Morgunblaðið - 20.12.1947, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
S
Laugardagur 20. des. 1947
Síid í Keflavík
Full síldarþró við Vatnsnestorg í Keflavík.
28 þúsirnd mál komin á land
- J8 bátar stunda veiðar
Frá Jrjettaritara voru í Keflavík.
KEFLVÍKINGAR eru farnir að bræða síld og er það í fyrsta
sinn, sem það er gert í því plássi. —18 vjelbátar frá Keflavik.
stunda nú síldveiðar og hefur þeim yfirleitt gengið vel. Um 28
þúsund mál síldar eru komin til Keflavíkur, en verksmiðjan af-
kastar 7—800 málum á dag.
Minningar
Ely Culbertsson
Í.S.Í. siaðfesiir lands-
dómara í sundi og
glímu
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands
Staðfesti nýlega eftirtalda 25
menn sem landsdómara í glímu:
Ágúst Kristjánsson, Rvík,
Benedikt G. Waage, Rvík,
Bjarni Bjarnason, Laugarvatni,
Eggert Kristjánsson, Rvík, Guð
mundur Kr. Guðmundsson, R,
Guðmundur S. Hofdal, E, Gunn
laugur J. Briem, R, Georg Þor-
steinsson, R, Hallgrímur Bene-
diktsson, R, Halldór Hansen, R,
Helgi Hjörvar, R, Hermann
Jónasson, R, Jón Þorsteinsson,
,R. Jörgen Þorbergsson, R, Kjart
an Bergmann, R Lár'us Salo-
xnonsson, R, Matthías Einars-
son, R, Magnús Kjaran, R,
Magnús Pjetursson, Akureyri,
Sigurður Greipsson, Haukadal,
Sigurjón Pjetursson, R, Sverrir
Sigurðsson, Arna»vatni, Þorgils
Guðmundsson, R, Þorsteinn
Einarsson, R, Þórai inn Þórarins
son, Eiðum.
Þá hefir stjórnin staðfest eft-
irtalda menn sem iandsdómara
í sundi:
Arinbjörn Þorvarðarson,
Keflavík Benedikt G. Waage,
R, Björn Jakobsson, Laugar-
vatni, Eirikur Magnússon, R,
Einar Sæmundsson, R, Erlingur
Pálsson, R, Friðrik Jesson, Vest
mannaeyjum, Gísli Kristjáns-
son, ísafirði, Guðjón Ingimund-
arson, Sauðárkróki, Hallsteinn
Hinriksson, Hafnarf., Helgi
Júlíusson, Akranesi, Helgi
Sveinsson, Sigluf., Jón 1 Guð-
mundsson, R, Jón D. Jónsson,
R, Jón Pálsson, R, Jón Þórirs-
son, Reykholti, Jónas Halldórs-
son, Rj_ Ólafur Magnússon, Akur
eýri, Ólafur Pálsson, R, Stefán
Þorleifsson, Neskaupstað, Teó-
dór Guðmundsson, R, Tryggvi
Þorsteinsson, Akureyri, Þórður
Guðmundsson, R, Þorgils Guð-
mundsson, R, Þórarinn Magnús-
son, R, Þorsteinn Hjálmarsson,
R, Þorgeir Sveinbjarnarson,
R, Þórir Þorgeirsson, Laugar-
vatni, Ögmundur Guðmunds-
son, R.
Hafa rænf 5 þús.
fsonum
New Delhi i gærkveldi.
EINN af talsmönnum ind-
versku stjórnarinnar skýrði frá
því hjer í New Delhi í dag, að
kynþættir þeir, sem ráðist hafa
ínn í Mirpur hjerað í suð-vest-
ur Kasmir, hafi rænt meir en
5,000 konum. Bardagar hafa nú
staðið yfir í átta vikur í hjer-
aðinu.
Talsmaðurinn taldi, að mann
fall í liði innrásarmannanna
hefði til þessa verið tuttugu
sinnum rneira en indversku
stjórnarhersveitanna, sem alls
hafa misst 141 mann. — Reuter.
„Alvarfegf en ekkl
f isærilegf"
London í gærkveldi.
DR. EVATT, utanríkisráð-
ht ra Ástralíu, tjáði frjetta-
minnum í dag, sð hann væri
Jrrirrar skoðunar að lok utan-
ríi isráðherrafundarins væru
„c /arleg en ekki óbætanleg“,
Evatt kvaðst fylgjandi því,
að kölluð yrði saman friðar-
ráðstefna allra þeirra þjóða,
sem sinn skerf lögðu fram til
sigurs yfii Þjóðverjum, og
ættu engar hömlur að leggja
ó atkvæðagrciðslu um einstök
atriði væntanlegra friðarsamn-
ínga. ■— Reuter.
Síldarverksmiðja
í Keflavík
ÞEGAR síldveiðin í Hvalfirði
hófst var strax hafin undirbún-
ingur til þess að breyta fiski-
mjölsverksmiðjunni í það horf
að hún gæti unnið síld og tókst
það á mjög skömmum tíma, með
því að nota skilvindur lýsis-
bræðslunnar, sem stendur skamt
frá verksmiðjunni. Ekkert þróar
pláss var fyrir hendi og því mikl
ir örðugleikar með móttöku síld
arinnar. Fyrst í stað fengu Kefla
víkurbátar að losa til verksmiðj
unnar og var því mikil áhersla
lögð á að taka á.móti sem mestu.
Tjarnir verða sildarþrær
Við aðalgötu Keflavíkur eru
tjarnir, sem áður voru notaðar
til að taka af ís á vetrum, en
nú er hætt að nota í þeim til-
gangi, voru þær fyltar af síld
pg rúmuðu þær um 7000 mál.
Þá var síldin látin upp á „Gamla
flugvöllinn“ sem nú er kallaður,
en það er lítill flugvöllur, sem
notaður var fyrst, meðan aðal-
flugvöllurinn var í byggingu. Nú
er að mestu búið að losa þróna,
var það gert með vjelskóflu, sem
er eign hreppsins en armur henn
ar reyndist of stuttur, og var þá
fengin að láni armlengri vjel-
skófla frá Ameríska byggingar-
f jelaginu, sem er að vinna á flug
vellinum og losað með henni það
mikið að lítil jarðýta komst nið
ur í þróna til að færa síldina að
hinni skóflunni.
28 þús. mál.
Alls er nú búið að taka á móti
28 þúsund málum í Keflavík, og
hefur vinnsla gengið vel og af-
köst verið um 7 til 800 mál á sól-
arhring. Ýmsir órðugleikar hafa
orðið á vegi síldarvinnslunnar,
en ekkerf hefur verið tilsparað
og allir verið einhuga um að
taka á sig hversTconar óþægindi
til þess að hagnýta þessa óvæntu
búbót. —- Helgi S.
Vátican f gærkvöldi. *
BÚIST er við, að páfinn haldi
sína venjulegu ræðu hjer á að-
fangadagskvöld, og mun þá
ræða um hiálparstarfsemi
handa Evrópu.
KARLAKÓR Akureyrar hjelt
söngskemmtun s.l. laugardag í
Nýja Bíó undir stjórn Áskels
Jónssonar. Við hljóðfærið voru
frú Þyri Eydal og Áskell Jóns-
son.
Á efnisskrá voru alls 14 lög.
Þar á meðal eftir Mozart, Sigfús
Einarsson, Reissiger, Schubert,
Sjöberg og Sullivan.
Einsöngvarar cru frú Guð-
rún Tómasdóttir, Jóhann Kon-
ráðsson og Sverrir Pálsson.
Húsið var troðfult og tóku til-
heyrendur söngnum ágætlega.
Voru sum lögin endurtekin.
Síðast á efnisskránni var hin
svokallaða Luciuhátíð, er hófst
með söng kórsins og einsöng Jó-
hanns Konráðssonar. Birtist þá
jafnframt á söngsvæðinu 1Q hvít
klæddar meyjar með Guðrúnu
Tómasdóttur í hlUtverki heilagr
ar Luciu með kertakranz á höfði
Báru og hinar logandi kerti í
höndum. Fór þá fram kórsöng-
ur og einsöngur Lucíu. — Var
þessi síðasti liður Luciuhátíðar-
innar hin prýðilegasti, enda varð
að endurtaka hann. — H. Vald.
BRESK-SÆNSKUR viðskipta-
samningur, sem hefur verið til
umræðu frá því síðast í nóvem-
ber, mun líklega vorða útkljáður
um íjæstu helgi. Ekki verður þó
skrifað undir samninga, sem
geti nákvæmlega um hvaða
vöruskipti fara milli landanna,
vegna þess að bæði löndin vilja
að viðskipti þeirra verði á eins
breiðum grundvelli og mögulegt
er, eins og til þessa hefur verið.
Fulltrúi Svíþjóðar sagði í dag
að sænska nefndin væri „mjög
ánægð“ með viðræður sínar við
þá bresku. — Reuter.
Brynjólfur Sveinsson ís-
lenskaði. Bókaútgáfan B.
S. Aþureyri 1947.
JEG býst við að hjartað hafi
hoppað af ánægju í mörgum
spilamanninum, þegar hann
heyrði, að út væri komin sjálfs-
æfisaga Ely Culbertsons, hins
heimsfræga bridgemeistara, er
gert hefir spilið bridge að lær-
dómsíþrótt,' og áreiðanlega
margir eiga að þakka fjölda
ánægjustunda, og ef til vill dá-
lítinn spilagróða líka, hafi þeir
kynt sjer fræði hans til hlítar.
Við hinir, sem lítt kunnum að
meðhöndla spilin, höfurn vafa-
lítið ekki veitt þessari bóka-
fregn neina verulega athygli,
og satt að segja, greip jeg bók-
ina með lítilli eftirvæntingu, og
vænti ekki meira af henni, en
svo fjölda margra annara bóka,
sem berast manni í hendur í
bókaflóði ársins. Jeg óttaðist,
að meginefni bókarinnar, væri
um spil, óvanalegar sagnir og
svör, og meira og minna góða
meðferð spilanna, eins og mörg-
um spilamanni er títt að segja
frá. En jafnskjótt og jeg byrj-
aði á bókinni, varð annað uppi
á teningnum.
Þótt Culbertson sje vafalaust
einn snjallasti spilamaður sinn-
ar samtíðar, er har^n sýnilega
engu síður snjall rithöfundur,
og mundi sóma sjer prýðilega
á hvaða rithöfundaþingi, sem
væri. Hann hefir vafalaust oft
spilað mörg spil flokin, og spil-
að djarft, tapað og unnið, en
alt um það er æfispil hans áreið
anlega langfjölbættasta og
furðulegasta spil hans, og hann
kann þá list að segja frá, svo að
ánægja er cð. í þessu bindi seg-
ir frá bernsku hany og æsku. —
Hann er fæddur austur í Káka-
sus, sonur amerísks verkfræð-
ings og herforingjadóttur af
kósakkakyni Bernska hans er
margbreytileg, og hann elst upp
í umhverfi, sem nýstárlegt er
að kynnast, og er furðuvel lýst
ýmsum háttum og siðum þar
austur í Kákasus En framhald
æfinnar er þó enn fjölþættara.
Æskuár hans eru óvanalega lit
auðug og viðburðarík. Gáfur
hans eru fjölþættai og tilfinn-
ingarnar miklar, hann vill
reyna allt og kanna sem flest-
ar hliðar mannlífsins, og honum
^iægir þar ekkert yfirborðskák,
heldur verður hann að kafa til
grunns. Þrátt fyrir æfintýra-
lega æfi, gr raunsæin þó alltaf
grunntónninn í því, er hann
tekur sjer fyrir hendur, en það
er furðúmargt. Lesandinn kvnn
ist honum sem skólasveini aust
ul í Rússl^ndi, og síðar við há-
skólanám víðsvegar, bæði vest-
an hafs og -austan Ilann tekur
þátt í blóðugum óeirðum nihil-
ista í Rússlandi, lifir í glæstum
sölum og samkvæmum auð-
manna, en flakkai einnig um
sem beiningamaður, óg um-
gencst hinn aumasta götulýð,
bæði austuv í Rússlandi og vest
ur í Ameríku. Hann situr í fang
clsum í fleiri en einu landi,
bendlaður við þátttöku í unp-
reisnum o.g byltingum. Hefir
annað veifið fullar hendur fjár,
en er hinn sprettinn örsnauður.
Af öllu þessu margbreytilega
lífi og æfintýrum þess dregur
hann upp skýrai myndir og
segir hispurslaust frá scm á
dagana drífur, 'ástum sínum og
æfintýrum, sorgum og gleði. —■
Mannlýsingar hans eru meitlað-
ar og snjallar, jafnvel þótt per-
sónurnar komi ekki mikið við
söguna, má þar t. d.^benda á
hershöfðingjann afa hans, sem
tæplega líður lesandanum úr
minni. Stíll bókarmnar er þrótt
mikill og hefir þýðandanum
tekist að færa frásögnina í á-
gætan íslenskan búning. — Að
Öllu samantöldu tel jeg Minn-
ingar Culbertsons eina hina
skemtilegustu þeirra þýddra
bóka, sem jeg heíi komist yfir
að lesa nú upp á síðkastið. Hygg
jeg að mörgum muni fara líkt
og mjer, og þeir hlakki til fram-
haldsins.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum. j
saman
London í gærkveldi.
ÞEIR fulltrúar utanríkisráð-
herranna, sem ræða Austur-
ríkismálin, munu koma saman
til fundar hjer í London á morg
un (miðvikudag), og læða þá
væntanlega kröfur Rússa til
þýskra eigna í Austurríki.
Rússar hafa nú ,,slakað“ svo
á kröfum sínum, að þeir heimta
„aðeins“ tvo þriðju hluta olíu-
framleiðslunnar í austurhluta
Austurríkis, en í u.pphafi höfðu
þeir krafist 90% iramléiðslun-
ar. — Reuter.
Broltllufnmgur
bðndamannðhsrj-
anna frá Ungverja-
landi
Budapest i gærkveldi.
EINN af talsmönnum ung-
versku stjórnarinnar tjáði
frjettamönnum í dag, að allir
breskir og bandariskir hermenn
hefðu verið farnir frá Ungverja
landi fyrir 15. þessa mánaðar,
en á þeim degi átti samkvæmt
friðarsamningunum, allur er-
lendur her að vera farinn úr
landinu. Talsmaðurinn neitaði
hinsvegar að svara spurningum
um rússneska herinn.
Friðarsamningar við Ung-
verjaland gengu í gildi 15. sept.
s. 1. — Reuter.
Rödd Rússlariis
Rómaborg í gærkveldi.
ÝMSIR þingmenn hrópuðu
„rödd Rússlands“. er Palmino
Togliatti, einn af þingrpönnuru
kommúnista, flutti ræðu £
ítalska þinginu í dag. Rjeðist
Togliatti heiftarloga á hina
endurskipulögðu stjórn De
Gasperis, cn hún nýtur stuðn-
ings meirihluta þingsins.
De Gaspcri sagði í ræðu, sem
hann flutti er hann kynnti hina
nýju ráðherra, að stjórn sín
mundi standa vörð um ítalska
lýðræðisskipulagið. — Reuter.
ítafskð sfjérnin fær
frausfsyfirlýsingu
Rómaborg í gærkveldi.
ÍTALSKA þingið samþykkti
i dag traustsyfirlýsingu til
handa hinni nýju stjórn De
Gasperi forsætisráðherra. Þrjú
hundruð og þrír greiddu at-
kvæði ineð trauctsyýirlýsing-
unni, en 118 á móíi. — Reuter,