Morgunblaðið - 14.12.1947, Side 7

Morgunblaðið - 14.12.1947, Side 7
Sunnudagur 14. des. 1947 MORGUNBLAÐIÐ 7 R E Y K Síldarflulningarnir. EFTIR að tryggt varð, að hin stóru amerísku flutningaskip fengjust til síldarflutninganna norður, má segja, að áhyggjum manna sje liett af því að aflinn komist ekki nokkurnvegin jafn- óðum áleiðis til vinnslu og hann kemur í höfn, þó Iandburður verði áfram. Með þeim flutningaskipastól, sem þá er fenginn, geta verið á 2. hdr. mál síldar á floti í einu frá veiðistöðvunum hjer og til sílclarverksmiðjanna. Allir menn, er vilja líta á það mál með sanngirni, munu geta verið ið sammála um það, að bæði fljótt og vel hafi verið brugðið við, frá hendi þeirra manna, sem haft hafa þann vanda með hönd um, að eiga að koma hinum ó- vænta en mikla aflafeng til verk smiðjanna. Það hefði orðið lítið úi tekj- um sjómanna og útgerðar- manna af þessari nýstárlegu vertíð, ef farið hefði verið eftir „línu“ Þóroddar Guðmundsson ar er var því fráhverfur í upp- hafi, sem kunnugt er, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins skiftu sjer nokkuð af þessum málum. Hann vildi að hafður yrði sá háttur á, einsog á sumarvertíð- um við Norðurland, að veiði- skipin yrðu sjálf að sjá fyrir því, að koma aflanum upp að bryggjum verksmiðjanna. Þar fyrst tæki verksmiðjustjórnin við síldinni til vinnslu. Þetta er óneitanlega bæði þægilegra, fyrirhafnar- og áhættuminna, en að taka við síldinni hjer í Reykjavíkurhöfn, ekki síst vegna þess, að engum hafði til hugar komið að svipaður afli gæti borist hjer að landi, einsog raun hefir á orðið. ASfarir komma. AFSKIPTI' kommúnista af þessum síldveiðum, og hagnýt- ing aflans, eru á margan hátt skringileg. Þegar Þóroddur var uppgefinn við að tefia að- gerðir verksmiðjustjórnarinnar, og farinn í einskonar sumarfrí norður í land, tíl að hvíla sín lúin bein, reyndu lagsmenn hans hjer syðra enn að tefja fyrir því, að síldin kæmist úr • skipunum. Þá voru alt áð því 100 síldveiðiskip íullfermd hjer í höfninni. Og gripið til þess ráðs, að flytja síldina hjer á land, þá, sem ekki gat komist í flutningaskipin fyrr en eftir langa bið. En síldin í Hvalfirði þá svo mikil, að skipin er þang- að komust fengu að jafnaði full fermi á sólarhring eða styttri tíma. Þá var ekki um ar.nað að gera fyrir mörg skipin, en ann- aðhvort að verða af margra daga veiði, eða leggja af stað með aflann norður, einsog það er fýsilegt um hávetur. Með áróðri tókst kommúnistum að tefja að byriað væri á uppskip- un síldar til geymslu hjer í Reykjavík. Þóktust þeir að vísu vera að vinna í þágu sjómanna og útgerðarmanna með því að fá þá til að færast undan að afhenda síldina En áform kommanna var að tefja skipin enn um stund. Um allan heim eru þeirra nótur hinar sömu. Að þykjast vera að vinna að velferðarmál- um þegar hægt er að telja ein- hverjym trú um, að skemdar- störf þeirra komi einhverjum að gagni. J A V í Tillaga í þinginu. BERASTA gerðu þeir sig að loddaraskap þegar Aki og Lúð- vík Jósepsson frjetta það útí bæ, að nú hafi stjórn síldar- verksmiðjanna ákveðið að koma af stað pppskipun síldar í stór- um stíl til geymslu hjer, hlaupa uppí þing með skrifaða tillögu um það. að slík uppskipun, sem ákveðin var, yrði að hefjast. Slíkur tilbúinn óhugi minnir of mikið á kapphlaup barna í saltabrauðsieik, til þess að hann sje samboðinn þingmönnum. Gerir það engan mismun þó Þjóðviljinn eyði nokkrum dálk- um eða síðum í það að hæla Áka og Lúðvík fyrir slík „fremd- arverk“. Na>sta ár OKKAR ágæti Bjarni Sæ- mundsson segir í fræðibók sinni um fiska á íslandsmiðum að ,.við Suður- og Suðvestur ströndina sjest síldin sjaldan ofansjávar, enda þótt þjettar torfur sjeu af henni niðri í sjónum". Eftir því sem mjer hefir skil- ist, hefir sú sííd, sem verið hef- ir í Hvalfirði undanfarnar vik- ur, ekki breytt teljandi útaf þessari venju, haldið sig niðri í sjónum, en svo nálægt yfir- borði með köflum, að til hennar næst ai5 nokkru 'leyti með hin- um breiðu hérpinótum. Það verða, og hafa sjálfsagt verið, áraskipti að því, hve mikil síldarganga er inni í Hval firði. En ákaflega er ólíklegt, að síldin sje ekki mikil hjer í nánd á hverju ávi, úr því svo mikil mérgð getur verið af henni inni í þröngum firði, og það af síld, sem er á mismun- andi aldri. Fæ jeg ekki belur sjeð, en menn verði að leggja hina mestu áhersiu á, að hraða því, að koma hjer upp fyrir næstu vertíð beim útbúnaði sem tryggja kann, að síldarafli hjer syðra á þessum árstíma komi að sem bestum notum. En vegna þess hve undirbúningstíminn er naumur, þyrfti að leggja aðal- áherslu á, að koma upp örugg- um geymsluplássum þannig út- búnum, að síldin skemmist ekki, þó hún þyrfti að bíða all- lehei eftir vinnslu. Eftir því sem mjer skilst, eru síldveiðar Norðmar.na á vetrum að ýmsu leyti svipaðar og veið- in hefir verið í Hvalfirði nú. En þar birta dagblöðin spádóma um það, á hvaða tíma sje von á því, að sildin komi upp að ströndinni og síldveiðar hefjist, og’ hvar hana muhi helst bera upp að landi. En á því er nokk- ur mismunur frá ári til árs. Það væri í meira lagi fróðlegt að vita, hvaða rannsóknir eða athuganir norskra fiskifræð- inga lægju til grundvallar fyr- ’r slíkum spádómum. Eitthvað kynnum við að geta af þeim lært er snerti veiðarnar hjer. Þar er von á síldinni í ár, eftir spádómum fiskiffaeðinga uppúr miðjum janúar, 5 iómannasto fa Á SÍÐASTA bæjarstjórnar- fundi kom fram uppástunga um það, að sýningarskáli lista- manna, sem reistur var við Kirkjustræti fyrir nokkrum ár- um, yrði tekin fyrir sjómánna- stofu, á meðan á síldveiðunum stendur hjer. Vissulega er það eitt af þeim málum, sem skyndilega þarfn- ast úrlausnar, að hinn mikli K U R B fjöldi sjómanna, sem safnast hjer saman í bænum víðsveg- ar að af landinu, geti haft ein- hvern vistlegan stað. En það er með þetta nauðsynjamál, eins og önnur, sem upn hafa komið í sambandi við hina miklu síld- veiði, að enginn tími hefir ver- ið til þess að undirbúa það til úrlausnar. En heldur fannst mjer það óviðfeldið einsog, það kom fram hjá tillögumanni á bæjarstjórn arfundinum, að þessi húskynni ættiHyrst að taka einskonar traustataki, þegar á þyrfti að halda, fyrir annað en sýning- arskálanum er ætlað. Fjelag ísl. listamanna kom af eigin rammleik upp þessum 'skála, Fjekk að vísu lóðina leigða hjá hinu háttvirta Al- þingi eða ríkisstjórn. Og er það góðra gjalda vert. En vel ættu menn að muna, að með bvgging skála þessa hafa fjelitlir listamenn okkar leyst úr vanda fyrir bæjarfjelag ið, með því að koma upp sýn- ingarhúsi, hinu besta, sem hjer hefir verið völ á, þó ekki sje nema til bráðabi”gða. Og vita menn nú betur en áður, hve mikill þáttur myr.diistin er orð- in í menningu þióðarinnar og líkleg til þess að auka hróður okkar með erlendum þjóðum, ef rjett er á halaið. Til bráðabirgða mætti t. d. hugsa sjer að fá fyrir sam- komustað sjómanna, salar- kynni þau, sem eru í hinni nýju, og enn ónotuðu mjótkurstöð, þar sem fara fram dansleikir og skröll, með litlum menningar- brag á stundum. Staður þessi, sem meðal bæjarbúa er stund- um nefndur Brúsastaðir, senni- lega með tilliti til þess að þang- að er von mjólkurbrúsa, er tím- ar líða, er að vísu spölkorn frá hðfninni. En þangað eru tíðar strætisvagnaferðir. Hættuleg innilokun AF öllum þeim takmörkunum á innflutningi, sem settar hafa verið á, til gjaldeyrissparnaðar, tel jeg eina þeirra einna óvið- feldnasta, og jafnvel hættuleg- asta, er til lengdar ljeti. — Að hindra eða banna innflutrdng á erlendum bókum. ,Við kunnum að mega vera státnir af sjálfstæðri íslenskri menningu o. s. frv. En þá hefur hún best blómgast, þegar hún hefur haft lífrænt samband við það, sem er að gerast í umheim- inum. Menn kunna að telja að til uppbótar komi blöðin og út- varpið, og allur sá sægur er- lendra bóka, sem þýddur er. En með allri virðingu fyrir blöðum og útvarpi og íslenskri bókaút- gáfu, þá getur fróðleikur sá aldrei átt skylt við þá fræðslu, sem menntamenn sækja sjer í erlend rit, m.a. til þess að fylgj- ast með nýjungum í fræðigrein- um sínum. Engin vísindastarf- semi getur hjer átt sjer stað, nema menn eigi sæmilega greið- an aðgang að öflun erlendra fræðibóka. Hjer er um að ræða menning- armál, sem ekki er hægt að skella við skolleyrum. , íslendingum bo'&inn fulltrúi í Palestínu- nefnd. ÞEGAR kjósa fjkvldi fulltrúa frá Sameinuðu þjóðunum, til þess áð vera í stjórnarnefnd Palestínu var íslendingum boðið að tilnefna einn fuiltrúa í nefnd R JEF þessa. Nefndin á að hafa ábyrgð l á yfirstjórn landsins, á tímabil- inu frá því að Bretar láta þar af stjórn þ. 1. ágúst n.k. og þar til skifting landsins á að vera kom- in í kring þ. 1. okt. Tilboð þetta sýnir, að þeir fultrúar Islands, sem hafa átt sæti á þingi Sameinuðu þjóð- anna, hafa áunnið þjóðinni trausts. Og er það öllum lands- mönnum að sjálfsögðu gleðiefni. En ríkisstjórnin taldi, að ís- lendingum væri hentugast að hafa ekki svo mikil og bein af- skifti af viðkvæmu deilumáli, og afþakkaði því hið góða boð. — Eins gerðu Norðmenn. En þeir áttu þess líka kost, að hafa full- trúa í þessari væntanlegu stjórn- arnefnd. Var þeim boðið það samtímis Islendingum. En að þessum þjóðum tveim frágengn- um var Dönum boðið að hafa ?ar fulltrúa frá sjer. Þáðu þeir boðið. J árnsmiðadeilan JÁRNSMÍÐADEILUNNI lauk í vikunni, með því að járnsmið- irnir fengu þá grunnkaupshækk un, sem þeir fóru fram á. En í staðinn fengu járnsmíðameistar ar nokkrar þær breytingar á fyrri samningum, sem þeim þótti miða til hagsbóta fyrir sig. M.a. það að nú er leyfilegt að smiðirnir taki verk í ákvæðis- vinnu. Með því er talið að vinna kunni með köflum að ganga greiðara, en áður var. Er ein- kennilegt að járnsmiðirnir skuli hafa viljað banna þá til- högun. Kommúnistar hrósuðu . sigri að aflokinni deilunni. Þeir hafa að vissu leyti ástæðu til þess. Því þeir berjast hjer sem ann- arsstaðar fyrir því að dýrtið aukist. Þeir menn, sem lögðu á móti grunnkaupshækkun í þessu tilfelli, gerðu það ekki vegna þess að þeir teldu, að 12 króna grunnkaupshækkun járnsmiða á viku skifti í sjálfu sjer miklu máli. En margir líta svo á, sem kunnugt er, áð það sje jafnt þjóðfjelaginu sem eínstökum sjettum og einstaklingum fyrir bestu, að ekki verði aukið á dýr- tíðina í landinu með kauphækk- unum úr því sem komið er. Stefna kommúnista EINS og kemur að heita dag- lega fram í skrifum Þjóðviljans, eru kommúnistar þar á öðru máli. Þeir vilja auka dýrtíðina. Gera peningana með því sem verðminnsta. En þegar dýrtíðin í landinu er orðin svo mikil að atvinnan brestur eða hverfur, þá hugsa þeir sjer gott til glóðarinn ar. I eymd þeirri og glundroða, sém þeir þá eiga von á, að yfir dynji, ætla þeir að ná þeim und- irtökum í þjóðfjelaginu, sem þeim ekki getur tekist með öðru móti. Þetta eru, sem kunnugt er, engar getsakir í þeirra garð. Þetta eru staðreyndir. Þannig vinna komrnúnistar í öllum lönd um Evrópu fyrir vestan Járn- tjaldið. Þar sem þeir sjálfir ráða lögum og lofum, þar er verkalýðurinn hnepptur í þræl- dóm. Engin verkföll, kaupkröf- ur eða atkvæði um það, hvaða kjör alþýða manna á cið að búa. Eftir að kommúnistaflokkur- inn endurreisti alþjóðabandalag sitt í Varsjá í haust, og sú stofnun tók til starfa í Belgrad, lagði flokkúrinn megináherslu á, að auka dýrtíðina í löndum þeim, þar sem þeir hafa flokks- deildir en ekki völd, og gera kaupmátt peninganna sera Laugardagur 13. desember minnstan. I Frakklandi kom það á daginn, að verkfallaaldan, sem flokkurinn setti þar á stað, átti að verða upphaf að allsherj- arbyltingu. Þetta mistókst, sem nú er kunnugt orðið. En nú er röðin komin að ítölum. Verið er að reyna að koma því á þar, sem ekki tókst í Frakklandi á dög- unum. IIjer og þar MENN verða að gera sjer það alveg ljóst, að kommúnistar, hvar sem þeir eru í heiminum, og af hvaða þjóð sem þeir eru, þá eru þeir allir í einum og sama flokki, hlýða sama flokks- aga, og lúta sömu ílokksreglum. Alþjóðabandalag kommúnista var lagt niður árið 1943. — En ekki nema í orði kveðnu, sem nú er fullkunnugt orðið. Það hvarf ekki út úr heiminum, frek ar en þeir menn, sem fóru huldu höfði á styrjaldarárunum í heimalöndum sínum, vegna þess að þeim var það hentugra af einhverjum ástæðum, heldur en að halda áfram að lifa í dags- birtunni. Þegar styrjöldin var þetta langt komin, urðu Rússar að koma sjer vel við Vesturveldin, til þess að fá þaðan nægar vopnabirgðir og aðrar lífsnauð- sjmjar. Og þá var það óviðfeld- ið, að hafa opinberlega starf- andi stofnun, sem samkvæmt lögum sínum og starfsreglum átti að koma á heimsbyltingu, og undiroka þær þjóðir, sem voru samherjar Rússa í þáver- andi stríði. I lögum alþióðabandalagsins segir m.a.: „I hverju landi getur aðeins einn kommúnistaflokkur starfað, en allir þessir flokkar eru ekki annað en deildir í al- þjóðaflokknum. Þessar flokks- deildir lúta járnaga miðstjórnar innar“. Kuusinen yfirmaður ER skipulag flokksins rakið í tímaritinu Svensk Tidskrift, sem nýlega kom út. Þar segir m.a. að menn hafi furðað sig á því, að flokksdeild- ir kommúnista á Norðurlöndum skuli ekki vera opinberlega taldar með í þeim, sem eru þátt- takendur í hinu endurreista al- þjóðabandalagi. En skýringin á því er auðfundin, segir í tíma- ritinu. Því fyrir löngu síðan hef- ur verið sjeð fyrir sambandinu á milli Moskvastjórnarinnar og kommúnista á Norðurlöndum á annan hátt. Otto Ville Kuusinen (menn kannast við nafið á Quisl ingnum finnska), hafi fyrir ára tugum síðan tekið að sjer for- ystuna í Moskva yfir Norður- landadeild flokksins, en hann hafi nú að rpestu flutt bækistöð sína til Helsingfors. Þetta er nýung fyric íslenska blaðalesendur. Viðkunnanlegra að vita hvaða persóna það er, sem hefur yfirstjórn á starfi hinnar íslensku flokksdeildar og þar með ákveður, í aðalatriðum, gerðir 10 manna, sem sæti eiga á Alþingi íslendinga. Dýrtíð og framleiðsla MÁLTÆKIÐ segir: „Flýtur á meðan ekki sekkur“. Á þessu ári hefir tekist að koma útflutn- ingsafurðum landsmanna í verð. Sem að vísu var svo langt fyrir neðan framleiðsluverðið, Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.