Morgunblaðið - 21.10.1947, Síða 10

Morgunblaðið - 21.10.1947, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. okt. 1947 ------------------i Farmonna og fiskimanno- sambandsþinginu lolii Helstu tillopr þingsins um í og hagsiriunamal sjómanna 11. ÞING Farmanna og fiski- mannasambands íslands lauk á laugardaginn var. Hefir áður verið skýrt frá kosningum í trúnaðarstöður þingsins, en hjer fara á eftir nokkrar helstu til- lögur er þingið samþykkti. Landhelgismál. 11. þing F. F. S. í. skorar á Alþingi og ríkisstjórn að vinna ötullega að því að segja upp samningi þeim, er gerður var 24. júní 1901 milli Danmerkur og Stóra-Bretlands um land- helgi íslands. Telur sambands- þingið að hjer sje um hinn versta n’auðungarsamning að ræða. Vill sambandsþingið beina því til Alþingis og ríkis- stjórnar hvort ekki muni hægt að fá leiðrjettingu þessa mis- rjettis hjá þingi sameinuðu þjóðanna. Jafnframt lýsir sambands- þingið fylgi sínu við þingsálykt unartillögu nr. 327 frá Alþingi 1946—1947 og væntir þess að Alþingi og ríkisstjórn fylgi þessu máli fast fram. Ennfremur lýsir þingið því yfir að það telur landgrunnið eign landsmanna og skorar á Alþingi og ríkisstjórn að beita sjer fast fyrir að fá þann rjett viðurkenndan. Emnig að AI- þingi lýsi því yfir að það telji eigi aðeins rjett vorn heldur skyldu að friða ákveðin veiði- svæði við landið fyrir hverskon- ar veiðum með botnsköfum, þ. e.botnvörpu og dragnót til vernd ar fiskistofninum að fengnum tillögum fiskifræðinga um vernd unina. Þá sje því yfirlýst af Alþingi og ríkisstjórn að firðir allir og flóar sjeu lokaðir fyrir hvers- konar veiðum erlendra fiski- manna og ákveðið verði að færa út landhelgina um eina sjómílu frá ystu annesjum. Ef eigi telst fært að gera þetta með einhliða lagasetningu af hálfu íslendinga, verði unnið að því á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna. Landhelgisgæsla. 11. þing F.F.S.Í. skorar mjög eindregið á Alþingi og ríkis- stjórn að gera nú þegar ráðstaf- anir til nýrrar skipulagningar á landhelgisgæslu við strendur landsins, og gera nú þegar á þessu þingi ráðstafanir til þess að landhelgisgæslan verði sam- boðin fullvalda ríki. Verði hún sett undir ábyrga stjórn eins manns, er ekki sinni öðrum störf um. Einnig að nú þegar verði bygt eða fengið til strandgæslunnar nýtt skip á stærð við nýtísku togara, sem hafi hvað ferð og annan útbúnað snertir yfir- burði yfir togarana. Jafnframt sje athugað um notkun flugvjela við strandgæslu. Þá telur 11. þing F.F.S.I. nauð synlegt að lækka útgerðarkostn- að varðskipanna og láta í því sambandi fara fram athugun á því, hvort ekki sje hægt að gera varðskipin að skólaskyldum skip jUm fyrir ungmenni er ætla í étýrimannaskólann eða hugsa Sam|)yktir íslenskra stúd- enta í Svíþjóð um gjald- eyrismálin sjer að gegna ýmsum sýslunar- störfum ríkisins. Sambandsþingið lýsir fylgi sínu við þingsályktunartillögu nr. 651 framkomna á Alþingi 1946—1947, með þeim breyting- um, að önnur málsgrein hljóði svo: Niðurstöður af rannsókn þessari skal ríkisstjórnin leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 20. jan. n.k. Ennfremur að það verði áskil- ið að F.F.S.Í., Fiskifjelagi ís- lands og Slysavarnarfjelagi Is- lands verði tryggð tilnefning full trúa hverju fyrir sig. Nýsköpun sjávarútvegsins. 11. þing F.F.S.Í. telur höfuð- nauðsyn að nú þegar verði stutt að því með hverjum þeim ráð- stöfunum, sem tiltækileg þykja að hraða sem mest framkvæmd- um við að koma upp fiskimjöls- verksmiðjum, niðursuðuverksm. og öðrum þeim fyrirtækjum sem vinna úr fiskafurðum lands- manna. Vill sambandsþingið sjer staklega benda á nauðsyn þess að hraða byggingum fyrirhug- i aðra fiskiðjuvera í Vestmanna- eyjum, ísafirði og Norðfirði. Að unnið verði að því að auka togaraflota landsmanna þannig, að togararnir verði eigi færri en 75 í árslok 1953. Að þau 15% af gjaldeyristekj- um þjóðarinnar sem ákveðið var að leggja til nýsköpunar atvinnu lífsins frá árinu 1945 verði greiddar og lagðar til hliðar eigi síðar en á miðju ári 1948, til tryggingar áframhaldandi ný- sköpun í atvinnulífi landsmanna. Að feldur verði niður verð- tollur, 200% vörutollálagning og 65% verðtollsálagning, sem nú gildir af öllum vjelum til fiskiðjufyrirtækja. Skólamál sjómanna. 11. þing F.F.S.I. skorar á við- komandi aðila að hlutast til um að lokið verði við kenslustofur og heimavist Sjómannaskólans og sje því verki lokið á árinu 1948. Einnig að skólinn verði rýmdur af aðkomuskólum sem þar eru, en sjeð verði um að skóli matsveina verði tilbúinn að taka þar til starfa næsta haust, þar sem vitað er að skóla- stofur ög annað húsrými í sam- bandi við þá kenslu er tilbúið. Þá skorar þingið á bæjarstjórn Reykjavíkur að hún ákveði sem fyrst stærð og takmörk lóðar skólans og beinir því til ríkis- stjórnarinnar að sem fyrst sje hafin fegrun lóðarinnar og henni komið í það horf, sem hún á að vera samkvæmt uppdrætti þeirra manna, er teiknuðu skól- ann og umhverfi hans. Sambandsþingið skorar á skóla stjóra Stýrimannaskólans eða annan rjettan aðila að hafin verði kensla í skólanum í með- ferð og notkun dýptarmæla, mið unarstöðva, talstöðva og annara nútíma siglingartækja, svo að skipstjóraefni verði fær um að notfæra sjer þessi tæki og lag- færa smærri bilanir þeirra. Sambandsþingið beinir því til rjettra aðila að lögð verði meiri áhersla en verið hefur á verk- lega kenslu nemenda þeirra, er stunda nám í siglingafræði við Sjómannaskólann, sje sjerstakt tillit tekið til þess hvort nem- endurnir lesa undir farmanna- eða fiskimannapróf og kenslunni hagað eftir því. 11. þing F.F.S.Í. skorar á Al- þingi að samræma og endur- skoða lög og reglugerðir í kenslu í vjelfræði ásamt þeim liðum iðn löggjafarinnar, er breytinga þurfa í því sambandi. Er það vilji sambandsþingsins að allri vjelfræðikenslu í Reykjavík verði sem fyrst komið fyrir á sama stað og undir stjórn sama manns. Skal öll vjelfræðikensla utan Reykjavíkur heyra undir sama aðila. Telur þingið þetta mjög nauðsynlegt bæði vegna hagkvæmara kenslufyrirkomu- lags og kostnaðar. Þingið telur brýna nauðsyn bera til þess að komið verði á stofn verkskóla í sambandi við vjelfræðikensluna er starfi í deildum, samræmdum við bók- legu kensluna í vjelfræðideild- um skólans. Ennfremur vill þingið ítreka fyrri áskorun um það að ríkis- stjórnin hlutist til um að þær kenslubækur í sjerfögum, sem ennþá eru á erlendu máli, og notaðar eru við kenslu í náms- greinum sjómanna, verði hið allra fyrsta samdar á íslensku og færðar í nýtísku horf. Sambandsþingið skorar á Al- þingi og ríkisstjórn að stofnað- ur verði hið fyrsta loftskeyta- skóli íslands við hinn nýja sjó- mannaskóla og sett verði um hann reglugerð. Útvarpssendingar á stuttbylgjum. 11. þing F.F.S.Í. skorar á Al- þingi það er nú situr að sam- þykkja lög um að hef ja nú þegar útvarpssendingar frá íslandi á stuttbylgjum, og veita á næsta fjárhagstímabili styrk til þess- arar starfsemi. Yrði ríkisútvarp inu falið að annast þessa starf- semi. Stuttbylgjuútvarp tíðkast nú um allan hinn mentaða heim. Er það metnaðar- og menningar atriði flestallra þjóða að þær geti látið til sín þeyra sem víð- ast í heiminum. Stuttbylgjuút- varp er miklu langdrægara en út varp langbylgjustöðva og heyr- ist víðsvegar um heim. Útvarp á stuttbylgjum, ef vel tækist gæti orðið stór liður í því að útbreiða þekkingu umheims- ins á landi og þjóð, bæði á sviði menningar og viðskipta. Frjettasendingar til skipa. 11. þing Farmanna og fiski- Framh. á bls. 15 FUNDUR í Fjelagi íslenskra stúdenta í Stokkhólmi, haldinn í Geografiska Institutet, Drottninggatan 120, 5. okt. 1947, samþykkir eftirfarandi á- lyktun: Vegna tilkynningar háttvirtr ar Viðskiptaneíndar frá 10. sept. 1947 varðandi minnkun á yfir- færslum til námsmanna, svo og I þerrar staðreyndar, að flestir i námsmenn, sem hjer dveljast i eiga nú í slíkum gjaldeyrisörð- ugleikum, að til vandræða horf- irr leyfir Fjelag íslenskra stúd- enta í Stokkhólmi sjer að taka fram eftirfarandi: Frá því að íslenskir náms- menn tóku að stunda nám í Stokkmólmi að nýju eftir lok ófriðarins, munu þeir hafa feng- ið að jafnaði 500—600 krónur sænskar á mánuði. Á s.l. hausti var samkvæmt tilmælum fyrr- verandi formanns Viðskiptaráðs samin áætlun um námskostnað í Stokkhólmi, og var hún stað- fest af ritara Stokkhólms-há- skóla. Kostnaðaráætlunin var svohljóðandi: Hádegis- og kvöld- matur ....... 120,00 á mán. Kaffi, tvisvar til þrisvar á dag 80,00 á mán. Húsaleiga .... 100,00 á mán. Þvottur og fata- viðgerðir .... 30,00 á mán. Dagpeningar . . 150,00 á mán. Samt. 480,00 á mán. Við þetta bætast skólagjöld, bókakostnaður og fatnaður. — Skólagjöldin við Tekniska Hög- skolan eru 550,00 á ári, við Stockholms Ilögskola 250,00 og við Tekniska Institutet 500— 600. — Bókakostnaður er við Tekniska I-Iögskolan 400—500 á ári, við Stockholms Högskolan 250—300 og við Tekniska Insti- tutet 200—300. — Fatakostnað- ur var áætlaður 600 kr. og mið- aður við, að námsmenn endur- nýjuðu fatnað sinn ytra. Gert cr ráð fyrir 250,001 skyrtur, sokka, nærföt o. þ. u. 1. og 350,00 kr. fyrir ytri klæðnað. Mótsvarar það því, að hver námsmaður gæti keypt sjer ein jakaföt, eina kápu og tvenn pör af skóm á ári. — Liðurinn dagpeningar var áætlaður 150,00 og sundurliðast þannig: Sporvagnar og lestir .... 10,00 Tóbak ................. 30,00 Blöð og tímarit........ 10,0 Böð og snyrting........ 15,00 Skemmtanir íslendinga . . 25,00 Leikhús, kvikmyndahús og óperur ........... 20,00 Ófyrirsjeð ............ 40,00 Samt. 150,00 Eins og sjá má, er ekki gert ráð fyrir neinum kostnaði vegna læknishjálpar, en sá liður er all- hár hjá sumum, einkum vegna tannviðgerða. Samkvæmt þessari áætlun, sem samþykkt var af ritara Stokkhólms-háskóla, er aug- ljóst, að til þess að íslenskir námsmenn hjer í Stokkhólmi geti lifað sæmilegu lífi, þarf ca. 600,000 sænskar krónur á mán- uði. Það skal sjerstaklega á það bent, að síðan þessi áætlun var gerð, hefur vöruverð hækkað að mun í Svíþjóð. Það skal enn- fremur tekið fram, að áætlun þessi miðast eingöngu við Stokkhólm, en þar er dýrast að lifa í Svíþjóð. Á síðastliðnum vetri, þegar gjaldeyrisþörf íslenskra náms- manna var til umræðu á Alþingi, gaf herra alþingismaður, Gylfi Þ. Gíslason, þær upplýsingar, að norskir stúdentar fengju að- eins 275,00 kr. sænskar yfir- færðar á mánuði, og nægði þeim sú upphæð. Af upplýsingum, sem íslensk- ir stúdentar hafa íengið hjá skólabræðrum sínum kemur í ljós, að upplýsingar háttvirts alþingismanns eru í höfuðatrið- um rangar. Norski Ríkisbank- inn yfirfærir 275—300 kr. á mán fyrir hvern stúdent, en auk þess fá þeir sjerstaklega yfirfært fyr ir skólagjöldum og 500,00 kr. sænskar í byrjun hvers „ter- míns“, sem eru tvö á vetri. Auk þess kaupa þeir svo flestir eða allir sænskar krónur á annan hátt og selja norskar vörur fyr- ii. sænska peninga hjer. Þá sjer norska ríkið þeim einnig fyrir ódýru húsnæði í Stokkhólmi. Sú hugmynd, að norskir stúdentar lifi á 275,00 hjer í Stokkhólmi, er því algjör f jarstæða. Eins og áður er tekið fram, er ástandið í gjaldeyrismálum námsmanna hjer nú sem stendur algerlega óviðunandi. Margir hafa ekki fengið yfirfærslur um lengri tíma, og aðrir svo lítið, að ekki hefur nægt fyrir brýn- ustu þörfum. — Allir íslenskir námsmenn skulda skólagjöld ennþá, en þau eiga að greiðast fyrirfram, og margir hafa ekki getað keypt nauðsynlegustu bækur, þótt skólar sjeu byrjaðir fyrir all-löngu. Ætti hverjum manni að vera ljóst, að þessi fátækt ásamt full kominni óvissu um það, hvað gjaldeyrisyfirvöldin ætlist fyrir um þessi mál, gerir námsmönn- um stórum erfiðara fyrir með námið. Það eru því tilmæli okkar, að háttvirt Viðskiptanefnd tryggi hverjum námsmanni yfirfærslu á ákveðinni lágmarksupphæð á mánuði, og sje sú upphæð ákveð in með hliðsjón af ofannefndri kostnaðaráætlun. i Hagkvæmar | INNBÚSTRYGGINGAR \ útvegar í Fasteignaeigendafjelag | I Reykjavíkur. í Laugaveg 10. Sími 5659. | .................I..Ulllll.iiiimirÉ i Myndatökur í heima- | Í húsum. 1 Ljósmyndavinnustofa i Þórarins Sigurðssonar ! Háteigsveg 4. Sími 1367. i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.