Morgunblaðið - 05.10.1947, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 5. okt. 1947
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavik.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
ftitstjórj: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.l
«lettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsaon.
Ritstjórn, augiýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mónuði innanlandi.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eirftakið, 75 aura metS Leibók.
Smásaga um hugsjónir
EINU SINNI varpaði áhrifamikill sósíalistaleiðtogi út
á landi, tram þessari spurningu á pólitískum íundi í sjáv-
arþorpi: Hvað eru heildsalar?
Hann svaraði spúrningunni sjálfur á þessa leið: Það eru
nokkrar afætur, sem búa í dýrum villum með bílskúr í
Eeykjavik.
Nokkru síðar flutti hinn áhrifamikli sósíalistaleiðtogi
til Reykjavíkur og settist þar í eitt best launaða embætti
landsins mcð skrifstofu í einum sólríkustu herbergjum
Arnarhvols.
Þetta var fyrsti þáttur sögunnar.
Nokkur ár liðu. Heimsstyrjöld hófst, og verslun varð
ábatasamari en hún hafði áður verið á Islandi. Þá stofn-
r.ði sósíalistaforinginn heilósölufyrirtæki. Og nú á hann
h'ka villu með bílskúr í Reykjavík.
Það er tírnabært að rifja þessa sögu upp nú. Allmörg
undanfarin ár hefur heildsalagrýlan verið meginvopn
aiitslegs hóps stjórnmálamanna, jafnvel sumra þeirra sem
svipað stendur á um og nefndan embættismann. En þetta
vopn er orðið kolryðgað, skörðótt og bitlaust. Almenn-
mgur veit, hvað fyrir þeim mönnum vakir sem því hafa
beitt. Það eru engan veginn bætt verslunarkjör honum til
handa, heldur löngunin til að hneppa verslun og viðskifti
a fjötra algerrar einokunar, sem síðan yrði beitt í þágu
esvífinnar stjórnmálakúgunar. Þetta er kjarni málsins.
Frjálsa samkeppni milli einstaklingsverslunar og fjelags-
verslunar ácti að kæfa.
Sjálfstæðisflokkurinn og ýmsir frjálslyndir menn úr
öðrum borgaralegum flokkum hafa komið í veg fyrir að
petta tækist. Með því var ekki fyrst og fremst verið að
tryggja hagsmuni verslunarstjettarinnar. heldur almenn-
ings í landinu. En kommúnistar og nokkrir aðrir munu
halda áfram að boða einokunarstefnuna, ef ekki hreina
og ógrímuklædda, þá dulbúna í nýju gerfi.
En sagan af sósíalistaleiðtoganum er lærdómsrík. Hún
varpar björtu ljósi yfir þæp aðferðir, sem sumir menn
beita til þess að framkvæma hugsjónir sínar.
Berkla varnadagur
í DAG er almennur berklavarnadagur um land allt.
Samband ísienskra berklasjúklinga, sem á næsta ári verð-
ur 10 ára, hefur nú sem áður all# forustu um þennan dag.
Þessi samtök hafa þegai unnið ágætt og merkilegt
starf. Vinnuheimili þess að Reykjalundi í Mosfellssveit
hefur unnið þjóðnýtt og þýðingarmikið afrek í heilbrigð-
ismálum þjóðarinnnar. Það hefur bætt við nýjum þætti
í baráttuna við hinn hvíta dauða.
Það er mjóg gleðilegt, sem haft er eftir forystumönnum
berklavarnanna á Norðurlöndum, að við íslendingar
stöndum nú fremstir Norðurlandaþjóðanna í baráttunni
gegn berklunum. Þetta er því merkilegra, þar sem tiltölu-
iega skammur tími er liðinn síðan við gátum hafið þá
baráttu við sæmileg skilyrði.
Fyrsta berklahælið, heilsuhælið að Vífilsstöðum, tekur
tal starfa árið 1910. Árið 1927 er svo Kristneshælið í Eyja-
firði bygt. Arið 1938 hefur Samband íslenskra berklasjúk-
linga starfsemi sína. Þessi þrjú ártöl eru merkilegustu
áfangarnir í berklavarnastarfseminni. Með berklarann-
sóknunum, sem fram hafa farið um land allt, undir ágætri
forustu Sigurðar Sigurðssonar hefur miklum árangri ver-
ið náð.
En þótt mikið hafi áunnist í þessum efnum. fer þó fjarri
því að ástæða sje til þess að slaka á klónni. Ennþá er mikið
verkefni framundan. Fjöldi heimila og einstaklinga á enn
þá um sárt að binda af völdum berklaveikinnar. Samband
íslenskra berklasjúklinga á því skilið liðsinni hvers ein-
asta Islendings í starfi sínu og baráttu.
tJííverji óhrlpar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Fjölgar í bænum. ’
ÞAÐ HEFIR HELDUR betur
lifnað yfir bænum undanfarna
daga. Það er skólaæskan, sem
setur sinn svip á bæinn þessa
dagana, eins og venjulega í
byrjun októbermánaðar, þegar
skólarnir eru að hefjast. Menn
taka eftir þessu fyrst 1 stað, en
venjast því svo þegar líða fer
á haustið.
Ur öllum áttum koma æsku-
menn til höfuðstaðarins til að
fara í skóla, en eins og kunn-
ugt er skifta nemendur þús-
undum og það er því ekki ó-
eðlilegt, að eftir þeim sje tekið.
Það er gaman að taka eftir
þessu «unga fólki á götunum.
Það er frjálsmannlegt og fjör-
legt yfirleitt. Það á framtíðina
fyrir sjer og framtíð þess er
framtíð íslands.
Gamlir siðir.
í NOKKRUM SKÓLUM eru
gamlir siðir enn við líði, eins
og t. d. hinar fevokölluðu toll-
eringar í Mentaskólanum. Þar
hefir það verið siður í fjölda
mörg ár, að tollera busana,
yngstu nemendurna. Það er
gert á þann hátt, að nokkrir
sterkir strákar taka busa og
kasta honum hátt í loft upp og
grípa hann svo í fallinu.
Flestum er illa við að láta
tollera sig og reyna að losna
undan því. Verður þá oft elt-
ingaleikur úr öllu saman, gam-
an og grín. I gærmorgun sáust
skólapiltar á harða hlaupum
um Lækjargötuna og jafn-
vel í Austurstræti. Einn businn
var svo bjartsýnn, að hann
reyndi að komast undan toller-
ingu með því að hlaupa kring-
um Austurvöll, en hann gáði
ekki að því, að einn þeirra, sem
var á eftir honum var Haukur
Clausen, hinn góðkunni sprett-
hlaupari og þarf ekki að spyrja
að því, að businn varð að láta
í minni pokann.
*
Skóladagur.
REYKJAVÍK er mikill skóla
bær, eins og eðlilegt er, þar
sem hjer eru allir helstu fram-
haldsskólar landsins. Það væri
því ekki að ástæðulausu að það
bæri enn meira á skólaæskunni,
en nú er í bæjarlífinu og með
samtökum milli skólanna gæti
skólafólkið haft meiri áhrif á
bæjarlífið en nú er raun á.
Framkoma skólaæskunnar á
götum úti og mannamótum
gæti orðið til fyrirmyndar, nða
öfugt. Og það er því mikils
virði hvernig skólafólkið kem-
ur fram.
Væri það.ekki góð hugmynd,
að æskan í skólunum veldi sjer
einn dag á vetri, sem kallaður
yrði skóladagur. Á þessum degi
mætti hafa íþróttakepni milli
skólanna, skemtanir fyrir al-
menning, þar sem skólafólk eitt
skemti o. s. frv. Yrði hagnaður
af slíkum skólaskemtunum
mætti láta hann renna til stuðn
ings einhverju sameiginlegu á-
hugamáli skólafólks.
•
Kvikmyndagagnrýni.
„REIÐUR“ sendir mjer eftir-
farandi línur:
„Þjóðviljinn birtir s.l. föstu-
dag eina „kvikmyndagagnrýn-
ina“ enn — og á í þetta skifti
óvenjulega bágt með sig. Gagn
rýnandinn er í þeim vanda
staddur, að myndin er bæði
leiðinleg .... og rússnesk.
En hann kann óneitanlega að
halda á penna þessi. Með því
að fetta sig og bretta og leika
allar þær listir íþróttamanns-
ins, sem „Gallharður“ blessað-
ur er alltaf annað slagið að
fetta fingur út í, tekst gagnrýn
andanum að komast hjá því að
segja eitt einasta ljótt orð um
myndina, og svo fimur er þessi
náungi, að honum tekst jafnvel
að lauma inn einu og einu hrós-
yrði.
Raunar endar þessi fur ~ulega
„gagnrýni“ á því, að því r lýst
yfir, að söguþráður myr ’arinn
ar sje aukaatriði, og segir svo
orðrjett, „enda skilja víst fæst-
ir það, sem fram fer, alt á rúss-
nesku og engar skýringar,
hvorki á dönsku nje íslensku“.
Dálagleg mynd það!
Axlabandaskömtun.
ÝMSAR RADDIR hafa heyrst
um það, að mörgu sje miður
farið í skömmtunarfyrirkomu-
laginu nýja. Hvað á það til
dæmis að þýða, að skamta axla-
bönd? Getur nokkur gert sjer
í hugarlund, að einhver fari að
kaupa meira af axlaböndum en
hann þarfnast? Eða mikið má
sá maður að minsta kosti hafa
í vösunum, sem notar þrenn eða
fern axlabönd — og ef til vill
belti líka!
í
MEÐAL ANNARA ORÐA
Balkan og Palestína - Hjálparþörf Evrópu o. fl,
BALKANMALIÐ var enn
forsíðufrjett. flestra hjerlendra
blaða s. 1. viku. Tölur þær, sem
birtar voru í Aþenu á mánudag
um manntjón Grikkja, voru svo
geigvænlegar, að óhug mun
hafa slegið á flesta blaðlesend-
ur, sem með þessum málum
fylgjast. Hafa hvorki meira nje
minna en 45.000 grískir borg-
arar og 3.000 lögreglumeQn fall
ið frá því stríðinu lauk — en
engar tölur hafa verið gefnar
um manntjón stjórnarhersins,
sem þó hlýtur að vera mikið.
Þrátt fyrir þetta hafa skæru-
liðar ekki verið aðgerðarlausir
undanfarna sjö daga. Svo er að
sjá, sem boð stjórnarinnar um
! sakaruppgjöf hafi haft lítil á-
hrif, og það enda þótt stjórnin
hafi sýnt það í verki, að hún er
j staðráðin í að láta alla þá póli-
| tíska fanga lausa, sem ekki
j hafa framið meiriháttar afbrot.
Sýnt er einnig, að stjórnin sjer
fram á nauðsyn þess, að friður
fáist í landinu — fyr er ekki
hægt að hefja endurreisnar-
starfið, og vissulega er það
margt, sem byggja þarf upp frá
grunni í Grikklandi. Má t. d.
geta þess, að gríska járnbraut-
arkerfið, sem fyrir stríð var
mun fullkomnara en hjá Balk-
anþjóðunum, er nú í mestu ó-
reiðu. Má segja, að allir hafi
keppst við að eyðileggja það
— gríski herinn, er Þjóðverjar
rjeðust inn í landið', skærulið-
ar, meðan á styrjöldinni stóð,
Þjóðverjar á undanhaldi sínu
og loks uppreisnarmenn í dag.
Markos hershöfðingi, foringi
Marshall utanríkisráðherra, Thor Thors og fru
uppreisnarmanna, er þó ekki
af baki dottinn. Hann krefst
þess nú kinnroðalaust, að „hin
frelsuðu hjerúð Grikklands“
fái að senda fulltrúa á þing
Sameinuðu þjóðanna. Hvort
aðstoðarmenn hans frá Júgó-
slavíu, Búlgaríu og Albaníu
eigi að vera i „frelsisnefndinni“
lætur hershöfðinginn hins veg-
ar ekki getið.
★
HJÁLPARÞÖRF Evrópuþjóð
anna var enn á döfinni í vik-
unni sem leið. Er talið líklegt,
að Frakkland, Ítalía og Aust-
urríki þarfnist 580 miljón doll-
ara til vörukaupa til marsloka,
eigi ekki nauðsynjaflutningur
til ofangreindra landa alger-
lega að stöðvast frá Bandaríkj-
unum. I þessu sambandi hefir
Bidault, utanríkisráðh. Frakka,
rætt við Truman forseta, og
eru nú taldar líkur fyrir því,
að Bandaríkin láti Frakklandi
í tje vörur fyrir um 50 miljónir
næstu tvær vikurnar. Dollara-
eign Frakka verður runnin til
þurðar í nóvember, en ítalir
og Austurríkismenn eru jafn-
vel ver staddir. Bretar eru
taldir geta þraukað eitthvað
lengur.
★
HJER á íslandi hefir það
sjálfsagt vakið hvað mesta at-
hygli í sambandi við Palestínu-
vandamálið, að Thor Thors,
Framh. á bls. 8