Morgunblaðið - 31.12.1947, Page 1
34. étrgangur
}02. tbl. — Miðvikudagur 31. desember 1947
iMloldarprentsmiðja h.f.
Eldsvoððnn í Kirk|us!ræti
Michael Rúmemokon-
ii|ir - nisalif sjer -
vöidom
Síðasfi konunprmn í feppríkjakerfi Rússa
BÚKAREST í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
MICHAEL FYRSTI, Rúmeníukonungur, afsalaði sjer völdum í
dag. Mun það hafa komið flestum í Rúmeníu algerlega á óvart,
enda þótt stjórnmálamenn erlendis hafi lengi átt von á þessu.
Öll sæti rúmensku stjórnarinnar eru nú algerlega undir kommún-
ista lögð, en Rumenía var síðasta leppríki Rússa, sem enn laut
konungsstjórn. Hefur bandarískur embættismaður komist svo að
orði i sambandi við valdaafsál konungs, að nú virðist ekkert því til
fyrirsíöðu, að Rúmenía hverfi að öllu inn í leppríkjakerfi Rússa.
MYND frá eldsvoðanum í Kirkjustræti í gærkvöldi. Myndin var tekin skömraa eftir að elasins varð
vart og er húsið nr. 6 orðið alelda, en eldurinn er byrjaðar að læsa sig' í húsið nr. 4. (Ljósm. MBL.
Ólafur K. Magnússon).
Kirkjustræti 4 og 6.
Ekkert manntjón
RJETT fyrir klukkan 7 í gærkvöldi kom upp eldur í húsinu nr. 6
við Kirkjustræti, sem var tveggja hæða íbúðarhús úr timbri. —
Breiddist eldurinn út með miklum hraða og náði að komast í
næsta hús, nr. fjögur, sem stórskemmdist af eldi, en það hús er
þriggja hæða timburhús, og voru þar m.a. veitingastofurnar
„Tjarnarlundur".
Ekkert manntjón varð í eldsvoðanum, en sama sem
engu var bjargað úr nr. G af innanstokksmunum. Úr
Kirkjustræti 4 bjargaðist eitthvað af innanstokksmun-
um af neðri hæðunum tveimur, en lítið sem ekkert af
. efstu hæðinni.
Sprenging rann-
JHorgmtblaífíO
er 28 síður í dag og auk
þess Lesbók (8 síður). I
blaði merkt I. er grein Ol-
afs Thors, Árarnót, frjettir
dagsins, ritstjórnargreinar,
framhaldssögur og annað
daglegt efni. — í blaði nr.
II. er grein eftir Helga
Bergsson skrifstofustjóra
Verslunarráðs íslands um
viðskiftin við útlönd árið
sem er að líða. Þar er og
grein eftir Helga Hermann
Eiríksson skólastjóra Iðn-
skólans um Iðnaðinn á ár-
inu. Grein um 100 ára konu
o.fl. Næsta blað af Morg-
unblaðinu kemur út laug-
ardaginn 3. janúar.
Dæluþílar bila.
Það vildi til happs, gð veður
var kyrt, því ella var hætta á,
að eldurinn læstist í Hótel
Skjaldbreið, sem er næsta hús
fyrir austan nr. 6 og ennfremur
er stór timburhúsaþyrping fyr-
ir sunnan og austan húsin tvö
sem brunnu, sem var í hættu,
þrátt fyrir lognið, einkum vegna
þess að dælubílar slökkviliðs-
ins biluðu skömmu eftir að lið-
ið kom á vettvang og var það
vatnslaust um tíma á meðan
verið var að gera við dælurn-
ar. Sækja þurfti dælur og bíla
í húsnæði slökkviliðsins skamt
frá Sundhöllinni og tafði það
fyrir slökkvistarfinu, ekki síst
þar sem bílarnir og dælurnar
eru geymdar í óupphituðu hús-
næði og tók langan tíma að
koma dælunum í gang.
Eldsupptök ókunn.
Ókunnugt er um eldsupptök-
Frh. á bls. 2.
London i gærkveldi.
ÓKLEIFT hefur reynst að
ghafast fyrir um það, hvað or-
sakað hafi slys það, er varð þeg
ar þýskur rakettumótor sprakk
í loft upp í breskri verksmiðju
í Westcott 14. nóv. s. 1. I spreng
ingu þessari ljetu þrír menn líf-
ið, þar af eir*n þýskur rakettu-
^jerfræðingur.
Við rannsókn á máli þessu
hefur komið í ljós, að þetta var |
fyrsta tilraunin, sem gerð var
með þýsk rakettuskeyti í Bret-
landi. — Reuter.
Fyrirboði Ralkanbandalags? '
Ymsir stjórnmálamenn hafa
rætt við blaðamenn um áhrif-
þau, sem viðburðirnir í Rúmen-
íu í dag kunna að nafa á fram-
tíðina. Var yfirleitt. svo að sjá
í Frakklandi, sem áhrifamenn
þar byggjust við bví, að valda-
afsal Michaels væri fyrirboði
stærri atburða, sem stefnt væri
að því að leggja grundvöllinn að
Balkanbandalagi undir stjórn
Rússa. Eitt, af blöðum kommún
ista gengur þó skrefi lengra og
segir í sambanöi við Rúmeníu-
viðburðina, að „orustan um
Evrópu“ muni hefjast í Tjekkó
slóvakíu, ekki síðar en 15. jan.
er kornmúnistar þar hefji alls-
Argentína hebnfar
London í gærkveldi.
STJÓRNARVÖLDIN í Argen
tínu hóta því nú að hætta að
selja Bretum kjöt; nema þeir
greiði andvirði þess í dollur-
um. Halda Argentínumenn því
fram, að samningur um kiöt-
sölu til Breta sje fallinn úr gildi,
þar sem Bretar krefjast þess að
fá að borga í sterlHgspundum.
Breska matvælaráðuneytið
segir -í sambandi við þctta, að
ekki sje betur vitað en samn-
ingar um þetta mál standi enn
yfir. — Reuter.
Montgomery heiðraður
ADDIS ABEBA. — Meðan Mont-
gomery marskálkur var hjer, var
honum veitt Solomon Cordon
orðan, en það er æðsta heiðurs-
mérki Abyssiniu.
Kommúnistar í Rúmeníu hafa nú
komið því til leiðar, að Micbael
konungut liefur orðið að afsala
sjer völdum.
herjarsókn gegn stjórnarvöld-
unum.
Michael.
Michael konungur er 26 ára
gamall. Hann var fyrst krýnd-
ur til konungs 1927, þá aðeins
sex ára gamall, eftir iát afa
hans, Ferdínands konungs.
Carol konungur, faðir Micha-
els, var Um þessar mundir land-
flótta í Frakklandi. en konung-
dómi Michaels lauk skjótlega,
er faðir hans kom flugieiðis til
Rúmeníu 1930 og tók við völd-
um.
Nasistar.
Árið 1940, þá nítján ára,
komst Michael þó aftur skyndi-
Frh. á bls. 2.
Nýj
tilrannir
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá
Reuter.
BANDARÍKJAMENN hafa á-
kveðið að hefja nýjar atomtil-
raunir á Eniwetoreyjum í Kyrra
hafi eftir 31. janúar n.k. Verður
þetta ljóst í tilkynningu þeirri,
sem atomorkunefnd Bandaríkj-
anna gaf út í dag en þar er var-
að við því, að eftir 31. janúar og
til áramóta 1948 sje ekki hættu-
laust að ferðast um 30,000 fer-
mílna svæði kringum eyjarnar.
1 tilkynningu nefndarinnar
segir meðal annars, að tilraunir
verði gerðar þarna með ýmis-
konar atomvopn. Er þó tekið
fram, að allar ráðstafanir verði
gerðar til að gera tilraunir þess-
ar, sem hættuminnstar.
— Reuter.
Kasmirdeilan fyrir
■ ■
Oryggisráð
New Delhi í gærkveldi.
STJÓRNARVÖLDIN í Ind-
landi hafa nú ákveðið að leggja
deilumálið um Kasmir fyrir
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna. Var ákvörðun um þetta
tekin í dag og þegar tilkynnt
stjórn Pakistan og pnnarra
breskra samveldislanda.
—Reuter.
Fyrverandi forsæfis-
\
ráðherra dæmdur
til dauða
Rangoon í gærkveldi.
U. SAW, fyrverandi forsætis-
ráðherra Eurma, og átta aðrir
menn voru í dag dæmdir til
dauða, sakaðir um morð sjö ráð
herra í sumar.
U. Saw var talínn hafa lagt
á ráðin um morð þessi, en fjór-
ir hinna dauðadæmdu fram-
kvæmdu þau. — Reuter.