Morgunblaðið - 20.12.1947, Page 9

Morgunblaðið - 20.12.1947, Page 9
Laugardagur 20. des. 1947 MORGUNBLAÐ IV 9 Vatnsveitnn þorf að M tekjur sam- svarandi við aukin útgjöld og endurbætur Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI á íimtudaginn voru til umræðu breytingartillögur borgarstjóra við reglugerðina sem gilt hefur undanfarin ár um niðurjöfnun og innheimtu vatnsskat^s í íteykjavík en tillögur þessar yoru lagðar fyrir bæjarstjórn þ, 4. des. og voru nú til 2. um- ræðu. Borgarstjóri gerði grein fyrir tillögum þessum. Honum fórust m. a. orð á þessa leið: Lágur vatnsskattur Eins og kunnugt er, hefur vatnsskattur verið mjög lágur hjer í Reykjavík. Algengt hefur það verið, að hann hafi ekki verið meiri en 3,75 pro mille af fasteignaverði húsanna, þegar um íbúðarhús hefur verið að ræða-Svo vatnsskatturinn hefur ekki verið meiri en nokkrir tugir króna á ári á hverja íbúð. Hefur hann staðið óbreyttur í 10 ár, og vísitala engin áhrif á hann haft. Þegar Ijóst var orðið, að auka þyrfti vatnsveituna að miklum mun, hefði það verið ákjósanleg- ast, að vatnsskatturinn hefði verið hækkaður til þess að vatns veitan hefði getað staðið undir þeim nauðsynlegu framkvæmd- um. En ekki var horfið að því ráði m. a. vegna þess, að ekki þótti fært að hækka skattinn á meðan ýmsir bæjarbúar bjuggu við vatnsskort og höfðu ekki fengið nauðsynlega lagfæringu á vatnsveitunni. Tekjurnar altof Iitlar En vegna þess hve vatnsskatt- urinn hefur verið lágur hafa tekjur vatnsveitunnar verið langtum of litlar undanfarin ár, svo þær hafa ekki nálægt því getað staðið undir nauðsynleg- um viðbótum, sem gerðar hafa verið á veitukerfinu. Tekjur vatnsveitunnar hafa samtals ekki verið meiri árlega en um % miljón króna. En viðbæturn- ar einar á innanbæjarhverfinu hafa síðustu tvö árin kostað hátt í 900 þús. krónur á ári. Nú er hinni ffýju aðalæð vatns veitunnar að mestu leyti lokið. En kostnaður þessa mannvirkis, er gerður var upp um síðustu mánaðamót, nam kr. 6,225 þús. kr. Má gera ráð fyrir, að hann hækki eitthvað lítilsháttar enn. Skuldir vatnsveitunnar eru nú þessar. Skuld við Landsbankann kr. 5 milj. er vatnsveitan fjekk að láni þar, til 10 ára, og kr. 2,225 þús., sem vatnsveitan skuldar bæjarsjóði og framkv.- sjóöi. Svo alls eru skuldir vatns veitunnar um 7,2 milj. kr. lltgjöld vatnsveitnnnar Útgjöldum vatnsveltunnar má skiíta í 4 þætti. Árlegir vextir af lánum kr. 384 þús. Er þá reiknað með 5% af Landsbankaláninu og 6% af láninu í Framkvæmdasjóði. Árlegar afborganir verða kr. 520 þúsund, 500 þús. til Lands- bankans og 20 búsund af eldra láni. Samkvæmt reynslunni síðustu 2 árin, má gera ráð fyrir, að nauðsynlegir viðaukar við inn- anbæjarkerfið kosti árlega »800 þús. kr. Bæta þarf aðalæðum í ýms bæjarhverfi, svo sem Lauga nes-, Langholts- og Kaplaskjols- hverfi og víðar, gera girðingu Borgarstjóri gerir grein íyrir hinum hækkaða vatnsskatti Ný kvæðabók eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi Útgefandi Þorsfeinn M. Jénsson um Gvendarbrunna o. s. frv. Gera má ráð fyrir, að rekst- urskostnaður verði 350—400 þús. kr. á ári. Vatnsskattar 1% af fasteignamatsverðl Eftir þessu að dæma er hægt að gera sjer nokkurnveginn grein fyrir því, hve tekjur vatns veitunnar þurfa að vera miklar á næstu árum. Þessvegna lagði vatnsveitustjóri fyrir bæjarráð tillögur um breytingar á gjald- skránni. Voru þær ræddar þar og mismunandi sjónarmið komu fram. Eftir þær umræður lagði jeg fram tillögur þær, sem bæj- arfulltrúarnir nú hafa fengið. Þær eru í aðalatriðum þessar. Að af venjulegum íbúðarhúsum verði greiddur vatnsskattur sem nemi 1% af fasteignamatsverði húsanna. En aukavatnsskatt skuli greiða fyrir hreyfivjelar, gosbrunna, verksmiðjur, baðhús, hverskonar þvottastöðvar, eína- laugar, veitingahús, sláturhús og iðnfyrirtæki, eða hverskonar vatnsnotkun sem fer fram úr venjulegri heimilisnotkun, með 40 aurum fyrir tonnið. Vatn sje á þessum stöðum selt eftir mæli. En ef mælar eru ekki til, þá á- kveði vatnsveitan aukavatns- skattinn. Sætti menn sig ekki við þá ákvörðun, verði skatturinn á- kveðinn hlutfallslega eftir því hvernig notkunin reynist eftir mælingu. Með vatnsskatti sem nemur 1% aí fasteignamatsverði húsa nemur sá skattur um 1,5 milj. kr. á ári. En erfitt er eða óger- legt að gera sjer ljósa grein fyr- ir því, hve miklu aukavatns- skatturinp muni nema. Hingað til hefur hann verið óhæfilega lágur, á þeim fyrirtækjum, sem mesta vatnsnotkun hafa. Vatns- veitustjóri áætlar að hann muni nema á ári úm 20 þús. kr. Vatnsskattur skipa hefur á síö ustu árum verið rúmlega 70 þús. á ári. Fyrir stríð var hann um 35 þús. Gjöldin verða 2 miljónir. Af þessu verður sjeð, að til þess að tekjur vatnsveitunnar geti staðist á við nauðsynleg út- gjöld er ekki hægt að hafa vatns skattinn lægri en hjer er farið fram á, því hin árlegu gjöld hljóta að verða um eða yfir 2 miljónir króna á ári Afborganir lánanna er ekki þægt að lækka. Vextina ekki heldur. Jeg sje ekki að fært verði að minka við sig árlega viðauka og endurbætur á innan- bæjarlierfinu. Þá er eftir rekst- urskostnaðurinn. Unnið er að því að fá hann lækkaðan. En þar eð hann er ekki nema fimt- ungur af hinum árlega kostnaði skiftir það ekki miklu máli fyr- ir niðurstöðuna, þó eitthvað sje hægt að lækka þann kostnað. Eins og sjeð verður af því sem jeg hjer hef sagt, sagði borg- arstjóri, þá getur vel fario svo, að á næstu árum takist ekki að láta tekjur og gjöld standast á, þó skatturinn verði ákveðinn þetta hár. En það tel jeg illa farið ef slíkt ætti að haldast ár- um saman. Jeg tel sjálfsagt að haga tekjum vatnsveitunnar þannig, að hún geti staðið undir sjer sjálf. Skatturinn ekki tilíinnanlegur Jeg hef látið athuga nokkuð-' hve tilfinnanlegur þessi vatns-! skattur verður sem hjer er stung ið upp á og get eltki sjeð að hann verði ósanngjarn, þegar til lit er tekið til þess, hve mikil1 hlunnindi það eru, að hafa nægi legt af góðu vatni í heimilunum. ■ í bæjarhúsunum á Melunum j t. d. er fasteignamat á þriggja herbergja íbúðunum kr. 14.600,' svo vatnsskatturinn yrði á þeim I íbúðum 146 krónur á ári, eða' rúml. 10 kr. á mánuði og 115 krónur á 2ia herbergja íbúðun-j um eðá tæplega 10 kr. á mán- í uði. Verður vatnsskattur þessi ákaflega lítill liður í útgjöldum heimilanna. En á hinn bóginn alveg áreið- anlegt, að Reykvíkingum dettur ekki í hug að fá vatn til heim- ila sinna undir kostnaðarverði. Er ekki nema eðlilegt, að kostn aðurinn aukist, þegar vatnsveit- an er aukin eins mikið, og hjer hefur verið gert. Áður runnu til bæjarins sem svaraði 400 lítrar á sólarhring á ■mann. En nú koma hingað á sama tíma 000 lítrar á hvert mannsbarn. Frá umræíunum. Auk borgarstjóra tóku þeir til máls Sigíús Sigurhjartarson og Jón A.*Pjetursson. Sigfús bar fram tillögu um það, að vatnsskatturinn yrði %% af fasteignamatsverði í staðinn fyrir 1%. En annars var hann í aðalatriðum sammála borgarrtjóra. Hann gat ekki hrakið þær röksemdir borgar- stjóra, að vatnsveitan þyrfti svo miklar tekjur, sc-m bcrgarstjóri ætlaðist til, og greiddi ekki at- kvæði gegn tillögum borgarstj. þegar breytingartillaga hans hafði verið íeld. Jón A. Pjetursson fylgdi því eindregið að vatnsskatturinn yrði sá, sem borgarstjóri Iegði til í tillögum sínum. Ekki ríst vegna þess, hve nauðsynlegt það er að auka og bæta innanbæjar- kerfið á næstu árum. En ófært, að láta útgjöldin af þeim umbót- urn koma á útsvör bæjarmanna. Tillögur borgarstjóra voru sem fyrr segir samþyktar með sam- hljóða atkvæoum og afgreiddar í bæjarstjórninni. Konungurinn hjá Atílee. LONDON — George Bretakon- ungur snæddi nýlega kvöldverð hjá Attlee forsætisráðherra í Downingstreet 10. ÞETTA er í sjöunda sinn, sem Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi gefur út ljóð fyrir jólin. ,,Ný kvæðabók", sem nú kom út eftir hann, er sjöunda Ijóða- bók hans. Öllum hefur þeim ver- ið vel fagnað, og það að verð- leikum. » „Svartar fjaðrir“ var fyrsta bók hans. Um leið og hún kom út, var honum búinn sess á bekk með vinsælustu ljóðskáld- um okkar. Síðan eru liðin 28 ár. — • Sex af ljóðabókum hans Icomu út á næstu 17 árum. Síðan eru liðin 11 ár. í millitíð hefur Davíð sent frá sjer skáldsöguna miklu um Sölva Ilelgason, Gullna hliðið o. fl. En það leik- rit hcfur, sem kunnugt er, aukið hróður hans fyrir utan land- steinana. Og á eftir að gera bet- ur. Öllum vinum hans og velunn- urum ljek forvitni á að heyra og sjá hvernig kvæði hans væru nú. Því fátt eitt hefur sjest og heyrst af því, sem hann hefur orkt á þessum 11 árum, nema ávarpið á Snorrahátíðinn í súm- ar og nokkur smálcvæði, sem gefa ekki heildarsvip af ljóða- gerð hans þessi ár. ‘ Mönnum ljek að sjálfsögðu hugur á að heyra hvort í kvæð- um þeim, sem hann yrkir, þegar árin færast yfir, sjeu sömu töfr- ar er heilluðu lesendur hans um jólin árið 1919. En svo mikillar hylli njóta'kvæði Davíðs með þjóðinni, að ekkert verður betra um nýju kvæðin hans sagt með sanni, en það, að enn hljóma sömu strengir á hörpu hans sern fyrr, með sömu blæbrigðum, sama yndisþokka og áður. Frá öndverðu hefur Davíð verið skáld alþýðu íslenskra sveita. Yrkisefni og form hefur hann öðrum þræði sótt í gamlar sögur og sagnir. Lífssko’ðun hans hefur frá öndverðu verið mótuð af þeirri jafnrjettiskend, og þeirri kröfu til frelsis og mannrjettinda, sem íslensk al- þýða hefur alið við brjóst sjer og styrkt hefur'íslenska menn- ing frá fyrstu tíð. Fjölmörg kvæði hans eru óour til sveit anna, til bóndans, sem ræktar jörðina, til sveitabarnanna, hús- dýranna, vorsins, að ógleymd- um ástaljóðum hans, sem ylað hafa mörgum um hjartarætur í 28 ár og munu gera meðan ís- lensk tunga er töluð. Plin nýju kvæði Davíðs eru níeð sömu mýkt í formi og máli og hin fyrri, þar er sama lit- auðgin og hin skýra mynd- gerð, sami innileildnn í túlkun áhugamála hans og baráttuhug- urinn óbilandi gegn öllum ójafn- aði og misrjetti í viðskiptum manna. Ógnirnar í viðureign afvega- leiddra valdhafa og þjóð’a, geta ekki verið honum óviðkomandi, eins og meðal annars kem- ur fram í kvæðinu Sendiboð- inn, þar sem „samviska him- ins og jaröar“ heimsækir hann, miskunnarlaus í orðum s^gir þjóðinni til syndanna, þjóðinni, sem allan aldur sinn hefir lif- að við kröpp kjör en þekkir ekkj sinn vitjunartíma, skilur ekki köilun sína, þegar hlutirnir hafa snúist við. Erlendis borða menn ugga og roð, á íslandi steiktar gæsir. Þjóðin er í hans r.úgum svifasein til að átta sig. En hver sem ekki gegn bölinu berst hef- ir bróður sinn myrt og svikið, segir Davíð. Rjettlætistilfinmngu sina kúlkar Davíð áður einkum með lýsingum á viðbinðum daglega lífsins. En nú hefiv athygli hans um skeið beinst til hinna örlaga þrungnu heimsviðburða einsog m. a. kemur fram í kvæðinu „Vjer skipuleggjum“, þar sem hann hirtir harðstjóra heims, hverju nafni sem nefnast og alt hyski þeirra. Davíð Stefánsson Hjer eru varnaðarorð Davíðs til þjóðarinnar á hættulegustu tímum sem yfir heiminn hafa komið. 1 hinni nýju bók eru líka kvæði, sem segja frá ýmsu því, sem hann sá og hugsaði meðan á styrjöldinni stóð, eins og hið þróttmikla kvæði um Norðmanninn, frelsishetjuna ó- skelfdu er var ímynd . norsku þjóðarinnar á reynslu og erfið- lei'katímum hennar. En þó Davíð hafi tekiö hin stórbrotnustu #yrkisefni í þess- um ljóðum sínum, hefir hann ekki gleymt, eða látið hjá líða, að láta sína fyrrj. strengi óma. Hann yrkir erm um börn- in í sveitinni um vorið og gró- andann um burstabæinn og „fegursta kvæðið um fræíð í moldinni“. Hann gleymir ekki heldur að áminna fasteignasalann sem safnar gulli, sálu sinnar til for- tíjörfunar og bregður á leik í kvæðinu um Jöríagleði eða gljá- andi bíla sem verða að emskon- ar ævintýrapersónum. Hann dregur upþ mynd af gistingu við Sellandafjall svo skýra, að hún geymist í huga manns eins og málverk og aðra mvnd af skáldinu í Bólu sem skar skáldadrauma sína í tóm- an ask. Ollu þessu og mörgu öðru kynnast menn um jólin er þeir lesa þessa nýju ljóðabók Pavíðs. En upphaf hennar er gullfallegt kvæði um Jónas Hallgrímsson á dauðastundinni. er „maðurinn á þeim bleika“ kemur til að sækja hann, eða fylgja honum heim, að fósturjarðarströndum. Það er trú mín og von, að Davíð eigi mörg mikil og góð kvæði óorkt um ókomin ár og að hann megi verða „samviska hirnins og jarðar“. bersögull um afbrot og undanlátsemi, djarf- huga beinskeittur boðberi frelsis, frjálshugar, friðar og rjettlætis fjær og nær. V. St.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.