Morgunblaðið - 07.09.1947, Qupperneq 3
Sunnudagur 7. sept. 1947
MORGUNBL4ÐIÐ
3
Sjötugur:
Síra Guðmundur Einarsson
orófastur á Mosfelli
PÁLL postuli ritar vini sín-
um á þessa leið : „Það sem þú
heyrðir mig tala í margra votta
viðurvist, það skalt þú fá í hend
ur frúum mönnum, sem munu
færir um líka að kenna öðrum“.
Á þessu byggist starf kirkj-
unnar. Þetta er hin rjetta starfs-
aðferð, er kristin trú er fiutt
mönnunum. Fagnaðarerindið er
boðað. „Trúin kemur af boðun-
inni, en boðunin byggist á orði
Krists“. Þetta orð er gefið mönn
unum, til þess að þeir taki við
því, og verði færir um að kenna
öðrum.
Þannig hefur einnig verið
starfað í hinni íslensku kirkju.
Hjá þeim, sem eignast trúna,
vaknar sú þrá, að þeir geti starf-
að að því, að aðrir fái hlutdeild
með þeim í því, sem best er að
eignast. Got" er að vei a prestur,
þegar starfið byggist, fyrst og
fremst á innri köllun.
Þeirri köllun hefur stra Guð-
mundur Einarsson fylgt. — Á
/seskuárunum, er hann stundaði
hám í Kaupmannahöfn, eignað-
ist hann hina öruggu trúarfestu,
sem hann á enn í dag. — Sam-
kvæmt þeirri köllun hefur hann
verið prestur um Aratugi.
Það er styrkjandi og hress-
andi að kalla á fagrar minning-
ar. Þar er sá fjársjóður, sem
gefur góða vöxtu. Síra Guð-
mundur verður siötugur á
morgun (8. sept.). En jeg minn-
ist samverustundanna, er við á
námsárunum hlustuðpm á
marga prjedikara, sem höfðu
slík áhrif á okkur, að við hlökk-
uðum til þess að verða prestar.
Minningar fi'á heilögum stund-
um hafa varpað birtu á æfi-
braut okkar.
Jeg veit, að það orð, sem síra
Guðmundur þá heyrði talað,
bæði í einrúmi, í samtali við
góða vini og fjelaga, eða í
margra votta viðurvist, náði að
festa rætur í hjarta þess manns,
sem hefur reynst trúr og stefnu-
fastur.
Opð trúarinnar hefur geymst
hjá trúum manni, sem vegna
sannfæringar sinnar, hefur ver-
ið fær um að kenna öðrum.
Með gleði og áhuga, gekk síra
Guðmundur að prestsstarfinu.
Það starf hefur átt og á allan
hug hans. Því hefur hann ávallt
helgað krafta sína með skyldu-
rækni og árvekni. Skýrt og
greinilega hefur það sjest og
heyrst, að síra Guðmundur talar,
af því að hann trúir.
Þegar jeg samgJeðst síra Guð-
mundi á þessum tímamótum æfi
hans, sje jeg starf hans í ljósi
þessara orða: „Þess er krafist
af ráðsmönnunum, að sjerhver
reynist trúr“.
Þeir eru áreiðanlega- margir,
sem ásamt mjer líta þannig á
síra Guðmund. Þannig hefur
hann reynst í vandasömu og
blessunarríku starfi, trúr ráðs-
maður í því, sem honum var
falið.
Síra Guðmundur er nú á 40.
prestsári. — í Ólafsvík var
hann 15 ár, á Þingvöllum 5 ár,
og nú byrjaður 20. árið í Gríms-
f- v ^
nesi. Prófastsstarfi hefur hann
gegnt í Snæfellsnesprófastsdæmi
og í Árnessýslu. Auk prests og
prófastsstarfa hafa honum verið
falin margsvísleg trúnaðarstörf.
Gott hefur verið að leita til hins
ráðholla og hyggjudrjúga
manns, sem er kunnur að festu,
dugnaði og þreki. Menn kannast
vel við góðan dreng sem er hvor-
tveggja í senn: skörulegur prest
ur og tryggur vinur, sem vill,
að allt snúist til heilla þeim, sem
hann starfar hjá.
Jeg hefi svo oft heyrt hann
tala, að jeg veit, að hann talar
það, sem sæmir hinni heilnæmu
kenningu, og mjer er þetta kunn
ugt vegna vináttu okkar. Það
hefur verið mjer um mörg ár
og er enn í dag mikil hjálp að
eiga vináttu þess manns, sem á
heilbrigða og sanna tiú, svo að
jeg veit, að þar sem hann er,
má heyra þann prest, sem trúir
með hjartanu og játar þá trú
með prjedikun sinni og dagfari.
Það sannast á góðum presti og
tryggðavini, að af gnægð hjart-
ans mælir munnurinn.
Síra Guðmundur er í fremstu
röð prestanna, á allan hátt
prýði stjettarinnar. — Það vita
ÞVOTTAMIÐSTÖÐIN
Tökum
Sslautþvott
Borgartún 8
Sími 7263.
i :
Kaypum fuskur
LITOPRENT
Eaugaveg 118
2 hæð.
iIMIHMMMHMMHHMMMMMHMIMMIMMMMMMMIMMMMMI*
; International
I VörnLáM |
: model 1942 með nýrri vjel ;
§ til sölu. Skifti á 5—7 j
[ manna bifreið gætu kom- \
\ ið til greina. Ekki nauð- j
\ synlegt að hann sje í gang- i
j færu standi. — Uppl. í j
; síma 2466 eftir 'kl. 1.
I !■•••• •>>•• nnnMlllilrMlUMr>illMuiililllililllH*ll*lllllili
allir þeir, sem honum kynnast,
að hann er víðlesinn maður, sem
stundar fræðiiðkanir af miklu
kappi, fróðleiksmaður, sem allt-
af er að auka þekkingu sína.
Það er nú verið að undirbúa
annað afmæli á Mosfelli, af-
mæli kirkjunnar bar, sem bráð-
um verður 100 ára. í henni hafa
mætir menn flutt mönnum gleði
boðskap og huggunarorð.
En rjett hjá kirkjunni er
heimili prestsins. Þeim stað má
ekki gleyma, er talað er um
prestinn. Það er engin hætta á
því, að menn gleymi þeim stað.
Þar ríkir gestrisni í rausnar-
garði. Margir hugsa til heimils-
ins á Mosfelli á afmælisdegi pró-
fastsins. En þá munu þeir ekki
eingöngu tala um hann, heldur
munu þeir einnig með þakklæti
og vinarhug tala um prófasts-
frúna, Önnu Þorkelsdóttur, sem
með sannri prýði hefur eflt heill
og heiður heimilisins. Jeg veit,
að margt manna hugsar til pró-
fastshjónanna með virðingu og
þakklæti, því að það ber öllum
saman um, að þangað er gott
að koma.
Mig langar til bess, að vinar-
orð mín megi verða í fylgd með
samfagnaðarkveðjum, sem víðs-
vegar að berast að Mosfelli á af-
mæli prófastsins.
Bj. J.
Zurich-banki hæitir
gullsðlu
Zurich í gær.
ÞJÓÐBANKINN í Zurich hef-
ur algjörlega hætt sölu á gulli.
— Var ákvörðun þessi tekin á
fundi bankaráðs síðast liðna
nótt. Var tekið fram að engum
hefði verið gert aðvart fyrir
fram um þessa ákvörðun og að
hún gengi jafnt yfir menn af
öllum þjóðernum. Orsök þessa er
að stöðugt hefur gengið á gull-
forða bankans undanfarna mán-
uði.
Um leið fjell gildi svissneska
frankans úr 27,07 bandarísk
cent niður í 26.75. — Reuter.
! óskast strax til að mat-
j reiða. Herbergi getur fylgt
j ef óskað er. Gott kaup. —
j Uppl. í síma 2329 kl. 12
j —2 í dag og á morgun.
j AeglyssnpsKísís^fan
*r opbs
; l tumar aila snrka 'taga
j fré kl 10—1? og I—6 «.b
aema lauaardaga
) Horgunbiaðlð,
s
iiMiiMiiiMiiiiiiPiimnrrttiMtiiitimaiintimnmMaitnHEta.
Simastarfsmenn gera tiliögur
ism endurbætur á símarekstrinum
Frá Landsfundi ísíenskra símamanna
ÞRIÐJI landsfundur íslenskra
símamanna var haldinn dagana
30. og 31. ágúst, að Reykjaskóla
í Hrútafirði og lauk í Haínar-
firði 3. sept. síðasfliðinn.
Landsfundinn sátu 24 fulltrú-
ar víðsvegar af landinu.
Formaður fjelagsins, Stein-
grímur Pálsson, setti fundinn og
bauð fulltrúa velkomna Þá mint
ist hann nokkrum orðum Frið-
björns Aðalsteinssonar, skrif-
stofustjóra, sem var einn af
brautryðjendum fielagssamtaka
símamanna og einn vinsælasti
starfsmaður stjettarinnar. Full-
trúar vottuðu hinum látna virð-
ingu sína með því að rísa úr sæt-
um.
Fundarstjórar voru kosnir:
Steindór Björnsson frá Gröf og
frú Ingibjörg Ögmundsdóttir,
Hafrjarfirði. Fundarritarar þeir
Halldór Helgason og Kaare For-
berg.
Landsfundurinn tók til með-
ferðar skipulagsmál Fjelags ís-
lenskra símamanna (F. í. S.) , og
samþykti tillögu til lagabreyt-
inga, sem miða að því, að sam-
eina hinar dreifðu fjelagsdeildir.
Þessar lagabreytingar öðlast þó
ekki gildi nema þær verði sam-
þyktar við allsherjaratkvæða-
greiðslu innan f jelagsins.
Fundurinn ræddi ýms hags-
munamál stjettarinnar og síma-
stofnunarinnar og gerði margar
ályktanir í þeim málum.
Fara hinar helstu þeirra hjer
á eítir:
Stofnunin og notendur
1. „Landsfundur símamanna
feluí stjórn fjelagsins að skipa
fimm manna nefnd er taki til at-
hugunar og geri ályktanir um
eftirfarandi atriði:
A) Hver sje orsök hinnar sí-
feldu gagnrýni er fram kemur í
blöðum og manna á milli á Síma
stoínunina, stjórn hennár og
starfsfólk, hver áhrif hún kann
að geta haft á traust almennings
til stofnunarinnar og starffólks-
ins, og hvernig bætt verði úr því,
er áfátt kann að vera og gefur
tileíni til þessarar gagnrýni.
B) Hvort og hvernig fjelags-
samtök símamannastjettarinnar
geta stuðlað að því, að rekstr-
ar'aíkoma símastofnunarinnar
breytist til batnaðar frá því, sem
nú er.
C) Á hvern hátt sje hægt að
koma í veg fyrir það, að svo
haldi áfram sem mjög heíur bor-
ið á undanfarið, að hver starfs-
maöurinn á fætur öðrum fari úr
þjónustu stofnunarinnar, henni
og símamannastjettinni til stór-
tjóns.“
2. „Landsfundur símamanna
samþykkir að beina þeirri áskor-
un til Símamálastjórnarinnar að
hún svari opinberlega þeirri
gagnrýni á símann og starf-
rækslu hans, sem oftsinnis hefur
komið fram að undanförnu í
blöðum og útvarpi.
Landsfundurinn lítur svo á, að
umrædd gagnrýni, sem veldur
starfsfólki stofnunarinnar ýrris-
um óþægindum og órjettmætUm
I aðfinnslum, - stafi af tómlæfi
Símamálastjórnarinnar í því, að
gera almenningi ljóst hvernig í
málunum liggur.“
Launamál
1. „Landsfundur símamanna
telur, að reynslan hafi sýnt, að
launaílokkunin í núgildandi
launalögum sjé mjög ranglát í
ýmsum atriðum. Einnig telur
íundurinn, að ákvæðin um launa
hækkun eftir starfsaldri þurfi
endurskoðunar við. Skorar fund
urinn á Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja að beita sjer fyrir
því, að Alþingi geri nauðsynleg-
ar bætur á Launalögunum þegar
á næsta vetri.“
2) „Landsfundur símamanna
telur það staðreynd, að þrátt fyr
ir hækkaða verðlagsuppbót verði
f járhagsafkoma opinberra starfs
manna verri með ári hverju. —
Skorar því Landsfundurinn á A1
þingi og ríkisstjórn að taka nið-
urfærslu dýrtíðarinnar föstum
tökum.
Telur fundurinn “það höfuð-
nauðsyn í þessu sambandi, að
ríkisvaldið leiti um það sam-
vinnu við öll stjettasamtök laun-
þega og atvinnurekenda.“
3) „Landsfundur símamanna
vill undirstrika þá samþykt, er
á sínum tíma var gerð á þingi
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, að telja óviðunandi, að op-
inberir starfsmenn sjeu sviftir
þeim rjetti í verkfallsmálum, er
aðrir launþegar hafa. Skorar
fundurinn á Bandalagið að
fylgja málinu fast eftir, uns
náðst hefur fullkomið jafnrjetti
við aðrar launastjettir.“
Stö&uveitingar
og starfsmannaval.
„Landsfundur símamanna
beinir þeirri áskorun til síma-
málastjórnar:
1) Að allar stöður sem losna,
og nýjar, sem myndast innan
símans, skuli undantekningar-
laust auglýstar með tilskyldum
fyrirvara, og öllum símamönn-
um þannig gefinn kostur á að
sækja um þær.
2) Að í veitingu þeirra sje far
ið eftir hæfni og starfsaldri um-
sækjenda.“
Nám og nemendur
„Landsf. símamanna skorar á
stjórnendur símans, að þeir sjái
um að nemendur eða byrjendur
sjeu ekki notaðir til vandasamr-
ar afgreiðslu nema þá undir sjer
stöku eftirliti.
Fundurinn lítur svo á, að not-
endur símans eigi fulla kröfu á
því, að stofnunin sjái ávalt um,
að hafa nóga og fullkomna
starfskrafta til að vinna þau
verk, er hjer um getur. Sömu-
leiðis á starfsfólkið fulla kröfu
á því að stjórnendur símans sjeu
vel á verði hvað það snertir, að
nemendur sjeu ekki látnir vinna
vandasöm verk þó í skjóli full-
gildra starfsmanna sje.“
Starfsmannashifli
„Landsfundur símam. skorar
i Framh. á bls. 11