Morgunblaðið - 07.01.1948, Blaðsíða 11
ÍMiðvikutlagur 7. janúar 1948.
MORGUNBLAÐIÐ
[11
Fjelagslíf
Framarar
Munið handknattleiksæfingarn
ar í kvöld í íþróttahúsinu við
Hálogaland. Kl. 8,30 Meistara- og
II. fl. kvenna. Kl. 9,30 Meistara-,
I. og II. fl. karla. — Stjómin.
Jólatrjesskemtun fjel. verður
haldin föstud. 9. janúar kl. 4 í
Sjálfstæðishúsinu. Miðar verða
seldir í Lúllabúð, Hverfisg. 51,
Verslun Sigurðar Halldórssonar,
Öldugötu 29, Rakarastofu Jóns
Sigurðssonar, Týsgötu og KRON,
Langholti. — Nefndin.
<Íx$xSx$k*x$><»x$xS*Sx$xíxSx$x§xíxJx$><íxíxíxíx$xJx$xSx$><§x$x$x$^<$xJx$x8x§xSxSxSx$xSx^<®x$x§>^x^<
w
ARMENNIN GAR!
Handknattleiksfl.
karla. Fyrstu æfingar
1948 verða sem hjer
segir: 3. aldursfl. kl. 7—8 í
kvöld. 2. aldursfl. kl. 8—9 í
kvöld í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar. 1. aldursfl. kl. 7—
8 annað kvöld (fimtud.) á sama
stað. Áríðandi að allir mæti.
Stjórnin.
Jólatrjeskemtun K.R.
fyrir yngri fjelaga og
börn eldri fjelaga
verður haldinn laug-
ardaginn 10. jan. kl. 4 síðd. í
Iðnó, Aðgöngumiðar verða seld
ir á miðvikudag og fimtudag
í Bækur og Ritföng, Austur-
stræti 1, og Bókabúðinni Unu-
hús, Garðastræti 17. ■—
Stjórn KR og skemtinefnd.
Handknattleiksflokkar K. R.
Fyrsta æfing eftir jólin verð
ur í kvöld í Hálogalandi. Kl.
6.45 Kv.fl. Kl. 7.30 I. og II. fl.
.karla. — Mætið vel. —
H. K. R.
Árshátíð Farfugla-
deildar Reykjavík-
ur verður að Hótel
Röðli fimtudaginn
15. jan. n. k. kl. 7,30 síðd. —
Aðgöngumiðar eru seldir í
Rókabúð Braga Brynjólfsson-
ar og Bókabúð Helgafells,
Laugaveg 100.
Tilkynning frá í. B. R.
íþróttaæfingar eru byrjaðar
aftiir í íþróttahúsinu við Há-
logaland. — Húsnefndin.
I. O. G. T
St. EININGIN nr. 14.
Afmæla- og áramótafundur
í kvöld kl. 8. — Kl. 9.15 hefst
kaffisamsæti. — Kvfeði verða
flutt. I.O.G.T. kórinn syngur.
— Afmælisbörnin ávörpuðj •—
Br. Jónas Guðmundsson flytur
áramótahugleiðingu. — Fjelag
ar eru beðnir að hafa með sjer
sálmabækur. — Aðgöngumiðar
að samsætinu afhentir frá kl.
8. — Allir templraar velkomn-
ir. — Æ.t. —
St. SÓLEY nr. 242.
Fundur í kvöld kl. 8. Inn-
taka. nýjársfagnaður. — Fjöl-
mennið stundvíslega. — Æ.t.
►«^xíx*^xíxíxtxSx|XÍx^íXÍxtx*
Vinna
7. dagur ársins.
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykja-
víkur Apóteki, sími 1760.
Næturakstur annast Litla
Bílstöðin, sími 1380.
□Helgafell 5948197, IV—V
Hjónabönd. Um hátíðirnar
gaf sjera Jón M. Guðjónsson,
Akranesi, saman í hjónaband:
Jóhannes Finnsson frá Kaldá
í Önundarfirði og Bjarnfríði
Leósdóttur, Akranesi. — Guð-
mund Árna Guðjónsson, bif-
reiðarstjóra og Rafnhildi Kat-
rínu Árnadóttur, Sunnubraut
17. Akranesi. — Ólaf Ólafsson
og Lilju Halldórsdóttur, Merki
gerði 12, Akranesi. —■ Ólaf Þ. j
Hjartar, stúd. og Jóhönnu S.
Sigurðardóttur, Bakkatúni 18,
Akranesi. Heimili þeirra er á
Grettisgötu 6, Rvík. — Sigurð
Bjartmar Ásmundsson og
Valeerði G. Þórólfsdóttur, Suð
urgötu 82, Akranesi. — Berg-
mund Stígsson, húsasmið og
Jónu Björgu Guðmundsdóttur,
hjúkrunarkonu, Akranesi.
Hjónaband. Á sunnud. voru
gefin saman í hjónaband af
sjera Árna Sigurðssyni ungfrú
Ingibjörg Guðmundsdóttir frá
Naustvík, Djúpavík í Stranda-
sýslu og Ágúst ísfeld, sjómað-
ur, Vesturbraut 3, Hafnarfirði.
Heimili ungu hjónanna verður
fyrst um sinn á Óðinsg. 17A.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Anna Hjörleifsdóttir, Vest-
mannaeyjum og Rigmudur
Lárusson, múrari, Reykjavík.
Hjónaefni. Á gamlársdag
opiiiberuðu trúlofun sína ung-
frú Valgerður Bjarnadóttir,
Óðinsgötu 19 og Hilmar Sigurðs
son, skrifstofustjóri, Ljósvalla
götu 20.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Ingibjörg Hjörleifsdóttir, Aust
urgötu 23, Keflavík og Aðal-
steinn Guðmundsson, bifreiða-
stjóri, Sandgerði.
Hjpnaefni. Á gamlársdag op
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Sigríður G. Jóhannsdóttir,
Skólavörðustíg 17B og stud.
oecoen. Árni J. Fannberg,
Garðastræti 2.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inbcrað trúlofun sína Helga
Jónsdóttir, Keflavík og Lúðvík
Jónsson, Hafnargötu 47, Kefla
vík. Ennfremur Einhildur Þóra
Pálmadóttir, Hafnarfirði og
Magnús Jónsson, Hafnarg. 47,
Keflavík.
Hjónaefni. Á gamlárskvöld
opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Sigríður Ólafsdóttir. Kirkju
teig 31 og Björn Óskarsson
sjómaður, Miðtúni 66.
Silfurbrúðkaup eiga í dag
frú Marta Hjaltadóttir og
Jakob Narfason, Vallarnesi,
Mosfellssveit.
♦♦♦♦<Jx*xíx?xí>«xS>«xSx»<®xíx*>4xSx#x»#«H
ÆINGERNINGAR
nir menn — Pantið í tíma
Sími 7768 —
Árni og Þorsteinn.
HREINGERNINGAR
Sími 6290.
Magnús Guðmundsson.
HREINGERNINGAR
Vanir menn — Pantið í tíma —
Sími 7768 —
Árni og Þorsteinn,
HREINGERNINGAR
Tökum að okkur hreingerningar.
Fljót og góð vinna. Pantið í tíma.
Sími 4109.
Kensla
ENSKUKENSLA
Byrjuð aftur að kenna. Nokkrir
morgun-_ og dagtímar lausir. —
Kristín Óladóttir, Grettisgötu 16.
wmt*
Kaup-Sala
Minningarspjöld barnaspitalasjöSs
Hringsins eru afgreidá í Verslun
Augústu Svendsen, Aðalstræti Í2 og
Bókabúð Austurbæjar Simi 4258.
Kaupi guil bæata veiði.
SIGURÞÓR,
Hafnsrstrwti 4.
Ýmislegt dót, sem hirt var
úr brunanum í Kirkjustræti er
á lögreglustöðinni. Higendur
eru beðnir um að vitja þess
sem fyrst.
Happdrætti Háskóla Islands.
S.l. ár hefur happdrættið ver-
ið nálega uppselt. Það eru því
tiltölulega fáir miðar, sem um
boðsmenn hafa til frjálsrar
sölu, á meðan viðskiptamenn
hafa forgangsrjett að númerum
sínum, og í sumum umboðun-
um eru þeir miðar nú uppseld-
ir. Þessi umboð hafa því enga
miða til sölu nýjum kaupend-
um fyrr en þessi frestur er lið-
inn, Að honum liðnum (á föstu
dagsmorgun) verða þessi um-
boð því að selja af ósóttum
miðum, sem seldir voru í fyrra.
Ef mönnum er annt um að
halda númerum sínum, ættu
þeir að vitja þeirra í dag eða
á morgun.
Skýrsla um Menntaskólann
á Akureyri skólaárin 1944—45
og 1945—46 hefir blaðinu bor
ist. Grein er þar eftir Sigurð
Guðmundsson, skólameistara,
er nefnist Húsagerð og ræða
er hann flutti um nýjan heima
vistergarð. Þá er skrá yfir nem
endur skólans þessi ár, kennara
lið, kenslugreinar, sagt frá
stúdentsprófum og gagnfræða-
prófum og skrifleg prófverk-
efni birt. Reikningum sjóða
skólans og heimavistarfjelags
M. A. eru þar birtir og sagt
frá ýmsu öðru. er varðar starf
semi skólans. Skýrslan er á
annað hundrað blaðsíður.
Morgunn, tímarit um andleg
mál, 2. hefti, 28. árg., hefur
borist blaðinu. Efni er m. a.:
Á landamærum efnis og anda,
eftir Sir A. Conan Doyle, Fund
irnir með Einer Nielsen í Rvík
í sept.—okt. 1947, Aldarafmæli
Prestskólans, Ræða flutt af
sjera Kristni Daníelssyni, Á
dulrænum vegum, eftir R. E.
Weldon, í vöku og svefni, Á
víð og dreif, eftir ritstjórann
Jón Auðuns o. fl.
Alliance Francaise hjelt
fund í Sjálfstæðishúsinu mánu
daginn 15. des. s.l. Hr. André
Rousseau, sendikennari. flutti
þar fróðlegt og skemtilegt er-
indi um franska jólasöngva,
ljek allmörg jólalög af hljóm
plötum og skýrðl efni þeirra
og rppruna. Auk þess sungu
frúrnar Annie Ch. Þórðarson
og Guðríður Abraham nokkur
lög með aðstoð Robert Abra-
ham. Að lokum var stiginn
dans til kl. 1 eftir miðnætti.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15,30—16,30 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla.
19,00 Þýskukensla.
19,25 Tónleikar: Lög leikin á
bíóorgel (plötur).
20.00 Frjettir.
19.30 Kvöldvaka: a) Ingólfur
Gíslason læknir: Bjargið og
Guðmundur góði. ■— Frásaga
b.) Ingveldur Einarsdóttir:
Gamlárskvöld á Þingvöllum
1890. (Þulur flytur). c) 21,15
Oscar Clausen rithöfundur:
Við Faxaflóa fyrir 70 árum.
Þegar fiskurinn kom. — Frá-
saga. d) Frú Sigurlaug Árna
dóttir: „Hugboðið“; smásaga
eftir Guðlaugu Benedikts-
dóttur. — Ennfremur tón-
lcikar.
22.00 Frjettir.
22,05 Óskalög.
23,00 Dagskrárlok.
L Vjelstjóra
vantar á 70 tonna bát, sem stundar línu-róðra frá
Keflavík í vetur. Eins og hálfs árs gömul vjel og skip.
— Upplýsingar hjá Lúter Grímssyni, sími 2984, eða
Jóni Guðmundssyni, Keflavík, sími 188.
Atvinnurekendur
Getum enn bætt við okkur bókhaldi fyrir nokkur
fyrirtæki. Öll bókfærsla framkvæmd í mjög fullkomn-
um bókhaldsvjelum og getið þjer þvi fengið mánaðar-
lega nákvæmt yfirlit yfir rekstur og efnahag. Bók-
haldsfyrirkomulag þetta hefir í för með sjer mikinn
sparnað jafnt fyrir stór sem smá fyrirtæki. Veitum
allar nánari upplýsingar.
„REIKNINGSHALD & ENDURSKOÐUN44
Hjörtur Pjetursson cand. oecon.
Mjóstræti 6. — Sími 3028.
Erum flutt
af Baldursgötu 9 að Freyjugötu 34 (gengið bak við
húsið). —
Ásdís GuSmundsdóuir.
Ásbjörn Stefánsson.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að okkar
hjartkæra móðir og tengdamóðir og amma
HUGBORG HELGA ÓLAFSDÓTTIR,
andaðist að Landakotsspitala sunnudaginn 4. janúar.
Fyrir mína hönd og annara vndmanna.
Bergrós Jónsdóttir.
Maðurinn minn
JÓN PROPPÉ
andaðist 6. þ. m.
Guðrún Proppé.
Konan min,
KARITAS B J ARNADÓTTIR,
sem andaðist 3. þ. m., verður íarðsungin föstudaginn
9. þ- m. kl. 2 e. h. Jarðað verður frá Dómkirkjunni.
Athöfninni verður útvarpað.
Páll Markússon
Miðtúni 4.
Jarðarför móður okkar
GUÐRÚNAR KRISTMUNDSDÓTTUR,
frá Smyrlabergi, fer fram frá Blönduóskirkju fimtu-
daginn 8. þ. m. kl. 1 e. h-
Börn hinarVr látnu.
Jarðarför mannsins mins,
JÓNS MÝRDAL,
fer fram frá Dómkii’kjunni fimtudaginn 8. þ. m. og
hefst kl. 1 e. h. með bæn að heimili hins látna Skóla-
vörðuholti 44. Blóm og kransar afbeðnir samkvæmt
ósk hins látna. — Athöfninni í kirkjunni verður
útvarpað.
GuÖfinna Þ. Mýrdal.
Hjartans þakkir fyrir auðsýndan vinarhug við and-
lát og jarðarför litlu dóttur okkar og systur
GUNNLAUGAR
SignÓur Hannesdóttir
Gunlaugur Jónsson
og systur hinnar látnu.