Sikharnir.
Mestu erfiðleikunum valda
Sikharnir, sem vilja stofna sjer
ríki. Hafa þeir komið á fót
sterkum herfylkjum, sem fara
um landið með báli og brandi.
Hersveitum þeirra er stjórnað
á hermannavísu og fara þær á
milli þorpa múhameðstrúar-
manna og brenna heil þorp nið-
ur.
Jinnah er nú kominn til La-
hore, og á þar viðræður við
fylkisst j órnirnar.
t
M. Saw ákærður
fyrir ráðherra-
morðin
ÁKVEÐIÐ hefur verið að for
ingi Myochit flokksins í Burma
U. Saw verði dreginn fyrir dóm
ákærður um morðið á 6 ráð-
herrum. Liggja nú fyrir mikil
sönnunargögn gegn honum og
er talið víst, að hann verði
dæmdur sekur.
Fyrir rjetti eru sem meðsekir
fleiri leiðtogar flokksins, þar á
meðal foringi flokkshersins
Maung San. — Reuter.
Hnattflupiennimir
í írlandi
BANDARÍSKU hnattflugs-
mennirnir Truman og Evans
sem komu hjer við á Piber Club
flugvjelum sínum eru nú komn-
ir tfl írlands. Þeir fóru hjeðan
í fyrrakvöld kl. 9 og komu til
Belfast í írlandi klukkan 8,20.
Samkvæmt flugáætlun þeirra,
er var til Prestvíkur, voru þeir
hálftíma á eftir áætlun. Um
ástæðuna fyrir því að þeir lentu
ekki í Prestvík er ekki vitað.
Ferðin til Belfast hefur því
gengið að óskum.
um allt Punjab sem 8 milljónir
<♦>-------------------------
Flugslys í Noregi
Margir farast
Osló í gær.
MIKIÐ flugsiys varð í Nor-
egi í gær, þegar norskur flug-
bátur rakst á fjallshlíð í Norður
Noregi rjett hjá Lofoten. Allir,
sem með flugvjelinni voru 27
farþegar og átta manna áhöfn
fórust.
Flakið hefur fundist og sjest
að flugyjelin hefur klofnað
sundur eftir miðju og orðið
sprenging í henni.
Flugvjelin var að fljúga á
flugleiðinni frá Oslo til Tromsö
—Reuter.
BrauSskamfur enn
minkaður í Frakk-
landi
París í gær.
FRANSKA stjórnin hefur
sett á ströng hegningarákvæði
til að 'iafnema allan svartan
markað úr landinu. Verða
strangar refsingar fyrir öll kaup
og sölur á svörtum markaði,
allt upp í fimm ára fangelsisvist
og 5 milj. franka fjársekt.
Ramadier forsætisráðhérra
Frakklands sagði blaðamönn-
um á fundi sem hann átti með
þeim í dag, að uppskeruhorfur
væru svo slæmar í haust, að
engin líkindi væru til að Frakk-
land framleiddi nema % af því
hveiti, sem þeir þyrftu á að
halda. Ný reglugerð hefur ver-
ið sett á þar sem segir, að brauð
sölubúðir skuli vera lokaðar
þrjá daga í hverri viku.
Hann sagði, að stjórnin væri
ákveðin í að taka á næstunni
fastari tökum á fjárhagsmálum
þjóðarinnar, sem væru nú orð-
in alvarleg mjög. — Reuter.
Japanir verða
afvopnaðir
BRESKU samveldislandaráð-
stefnunni um væntanlega frið-
arsamninga við Japbn var hald-
ið áfram hjer í Canberra í dag'.
Er sýnt, að fulltrúarnir allir
eru algerlega sammála um af-
vopnun Japana, að þeim verði
bannað að framleiða vopn, her-
skip og flugvjelar og auk þess
að þeir fái ekki að gera neinar
tilraunir með atomorku.
ARABAR HÓTA HÖRÐU
Leiðlogi indonesa
Segjast þeir muni taka
upp vopn í Palestínu
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SAMTÖK ARABA í London sendu í dag út frjettatil-
kynningu, þar sem Bretar eru varaðir við því, að Arabar í
Palestínu muni ekki draga það mikið lengur, að taka upp vopn
„til varnar lífi sínu og eignum“. Er tekið fram í tilkynningu
þessari, að Bretar einir verði ekki fyrir tjóni af völdum of-
beldismanna í Palestínu, heldur einnig Arabar.
LEIÐTOGI índónesa, sem nú
hafa kært Ilollendinga fyrir
Oryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, sjest hjer á myndinni
(með gleraugu). Hann heitir
dr. Sokarno, en með honum á
myndinni er nánastí samstarfs
maður hans, dr. Gani, en Hol-
lendingar tóku Gani til fanga
fyrir skömmu.
FRIÐARSAMNINGARNIR.
LONDON: — Einn af tals-
mönnum bresku stjórnarinnar
hefir tjáð blaðamönnum, að til
vandræða horfi, sökum þess, að
Rússar vilji að bandamenn
samþykki ekki friðarsamninga
við fyrverandi óvinaríki, fyr
en þau sjálf hafa gert það.
Óánægðir með
mannkynssöguna
FRJETTARITARI Associated
Press í MðBkva símar um síð-
ustu helgi að stjórnarblaðið
, Pravda“ lýsi vanþóknun sinni
á þeim mönnum, sem hingað til
hafi skrifað kenslubækur í
mannkynssögu fyrir rússneska
jskóla. Þeir hafi, segir blaðið,
látið áróður vestrænu þjóðanna
hafa altof mikil áhrif á sig. T.
d. hafi þeir haldið fram hug-
vitsmönnum Vesturlandanna á
kostnað hinna rússnesku.
Segir í sömu grein, að upp-
götvanir Marconi, Edison,
'Stephensons og Morse hafi ekki
yerið annað en eftirhermur, því
rússneskir vísindamenn hafi á
undan þessum mönnum fundið
upp glóðarlampann loftskeytin
ritsímann og eimreiðina.
350 gr. af keti á viku
lý spamaðaráæflun bresku stjémarinnar
LONDON í gær.
Einkaskeyti 'til Morgunblaðsins frá Reuter.
BRESKIR borgarar munu, þar til öðruvísi verður ákveðið,
fá að kaupa aðeins um 350 grömm af kjöti á viku. Er þetta í
sambandi við hina nýju efnahagsáætlun stjórnarinnar, en sam-
kvæmt hinum ,,jákvæðu“ liðum áætlunarinnar á að auka fram-
leiðslu og útflutning til muna og draga úr dollaraeyðslunni.
^ í frjettatilkynningunm, sem
vakið hefur mikla athygli, segir
meðal annars:
King David atburSurinn
„Þegar King David hótelið í
Jerúsalem var sprengt í loft upp,
ljetu um 70 Arabar lífið. Hvert
nýtt ofbeldisverk Gyðinga kost-
ar einn eða fleiri Araba lífið
irásir á þorp
Arabasamtökin í London
leggja áherslu á, að ofbeldis-
menn hafi að undanförnu beint
ofsóknum sínum beint gegn Ar-
öbum. Er bent á það sem dæmi,
að nú nýlega hafi verið gerðar
árásir á þrjú arabisk þorp og
nokkrir af íbúum þess myrtir.
Hretar ásaka&ir
„Það, sem meira er“, segir og
í tilkynningunni, „er, að Arab-
ar fá ekki gleymt því, að of-
beldismennirnir stefna að því að
ræna Araba landi sínu og gera
það að Gyðingaríki“. Eru Bretar
ásakaðir um að vera undanláts-
samir í viðskiptum sínum við
Gyðinga, en það hafi aftur aukið
hróður ofbeldismannanna og
^flt þá á ýmsan hátt.
Haganah
Bretar, segir ennfremur,
halda því fram, að sumir of-
beldisflokkanna sjeu í raun og
veru friðsamleg samtök. — Sje
hinn öflugi Haganah-ílokkur
þar einna helst tekin til fyrir-
myndar, enda þótt þetta sje með
öllu rangt, sem sjáist best á því,
að menn úr flokknum hafi fyrir
aðeins sex vikum síðan ráðist á
Arabaþorp og drepið tvo af inn-
byggjum þess.
Vikuskammtur Breta verður
eitthvað á þessa leið:
Kjöt — 350 gr.
Ostur — 57 gr.
Smjör — 85 gr.
Smjörlíki — 85 gr.
Svínafeiti — 28 Vz gr.
Sykur — 285 gr.
Tc — 57 gr.
Avaxtamauk — 115 gr.
Brauð — lVi kg.
Mjólk — 1 lítcr.
Auk þess má hver maður
kaupa eitt egg á viku út á
skömmtunarbók sína — þegar
það er fáanlegt. Fiskur er ó-
skammtaður.
Hin nýja fjárhagsáætlun
stjórnarinnar, sem birt var í
gærkveldi, vekur að vonum
mikla eftirtekt. Fyrirtæki þau,
sem verða fyrir barðinu á á-
ætluninni, hafa mörg hver lýst
því yfir, að þau muni ekki geta
borið tjónið að völdum hennar.
Bifreiðaframleiðendur eru
þannig mjög óánægðir, en frá
október að telja verður ekkert
bensín veitt til skemmtiaksturs.
Þá er og tekið algerlega fyrir
skömmtiferðalög til útlanda, og
eyðslufje verslunarmanna, sem
utan fara í verslunarerindum
verður minkað.
Hvorir eru slerkari?
Greininni lýkur með þeirri
fullyrðingu, að nú verði Arabar
að ákveða, hvort þeir ætli að
halda áfram að þola yfirgang,
eða verja sjálfa sig og reyna
hvorir sjeu sterkari, þeir eða
Gyðingar.
Tveir særðus)
Jerúsalem í gær.
SJÖ manns særðust í dag —
þar af tveir hættulega — er
handsprengju var varpað inn í
arabiska bifreið í Jerúsalem.