Morgunblaðið - 07.12.1947, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.12.1947, Blaðsíða 2
2 MORGIJJSBLAÐIÐ Sunnudagur 7. des. 1947. Síldarflulningarnir: Greinargerð frá Síldar- C verksmiðjum ríkisins og I.iandssambandi ísl. útvegsmanna Frá Isafirði: Myndorlegœr hafnarfrnmkvæmd- ir, umbætur í húsnæðismólum, nýjar skólabyggingar og nndir- búningnr oð hitaveitu og auk- imi raforku Samtal við Ásberg Sigurðsson bæjarstjóra EINS og kunnugt er hefur und- anfarna daga veiið norðaustan stormur fyrir Vesturlandi og NorSurlandi, sem leitt hefur til þess að síldarflutningaskipin hafa orðið fyrir miklum töfum, og stærsta flutningaskipið True Knot, sem lestaði 35.000 málum orðið fyrir áfalli og leitað neyð arhafnar. Eru horfur á að þetta skip, sem mest munaði um í síld- arflutningunum, hætti ferðum, auk þess sem alt bendir til að taka verði önnur flutningaskip til þess að ferma hluta af farmi True Knot, svo að það skip geti homist leiðar sinnar til Siglu- fjarðar. Af íramangreindum ástæðum er nú svo komið, að flutninga- skipastóll sá, er hlaðið getur bræðslusíld úr veiðiskipum vik- una 7.—14. des., nemur aðeins um 40 þúsund málum. Hinsvegar liggja nú í kvöld í Reykjavíkurhöín síldveiðiskip €2 að tölu með um 55 þúsund .uiála afla, þegar lokið er lestun e.s. Banan. Það er því sýnilegt að skip þau, sem síðust eru í löndunarröðinni geta ekki orðið affermd í flutningaskip í næstu viku. 1 þessu sambandi viljum vjei' taka fram eftirfai andi: Frá því að síldveiðarnar hóf- ust í Hvalfirði hafa fengist til flutninganna öll þau innlend skip, sem nothæf eru til síldar- flutninga, og ekki eru bundin við aðrar nauðsyrdegar siglingar eða síldveiðar, og lesta skip þessi samtals í einni ferð um 40.000 mál. Ennfremur hafa verið ráðin til síldarflutninganna 7 erlerid skip, sem lesta um 52.000 og eru tvö þeirra, sem lesta samtals 24.000 mál, þegar byrjuð flutn- inga. í flutningunum eru því nú skip, sem lesta 64.000 mál, og erlendu skipin, sem ráðin hafa verið, koma ekki til landsins f j r en síoari hluta þessa mánaðar. En í framangreindu yfirliti er hið stóra skip True Knot ekki talið með, þar sem búist er við að það muni ekki fást til að halda áfram síldarflutningum. Það skal tekið fram, að reynt hefur verið af íremsta vegni að fá leigð hentug erlcnd skip til síldarflutninganna alt frá því er síldveiðin 1 Hvalfirði hófst, og mun verða unnið kappsam- lega að því áfram að auka flutn ingaskipastólinn. Vegna þeirrar uppgripa síld- veiði, sem verið hefur undanfar ið og tafa fluíningaskipanna var fyrirsjáanlegt að miklar lönd- unartafir mundu verða hjá veiði skipunum, á næstunni, og ákvað því stjórn Síldarverksmiðja rík isins siðastliðinn fimtudag að Jcaupa síld af veiðiskipunum til geymslu í Reykjavík á kr. 22.00 tnálið, og stafar lækkun síldar- verðsins af þeim kostnaði og rýrnun á síldinni, sem þessu er óhjákvæmilega samfara. Leitaði stjórn Síldarverksm. ríkisins umsagnar L. í. Ú. um þessa ráðstöfun, og að athuguðu máli taldi stjórn L. í. Ú. þetta eina úrræðið eins og sakir standa nú, þó að því tilskyldu, að reyndist kostnaður og rýrn- un minni en kr. 10.00 pr. mál við að geyma síldina í lar.di, yrði mismunurinn endurgreiddur til síldveiðiskipanna, og fellst stjórn S. R. á þetta. Reykjavík 6. des. 1947. F. h. Síldarverksmiðja ríkisins Sveinn Benediktsson. F. h. Landssambands ísl. útvegsmanna Jakob Hafstein. Hu kæmi kjallari fæðiitgardeildar- innar sjer vel HJER á dögunum upplýsir húsameistari ríkisins, að tekin verði upp varahitun í fæðinga- deild Landspítalans, með raf- magni. „Svo mæla börn sem vilia“ segir máltækið. Þó tekin verði upp rafmagnsvarahitun í fæðíngardeildinni þarf eftir því sem áður rúm f.yrir katla, en fyrir þá er ekkert pláss í deildinni. Má urn leið geta þess að þar er heldur ekkert geymslu pláss fyrir birgðir deildarinnar, svo sem rúmfatnað, sjúkrarúm og annað. Þau herbergi, sem ætluð voru til geymslu hafa verið tekin til íbúðar fyrir starfsfólk Landsspítalans. Það kæmi sjer vel nú að hafa ekki fyllt kjallara hússins með grióti. I Landsspítalanum sjálfum er nú svo komið, þótt kuldar hafi ekki verið til muna, að nota verður rafmagnsofna í röntgendeildinni, til þess að halda þar nauðsynlegum hita. Miðstöðvarkatlar spítalans eru nú svo úr sjer gengnir, að þeir nægia ekki til að hita spítala- húsið upp. Ekki hafa enn ver- ið perðar neinar ráðstafanir til þess að afla nýrra katla, en það tekur sennilega 6 til 8 mán- uði. Sænsk-ungverskur verslunarsamnfngur Búclapest í gærkvöldi. TILKYNNT var í dag, að Sví ar og Ungverjar hefðu gert með bjer verslunarsamning, en sam- kvæmt honum eiga löndin á næstu mánuðum að skiftast á vörum fyrir um 20 miljónir sænskra króna. Ungverjar munu meðal ann- ars selja Svíum rafmagnstæki, vefnaðar- og járnvöru, en fá í staðinn blaðapappír og kúlu- legur. — Reuter. Yfirmaður hernámsstiórnar. Berlín — Charles M. La Foll- ette hefur verið skipaður yfir- maður hernámsstjórnarinnar í Wurtenburg-Baden ríkinu. Foil- ette var áður meðlimur fulltrúa- deildar bandariska þingsins. Á ÍSAFIRÐI hafa á þessu ári staðið yfir miklar framkvæmdir. Þar er nú verið að byggja einn lengsta hafnargarð á landinu, bæjarsjóður er að byggja þar í- búðir fyrir yfir 70 manns, til út- rýmingar heilsuspillandi húsnæði og myndarlegri húsmæðraskóla- byggingu er að verða lokið. Morgunblaðið hefur átt tal við bæjarstjórann á ísafirði, Ásberg Sigurðsson, um framkvæmdir í bænum, en hann er staddur hjer um þessar mundir í erindum kaupstaðarins. Hafnarframkvæmdir í vor var hafin bygging 220 metra langs hafnarbakka í Neðs+a kaupstaðnum, segir bæjarstjór- inn. Var byrjað á því að ramma niður verkpalla frá bátahöfninni og niður að gömlu bryggjunum þar niður frá. Gekk það verk mjög greiðlega. Síðan var byrjað á að reka niður járnþil og er það verk tæplega hálfnað. Eftir að tíð spilltist hefur vinna við það stöðvast. í haust vann dýpkunar- skipið Grettir að því að grafa upp ótraust botnlag við hafnar- bakkann og var síðan fyllt þar upp með góðri möl til að styrkja botninn. Þá var í sumar og unnið að því að aka uppfyllingarefni undir væntanlegan akkerisvegg, sem járnþilið verður fest í. — Standa vonir til að þessum hafn- arframkvæmdum verði lokið næsta haust. Með þessari hafnargerð hefur skapast viðlegupláss, þar sem 4 nýtísku togarar gætu athafnað sig samtímis. Dýpi við hafnar- bakkann verður 6 1/2 meter. — Jafnhliða skapast með uppfylling unni geysimikið land, þar sem hægt er að hafa fyrirtæki útvegs- ins á staðnum, svo sem væntan- legt fiskiðjuver og aðrar bygg- ingar útgerðarinnar. Mun verða mjög mikil bót að þessum fram- kvæmdum, þar sem bátahöfnm og bryggjurnar eru alls ófull- nægjandi fyrir þann skipakos^, sem nú er gerður út frá ísafirði. Marzelíus Bernhardsson, skipa- smíðameistari, stjórnar þessum framkvæmdum. Bæjarbyggingarnar Þegar haustið 1946 byrjaði bær inn byggingu 12 íbúða, þriggja herbergja, auk eldhúss. Er gert ráð fyrir að þar fái húsnæði yfir 70 manns. Eru þessar bygginga- framkvæmdir liður í rtefnu bæjarstjórnarinnar í að útrýma heilsuspillandi húsnæði í bænum, en samkvæmt skýrslu, sem heil- brigðisnefnd safnaði á s.l. ári, var talið að þar væru 32 heilsuspill- andi íbúðir. Er það tilætlun bæj- arstjórnarinnar að halda bygg- ingarframkvæmdum þessum á- fram þar til byggðar hafa verið nýjar íbúðir í stað þeirra. Felix Tryggvason, húsasmíðameistari, er yfirsmiður við þessar bygging- ar. Bygging sú, sem nú er 1 smíð- um, er þriggja hæða og er fyrir skömmu lokið við að steypa hana upp. Nýtur bærinn aðstoðar rík- issjóðs samkvæmt lögum um þessar framkvæmdir. Skólabyggingar Á s.l. ári var lokið við að stækka gagnfræðaskólann um Ásberg Sigurðsson. helming og eru nú í honum um 230 nemendur. Hefur verið hægt að framkvæma hina nýju fræðslu löggjöf vegna hins bætta húsnæð is skólans. Á þessu ári var einnig tekinn til afnota nýr og glæsilegur i- þróttasalur, sem er sambyggður sundhöll bæjarins. Eru nú allir fimleikar skóla og íþróttafjelaga kenndir þar. Þá er og að verða lokið byggingu húsmæðraskóla, sem rúmar 32 nemendur í heima- vist. Mun hann taka til starfa næsta haust. Þessar skólabyggingar hafa kostað bæinn mikið fje, sem mjög erfitt hefur verið að afla. En með þessum byggingum er vel sjeð fyrir húsnæðismálum skól- anna í náinni framtíð. Húsnæði barnaskólans er þó ekki full- nægjandi. Ennfremur vantar hús- næði fyrir sjómannakennslu og iðnfræðslu. Er ekki vansalaust að sjómannabær eins og ísafjörð- ur og raunar önnur sjávarpláss á Vestfjörðum, skuli ekki hafa betri aðstöðu til þess að mennta sjómenn sína, en raun ber vitni. Er mikill áhugi fyrir því í bær,- um að þar verð.i á næstunni byggður sjómannaskóli og hefur þegar verið safnað nokkru fje í því skyni. Barnaleikvöl lur í sumar var gerður fyrsti b'arnaleikvöllurinn, sem byggður hefur verið á ísafirði. Var honum valinn staðui við hlið gagnfræða- skólans á Riis-túni. Hefur verið komið þar fyrir nauðsynlegustut áhöldum. Þótt vellinum, sje ekki fulllokið, er hann þegar orðinn vinsæll hjá börnum í bænum. Við Austurvöll hefur nokkuð verið unnið að lagningu gang- stjetta, en gatnagerð verður yfir- leitt að bíða þar til lokið hefur verið við lagningu innanbæjar* kerfis vatnsveitunnar. N ýsköpunartogar inn væntanlegur í mars Hvenær er von á togara ís- firðinga? Afhending' hans hefur því mið- ur seinkað mjög. Var upphaflega gert ráð fyrir að hann kæmi á miðju sl. sumri, en líklega verð- ur hann ekki tilbúinn fyrr en I mars n.k. eða jafnvel síðar. Fiskiðjuver Hvaða framkvæmdir aðrar eru á döfinni hjá ykkur? Mest aðkallandi verkefni á sviði atvinnulífsins er að bæta a5 stöðu bátaútvegsins, til að hag- nýta aflann, sem best í landi. Því miður er hagur bátaútvegsins, eft ir þrjú síldarleysis sumur mjög erfiður. Hinsvegar er þörf stórra átaka til að búa í haginn fyrir útgerðina. Ráðgert er að byggja á ísafirði stórt og myndarlegt. fiskiðjuver, þ.S. hraðfrystihús, fiskimjölsverksmiðju, lýsis- vinnslu og jafnvel niðursuðu- eða fiskþurkunnarstöð. Hafa allir út- gerðaraðilar í bænum bundist samtökum um að brinda bygg- ingu þessa fyrirtækis í fram- kvæmd og stofnað Fiskiðjusam- lag ísfirðinga. Hefur stjórn Fisk- iðjusamlagsins þegar fengið full- an stuðning fjárhagsráðs og stofnlánadeildar til framkvæmda þessara. Er þegar hafinn undtr- búningur að því að koma upp full kominni fiskimjölsverksmiðju og væntanlega verður hafist handa næsta vor um byggingu hrað- frystistöðvarinnar. Vatnsveitan ísfirðingar búa við algerlega ó- viðeigandi ástand í vatnsveitu- málum sínum. Neysluvatn er þar mjög af skornum skammti mest- an hluta ársins. Innanbæjarkerfi vatnsveitunnar er orðið gamait og úrelt og hefur verið vanrækt að endurnýjá það. Aðalvatns- leiðslan til bæjarins flytur held- ur ekki nærri því nóg vatn og skilyrði til vatnsmiðlunar hefur skort. í sumar hefur verið grafið fyr- ir 1200 tonna vatnsgeymi fyrir ofan bæinn og nokkur hluti inn- anbæjarkerfisins hefur verið endurnýjað með víðari rörum. — Annað efni í innanbæjarkerfið er væntanlegt á þessum vetri. Þá er ráðgert að leggja á næsta oumri nýja aðalleiðslu. Ber brýna nauð- syn til þess að ljúka þessum framkvæmdum sem fyrst. — Við núverandi ástand er ómögulegt að búa. Aukin raforka og liitaveita. Rafmagnsskortur er mikill ú ísafirði. Að vísu hefur bæjarfje- lagið ráðist í tvæi vatnsvirkjan- ir við Fossavatn og Nónhorns- vatn og virkjað um 1250 kw, en því miður hefur ekki tekist að koma upp nægilegri vatnsmiðlun til að koma í veg fyrir rafmagns- skort á vetrum. Hefur orðið að skammta rafmagn 1—2 mánuði á hverjum vetri og hefur hún þó ekki alltaf náð tilgangi sínum, þannig að algert rafmagnsleysi hefur skollið yfir. Hefur oft látið nærri að framleiðsluvörur, sem skipta hundruðum þúsunda kr. að verðmæti hafi legið undir stör skemmdum og hefði illa farið, ef íshúsin hefðu ekki haft sínar eig- in varastöðvar. Þetta ástand í raforkumálunum hefur og stór dregið úr eðlilegri notkun raf- tækja til heimila og verkstæða, þar sem amast hefur verið við Frh. á bls. 5. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.