Morgunblaðið - 31.12.1947, Page 8

Morgunblaðið - 31.12.1947, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 31. des. 1947 H.f. Árvakur. Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Steránsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsiigar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók Árið sem leið ÁRIÐ, sem nú er að kveðja, hefir verið okkur Islendingum hagstætt að öliu samanlögðu. Hin efnahagsl. velgengni, sem þjóðin hefir átt við að búa, á undanförnum árum,hefir haldið áfram. Menn urðu að vísu fyrvr vonbrigðum, er síldveiðar brugðust fyrir Norðurlandi, þriðja sumarið í röð. En óvænt uppbót fjekkst í Hvalfjarðarsíldinni í vetur. Þetta er fyrsta árið, sem atvinnutæki nýsköpunarinnar koma þjóðinni að verulegu gagni. Samtímis þvi, sem flestar Evrópuþjóðir verða að láta sjer nægja mun mlnni fram- leiðslugetu, en þær áttu við að búa fyrir nýafstaðna heims- styrjöld, og margar þeirra líða tilfinnanlegan skört, sjáum við Islendingar hvernig framleiðsla okkar getur margfaldast að verðmæti, frá því fyrir stríð. Að vísu er atvinnulíf landsmanna í yfirvofandi hættu, vegna verðbólgunnar, sem farið hefur vaxandi. Er það inni- leg ósk allra landsmanna, sem bera íslenska hagsmuni fyrir brjósti, að sú tilraun, sem nú er gerð, til að stöðva verðbólg- una, megi takast. Fái kommúnistar því framgengt að verð- bólgan haldi áfram, og þjóðin komist fyrir þær sakir á von- arvöl, stafar slíkur ófarnaður af því, að við Islendingar ætl- um að verða mun seinni en allar aðrar Norðurálfuþjóðir, til þess að átta okkur á stefnu og starfsemi kommúnista. ★ Samskipti okkar við aðrar þjóðir hafa á þessu ári orðio ckkur á ýmsan hátt til ánægju og vegsauka. Fyrir ötula forgöngu ríkisstjórnarinnar og þá fyrst og fremst utanríkisráðherra og atbeina fulitrúa okkar erlendis og samninganefnda, hefir tekist að opna okkur nýja og álit- lega viðskiftamöguleika. En íslensku fulltrúarnir á þingi Sameinuðu þjóðanna, hafa skapað okkur þar vaxandi álit. Hin ánægjulega heimsókn Norðmanna hingað til lands í sumar, mun leiða til aukinna menningarviðskifta milli þess»- ara náskyldu þjóða, í framtíöinni. En heima og erlendis hafa íslenskir iþróttamenn reynst fræknari, en almenningur hafði gert sjer vonir um. Háskóli okkar tekur upp ný verkefni í kennslu- og vísinda- starfsemi og nýtur vaxandi álits. En ungir verkfræðingar, sem koma heim að námi loknu víðsvegar um lönd, reynast dugmiklir við þau verkefni, sem leysa þarf, við aukna tækni í framleiðslu. — Jarðhitinn er rannsakaður og kemur að auknum notum. Og innlend þekking er fyrir hendi til þess að bæta afurðir okkar. En rafmagnið teygist víðar um land- ið. Er undirbúningurinn að hinm miklu virkjun neðri fossa- anna í Soginu nú að fá ákveðið form. En sú virkjun gerbreyt- ir iðnmöguleikum hjer á Suðvesturlandi. Allt þetta og fleira styrkir menn í þeirri trú, að þjóðin verði þess megnug, að halda uppi þeim kjarabótum til handa þeim bágstöddu, sem felst í hinum nýju alþýðutryggingum. 'k Þegar við berum saman núverandi kjör okkar Islendinga og annara þjóða, cg minnumst þess, hve skammt er liðið, siðan við vorum eftirbátar annara um flest annað, en ljóða- gerð og framtíðardauma, þá megum við sannarlega vel una okkar hlutskifti. Skuggar hinnar austrænu heimsvaldastefnu, með tilheyr-' andi bollaleggingum um atomsprrengju — gereyðingastyrj- öld, ná vitaskuld hingað til lands. Á þeim missirum, sem liðin eru, síðan vopnaviðskiftum heimsstyrjaldarinnar síðari lauk, hafa valdamennirnir fyrir austan Járntjaldið bælt undir sig eitt hundrað milljónir manna, og svift almenningi 6—8 þjóðlanda hinum frumstæðustu mannrjettindum, Hafa þeir í hverju landi af öðru notið aðstoöár flokksbræðra sinna, hinna rauðu Kvislinga. ' , Má hiklaust telja það einn af mestum ávinningum þjóð- arinnar á síðasta ári, að hinir íslensku kommúinstar hafa svo greinilega auglýst stefnu sína og starfífcðferðir, að þeim tekst ekki hjeðan í frá að dylja erindrekstur sinn og áforn undir upploginni þjóðhollustu. ★ Að svo mætlu óskar Morgunblaðið öilum Islendingur. árs og friðar. \Jíbuerji iknjt ar: ÚR DAGLEGA LIFINU Áramót. GAMLA ÁRIÐ er að fjara út og nýtt tekið við. Þannig hafa aldirnar-liðið og þannig er líf- ið, einn tekur við* af öðrum. Á áramótum staldra menn við ög hibrfa til baka og reyna að skyggnast inn í framtíðina. Þeir minnast þess, sem liðið er, hvort sem það hefir verið gott eða vont. Bölva eða blessa eftir atvikum. Margir kveðja árið, sem er að líða með trega og þakka góðar stundir, aðrir telja sig ekkert hafa að þakka og eru því fegnastir að árið skuli vera liðið og vona að hið nýja ár verði þeim betra. « Gamli maðurinn og barnið. HJÁ MÖRGUM þjóðum er gamla árið táknað með göml- um manni, sem er kominn á grafarbakkann, en n'ýja árið með barni. Skeið gamla manns ins er runnið. Um hann er hægt að dæma. Hans eru eftir- mælin og minningarnar. Saga barnsins — hins nýja árs — er óskrifað blað. — Við barn- ið eru miklar vonir tengdar, en framtíðin ein sker úr hvern ig ævi þess verður. 0 Háiíðlegasía stundin. ÁRAMÓTIN eru hátíðlegasta stund ársins í augum þeirra, sem fiugsa. — Þau eru stund þakklætis. eða trega yfir því sem liðið er og þau eru stund vonarinnar og góðra óska. Á þeirri stund lofa margir „vi^inu betrum og bót“. Menn stíga á stokk og strengja heit. Loforðin og ásetningurinn stendur misjafnlega lengi. — Stundum fram eftir árinu, eða bá ekki nema fyrstu dagana í janúar. — Það fer eftir festu og þroska hvers og eins, sem loforðin gefur, sjálfum sjer og öðrum. — En hversu langt, sem hinn.' góðj ásetningur nær, þá er hann gerður af heilum hug á hátíð- 1 legri stundu. •— * Margs er cð minnasí. OG ÞEGAR gamla árið kveð! ur er margs að minnast. Eitt: ár ‘er ekki langur tími í lífi | mannanna yfirleitt, en þó get- ■ ur sá tími verið heilt líf. •—' Hjá einum hefir það liðið fljótt og verið viðburðaríkt. hjá öðr- um langt og ömurlegt. En flestir minnast gleðistund anna þegar horft er til baka, | því maðurinn er gæddur þeim dásamjega eiginleika, að muna hið góða og gleðina, en gleyma sorgum og erfiðleikum. 0 Goft ár. FYRIR ÍSLENSKU þjóðina' hefir_ árið 1947. sem nú er að, kveðja. verið gott ár, ef það er borið saman við flest önn- | ur ár í rúmlega 1000 ára sögu' hennar. Það er rjett að eríið- leikar hafa steðjað að. — Þjóð in, sem búin var að lifa í alls- nægtum varð að herða ólina, þótt ekki sje nema að nafninu til. ■— Og lítilfjörlegir eru heir erfiðleikar samanborið við það sem margar nágrannaþjóðirnar eiga við að stríða. íslenska þjóðin hefir nóg'til hnífs og skeiðar, fæði og klæði og framtíðin er björt, þrátt fyr- ir bliku og óveðursský, sem bólstra út við sjóndeildar- hringinn, — 0 Sinnar eigin gæfu smiður. ÍSLENSKA þjóðin á bjarta framtíð fyrir höndum ef hún skilur sinn vitjunartíma. Ef hún notfærir sjer þau gæði, sem forsjónin hefir fengið henni og þau tækifæri, sem við blasa. ,,Fáið okkur tækin og við skulum vinna verkið“, sagði einn af mestu stjórnmálaleið- togum bresku. þjóðarinnar. Winston - Churchill, þegar illa leit út fyrir þjóð hans. — Við höíum aflað okkur tækj anna og getum unnið verkið með beim, ef við stöndum sara an og látum ekki flokkadrætti, Öfund, illgirni og heimskan ríg með valdagræðgi, villa okkur sýn og sundra þjóðinni i and- stæðar íylkingar. •—■ Islenska þjóðin er sinnar eig in gæfu smiður. Og ekkert þarf að verða Islands ó’namingju að vopni. nema gerðir þjóðarinn- ar sjálfrar. — Velkomið 1948. ÍSLENSKA þjóðin lítur nú til baka yfir farinn veg á þess um áramótum. Hún sjer að margt liefir gengið vel og ann- að miður. — Hún sjer að það er ástæða til að lofa vitinu betrun og bót í mörgu. — Hún sjer, að nú þarf þjóðin á góð- um ásetningi aif halda. — Hún þarf að standa saman og mæta erfiðleikunum. sem á •veginum kunna að verða, með festu og einurð. -—• Þióðin veit að ef hún stend- ur saman sem einn maður, þá getur ekkert steðjað að henni. Þióðin hefir tækin og getur unið verkið, ef hún vill og þess vegna bjóða íslendirf£ar hið nýja ár velkomið. — 0 Gleðilegt ár. — ,SÁ SEM þessa dálka ritar, vill nota tækifærið til að þakka hinum fjölmörgu lesendum samstarfið á liðnu ári. Þakka þeim brjefin og leiðbeiningarn- ar, þakka þeim velviljan, sem hvað eftir annað heíir verið látinn í ljósi. — Þakka ánægju stundirnar við að rabba við ykkur um daglega lífið og vandamál þess. — Bestu óskir um farsælt og gleðiríkt nýtt ár til allra f jær og nær. ■— MEÐAL ANNARA ORÐA --—— j EftirG. J.A. I — -— ASterirnír mn ótalmargir ÞEGAR kirkjuklukkurnar hriogja inn nýja árið í kvöld klukkan tólf, munu flestir hverjir vafalaust of önnum kafpjr til að gefa sjer tíma til að líta til baka yfir hina 365 daga gamla ársins. Þó hafa þetta verið viðburðaríkir dag- ar, iafnt heima fyrir sem er- lendis, dagar fullir stóryið- bucða og átaka, harmasagna og gleðifregna, framfara og aft- urhalds og víga. — Þessir dag- ar hafa verið áþekkastir ægi- stóru málverki, þar sem skipt- ast á skærir fletir og dökkir bjartir dagar og dimmir. M'ýiónir hafa öðlast frelsi og sjálfstæði, aðrar miljónir hald- ið dauðahaldi í þá frelsisögn sem styrjaldarlokin veittu þeim. — Og tugþúsundir hafa fallið. , 0 0 SJÁLFSTÆÐI, EN GLUNDROÐI Indlandi var í ágústmánuði skipt í tvö sjálfstæð ríki. og skipting Palestínu var endan- lega ákveðir 29. nóvember. — Síðan hefur vart sá dagur lið- ið, að fjöldi manns^hafi ekki verið veginn á báðum stöðum. Kristján Danakonungur ljest á árinu. og eins Victor Emanuel, fyrverandi Ítalíukonungur, fyr ir örfáum dögum síðan. í rtjórnmálaheiminum hefur gengið á ýmsu. Fundir utan- ríkisráðherranna í Moskva og London fóru báðir út um þúf- 'ir. rannsóknarneffid öryggis- ráðsins var send til Ealkan- lanua til að kynna sjer átökin .har og gengil var frá friðar- samhingum vi3_ fimm ríki. •—■ Hani Hfið fyrir fjelaga sinn. Kuldarnir og kolaleysið í Bret- landi höfðu það í för með sjer éftir áramótin, að allt komst á. ringulreið: Tólfta febrúar kcmst Morgunblaðið svo að orði um ástantíið þar: „Ófriðar ástand ríkir nú í Bretlandi. — MiÞónir manna atvinnulausir í myrkri og kulda“. — Um líkt ieytj. gevsaði stórhríð í Evrópu og Bandaríkjynum, og tugir manna Ijetu lífið. 0 0 OG ENN Og fleira skeði úti í löndum. Rúss?r kröfðu.st herstöðva á Svalbarða, en var hafnað. — Fjörutíu alþýðuskólakennarar í Danmörku kröfðust þess 31. mars, að handritunum okkar vrði skilað; blaðið Politiken tók í sama* streng. Um þrem _vikum seinna birtu blöðin fregn ir af vorsókn grísku stjórnar- hersveítanna á hendur skæru- liðum. og 11. júlí var endan- lega ákveðið að sextán ríki kæmu saman á ráðstefnu í París, til að ræða Marshalls- áætlunina. Island var eitt þeirra. Sjcunda október stofna komm únistar ný alþjóðasamtök. 20. _____.. Frh á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.