Morgunblaðið - 26.09.1947, Blaðsíða 12
12
MORGXJKBLAÐIÐ
Föstudagur 26. sept. 1947
Fimm mínúfna krossgátan
Lárjett: — 1 glas — 6 ker —
8 Fjölnismaður — 10 borðandi
— 11 gamla — 12 fljót — 13
nudd — 14 mannsnafn — 16
reykti.
Lóðrjett: — 2 líkamshluti —
3 heimsálfa — 4 eins — 5 suð-
ur með sjó — 7 eina — 9 barði
— 10 flana — 14 sá hæðsti —
15 hreyfing.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 lokka — 6 tjá
■— 8 rá — 10 ra — 11 krullur
— 12aa — 13 tt — 14 ani •—
16 stall.
Lóðrjett: — 2 ot — 3 kjólana
•— 4 ká —5 orkan — 7 varta
— 9 ára — 10 Rut — 14 at —
15 il.
Halló stúlkur!
Maður á besta aldri ósk-
ar að kynnast stúlku, sem
hefir áhuga fyrir sambúð,
á aldrinum 25—35 ára
Hefir fyrsta flokks íbúð,
Þær sem hefðu áhuga fyr-
ir þessu, geri svo vel og
leggi nöfn sín inn á afgr.
Mbl. ásamt mynd, sem
endursendist. Þagmælsku
heitið, fyrir 30. þ. m.,
merkt: „Von — 888“.
— Marshalláætlunin
Framh. af bls. 1
til þessa, auk þess sem það
mundi eiga sinn þátt í því að
stöðva verðbólguna í Bandaríkj
unum.
Aukin framleiðsla.
Truman gerði grein fyrir því,
hvað.gera þyrfti í aðalatriðum
til að Marshalláætlunin hefði
tilætluð áhrif. Kvt.ð hann það
meginatriðið, að lönd þau, sem
um er að ræða, Jeggðu sig öll
fram til að auka framleiðslu
sína, auk þess sem þau yrðu
að hafa eins mikla samvinnu
sín á milli og frekast væri unt.
De Vðlera í London
London í gærkvöldi.
DE VALERA, forsætisráð-
herra, kom við í London í dag á
leið sinni frá París til Eire. —
Ræddi forsætisráðherrann við
Attlee og Cripps, verslunarmála
ráðherra.
De Valera átti og tal við írska
sjerfræðinga, sem verið hafa í
Bretlandi að undanförnu til að
ræða við breska embættismenn
um verslunarviðskipti Eire og
Englands. — Reuter.
Enskukensb |
fyrir byrjendur, góð og !
ódýr. Les einnig ensku I
með skólabörnum. Sími ;
4370.
5
■
íbúð til sölu
á góðum stað í austurbænum á hitaveitusvæði, ef við-
unanlegt boð fæst. Ibúðin er 3 góð herbergi með öllum
þægindum á hæð, ásamt einu herbergi í risi. Laus til
íbúðar nú þegar. Tilboð merkt: „4 herbergi“, sendist
afgr. blaðsins fyrir lok þessa mánaðar.
Vjeiaverkstæðið í l\les-kaupstað
vantar yfirverkstjóra með meistararjettindum nú þegar.
Húsnæði getur fylgt. Nánari upplýsingar gefur Jón S.
SigurSsson, staddur á Hótel Borg næstu daga.
Minnlng:
Svava Guðjdnsdóttir
KVÍSLHÖFÐA.
Fædd 3. nóv. 1928.
Dáin 24. júlí 1947.
Það var sólbjartur sumardagur,
söngur í runni og mó,
himininn heiður og fagur,
á hafið gullroða sló.
Þá var mjer sagt, Svaía er dáin,
þá sýndist mjer dimma svo
skjótt.
Jeg horfði með hrygð út í
bláinn,
í huga minn komin var nótt.
Oss er svo erfitt að skilja
þau æðri máttarvöld,
er okkar vonum og vilja
virðast svo grimm og köld.
í sólskini Svafa kvaddi,
sem sólgeisli lifði hún og dó,
er alla með yl sínum gladdi,
ástríki, glaðlyndi og ró. •
Þó hún væri ung að árum,
voru örlögin henni grá,
margur boði á lífsins bárum
braut hennar fleyji á.
Hún var bjartsýn, þó bljesi á
móti,
og brosti með stillingu og ró,
hvort sem leið hennar lá eftir
grjóti
eða um lífsins ólgandi sjó.
Það er okkur huggun í hörmum
að hún mun á eilífðarströnd
okkar bíða með opnum örmum
og útrjetta kærleikans hönd.
Vertu svo sæl, elsku Svafa,
sumardýrð fylgja mun þjer.
Leiðsögn þína jeg helst kýs að
hafa,
þegar hjeðan burtu jeg fer.
M. G.
GYÐINGAR STELA
DEMÖNTVM
JERÚSALEM: Ofbeldismenn af
Cfyðingaættum í Tel Aviv stálu
nýlega demöntum, sem virtir eru
á 15,000 sterlingspund.
3
jGóð stúlka
| óskast til ljettra starfa á
| fáment heimili í Reykja-
I Hitaveita. Sjerherbergi.
| Hátt kaup. — Uppl. í síma
i 7585 milli kl. 12—1 og
j 6—7.
manniniinunniiiiiiiiiiiiinimjmniniiinHimiimmi
Kommúnistar
Framh. af bls. 9
barsmíðar og kylfuhögg heldur
bragða, sem sjerfræðingar úr
N.K.V.D. (rússnesku leynilög-
reglunni) höfðu kent.
Pappírsmiða, sem rifinn hafði
verið úr gamalli bók og skrifað
hafði verið á með blýanti, var
smyglað út úr fangelsi og undir
hafði skrifað maður, sem jeg
kannaðist við. Hann sagði, að
við eina yfirheyrsluna hefði
hann verið neyddur til að standa
undir blindandi ljósum, ýmist
með meðvitund eða hálfmeðvit-
undarlaus, í 120' klukkustundir
samfleytt.
Seinna heyrðist talað um ís-
kulda með háum. loftþrýst-
ingi, að skurðaðgerðir væru
notaðar til að skaða tauga-
kerfið og að konum og börn
um hinna ákærðu væri hót-
að öllu illu. En auðsýnilega
var aðallega bygt á því, að
taugar hjer um bil hvers
einasta manns hljóti að bila
af þreytu, ef liann er kval-
inn nógu mikið og lengi.
Þegar jeg reyndi að sannfæra
kommúnista og Rússa um, að
aðferðir þeirra hlytu að lokum
að snúa almenningsálitinu á
móti þeim, var jeg fullvissaður
um, að aðeins lögákveðnar að-
ferðir“ voru notaðar, sem ef til
vill er rjett í þeirri merkingu,
sem kommúnistar leggja í þessi
orð.
Fyrstu yfirheyrslur viðvíkj-
andi „samsærinu“ voru opin-
berar, eins og við Smábænda-
flokksmenn höfðum krafist. En
dómstóllirin var þannig skipað-
ur, samkvæmt lögum, sem Rúss-
ar höfðu í fyrstu sett árið 1945,
að fjórir af fimm dómurum
voru annað hvort kommúnistar
eða handbendi þeirra.
Ein undantekning.
Hinum ákærðu var leyft að
tala við verjendur sína í aðeins
tíu mínútur fyrir yfirheyrsluna,
og þá aðeins í viðurvist hinnar
pólitísku lögreglu Rajks. En það
sem kom mönnum mest á óvart,
var framkoma hinna ákærðu
sjálfra.
Hver einasti þeirra játaði
hreinskilnislega sjerhverri á-
kæru, sem hann var kærður fyr-
ir, ákærum, sem þeir vissu, að
myndu kosta þá fangelsi eða
líflát. Játningarnar voru lang-
undiroka....
ar, margorðar og þuldar eins
og utanbókar með mprgum föst
um orðatiltækjum. Almenning-
ur var undrandi og óttasleginn.
Ein undantekning var reynd.
Balint Arany, ritari Smábænda
flokksins í Budapest, reyndi
djarflega að taka aftur hina
skriflegu játningu sína. Rjett-
arforsetinn, sem var kommún-
isti, frestaði yfirheyrslunum
þegar í stað. Stuttu seinna
höfðu sjerfræðingar úr N. K. V.
D. Arany á brott með sjer.
Þegar hann birtist aftur í
vitnastúkunni viku síðar, bar
hann engin ör utan á sjer. En
í þetta skifti vall játningin af
vörum hans viðstöðulaust.
(I næstu grein lýsir Nagy
hvernig hann var neyddur til
að segja af sjer forsætisráð-
herraembættinu ).
St^ndsetning
Stúlka vön standsetningu
óskast strax. Dugleg og
vandvirk. Uppl. í síma
6970.
Géllteppi |
a
Sem nýtt gólfteppi til |
sölu. — Uppl. í síma 5818. I
tbúð
| _2ja eða 3ja herbergja
! íbúð óskast 1. október eða
í síðar í haust. Tvent í heim-
| ili, reglusamt fólk. Fyrir-
I framgreiðsla • eftir sam-
| komulagi. — Upplýsingar
| í síma 3635 og 7534.
RAGNAR JÓNSSON
i. hæstarjettarlögmaður.
i Laugavegi 8. Sími 7752.
I Lögfræðistörf og eigna-
! umsýsla.
^ V V
—*
’ífú.TTANCE ÓT CAMP 4ÍA& BEEN
LIVEE-LIPÍ 5TILL AT LARöE m
IP OMLV I CAM J
REACH THE C0UNTV
ROAD ON TME OTHER
C-IDE OF THIS ,
L MOUMTAIN — -ú.
A FEW MOMENTö LATER
He 5TUMBLE& ON, INTO A SHARP RAVlNE —THEM,
suddenlV- WMM.
~ WBS, it£
£N0WlN6! AND 6ETTING C>
COLDER! DID I 6ET TURNED
AROUND? WHlCH WAV AM
^ 1 MEADED?
titötuL
i y íó, Kmg fnnwo ir/ndtnt*
Kalli er enn frjáls maður. Hann gerir sjer vonir
um að komast yfir á veg hinum megin við fjallið,
sem hann er staddur á. Allt í einu byrjar að snjóa.
Kalla er orðið mjög kalt og hann villist. Hann geng-
ur niður í hátt gil og rekur svo skyndilega upp hátt
hljóð. , |