Morgunblaðið - 21.10.1947, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.1947, Blaðsíða 14
14 MORGVJSBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. okt. 1947 N A D A L U R S)háldóacja ej^tir J}ach cddondo n 34. dagur Þannig leið hver mánuður- inn af öðrum og hún hafði alt- af nóg að gera. En þótt hún saumaði mikið handa sjer, gleymd hún ekki Billy. Þegar fór að kólna í veðri, prjónaði hún smokka handa honum, og hann dró þá á úlfliðina um leið og hann fór að heiman, en stakk þeim í vasa sinn þegar hann var kominn út. Hún prjónaði einnig tvær peysur handa hon- um, og það þótti honum vænt um. Hún bjó líka til inniskó handa honum og krafðist þess að hann væri í þeim á hverju kvöldi, þegar hann var heima. Heilræði A-Iercérdes Saxon að góðu liði, því að hún vildi ekki kaupa nema það besta og fá það þó fyrir lítið verð. Hún rak sig fljótt á það að hún hafði tekist þann vanda á hendur að sjá um heimili á þeim dögum þegar allt vöru- verð er hækkandi, en launin standa í stað.. Þar reyndist gamla konan henni hjálpar- hella, því að hún var snilling- ur í því að kaupa ódýrt og hún fjekk oft jafn mikið fyrir einn dollar og nágrannakonurnar fyrir tvo. A hverju laugardagskvöldi kom Billy með vikukaupið sitt og hellti því í kjöltu hennar. Hann fór aldrei fram á að hún gerði grein fyrir því til hvers hún notaði peningana, en þreytt ist aldrei á að tala um það hvað sjer liði nú miklu betur en nokkru sinni áður á ævinni. En hún hreyfði ekki við pen- ingunum fyr en hann hafði tek ið úr kjöltu hennar vasapen- inga handa sjer. Og hún krafð ist þess að hann væri ekki að spara við sig og segði sjer ekk ert um það til hvers hann not- aði peningana. „Þú ert vanur því að bera peninga á þjer“, sagði hún, „og það á engin breyting að verða á því þótt þú sjert giftur. Ef þú skorast undan því að taka það sem þú þarft, þá mundi jeg óska þess að jeg hefði ekki gifst þjer. Jeg veit vel hvernig karl- menn eru þegar þeir hittast. Fyrst veitir einn og svo verð- ur annar að veita, og til þess þarf peninga. Og ef þú getur ekki verið jefn veitull og hin- ir, þá er jeg viss um að þjer líður illa —-svo vel þekki jeg þig. Það væri líka hart ef þú værir eftirbátur hinna. Jeg vil að þú umgangist karlmenn — þú hefir gott af því“. Þá faðmaði Billy hana og sagði að hún væri elskulegasta kona, sem nokkurn tíma hefði verið uppi. „Það er nú eigi aðeins að jeg fæ betri mat heldur en fjelag- ar mínir“, sagði hann, „heldur hefi jeg úr jafn miklu að moða og þeir. Jeg græði núna á tá og fingri .— eða rjettara sagt, þú græðir fyrir mig. Hjer er fullt af húsgögnum, sem jeg hefi keypt og borga skilvíslega af- borganir á hverjum mánuði, svo á jeg hjer konu, sem jeg sje ekki sólina fyrir, og auk þess á jeg innstæðu .1 banka. Hvað skyldi það vera mikið núna?“ „Sextíu og tveir dollarar", sagði hún. „Það er góður vara- sjóour, ef þú skyldir verða veik ' ur eða eitthvað óhapp henda ’ þig“. I Nokkru seinna kom Billy i hálf stúrinn heim. Aldrei þessu vant þurfti hann að • tala um peninga við Saxon. Vinur hans, Billy Murphy, lá í inflúensu, og eitt barnið hans hafði orð- ið undir vagni á götunni. Það hafði meiðst mikið og nú var Billy Murphy í vandræðum og hafði beðið nafna sinn að lána sjer fimmtíu dollara. „Það er engin hætta að lána honum“, sagði Billy. „Jeg þekki hann, við höfum verið saman síðan við vorum strákar. Hann er heiðarlegasti maðurinn á jarðríki". „Það kemur ekkert málinu I málinu við“, sagði Saxon. „Ef þú hefðir verið ógiftur, mund- ! ir þú þegar í stað hafa lánað honum peningana. Er ekki svo?“ Billy kinkaði kolli. „Þá máttu ekki reynast hon um ver fyrir það að þú ert gift- ur. Þú átt þessa peninga Billy“. „Alls ekki, það eru ekki mín ir peningar“, sagði hann. „Það eru okkar peningar. Heldurðu að mjer hefði nokkurn tíma komið til hugar að láta nokk- urn mann fá þá nema með þínu leyfi?“ j „Jeg vona að þú hafir ekki. sagt honum það“, sagði hún skelkuð. „Nei, nei“, sagði Billy og hló.' „Jeg vissi ósköp vel að þú mund ir ekki kæra þig um það. Jeg j sagði honum að jeg skyldi at- J huga hvort nokkur ráð væri til þess. Annars var jeg alveg sann færður um það að þú mundir j ekki hafa á móti því að lána1 peningana“. „Billy minn“, sagði hún blíð- 1 lega. „Þetta er held jeg það j fallegasta sem þú hefir sagt síð an við giftum okkur“. Eftir því sem Saxon umgekst Mercedes . lengur, því síður skildi hún hana. Hún komst fljótt að því að kerlingin var 1 samansaumuð, og það var eitt- hvað andstætt öllum sögum hennar um bruðl og óhóf, að Saxon blöskraði. Á hinn bóg- inn var hún forviða á því hvað Mercedes hjelt sjer til. Nærföt- in hennar voru öll handsaumuð og hinir mestu kjörgripir. Mat- urinn sem hún gaf Barry,. var að vísu góður, en hvað var það á móti matnum, sem hún hafði handa sjálfri sjer. Samt sem áður bar hún á borð fyrir þau bæði í senn. Þegar Berry j fjekk ólseigt kanínukjöt, þá skamtaði Mercedes sjer ljúf- fengar kótelettur. Ekki drukku þau sams konar te. Handa J Berry notaði hún te, sem kost- aði tuttugu og fimm cent pund ið, en handa sjálfri sjer keypti hún te, sem kostaði þrjá doll- ara pundið. Berry drakk sitt te úr stórri leirkrús, en Merced es drakk sitt te úr gagnsæum postulínsbolla með rósalit. Kaff ið, sem hún keypti handa hon- um, kostaði tuttugu og fimm cent, og hann fjekk aðeins und anrennu út i það, en kaffið, sem hún keypti handa sjer, var Moccakaffi, og kostaði áttatíu cent, og hún hafði hnausþykk- an rjóma út í það. „Þetta er fullgott í hann“, sagði hún. „Hann þekkir eng- an mun á því, og það væri skammarlegt að sólunda guðs gjöfum í hann“. Mercedes hafði kennt Saxon að leika á Ukulélé svo að hún varð leikin í því. Þá sagði Mercedes að hún hefði ekki neitt gaman að þessu barnagulli lengur og bauð Saxon að láta hana fá hljóðfærið í skiftum fyrir morgunkjól, sem Saxon hafði saumað og Mercedes dáð- ist mikið að. „Þessi ukulclé er að minsta kosti tveggja dollara virði“, sagði Mercedes. „Jeg keypti hann fyrir tuttugu dollara, en það er langt síðan. En hann er að minnsta kosti jafn mikils virði og morgunkjóllinn“. „Mætti þá ekki alveg eins kalla morgunkjólinn barnagull fyrir yður?“ spurði Saxon. „Jeg ætla ekki að eiga hann sjálf“, sagði Mercedes hrein- skilnislega. „Jeg ætla að selja hann. Jeg sel ýmislegt, sem jeg bý til, þegar gigtin er ekki að drepa mig. Þeir hrykki skamt til fyrir mínum þörfum þessir fimmtíu dollarar, sem Berry fær á mánuði. Jeg verð sjálf að sjá mjer fyrir aukatekjum. Gamalt fólk hefir meiri þörf fyrir peninga heldur en unga fólkinu getur komið til hugar. Það fáið þjer að reyna þegar þjer eldist“. „Jeg er ánægð með skiftin“, sagði Saxon, „og jeg get saum- að mjer nýjan kjól, þegar jeg hefi efni á því að kaupa efníð í hann“. „Saumið þjer nokkra kjóla“, sagði Mercedes. „Jeg skal selja þá fyrir yður — en jeg vil fá ómakslaun fyrir það. Jeg skal ábyrgjast yður sex dollara fyr- ir hvern. Jæja, við getum talað um þetta seinna. En þjer get- ið grætt á þessu og fengið vasa peninga fyrir yður sjálfa“. V. KAFLI Það gerðust fjórir merkisat- burðir þennan vetur. Bert og Mary giftu sig og leigðu hús skamt frá þar sem þau Billy og Saxon áttu heima. Mánaðar- keup Billy var lækkað — það var lækkað kaup allra öku- manna. Billy þyrjaði á því að raka sig sjálfur. Og að lokum þetta, að Sara hafði orðið sann spárri en Saxon. Saxon vildi ekki segja Billy frá því fyr en hún væri öldungis viss. Fyrst í stað var hún eins og milli vonar og ótta. Svo þrengdist í búi hjá þeim og þá fór hún að hugsa um þau auknu útgjöld, sem stöfuðu af fjölgun. Og þegar hún var orðin alveg viss í sinni sök, þá hurfu áhyggj urnar fyrir innilegum fögnuði. Kvöldið sem hún sagði Billy þessi gleðitíðindi, hafði hann ætlað að segja henni frá því að kaup sitt hefði verið lækkað, en hann hætti við það. Iiann varð jafn innilega glaður og hún sjálf. „Hvernig eigum við að halda upp á þennan merkisdag?“ sagði hann og faðmaði hana ástúðlega. „Eigum við að fara í leikhúsið? Eða eigum við að vera heima — við þrjú?“ „Við skulum vera heima“, sagSi hún. „Jeg vil aðeins hafa þig hjá mjer og finna til þess að þú ert mín vernd og hlíf“. BEST AÐ AUGLYSA í MORGUSBLAÐINU s** OTKÍHigí _ u GULLNI SPORINN 114. minn væri frár á fæti, þurfti jeg að halda í við hest minn, svo ekki drægi sundur með okkur. En það var tunglskin og heiðskýrt og Pottery skipstjóri hjelt því fram, að við mundum koma auga á her konungsins fyrir 'sólarupprás. Jeg fór af baki öðru hvoru og gekk við hliðina á Pottery, en hann sagði mjer allt, sem skeð hafði frá því við skild- um. Þegar hann kom til Plymouth með skip sitt, hafði hann frjett, að uppreisnarmenn hefðu í hyggju að taka öll skip í höfninni til að nota þau í stríðinu. Pottery tókst þó um nóttina að iauma skipi sínu út úr höfninni, og þaðan sigldi hann til Looc, þar sem honum tókst að fá gott verð fyrir megnið af varningi sínum. Meðan hann var þarna, ákvað hann að heimsækja frænda sinn í Alt- arnum. Hann skildi því skip sitt eftir í umsjón Matt Soamis og lagði leið sína gegnum Liskeard og Launfeston. Þar komst hann á snoðir um, að Stamford lávarður hjeldi her sínum í norðurátt, auk þess sem hann rakst á gamla kunningja sína frá norðurströndinni. Er þeir töluðu um stríðið, vildi svo til að þeir minntust á mig og þátt þann, sem jeg hafði átt í sigrinum við Braddok. Þessar frjettir ollu því, að hann leitaði Sir Vevill uppi, „og nú veistu, hvernig á því stendur, að jeg er hingað kominn“, lauk hann svo frásögn sinni. Það var komið miðnætti, er við gengum inn í Launces- ton. Þó tók jeg eftir því, að ljós voru í þvínær hverjum glugga, og að fjöldi fólks var enn á ferli á götunum. Við töfðum ekkert í bænum en gengum í gegnum hann og hjeldum áfram för okkar alla nóttina. Um sólarupprás sofnaði jeg í söðlinum og vaknaði ekki fyr en Pottery greip í annað hnjeið á mjer. Jeg opnaði augun og sá, að hann benti framfyrir sig. Sólin var komin upp, og við vorum staddir efst á hárri hæð, en fyrir fótúm okkar lá djúpur dalur. Hinum megin við dalinn var stór bakki, en á honum stóð fjöldi tjalda. Þetta voru uppreisnarmennirnir. Jeg heyrði lúðrablásar- ana þeyta horn sín og kalla hermennina til vopna, og enda þótt sólin væri nýkomin upp, var þarna sægur af mönn- um á ferli. Jeg leit niður dalinn og sá í fyrstu ekkert til herja — Ekki veit jeg hvaÖ við gætum gert, ef við hefðum ekki þessi ágætu rafmagnsljós. ★ í lcit að lífshamingju. Maður nokkur hafði verið að skýra fjelögum sínum á skrif- stofunni frá því, að sjer gengi svo ill^ að finna konu sem sjer líkaði vel við. Þá sagði vinur hans. — Þú ættir að reyna mína aðferð. Farðu eitthvert kvöldið, þegar framorðið er, upp til Westport, og bíddu á járnbrautarstöðinni þar til lest! in kemur. inn. Þar muntu sjá margar konur, sem hafa komið . á móti mönnum sínum, þegar 1 þeir koma úr vinnunni. En það eru altaf nokkrir menn sem missa af lestinni. Þú skalt því I snúa þjer að einni þeirra, sem j ekki hefir náð í manninn sinn, i og spyrja hana hvort þú eigir ekki að fylgja henni heim. Og þú getur verið viss um, að hún verður svo vond, að maður hennar skuli hafa misst af lest- inni, að hún þiggur boðið undir eins. Honum leist nú heldur en ekki vel á þessa ráðleggingu. Og strax næsta kvöld fór hann af stað. En leið hans lá gegnum Stamford-járnbrautarstöðina, svo að hann hugsaði sem svo. — það er best að jeg fari ekki lengra, hjer er einnig járnbraut arstöð, svo það er best að jeg leiti hamingju minnar hjer. Hann beið nú eftir næstu lest, og þar fóru eiginmennirnir út og fóru heim með konum sín- um ,en þó var ein yndisleg stúlka, sem varð eftir. Hann fór til hennar og spurði hvort hún vildi ekki borða með sjer, og hún þáði það undir eins. Síð- an borðuðu þau saman, drukku og dönsuðu og fóru heim til hennar. En einmitt þegar skemt unin var sem mest, kom hús- bóndinn heim og byrjaði að skamma konu sína. En skyndi- lega tók hann eftir því hvar maður var að stökkva út um gluggann. — Svo það ert þú, bölvaður þrjóturinn þinn, öskraði hann. — Jeg sagði þjer að fara tii Westfort, en ekki Stamfort.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.