Morgunblaðið - 14.11.1947, Blaðsíða 1
V
34. árgangur
260. t!>3.
Föstudasur 14. nóvember 1947
ísafoldarprentsmiðja h.í.
UPPÞOT í FRAKKLANDI OG ÍTALÍU
LeynÉpr fas-
istaf|ela|sskap-
ur
Kommúnistar hóvaðasamir.
Þingmenn kommúnista trufl
uðu ræðu Scalda hvað eftir
anað með frammíköllum og er
ólæti þeirra jukust, neyddist
forseti þingsins, Terragini, sem
sjálfur er kommúnisti, til að
vísi einum af þingmönnum
kommúnista úr þingsalnum.
Scalda fullvissaði þingmenn
úm að stjórnin myndi gera ráð
stafanir til að þessir fasistar
þrifust ekki í landinu.
Óeirðasamt hefir verið í
Ítalíu undanfarna daga og hafa
andstæðiifgar stjórnarinnar sak
að hana um að hafa ekki nægj-
anlega sterka lögreglu til að
gæta laga og rjettar.
Kommúnistauppþot
í Napoli og víðar.
Kommúnistar hafa efnt til
uppþota í Napoli og víðar, en
x öðrum borgum eru það bæði
kommúnistar og aðrir flokkar,
sem andvígir eru stjórninni,
sem sameiginlega hafa staðið
fyrir óeirðunum.
Verkföll og blaðabrennur.
I »rokkrum borgum hefir kom
ið til verkfalla. I norður-ítaliu
héfir skríll ráðist á blöð og
skrifstofur hægri flokkanna og
brénnt blöð þeirra með miklum
skrílslátum.
Beint gegn stjórninni.
Erlendir blaðamenn í Ítalíu
eru ekki í neinum vafa um, að
óeirðirnar eru skipulagðar til
þess að vinna ríkisstjórninni
sem mest ógagn og það eru
fyrst og fremst kommúnistar,
sem eiga 'frumkvæðið.
Daiton segir af sjér
vegna trúnaðarbrots
Róm í gærkv. Einkaskeyti
til Mbl. frá Reuter.
. ÞAÐ.VAKTI mikla athygli á
þingfundi í dag er innanríkis-
ráðherrann, Maríó Scalda, lýsti
því yfir, að það væri leynileg-
ur fasistaflokkur starfandi í
lándinu. Sagði í'áðherrann, að
til viðbótar ofbeldisverkum og
óeirðum í Mílanó í gær og í dag
hefði komið til óeirða í borgun
um Leghorn, Lucca og Spezia.
ibiaði uppiýsinpr
ræðu sína áður en hún var iiuff.
London í ga?r.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÞAÐ VAR opinberlega tilkynt frá forsætisi'áðherrabústaðnum
Downing Street nr. 10 í kvöld, að f jármálaráðherrann, Hugh Dal-
ton, hefði sagt af sjer embætti og fengið lausn. Ástæðan til þess
að hann lætur af embætti er fyrst og fremst sú, að hann viour-
kenndi á þingi í dag, að hafa gefið blaðamanni frá „Evening
Star“ í London upplýsingar um aukafjárlagaræðu sína 15 mín-
útum áður en hann flutti hana í þinginu. Viðurkendi Dalton í
þinginu í dag, að með þessu hefð,i hann framið trúnaðarbrot.
Harðar ádeilur á aukafjárlaga-
frumvarpið.
Andstæðingar stjórnarinnar
deildu fast á aukafjárlaga-
frumvarp Daltons, sem gerir ráð
fyrir enn hærri sköttum.
Sir Oliver Lyttelton komst
svo að orði að ^nginn maður
hafi verið bresku þjóðinni ó-
þarfari maður en Dalton og
hann ætti mikla sök á því á-
standi sem nú ríkti í landinu á
fjárhagssviðinu.
Hin kjánalega bjartsýni hans
í fjármálum og fullyrðingar um
að verðbólgan væri liðin hjá og
fjárhagurinn færi batnandi
hefði ekki verið sagður í öðrum
tilgangi en að vekja á sjer at-
hygli og reyna að koma sjer í
mjúkinn hjá kjósendum.
Franska þingið í uppnámi.
Ókvæðisorð fjúka milli
þingmanna.
París í gærkvöldi.
Eiftkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Á FUNDI FRANSKA ÞINGSINS í kvöld lenti alt í uppnámi. Þing
menn hægri flokkanna og vinstri flokkanna æptu ókvæðisorð hver
að öðrum og ásökuðu hver aðra furðulegustu ásökunum. Verið
var að ræða atburði þá, sem skeðu í Marseille í gærkveldi er
kommúnistalýður gerði árás á Ráðhús borgarinnar og slegist var
með hnífum og bareflum í næturklúbbahverfi borgarinnar.
^Kenndi kommúnistum.
Doktorsrilgerð
Bjarna Oddssonar
fær góða dóma
Hugh Dalton.
Um þrjár biljónir
WASHINGTON: — Taft öldung-
ax'deildax'þing'maður, hefur sagt í
ræðu í New York, að hann álíti nóg
að láta Evrópu fá um þi'jár biljón-
ir til endurreisnarframkvæmda
fyrsta árið.
Einu sinni komið
fyrir áður.
Það hefur einu sinni komið
fyrir áður í sögu breska þings-
ins að ráðherra hefur neyðst til
að segja af sjer fyrir að gefa
upplýsingar um fjárlagaræðu
áður en hún var flutt. Það var
árið 1936 er það sannaðist á þá-
verandi nýlendumálaráðherra,
J. H. Thomas, að hafa gefið upp
lýsingar um fjárlagaræðu. —
Hann varð að segja af sjer ráð-
herraembættinu, en hjelt þing-
sæti sínu.
Brefar fara frá Pale-
stínu 1. ágúst
Lake Success í gær
SIR Alexander Caddogan,
fulltrúi Breta á þingi S. Þ„
skýrði frá því í dag, að breska
stjórnin hefði ákveðið að láta
flytja alla breska hermenn frá
Palestínu fyrir 1. ágúst næstk.,
hvort sem Sameinuðu þjóðirn-
ar hefðu komið sjer saman um
lausn Palestínumálsins fyrir
þann tíma eða ekki.
—Reuter.
Kaupm.höfn í gærkvöiði.
Einkaskeyti til Morgunbl.
BJARNI Oddsson læknir varðii
í fyrradag við Kaupmannahafn-
arháskóla doktorsritgerð sína,
sem f jallar um æxli á mænu, en
þau geta haft lömun í för með
sjer. Hefur Bjarni safnað heim-
ildum sínum meðal sjúklinga á
Ríkisspítalanum.
Andmælendur voru prófessor-
arnir Busch og Mogens Fog, og
fóru báðir mjög lofsamlegum
orðum um ritgerð Bjarna. Taldi
Busch doktorsritgerðina það
besta, sem fram hefði komið um
ofangreindan sjúkdóm, of~ þeim
lækni til sóma, sem ætti að taka
að sjer forystuna á aðgerðum á
heila og mænu. — Páll.
Frá rtkisrásfundi
i gær
Á RÍKISRÁÐSFUNDI höldnum
í dag 13. nóvember staðfesti for-
seti íslands lög um breyting á
lög,um nr. 20 26. febrúar 1943,
um búfjártryggingar.
Á sama fundi var Jean Bella-
my skipaður vararæðismaður
íslands í La Rochella.
Marseille
París í gær.
Einkaskeyti til Morgbl.
frá Reuter.
VINNA hefir algerlega lagst
niður við höfnina í Marseille í
dýig og má heita að allsherjar--
•verkfall ríki í borginni, þar sem
stöðugt bætast við verkfalls-
menn í hópinn. Verkföllin hóf-
ust, er hermenn og lögregla
komu til Marseille í dag til að
stilla til friðar, eftir óeirðir,
sem urðu í borginni í gær og
kommúnistar stóðu fyrir, er
einn maður ljet lífið og tuttugu
særðust. ~
Malarar í París gera verkfall.
Hveitimalar í París hófu
verkfall í dag og krefjast hærri
launa.
Embættismaður í borgar-
stjóraskrifstofunum fullyrti í
dag, að Parísai’búar myndu fá
brauðskamt sinn óskertan, að
minstg kosti næstu daga, þar
sem 12 daga hveitibirgðir væru
fyrir hendi.
Frönsku blöðin gáfu í skyn í
dag, að kommnnistar myndu
neyta allra bragða og ekki
víla neitt fyrir sjer til að
koma öngþveiti á í landinu,
til þess eins að gera ríkis-
stjórninni erfitt fyrir.
Ólætin í þinginu hófust með
því, að einn af þingmönnum
hægri flokksins, „lýðveldis-
frelsis flokksins“, Menri Bea-
gasse, sagði hreinlega, að til
óeirðanna hefði verið stofnað
af kommúnistum og foringjum
verklýðsfjelags þeirra.
Flokki dc Gaulle
kennt um.
Kommúnistinn Francois Bill
oux, sem var ráðherra komm-
únista í samsteypustjórninni,
hjelt því hinsvegan fram, að
það hefðu verið meðlimir í
flokki de Gaulles hershöfðingja,
sem stofnað hefðu til óeirðanna
og sagði, að það væru menn,
sem „vildu selja land sitt und-
ir erlent ok“. Urðu þá óp mik-
il á þingbekkjum.
Ramadier lofan
rannsókn.
Ramadier forsætisráðherra
hafði farið fram á, að þetta
mál yrði ekki rætt fyr en sið-
ar, þar sem stjórnin vissi lítið
enn hve skeð hefði í Marseille,
en hann lofaSi rannsókn og að
hinum seku yrði hengt.
Billoux ásakaði ríkisstjórn-
ína í ræðu sinni og sagði, að
0
„blóð væri á höndum hennar“.
Spratt þá upp Ramadier for-
sætisráðherra og sagði:
„Þótt lítið sje um þetta mál
vitað, þá er það staðreynd, að
til óeirðanna var stofnað af
stjórnmálaflokki, sem þjer ber-
ið ábyrgð á“. Hann bætti því
við, að óeirðirnar og flokkur-
inn.^sem að þeim hefði staðið,
væri á móti franska lýðveld-
inu og rannsókn myndi vissu-
lega verða látin fai’a fram.
„Ef þið ætlið að reyna að
koma á einræði, munum við
berjast gegn því“, sagði for-
sætisráðherrann og allur þing
heimur klappaði honum lof í
lófa er hann lauk ræðu sinni,
nema kommúnistaþingmenn.
WASHINGTON: — Truman for-
seti, lagði fyrir nokkru blómsveig
á leiði óþekta hei’mannsins í Was-
hington, í tilefni af \ opnahljesdeg-
inum.