Morgunblaðið - 17.09.1947, Page 1
VERSLUNARNEFNDIN frá Hollandi, sem stödd er hjer í bænum um þessar mundir, talið
frá vinsíri: Dr. E. D. Meester, forstjóii fyrir sambandi utanríkisviðskifía, Haag, Drs. A. Rom
Colíhoff. ritari hollenska iðnsambandsins, Haag. J. C. Backer Overbeek, fiá hollenska skipa-
eigendafjelaginu, T. M. W. Kreek, forstjóri út flutningsdcildar Philips-verksmiðjanna , End-
lioven. Dr. Tj. Bakker, landbúnaðarfuUtrúi holl ensku stjói narinnar í London. J. W. T. E. Sikkes,
ritari hollenska kaupmannafjelagsins í Haag o g W. T. Hoogerboord, forstjóri N. V. Alge-
meene Veevoeder Maatschappy, Rotterdam. — (Myndin tekin að Hótel Borg í gær. (Ljósm.
Eiríkur Hagan). Sjá frjett um þá á 2. síðu.
Cripps ræðir við
baðmullariðnaðar-
menn
Enginn kolaskortur í vetur
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
London i gær,
SIR STAFFORD CRIPPS átti í dag ráðstefnu með for-
ustumönnum í baðmullariðnaði Bretlands til þess meðal
annars að segja þeim, hve mikinn þátt baðmullariðnaðurinn
rnuni eiga í aukningu útflutningsins. Bæði verður að auka
framleiðsluna og að minka fataskamt.
Bretar selja gull
BRETAR hafa selt Banda-
ríkjunum 20 milljón sterlings-
punda virði í gulli, og er það
allmikill hluti af allri gulleign
Breta. Voru þeir tilneyddir til
þessa af dollaraskortinum og
vegna þess, að þeir þurfa að
kaupa ýmis tæki og vörur en
ákveðið hefur verið að ganga
ekki meira á bandaríska lánið.
Allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna sett
Eina von þjéðanna um raunverulegan trið
ANNAÐ allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna var sett í kvöld
í Lake Success við New York. Viðstaddir voru meðlimir frá
hverju hinna 57 ríkja, sem sæti eiga þar. Setningin fór mjög
hátíðlega fram. öllum ræðum fulltrúanna var útvarpað og
allri athöfninni var sjónvarpað.
Danir senda mót-
mæli til Rússa
DANSKA utanríkisráðuneyt-
ið hefur enn sent mótmæli til
Rússa vegna þess, aö sprengjum
og jafnvel eiturgashyikjum hef-
ur verið kastað í Eystrasalt ná-
lægt Bornholm.
Þegar danska stjórnin mót-
mælti þessum aðförum Rússa
fyrir einni viku síðan sagði So-
kolovsky yfirmaður rússneska
hernámsliðsins, aö Rússar
skyldu láta kasta sprengjunum
annars staðar. Þrátt. fyrir það
loforð hafa Rússar ekkert
breytt til um og hefur kQmið
skýrsla frá dönskum varðskip-
um um að sjest haft til rúss-
neskra skipa nýlega. sem voru
að kasta meiri sprengjum utan
borðs. — Reuter.
Aranha forseti þingsins.
í kosningunni um forseta
þingsins sigiaði Aranha utanrík
ismálaráðherra bæð þá Her-
bert Evatt fulltrúa Ástralíu og
Jan Masaryk fulltrúa Tjekkó-
slóvakíu. — í fyrri atkvæða-
greiðslu fjekk Aranha 26 atkv.
Évatt 23 og Masaryk 6. Þar sem
krafist er % greiddra atkvæða
var kosið aítur. Fjekk Aranha
þá 29 atkvæði og Evatt 22.
CAIRO: — Tólf egypskir stúdent-
ar voru handteknir af lögreglunni
í Cairo fyrir að hegða sjer ósæmi-
lega í fjöldagöngunum, sem mót-
mæltu hersetu Breta á landinu. —
Þeir voru látnir lausir daginn
eftir.
FramvörSur
Cripps sagði, að baðmullar-
iðnaðurinn væri framvörður í
útflutningssókn Breta og því
yrði hið skjótasta að auka fram
leiðsluna. Nú þegar verður að
auka hana um 10% og eftir sex
mánuði um 20%.
Minkaður skamtur
Fataskamtur í Bretlandi hef-
ur verið minkaður enn og fá
menn nú ekki nema 20 miða í
stað 23 áður.
Enginn kolaskortur
Cripps sagði, að baðmullar-
iðnaðurinn þyrfti ekki að óttast
kolaskort því að bæði væru Bret
ar það vel birgir að kolum nú,
að þeir hefðu nóg l'yrir vetur-
inn, en svo líka ef til þess kæmi
myndi utflutningsiðnaðurinn
vera látinn ganga fyrir um kol.
Erlendir sjálfboðaliðar
Um erlenda sjálfboðaliða sem
hafa fluttst til Bretlands sagði
Cripps, að þeir gætu mikið bætt
úr vinnuaflsskorti Bretlands. -—
1600 hafa þegar komið til lands
ins og á næstunni er von á fleir-
um. — Reuter.
Verslunarsamningar
Dana og Breta
Danir heimta 3 shillinga fyrir smjörpundið
FRAMLEIÐSLAN í
PÓLLANDl EYKST
New York: Pólski sendiherr-
ann í Winewitz hefur sagt, um
Pólland, eftir að hann kom það-
an fyrir skömmu, að atvinnu-
vegunum hafi mjög farið fram,
kolaframleiöslan sje komin upp
í 80% af fyrirstríðsframleiðslu.
Hann segir, að stjórnmála-
ástandið megi ekki hafa áhrif á
beiðni Póllands um lán hjá Al-
þjóðabankanum.
Khöfn í gær.
í samtali við tíðindamann
Kemsley í Khöfn, sagði A. E.
Feaveryear, formaður bresku
verslunarnefndarinnar, að Dan
ir heimtuðu þrjá shillings fyr-
ir pund af smjöri og shillings
fyrir pund af svínakjöti.
Erfiðleikarnir miklir.
Feaveryear sagði: Erfiðleik-
arnir á að ná samkomulagi,
hafa aldrei verið eins miklir
og nú og verður báðum þjóð-
unum bæði vonbrigði og tjón,
ef ekki næst eitthvað samkomu
lag.
Minni framleiðsla.
Miklir þurkar og skortur á
fóðurvörum hefir minkað fram
leiðsluna svo að Danmörk getur
ekki flutt út eins mikið og æski
legt væri. Síðasta ár keyptu
Bretar 52.000 smálestir af
smjöri af Dönum, en á þessu
ári geta Danir ekki flutt út
nema 40.000 smálestir.
Danska smjörið er of dýrt.
Feaveryear sagði: Það er ó-
mögulegt fyrir Brc-ta að kaupa
danska smjörið á 3 shillinga,
þegar þeir geta fengið smjör
frá Ástralíu og Nýja Sjálandi
á 1 sh. 9 d. —Kemsley
Samningarnir fóru út um þúfur
I Reutersfrjett seint í gær-
kvöldi segir, að verslunarsamn-
ingarnir milli Breta og Dana,
hafi farið út um þúfur. Það er
þó tekið fram, að gerðar verði
fleiri tilraunir á næstunni.
Þýðingarmikið fyrir smá-
þjóðir.
Eftir atkvæðagreiðsluna sett-
ist Aranha í forsetasæti og hjelt
hann ræðu við þetta tækifæri
og sagði meðal annars, að þessi
samkoma væri sjerstaklega þýð
ingarmikil fyrir smáþjóðirnar
og að raunverulegan frið gæti
heimurinn aðeins fengið með
störfum Sa.neinuðu Þjóðanna.
Smáþjóðirnar ákveði sjálfar
sín innanlandsmál.
Hector Mac Neill fulltrúi
Breta á samkomunni ljet í ljósi
óskir sínar um að smáþjóðirnar
fengju að ákveða sín eigin inrx
anlandsmál án þess að ná-
grannaþjóðirnar skiptu sjer af
því. Sagði hann, að erlendar
þjóðir væru að skipta sjer af
innanlandsmálum Grikklands
og verkefni S.Þ. væri að hafa
eftirlit með því að rjettur
Grikkja væri ekki skertur.
Um neitunarvaldið sagði Mac
Neill, að Bretar álitu ekki að
það ætti að afnema það, en víst
væri, að undanfarið hefði það
verið misnotað hraklega.
Frakkar styðja Itali.
Bidault utanríkisráðherra
Frakka kom til New York i
morgun, og sagði við blaða-
menn, að það mál, sem Frakk
ar myndu fyrst og fremst
styðja, væri að Ítalía fengi að
taka þátt í samtökum S.Þ.
Hann sagði ennfremur, að
hann áliti, að Italir, sem hefðu
unnið mikið og ættu mikið und
ir nýlendu sinni í Norður Af-
ríku hefðu svo mikinn eignar-
rjett á Libyu, að ekki væri
mögulegt að rífa hana frá
henni.
Bandarískt stál
til Þýskalands
NEW YORK: óstaðfestar fregn-
ir herma, að bandarískar stálverk
smiðjur hafi fengið pantanir fyrir
milljón dollara frá þýsku járn-
brautunum. i