Morgunblaðið - 09.01.1948, Side 12
rEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói;
AUSTAN og suð-a»stan
kaldi. — Lítilsháttar skúrir eða
jel. —
SKÝRSLA atvinnumálancfml
ar Reykjavíkur — Sjá bls. 7.
Keppfu um þáftföku í Olympíuleikunum
Þessi mynd er tekin á Akureyri af skíðamönnunum, sem tóku þátt
í keppninni um þáttíöku í Olympíuleikunum. Talið frá vinstri tii
bægri: Guðni Sigfússon, Rvík, Ásgeir Eyjólfsson, Rvík, Jón Vii-
lijálmsson, Ak, Ásgrímur Stefánsson, Sf., Guðm. Guðmundsson, Ak.
Hermann Stefánsson, íþróttakennari, þjálfari keppenda, Jónas Ás-
geirsson, Sf., Hclgi Sveinsson, íþróttakennari, fararstjóri Siglfirð-
inga, Hafsteinn Þorgeirsson, Rvík, Magnús Brynjólfsson, Ak. og
Ilaraldur Pálsson, Sf. (Ljósm.: E. Sigurgeirsson).
Kisiiia ¥ill stofna ör-
ðryggisher
Palesfínunefndin fresfar för sinní
vegna öryggisleysis
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Ottawa í gær.
TALSMAÐUR utanríkisráðuneytisins sagði í dag að Kanada
myndi leggja fram þá tillögu við S. Þ. að stofnaður skyldi þegar
öryggisher sem samanstæði af sjálfboðaliðum frá öllum löndum
heimsins. — Skyldi her þessum stjórnað sem líkast útlend-
ingahersveitinni frönsku. Fulltrúi Kanada verður forseti Örygg-
isráðsins í febrúar og er álitið að það muni verða fyrsta verk
Kanada að bera fram tillögur um að þessi her verði stofnaöur.
------------------------
„FurðuSjós4* vii
Látrabjary
í GÆRKVELDI var Slysa-
varnafjeláginú tilkynrtt frá
Látrum, að sjest hefði einkenni
leg ljós, líkt og rakettum væri
skotið, við Látrabjarg.
Slysavarnafjelagið fór fram
á það við skip, er kynntr að
vera á þessum slóðum. að at-
huga hvert þarna gæti verið
um skipsstrand að ræða og að
ljósin hefðu stafað frá því.
Síðar í gærkveldi frjetti
Slysavarnafjelagið frá ' varð-
bátnum Finnbirni og frystiskip
inu Foldin, sem voru á þessum
slóðum og höfðu þau ekki orð-
ið vör við neitt óvenjulegt. —
Foldin lýsti upp bjargið með
ljóskastara, en skipverjar urðu
einskis varir, en um tiltölulega
lítinn blett var að ræða, þar
sem Ijósin sáust aðeins út einni
átt. —
SÍÐUSTU FRJETTIR
Um míðnætti í nótt kom
skevti frá skipstjóranum á
„Foldin“ að hann hefði komið
aug.a á Ijós til hafsins og er
hann gætti betur að kom í Ijós,
að betta var friðsamur togari,
en ljósín voru ljóskastarar á
þilfari skipsins.
Söfiiun í Land-
grædslusjóð
LANDGRÆÐSLUSJÓÐI hefir
áskotnast í söfnun þeirri sem
nú stendur yfir, tæplega 30,000
krónur. Af því eru um 10 þús.
kr. árstillög manna, sem hafa
Jofað að gefa í sjóðinn ákveðna
upphæð á ári.
Af þesari upphæð eru tíu
þúsundir frá manni, sem kærir
sig ekki um að láta nafns síns
getið-
Samskotafie í Landgræðslu-
sjóðinn er veitt móttaka í dag
á Klapparstig 29, þar sem Skóg
ræktarfjelagið hefír haft skrif-
stofur sínar.
Menn ættu að byrjá árið með
því að huga einhverju að þess-
um sjóði, sem stofnaður var um
leið og lýðveldið 1944 og á að
styðja að því að landið verði
skógivaxið i framtíðirfni.
Verður ein herdeild, í fyrstu.
Talsmaður utanríkisráðuneyt
isins sagði einnig að fyrsta verk
slíks hers myndi verða að gæta
öryggis meðlima Palestínu-
nefndarinnar sem eiga að semja
einstök atriði um framkvæmd
skiftingu Palestínu. Var talið
líklegt að her þessi myndi verða
að minsta kosti ein herdeild til
þess að byrja með. _______
Öryggisleysi meðlima Palestínu
nefndarinnar.
Þegar hann var spurður hvern-
ig fara myndi ef heil herdeild
Rússa, Araba eða Gyðinga,
myndi bjóða sig fram, kvað
hann inntaka í herinn yrði veitt
á landfræðilegum grundvelli,
af því ráði sem stjórnaði hern-
um. Palestínunefnd sameinuðu
þjóðanna hefur frestað för sinni
þangað vegna persónulegs ör-
yggisleysis meðlima hennar.
Þórarinn Kr. Eldjárn
formaður KEA
Akureyri, miðvikudag.
, STJÓRNARFUNDUR Kaup-
fjelags Eyfirginga, er lauk í
gærkveldi hefir kjörið Þórarinn
Kr. Eldjárn á Tjörn í Svarfaðar
dal, formann KEA í stað Einars
Árnasonar á Eyrarlandi.
Þórarinn Eldjárn hefir átt
sæti í stjórn KEA síðan 1938.
Frægur þýskur fiðlu-
leikari kemur hingað
í þessum mánuði
Akureyri, fimtudag.
TÓNLISTARFJELAG Akureyr
ar hefur ráðið til sín mjög róm
aðan fiðluleikara, ungfrú Ruth
Hermanns frá Hamborg, sem
er 29 ára gömul og byrjaði mjög
ung að leika opinberlega.
Hún hefir farið í hljómleika-
ferðir um allar borgir Þýska-
lands, og auk þess um Dan-
mörku, Pólland og Rússland ár
ið 1939.
Auk þess, sem ungfrúin mun
kenna við Tónlistarskóla Ak-
ureyrar, fer hún hljómleika-
ferðir um landið á végum Tón-
listarfjelagsins, og verða fyrstu
hljómleikar hennar haldnir í
Reykjavík í þessum mánuði, en
hún mun leggja af stað frá Ham
borg um miðjan mánuðinn að
afloknum kveðjuhljómleikum í
Stóru músíkhöllinni með að-
stoð hljómsveitar lO. janúar, og
verður hljómleikunum útvarp-
að yfir BFN-stöðina í Hamborg
—H. Vald.
Flugmaður Trumans hættir.
WASHINGTON — Einkaf lugmað
ur" Trumans forseta hefur nú
sagt starfi sínu lausu. Mun hann
bráðlega gerast starfsmaður við
eitthvert amerískt flugfjelag.
Rúmlega 46 þúsund mál
síldar bíða löndunar
í höfninni
Síld landað í Reykjavík.
MEIR EN helmingur síldveiðiflotans liggur nú í höfn. hjer !
Reykjavík. I gærkvöldi taldist mönnum svo til, að í höfninni
væru 50 skip með um samtals 46.270 mál síldar. 1 gær var
veiðin eitthvað minni uppi í Hvalfirði. 1 dag verður byrjað að
landa síld til geymslu á Framvöllinn. í gær bárust 11,270 mál
með 14 skipum.
Flogaveikur maður
slasasf
UM HÁDEGI í gær fundu veg-
farendur um Suðurlandsbraut
mann liggjandi í blóði sínu á
götunni og virtist hann vera
meðvitundarlaus. Var þetta á
móts við gatnamót Kringlumýr-
arvegar og Suðurlandsbrautar.
Manninum var tafarlaust ekið í
Landsspítalann og var þar gert
að sárum hans.
Rannsóknarlögreglunni var til
kynt um slys þetta. Hjeldu menn
að þessi maður hefði orðið fyrir
bíl, en sá er bílnum ók myndi
ekki hafa orðið þess var, eða
jafnvel ekið burtu.
Eftir mikið umstang tókst
rannsóknarlögreglunni að hafa
uppi á hver maðurinn var. Kom í
ljós að maður þessi er haldinn
flogaveiki og hafði hann fengið
kast og fallið í götuna. Við fall-
ið skrámaðist hann talsvert í
andliti. Maður þessi á heima fyr-
ir innan bæ.
Síldveiðar aS hefjasf
við Noreg
í ÚTVARPI frá Noregi í gær-
kvöldi var skýrt frá því, að
fiskimenn frá Bergen hefðu í
gær veitt hámeri. og hafi hún
komist í hafsíld, en það bendi
til þess, að hafsíldin sje að koma
upp undir norsku ströndina. Er
því búist við að vetrarsíldveið-
ar Norðmanna fari að hefjast
innan skamms.
Danir fá líllnn skamt
Frá frjetaritara vorum
í Kaupm.höfn.
DANIR hafa orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum út af skammti
þeim, sem þeim er ætlaður sam
kvæmt Marshalláætluninni. •—
Fóru þeir fram á að fá um 500
dollaravirði af vörum, en fá
ekki nema um 300 dollara. —
Fóðurbætir sá, sem þeir fá, er
er mjög takmarkaður en land-
búnaðarvörur, járn, bensín og
tóbafe eru tiltölulega miklar. •
—Páll.
Verkfall í Triesle
Trieste í gærkvöldi.
TUTTUGU og tvö þúsund verka
menn gerðu verkfall hjer í dag
vegna handtöku þrjátíu manna,
sem tóku þátt í mótmælafundi
vegna fundar þess sem komm-
únistar hjeldu í þorpinu Opicina
sem er skamt frá Trieste.
— Reuter.
í Hvalfirði
Enn sem fyrr er mikil síld í
Hvalfirði og sjómenn á bátum
hjer úti á sviði hafa orðið varir
við síld. í Hvalfirði mun síldin
yfirleitt hafa staðið heldur diúpt
í gær. Nokkur skipanna náðu þó
góðum köstum og fengu full-
fermi í 2 til þrem köstum. Þá
sprengdu enn aðrir nætur sínag
í of mikilli síld.
f Reyltjavík
Verið er að undirbúa ameríska
leiguskipið Knob Knot tíl þess
að taka á móti síld. Súðin kom í
gær frá Seyðisfirði, en þangað,
fór hún með hleðslu sína.
í dag verður byrjað á að landa
síld til geymslu á Framvéllinum
við grjótnám bæjarins. Ekkii
munu skipin alment losa farm
sinn þannig. I gærkvöldi höfðu
aðeirts fá skip tilkýnt að þau
vildu landa síldinni á Framvöll-
inn.
Skipin sem komu
Þessi skip komu í gær: Sævar
með 900 mál, íslendingur meði
900 mál, íslendingur með 1200,
Hafbjörg GK 800, Sædís 750,
Svanur 650, Hafbjörg 550,
Freyja RE 850, Victoría 550,
Jökull 1700, Hannes Hafstein
570, Huginn in. 250, Stefnir
450, Vilborg 500, .Jón Finnssonf
& Heimir 1500 mál.
Frönsk flugvjel
hrapar
Algier í gærkv,
í DAG rakst brennandi flugvjel
á fjallshlíð um 40 mílur hjeðart
og fórust níu manns, þar á með-
al tvö börn. Flugvjel þessi vap
frönsk og er ekki kunnugt urrt
orsakir slyssins. — Reuter.
Júgóslafía sæfeir um
lán
Belgrad í gærkvöldi.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Júgó
slavíú héfur tilkynt áð stjórnirt
hafi farið fram á 500 miljórí
dollara lán frá alþjóðabankan-
um. Ekki 'er enn vitað hvernig
tekið verður undir beiðni þessa,
— Reuter,
Nýtt verslunarráð.
LIMA — Fulltrúar 19 landa S.-
Ameríku ætla að halda fund n. k.
laugardag til að stofna nýtt versl
unarráð til þess að keppa við al-
þjóðaverslunarráðið sem þeir
segja að sje kommúnistiskt.