Morgunblaðið - 14.12.1947, Síða 12

Morgunblaðið - 14.12.1947, Síða 12
VEDURÚTLITIÐ: — Faxaflói: VAXANDI suðaustan átt. — Rigning öðru hvoru.______ h - 1 REYKJAVÍKURBRJEF er á bls. 7. — Tólf mönnum af breska fegaranum bjarga Skipbrotsmenn Ijetu fyrirberast und ir klettunum í nótt ÞRÁTT FYRIR ótrúlega erfiðar aðstæður, tókst björgunarsveit-*’ inni frá Hvallátrum í gær að bjarga þeim skipbrotsmönnum, or enn voru á lífi í breska togaranum Dhoon. Af 15 manna áhöfn skipsins var 12 mönnum bjargað. Þrír þeirra ljetust um borð í skipinu. Björgun skipverjanna mun hafa tekið um það bil tvo klukkutíma. í nótt er leið ijetu skipbrotsmenn fyrirberast í f jöru- borðinu undir Keflavíkurbjargi. Um land alt er litið á björgun skipbrotsmannanna, sern hið mesta þrekvirki. Slikt mun heldur ekki vera offmælt. Fyrstu frjettir af björguninni. í allan gærmorgun var frjetta af björgun skipbrotsmanna, beð- ið með hinni mestu óþreyju hjer í Reykjavík. Slysavarnarf jelagið hafði að sjálfsögðu stöðugt sam band við varðbátinn Finnbjörn, sem hjelt sig í námunda við hið strandaða skip. Höfðu skipverj- ar fylgst með öllu því er gerðist um borð í togaranum eftir því sem hægt var, frá því, að skip- ið strandaði. Fyrsta frjettin af björgun skipbrotsmanna barst Slysavarnaf jelaginu um kl. 12,30 í gær. Þá sáu skipverjar á Finn- birni hvar skotið var af línu- byssum tveim skotum að hinu strandaða skipi. Skyggni var slæmt og gátu skipverjar á Finn birni ekki fylgst vel með því sem gerðist, því þokuslæðingur var. Þetta var fyrsta merki þess að björgun skipbrotsmanna var hafin. Björgunarstarfið’ Þrátt fyrir dugnað frjetta- manns Morgunblaðsins á Pat- reksfirði, sem er aðalheimilda- maður að þessari frjett, voru um miðnætti í nótt, frjettir af björguninni allóljósar. Ekkert frjettist frá því klukkan 4 í gær- dag af björgunarstarfinu. Láta fyrirberast í fjörunni. Ljóst er það þó, að mönnum þeim sem tóku þátt í björgun- inni hefur tekist að komast yfir hina 50 metra háu svellbungu, en er yfir var komið hafa þeir búið að köðlum bjargsigsmanna. Þeir voru fjórir. Þar sem sigið var er hamraveggurinn um 120 metra hár. Bjargsigsmennirnir fluttu með sjer niöur línubyssu, björgunarstól, mat, klæðnað, sjúkragögn og annað er að haldi mætti koma. í fjörunni var af- drep sæmilegt. Ilafa þeir skotið fyrstu skotunl af línubyssunum um kl. 12,30, sem fyrr spgir. — Skipbrotsmennirnir 12, sem lífs af komust úr þessum hrakning- um voru komnir á land um kl. 2 í gærdag og voru þeir mjög þjaK aðir. Hefur bjargsigsmönnum ekki þótt tiltækilegt, að koma þeim upp hamravegginn, vegna þess hversu af þeim var dregið. Hláka var og þoka og myrkur að skella yfir. Hafa þeir því tekið það ráð að búa um sig í fjöruborðinu. Þar var þeim ekki talin nein hætta í gækvöldi. Mikið þrekvirki. Eflaust er hver og einn þeirra manna, er tóku þátt í þjörgunarstarfinu, kiarkmenn miklir og harðduglegir. Davið Eggertsson bóndi að Hvallátr- um sjórnaði björguninni og seig hann bjargið. Með hon- um fóru bændurnir Hafliði Halldórson og Þórður Jóns- son* Báðir bændur að Hval- látrum. Hann er þeirra yngst- ur, um þrítugt. Engar frjettir. Eins og fyr scgir þá bárust engar frjettir af strandstað i allan gærdag og ekkert hafði frjettst er þetta er skrifað kl. langt gengin eitt í nótt er leið. Það var hraðboði er kom að Hvallátrum um kl. 4 í gær, er sagði frjettirnar um þjörgun skipsþrotsmanna. Hann hafði skamma viðdvöl en tók með sjer tjöld og hitunartæki. Var þá að skella yfir þoka. Var hún orðin svo svört í gær- kvöldi, að menn frá Rauða- sandi fundu ekki björgunar- sveitarmenn og enn aðrir menn frá Patreksfirði, sem ætluðu til aðstoðar, hættu förinni í Breiðuvík sakir þoku. Þess skal getið að breska út- varpið skýrði frd strandinu og björgun skipverja í heims- frjeítayfirliti sinu í gærkveldi kl. 10. ■^íóuitu j-rjettir: Skipstjóri og sfýri- maður fórust KLUKKAN 1 í nótt sím- aði frjettaritari vor á Pat- reksfirði, að sendimaður Guð mundur Kristjánsson frá Breiðuvík, er iagði af stað frá björgunarmönnum kl. 9 í gærkvöidi, hafi komið til Breiðuvíkur kl. 24,30 í nótt. Skýrði hann svo frá, að þeg- ar hafi tekist að ná sjö skip- broísmönnum upp á svonefnt Flaugarnef, sem er um miðja vegu upp í bjargið. Dveljast þeir þar ásamt 7 björgunar- mönnum. Er þar nægur mat- ur og klæði. Firnm skipbrots menn og þrír björgunarmenn dveljast enn niðri í fjörunni. Eru þeir einnig vel búnir að klæðum og vistum. Það er nú kunnugt, að tveir þeirra, er fórust voru skipstjóri og stýrimaður skipsins. Fórust þeir strax og skipið strand- aði, en með hverjum hætti, var ekki ljóst. Forselðfrúin á fyrsta íslenska tesfellið FYRSTA fullkomna testellið, sem gert er á íslandi, er per- sónuleg eign forsetafrúarinnar Georgiu Björnsson. Á bókasýningu Helgafells er testell, alls 66 stykki, eem Helga fell hefir látið gera sjerstak- lega handa forsetafrúnni og eru allir munirnir merktir „G. B.“, .á handföngunum. Stellið er blátt, úr íslenskum leir, og er það fyrsta fullkomna stellið, sem gert hefir verið hjer á landi og er það vel t.il fallið að það sje í eign fyrstu forseta- frúar þjóðarinnar. Rausnarlei gjö! fil barnaspífalasjéðs- ins HELGAFELLSÚTGÁFAN hef- ur ánafnað Barnaspítalasjóði Hringsins 5000 kr. af brúttó- ágóðanum af sölu nýrrar ár- bókar fyrir börn, sem nefnist „Jólabókin“, ásamt öllum á- góðanum af auglýsingum aftan við hana, er reyndist mjög mik ill og miklu meiri en búist hafði verið við í fyrstu. / Fyrir þessa óvenjulegu fram- takssemi Helgafelisútgáfunnar, til styrktár Earnaspítalasjóðn- um, vottar stjórn Hringsins bestu þakkir sínar og fjelags- ins. Prófessor Magnús Jónsson beiðraður _ « Frá heiðurssamsætinu í gærkvöldi. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. Magnúss.ý Heiðurssamsæti fyrir próf. dr. Magnús Jónsson FYRIR nokkru (26. nóv.), átti próf. dr. Magnús Jónsson sextugsafmæli, og r tilefni þess gekkst rektor Háskólans fyrir samsæti til heiðurs dr. Magn- úsi. Fór það fran' í gærkvöldi í Tjarnarcafé, og var stóri sal- urinn þar fullskipaður Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hvílíkur hæfileika- maður Magnús Jónsson er, og hve mörgum og margvíslegum og vandasömum störfum hann hefur sinnt um dagana. Hafa honum verið faliu hin mestu trúnaðarstörf, allt fram á þenn an dag, og kom skýrt fram í ræðum manna í samsætinu, hvert álit þeirra, sem best mega til þekkja, á því. hvernig þau hafa rækt verið. Próf. Ásmundur Guðmunds- son flutti aðalræðuna fyrir minni heiðursgestsins, sr. Jón Auðuns talaði fyrir minni konu hans, frú Bennie Lárusdóttir, en Björn Magnússon dósent fyr ir börnum þeirra. Helgi Tryggvason stud theol. mælti af hálfu núverandi nemenda í guðfræðideild. Þá talaði Hermsnn Jónassors af hálfu fjárhagsráðs, Jón Árnai son bankastjóri fyrir hönd Landsbanka ísiands, Ólafur Thórs flutti kveðju frá Sjálf- stæðisflokknum og Jónas Þor- bergsson af hálfu Ríkisútvarps- ins. Auk þeirra tóku til máls sjera Bjarni Jónsson, Jón Sig- urðsson alþm., Bjarni Bene- diktsson ráðherra og Hálfdan prófastur Helgason. Loks tók heiðursgesturinn til máls og þakkaði. * ★ v Á meðan setið var undir borð um kom Karlakór Reykjavíkur og söng nokkur lög, en Kári Sigurðsson mælti nokkur árn- aðarorð til próf. Magnúsar af hálfu kórsins. En próf. Magnús hefur tekið þátt í störfurv karla kórsins og verið fararstjóri hans bæði utan lands og innan. Var beimsókn kórsins gestunum hinn mesti fagnaðarauki. Rektor Háskólans próf. dr. Olafur Lárusson rtýrði hófinu, er var hið ánægjulegasta í alla staði. True Knot kom fll Siglufjarðar í gær- kvöldi TRUE KNOT kom til Sigluf jarð ar kl. 10 í gærkvöldi með síldar- farm sinn. Gekk ferðin frá Fat- reksfirði að óskum, en skipið var þaðan 15 tíma á leiðinni til Siglufjarðar. NonHiag préfessor lálinn PRÓFESSOR ARNOLD NOR- LING, kennari í norrænum fræðum við háskólann í Hels- ingfors, er látinn, Barst Alex- ander Jóhannessyni prófessor skeyti um dauðsfail hans Þgær. Norling prófesor talaði ís- lensku og í ferðura sínum hing- að til lánds eighaðist hann marga vini. Vafnsskaifurinn ræddur í bæjarráli Á FUNDI bæjarráðs er haldinn var á föstudag, var rætt um frumvarp að breytingum á reglu gerðinni um vatnsskattinn. í ra-ou, sem borgarstjóri flutti tilkynti hann að hann myndi bera fram breytingatillögur við frumvarpið er það verður rætt á næsta bæjarstjórnarfundi. —• Bæjarráðsmenn tilkyntu hið sama í ræðum sínum. #

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.