Morgunblaðið - 20.12.1947, Side 15
Laugardagur 20. des. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
ÍS ’
oZ)afi/óí
Fjelagslíf
Allir iR-ingar,
sem hafa happdrættismiða
fjelagsins til sölu, eru beðn
vdw ir að gera skilagrein til
skrifstefunnar í l.R.-húsinu
n. k. mánudag og þriðjudag 'kl. 5—
7 e.h.
Yngri fjelagar I.R.,
komið í skrifstofuna daglega kl. 4—7
takið happdrættismiða og seljið þá
fram að jólum.
• 9
I. O. G. T.
Rarnastúkan Diana nr. 54.
Fundur á morgun 11. 10 f.h. á Frí'
ldrkjuveg 11. Leikrit, söngur o. fl.
Gœslumenn. .
Vnglingastúkan XJnnur no. 38.
Fundur á morgun kl. 10 f.h. í G.T.-
húsinu. Rætt um^jólatrjesfagnað o.fl.
Fjölsækið.
Gœslumenn.
Tapað
Lyklar hafa tapast á leiðinni frá
Hringbraut 197 að Lækjartorgi. Finn
andi er vinsamlega beðinn að gera
aðvart í síma 7896.
# m
fp##»»»»»»»«»«»»»e»»»!
Kaup-Sala
Til sölu 2 sængurfatakassar, skrif-
borð og ferðakista, (amerísk) Sigtún
31.
Notu8 húsgögn
og lítið slitin jakkaföt keypt hæst
verði. Sóct heim. Staðgreiðsla. Sími
5691. Fornverslunin, Grettisgötu 45.
»4>»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»fr
Tilkynning
Dagana til jóla verður enginn vefn-
aður seldur í Vefstofunni Bergstaða-
stræti 10 C.
Ef Loftut getur þatf ekki
— Þá hver?
m
■ iiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHinimiiiiiMiiiiiiiinittmimiiitiiiii
Lýðveldishátíðarkortin
fást enn í flestum
bókabúðum
354. dagur ársins.
• Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs
Apóteki, sími 1330.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 6633.
Munið eftir Vetrarhjálpinni.
Nafnskírteinin. I dag frá kl.
9,30 til 5 verða nafnskírteini
afhent til þeirra, sem þegar
hafa ekki sótt þau.
□ Edda 594712227 — jólaf.
Messur á morgun:
-Dómkirkjan. Messa kl. 11, sr.
Jón Auðuns. Engin messa kl. 5.
Hallgrímskirkja. Engin messa
á morgun.
Sunnudagaskóli Guðfræði-
deildar Háskólans verður á
morgun kl. 10 f. h. Telpnakór
Jóns ísleifssonar aðstoðar við
sönginn.
Laugarnesprestakall. Barna-
guðsþjónusta kl. 10 f. h., sr.
Garðar Svavarsson.
Útskálaprestakall. Messað að
Útskálum kl. 2 e. h. og í Kefla-
vík kl. 5 e. h.
3»
Hjónaband. I dag verða gef-
in saman í hjónaband af sjera
Bjarna Jónssyni ungfrú Theo-
dóra Steffensen og 1 Finnbjörn
Þorvaldsson. Heimili ungu hjón
anna verður á Hávallagötu 11.
Hjónaband. í dag verða gef-
in-saman í hjónaband Elín Ól-
afsdóttir frá Vestmannaeyjum
og Guðbjartur Guðmundsson,
bifreiðarstjóri frá Stokkseyri.
Heimili brúðhjónanna verður í
Skipasundi 25.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sjera
Bjarna Jónssyni, frk. Unnur
Guðmundsdóttir, Baugsveg 7 og
Gunnar Júlíusson, Holtsgötu 13.
Heimili ungu hjónanna verður
á Holtsgötu 13.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband að Út-
skálum Rannveig Guðmunds-
dóttir frá Efri-Steinsmýri, V.-
Skafafellssýslu, og Jón Eiríks-
son frá Norðurkoti, Miðnesi.
Hjónanband. Nýlega hafa ver
ið gefin saman í hjónaband af
sr. Bjarna Jónssyni Erla S.
Ragnarsdóttir, Grettisg. 10 og
Steinar Þorsteinsson, Laufás-
veg 25. — Heimili ungu hjón-
anna er á Grettisgötu 10.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband Katrín
Sigurðardóttir (Guðbrandsson-
ar, skipstjóra) og Magnús
Helgason, verslunarstj. (Magn-
ússonar, kaupmanns). Heimili
ungu hjónanna verður á Greni-
mel 18.
Munið eftir Mæðrastyrks-
nefndinni fyrir jólin. Slcrif-
stofan er í Þingholtsstræti 18.
Sími 4349.
Styrkur til Mæðrastyrks-
nefndar fer til einstæðins
mæðra.
Þeir, sem kynnu að hafa sjeð
er fólksbíllinn G-947 og vöru-
bíllinn R-4526 rákust saman
við gatnamót Skothúsvegar og
Sóleyjargötu, s. 1. mánudag, 15.
des., eru beðnir að hafa tal af
rannsóknarlögreglunni hið
fyrsta.
Gjafir til Mæðrastyrksnefnd
ar: Heildversl. Arna Jónssonar
1000, starfsfólk hjá Garðari 95,
H.f. „Völundur“ 500, Sigurður
Grímsson 50, Þórður 50, A.B.
' 30, Rósa 100, Anna 50, Árni og
Kristín 100, G, Helgason & Mel
sted 200, María 10, Utanbæjar-
( síldarkarl 150, Bína 100, N.N.
I 200, Starfsfólk Edinborgar 130,
. Gúðlaug 50, M.G. 20, móðir 50,
| V.K. 30, N.N. 50, nafnlaust 100,
Sigríður 35, N.N. 100, H.Þ. 25,
1 Gömul kona 20, Þ.G. 100, N.N.
20, Guðfinna Hannesdóttir 200,
E. Á. 50, N.N. 25, S.J. 20, Guð-
rún og Sigurður 55, Systkini
20, Þórður Sveinsson & Co. 200,
v'erksmiðjan Vífilfell 300, starfs
fólk Reykjavíkurapóteks 165,
S.S. 15, Ásbjörn Ólafsson 250,
Ragnar Blöndal 200, starfsfólk
sama 125, Eiríkur Hjartarson
300, Fríða Eggertsdóttir 100,
Páll Sigurðsson og frú 100. —
Ennfh. kexkassi frá Indriða. —
Frá konu 20, Guðíinna 50, N.N.
10, G.K. 500, A.V. 50, Edda 500,
N.N. 20, Helgi 50, A.R. 50, Guð-
rún Hermannsdóttir 100, Áheit-
100, Trolle & Rode 150, Anna
Sigurðardóttir 100, Óíöf 100,
Guðjón 10, gömul kona 10, G.K.
100, Hildi *og Haddi 100, Þor-
geir 30, Sigríður 50, I.K. 60,
starfsfólk Sjóklæðagerðarinnar
100, Þ.H. 100, G.H. 50, starfs-
fólk Skipaútgerðar ríkisins 145,
G. H. 50, J.J. 20, starfsfólk Síld
og fisk 200, B.Þ. 100, Ónefnd
50, S.B. 100, versl. Verðandi
300, Helga 50, N.N. 30, N.N. 75,
Júlía 50, starfsfólk Skipaútgerð
ar ríkisins. — Bestu þakkir. —
Nefndin.
Peningagjafir til Vetrarhjálp
arinnar: Starfsfólk hjá Edin-
borg 430 kr., Sigfús 15 kr., G.P.
200 kr., Starfsmenn hjá Bif-
reiðaeftirliti ríkisins 95 kr., Sig
ríður Zoega & Co. 100 kr.,
Brynjólfsson & Kvaran 500 kr.,
Starfsmenn Versl.’ Áfram 100
kr., Kristján Siggeirsson 500
kr., Starfsfólk Laugavegs-Ap-
teks 90 kr., O. Johnson & Kaab
er 500 kr., Bernhard Petersen
500 kr., Ragnar Blöndal versl-
un h.f. 500 kr., Starfsmenn hjá
H. Ben. & Co. 75 kr., H. Bene-
diktsson & Co. 500 kr., Heildv.
Edda 500 kr., Slippfjelagið i
Reykjavík h.L 500 kr., A.R. 25
kr., Úr Austurbænum 40 kr.,
J.J. 20 kr. — Kærar þakkir. —
F. h. Vetrarhjálparinnar. — Stef
án A. Pálsson.
Til hjónanna sem brann hjá
í Camp ^Knox: Á.Þ. 100 kr.,
Dídí og Birgir 25 kt., ónefndur
50 kr., G.G. 25 kr„ L.L. 25 kr.
Til hjónanna sem brann hjá
við Háteigsveg: Ónefndur 50
kr., Dídí og Birgir 25 kr., G.G.
25 kr.
Leiðrjetting. í grein minni
um Heklu í Mbl. 10. 12. hafði í
fyrirsögninni misprentast: Gos-
myndanir; á að vera: Gosmynd"
irnar. — í síðasta kaflahum
hafði setning ruglast. Á að
vera: Það væri undireins mjög
mikilsvert, ef jarðfræðiþekk-
ingu yrði komið í það horf, að
segja mætti fyrir eldgos, og það
eigi allskömmu áður en þau
yrðu. En þó mætti gera sjer
ennþá stærri vonir um framtíð
vísindanna o. s. frv. H. P.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30 Morgunútvarp.
9.10 Veðurfregnir.
12.10—3.15 Hádegisút^arp.
15.30—16.30 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukensla.
19,00 Enskukensla.
19.25 Tónleikar: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.30 Útvarpstríóið: Einleikur
og tríó.
20.45 Upplestur: Þættir úr nýj
um bókurn. — Tónleikar.
22.00 Frjettir.
22.05 Danslög.
Grazianí.
RÓMABORG — Rjettarhöldun-
um yfir Graziani marskálki, fyr-
verandi yfirmanni herja Musso-
linis í Norður Italíu, hefur verið
frestað um óákveðinn tíma, sök-
Um veikinda marskálksins.
Graziani er sakaður um sam
vinnu við nasista.
Hjartans þakklæti til ættingjamg vina, sem glöddu mig
á 80 ára afmæli mínu með heimsóknum, gjöfum og skeyt-
um, og gerðu mjer þannig daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Margrjet Jónasdóttir.
BEST AÐ AUGLtSA I MORGUNBLAÐINU
til kl. 10 ! kvöld
Hafið efcki áhyggjur af matnum.
Steiktar kótelettur með brúnuðum kartöflum.
Soðin svið. — Soðið hangikjöt.
\
Heitan rúsínublóðmör, heita lifrarpvlsu.
og margt fleira.
\JeFóíunin cJ JJisL
mr
á Þórsgötu og Baldursgötu.
Maðurinn minn,
EINAR HALLDÓRSSON, hreppstjóri,
Kárastöðum, andaðist í Landakotsspítala föstudaginn
19- þessa mánaðar.
Guðrún Siguröardóttir.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að konan
mín
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR,
andaðist á Landspítalanum 18. þ. m. Fyrir mína hönd og
barna mirma,
Sigurður Sigurðsson.
Faðir minn og tengdafaðir .
JÓN HERMANNSSON, úrsmíðameistari,
ljest í dag.
Reykjavik, 19. desember 1947.
Lára Jónsdóttir, Sigur'öu.r Grímsson.
Jarðarför
HALLGRÍMS JÓNSSONAR
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 22.
descmber næstkomandi, klukkan 1 eftir hádegi.
Hólmfríður M. Hjaltason.
Öllum þeim, sem auðsýndu mjer vinsemd og hluttekningu
við andlát og jarðarför konu minnar,
MARÍU ÞÓRÐARDÓTTUR,
þakka jeg af öllu hjarta og bið góðan guð að blessa ykk-
ur öll.
Jón Jónsson
Fálkagötu 27A.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
HAFLIÐA FRIÐRIKSSONAR.
Fyrir okkar hönd og annara vandamanna.
Hulda Hafliðadóttir.
Ólafur Bachmann.
Þökkum af heilum hug auðsýnda samúð við fráfall og
útför hjónanna
ÓLAFÍU ÞORVALDSDÓTTUR
og
GESTS ANDRJESSONAR,
Hálsi.
Vandamenn.