Morgunblaðið - 10.12.1947, Blaðsíða 1
16 síður
34. árgangur 283. thl. — Miðvikudagur 10. desember 1947 íaaloldarprentsmiðja h.l
SIGUR KOMMÚIMISTA í FRAKKLANDI
KA UM ÓVINÁTTU
VerkfölSunum í Frakk-
andi afljett
París í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins írá Reuter.
VERKFALL5NEFNDIN FRANSKA hjelt skyndifund í dag og
samþykti að aflýsa öllum verkföllum í Frakklandi frá og með
deginum á morgun. En þá áttu að ganga í gildi ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnaf gegn skemdaverkamönnum. — Hafa kommúnistar
þannig algjörlega gefist upp í verkfallsmálinu.
Verkföll hafa staðiö í rúmlega þrjár vikur og' usn tíma
voru 2 miljónir manna í verkföilum. SíSustu dagana
hefur borið á því að verkamenn Iiafi ekki viljað hlýða
fyrirmælum verkalýðssambandsins og hafa þeir horfið
til vinnu sinnar í stríðum straumum unflanfarna daga
og virt fyrirskipanir kommúnista að vettugi.
Óeirðir og mannflráp
í dag kom til óeiroa milli lýð-
veidisvarðmanna og verkfalls-
manna í borginni Arles í Suður-
Frakklandi og særðist lögreglu-
stjórinn í Erles og átta menn
aðrir, en einn lýðveldisvörður
fjell. Fjórir verkamenn særðust
hættulega. Tilraun var gerð til
skemdarverka á járnbrautinni
rnilli Amentiennes og Lille í dag,
en hún mistókst.
Skynsemin varð sterkari.
Daniel Meyers, atvinnumála-
ráðherra Frakklands ljet svo um
mæít er hann heyrði að verkföll-
unum hefði verið afljett, að hann
gæti ekki dulið ánægju sína. —
Það væri auðsjeö að skynsemin
hefði í þetta sinn orðið ofbeldinu
yfirsterkari og verkamenn hefðu
greint á milli hagsmuna sinna
og hagsmuna pólitískra ævin-
týramanna. — Hann kvað ríkis-
stjórnina nú myndi vinna að því
að tryggja kjör verkamanna sem
best.
Tryggja verður verkamönnum
viðunandi kjör
Leon Jauhoux, au*ar forseti
verkalýðssambandsins, sem er
jafnaðarmaður og var á móti
verkföllum, en studdi kröfur
verkamanna um hærri laun, Ijet
svo ummælt í útvarpsræðu í
kvöld, að nú yrði stjórnin að sjá
til þess að verkamenn fengju
mannsæmandi kjör og einnig
yrði hún að gæta þess, að kaup-
máttur frankans minkaði ekki
frá því sem nú væri.
í ávarpi frá kommúnistunum
er sagt, „að verkamenn verði
að bíða betri tíma.“
Pólverjar dæmdir H!
dauða
Hamborg í gær.
FJÓRIR Pólverjar voru dæmdir
í dag til hengingar af yfirrjetti
fyrir að reyna að sprengja í loft
upp járnbrautarlest með um sex
tíu hermönnum í. — Reuter.
Á FUNDI sínum í gær á-
kváðy kauplagsnefnd og Hag-
stofan að samkvæmt útreikn-
ingi vísitölu framfærslukostn-
aðar fyrir desembermánuð,
skyldi hún vera 328 stig. •—
Hefur hún því hækkað um tvö
stig síðan í nóv.
Á þessum mánaðartíma hafa
brauð hækkað í verði, einnig
vefnaðarvara og skófatnaður.
NÝLEGA tilkyntu Bretar, að
þeir hefðu gert verslunarsamn-
ing við Svía. Er búist við að við-
skipti þessi nemi alt að 50 milj.
punda 1948 frá hvoru landinu
til hins. Samningur þessi, sem
gengur í gildi næstkomandi maí
var undirritaður í utanríkis-
málaráðuneytinu af M. E. Bohe-
man sænska«sendiráðherranum,
og Sir Orme Sargent aðstoðar-
utanríkisráðherra .Breta. Sjer-
stök atriði samningsins verða
birt bráðlega. — Reuter.
Úl- oö innflufniRgs-
möguleikar Þýska-
lands ræddir
Á FUNDI utanríkismálaráð-
herranna var aðallega rætt um
útflutnings og innflutnings-
möguleika Þýskalands og sam-
þyktu þeir tillögu Bevins um að
saminn skyldi uppdráttur að
þeim. Annars skeði lítið á fund-
inum þar sem Bevin fulltrúi
Breta hafði ekki mætt á fund-
inum í gær og hafði ekki alveg
náð sjer í dag þó hann mætti.
Russar vísa franskri nefnd
úr landi. Neita að veita
viðskiftanefnd móttöku
MOSEH SHESTOK, foringi Gvð-
ingaráðsins hefnr verið vestur í
Ameríku á alþjóðaþingi S. þ. til
að fylgjast með málum Gyðinga
í sambandi við skiftingu Pales-
tínu.
feroaoann miiii
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
RÚSSNESKA sendiráðið í París neitaði í dag að árita vegabrjef
írönsku viðskiptanefndarinnar, sem ætlaði að leggja af stað til
Moskva í kvöld. Um sama leyti skipaði hún írönsku flóttamanna-
nefndinni, sem var í Moskva að fara þaðan hið skjótasta. Ástæð-
an fyrir þessum fáheyrðu atburðum telur rússneska stjórnin
„fjandskap" frönsku stjórnarinnar vegna þess að hún hafi vísað
úr landi nítján rússneskum borgurum, sem uppvísir urðu að vinna
gegn hagsmunum Frakklands, og fyrir að loka flóttamannabúð-
unum hjá París.
rfkjunuml
BRESKUM hermönnum var
skipað í kvöld að skjóta þá, sem
sæjust á svæðinu milli Tel Áviv
og Jaffa, en þar gerðu Arabar
mikla árás í gær og drápu um
sex Gyðinga og særðu marga.
Khalidi aðalritari Arabanefnd-
arinnar hefur látið svo um mælt
að ekki komi til mála að nokk-
ur stjórn Araba verði sett upp
nema í Palestínu sjálfri og að
Arabar standi reiðubúnir til þess
að hefja árás inn í Palestínu
ef þörf gerist. — Reuter.
BANDARIKJASTJORN hefur
farið fram á það við þingið, að
hún fái völd til þess að skamta
kjöt, og kaupa alla hveitifram-
leiðslu landsins ef til vandræða
horfir. Stjórnin Ijet þess og get-
ið í tilmælum sínum við þingið,
að skömtun á kjöti yrði forðast
nema ef það yrði algjörlega
nauðsynlegt. — Reuter.
Kolanám Brefa eyksf.
LEIÐTOGI kolanámumanna
sagði í dag að eftir tvö ár verði
útflutningur kola frá Bretlandi
kominn upp í 50 miljónir smá-
lesta á ári, en það hefur hann
ekki verið síðan 1939.
Rússa
Ottawa í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
KENZIE KING, forsætisráðherra Kanada, ljet svo um-
í þingræðu í dag, að augljóst væri, að Rússar vildu halda
við öngþveitinu og erfiðleikunum í Evrópulöndunum, enda hefðu
þeir í hyggju að leggja undir sig fleiri Evrópulönd.
\
MAC
mælt
Ætla að koma upp sjerstjórn
í Þýskalandi
King sagði, að alt benti til
þess, að Rússar hefðu í hyggju
að koma upp sjerstjórn í Þýska-
landi til þess að nota hana sjer
í hag og beita honni fyrir sig
á meðan þeir væru að ná fast-
ari tökum á þýsku þjóðinni.
Rússar styddu komúnista í
mörgum löndum heims til að
koma á vandræðum.
Þetta væri meðal annars aug-
ljóst af atburðum síðustu dag-
ana í Frakklandi.
Forseti íslands sendi
Svfakonungi
árnaðaróskir
FORSETI íslands sendi Gustav
V. Svíakonungi árnaðaróskir í
tilefni 40 ára ríkisstjórnaraf-
mælis hans.
Forseta barst í gær alúðlegt
þakkarskeyti frá Svíakonungi.
Samningur „einskisver8tor“.
Talsmaður rússneska sendi-
ráðsins í París sagði að stjórn
sín áliti flóttamannasamning- •
inn, sem gerður var í júní 1945
„einskisverðan". Flóttamanna-
búðir þær, sem um er að ræða
voru skrifstofur umboðsmanna
Rússa, sem unnu að því að fá
rússneska borgara til þess að
snúa aftur til Rússlands.
Rússar uppvísir að
skemdarverkum.
Aftur á rnóti hefur talsmað-
ur utanríkisráðuneytis Frakk-
lands lýst því yfir ,,að allmargir
meðlimir flóttamannanefndar
Rússa hafi þegar orðið uppvís-
ir að ýmsum verkum, sem eru
hættuleg öryggí Frakklands“„
(með öðrum orðum njósnir).
Mcðlimir sendiráðsins
handteknir.
Það upplýstist ennfremur að
tuttugasti sovjetborgarinn hefði
verið tekinn fastur fyrir ýmis
spellvirki, og muni hann verða
rekinn úr landi, Sendiherra
Rússa í París gekk í dag á fund
utanríkisráðuneytisins til þess
að mótmæla formlega handtök
unni, en þá var kunnugt að
þessi síðasti, sem handtekinn
var, er meðlimur sendiráðs
Rússa í París, og það hátt sett-
ur að hvorki nafn hans nje staða
var látin í ljósi.
Þingmaður krefst
umræðu.
Einn þingmaður hægrimanna
Pierre Montel, krafðist þess að
þessir óvæntu atburðir yrðu
sem fyrst teknir til umræðu í
þinginu til þess að vita um
hvaða afstöðu stjórnin tæki.
Truman á fteimleið
Key West, Florida.
TRUMAN forseti er nú á
heimleið til Washington en hann
hefur dvalið hjer í nokkra daga
til þess að ljúka við samning
ræðu sinnar um hjálp handa
Evrópu. •— Rcuter.