Morgunblaðið - 22.01.1948, Page 1
35. árgangur
17. tl>l. — Fimtudaginn 22. janúar 1948.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Samningar Hitlers og Stalins birtir í Washington
Landvinningaáiorm Rússa og möndölveldanna sönnuð
-<$>
Hlutskipti Breta
London í gærkv. Einka-
skeyti til Mbl. frá
Reuter.
BRETLAND og breska heims
veldið kenaur mjög við sögu
í þeim skjölu.m þýska utan-
ríkisráðuneytisins, sem birt
voru í Washington í dag. Verð
ur ljóst á þeim, að viðræður
fóru fram milli möndulveld-
anna og Rússlands um skipt-
ingu heimsveldisins milli sig-
urvegaranna.
„Skoríir gáfur“.
I einu skjala þessara er þann
ig skýrt orðrjett frá viðræðum,
sem Hitler og Matsuoka, utan-
ríkisráðherra Japan, áttu sam-
an 27: mars 1941. Þar segir:
,,Hitler skýrði utanríkisráð-
herranum því næst frá þeirri
sannfæringu sinni, að Bretland
hefði þégar tapað styrjöldinni.
Breta skorti aðeins gáfurnar til
að játa það“.
Styrjöld gegn Rússum.
Með skjali þessu er skýrsla
frá einum af aðstoðarmönnum
Ribbentrops, von Weizsacker
barón, þar sem hann mælir
gegn því, að Þjóðverjar ráðist
á Rússa, en Hitler var um þess
ar mundir byrjaður að undir-
búa það. Hjelt Weizsaecker því
fram, að slíkar aðgerðir mundu
styrkia baráttukjark bresku
þjóðarinnar og lengja styrjöld-
ina.
Weizsaecker segir orðrjett:
Borgir og herskip.
„Jeg get í einni setningu sett
fram skoðanir mínar á þýsk
rússneskri styrjöld: Ef hver
einasta rússnesk borg, sem við
legðum undir okkur, væri eins
mikilsverð og eitt breskt her-
skip, mundi jeg mæla með því,
að hernaðaraðgerðir hæfust í
sumar. En jeg lít svo á, að
.við mundum sigra Rússa að-
eins frá hernaðarlegu sjónar-
miði, en tapa frá efnahagslegu
sjónarmiði.
Það var glatt á hjalla hjá Stalin og Ribbentrop, er þeir höfðu
unöirritað þýsk-rússneska vmáttusamninginn. Nú hafa Bandaríkja-
menn birt skjöl, sem sýna hvernig Rússar, Þjóðverjar, ítalir og
Japanir ætluðu að skipta með sjer heiminum.
Hafa þúsund verið
drepnir!
_ Jerúsalem í gærkvöldi.
AÐ SÖGN Gyðinga í Palestínu,
hafa nú meir en 1,000 menn
verið drepnir í landinu síðan
Sameinuðu þjóðirnar 1. desem-
ber síðastliðinn ákváðu skipt-
ingu landsins.
Gyðingar halda því fram, að
383 Gyðingar hafi alls verið
drepnir, en opinberar stjórnar-
stofnanir segja hinsvegar, að
drepnir hafi verið 383 Arabar,
355 Gyðingar, 36 Bretar og 21
borgari annara landa.
— Reuter,
etif ætk ii r Ili iiii
frægustu heiskip sín
Helson eg Rodney meðal þeirra.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
BRETAR hafa ákveðið að rífa nokkur af frægustu herskipum
sínum, en meðal þeirra eru skip, sem mjög hafa komið við sögu
heimsstyrjaldanna beggja. Breska flotamálaráðuneytið tilkynti
þetta í dag, og gat þess jafnframt, að rekstur skipa þessara
væri of dýr, en ómögulegt að breyta þeim svo, að þau jöfnuðust
á við nýtísku herskip.
Víðfræg skip
Meðal skipa þeirra, sem rifin
verða, eru orustuskipin Valiant,
Nelson, Rodney og Queen Eliza-
beth. Öll eru skipin víðfræg, en
þess má geta, að uppgjafaskil-
málar þýska flotans í fyrri
heimsstyrjöld voru undirritaðir
um borð í Queen Elizabeth, en
vopnahljeð við ítali í síðari styrj
öldinni um borð í Nelson.
Atomstyrjöld
í sambandi við tilkynningu
flotamálaráðuneytisins um nið-
urrif ofangreindra skipa, spurðu
frjettamenn einn af talsmönnum
ráðuneytisins, hvort það áliti, að
herskip mundu reynast lítilsverð
í atomstyrjöld. Svaraði hann því
til, að Bretar ættu enn nægileg-
an f jölda oi’ustuskipa, enda álitu
þeir þau hin mikilsverðustu i
hverskonar stríði.
Fornleifarannsóknir
í Tyrklandi
LONDON: — Breska fornleyfa-
rannsóknarfjelagið hefur nú feng
ið mikinn ríkisstyrk til þess að
senda leiðangur til Tyrklands í
vísindaerindum.
Úþensla Rússlands átti
aðallega að vera suður
á bóginn
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið birti hjer í dag ýmis skjól
þýska utanríkisráðuneytisins um samvinnu Þjóðverja og Rússa
frá 1939, þar til innrásin var gerð í Rússland tveimur árum
seinna.
Fjalla skjöl þessi meðal amiars um viðræður Hitlers og
Molotovs, þar sem þeir Iögðu á ráðin um að skipta veröld-
inni í rússnesk, þýsk, ítölsk og japönsk áhrifasvæði. Er
þarna skjallega sannað, að um tíma var um það algjört sam-
komulag milli Hitlers og Stalins, að landvinningastefna
Rússa lægi „í suður frá Sovjetríkjunum í áttina að Ind-
landshafi“. Síðar kröfðust Rússar þess svo (enda þóct
samkomulag um það væri aldrei undirritað), að Þjóð-
verjar viðurkenndu að landssvæðið fyrir sunnan Batum
og Baku — „í áttina að Persaflóa — væri rússneskt áhrifa-
svæði.
' ^Stjórnmálaástæður.
Veður hamlar veið-
um
VEÐUR hamla'ði veiðum í fyrri
nótt, en í gærmorgun köstuðu
nokkur skip og náðu þau sæmi-
legum köstum, eftir því, sem
frjest hefur. Mikill fjöldi skipa
var í Hvalfirði, en aðeins fá
komu inn með síld í fyrrinótt.
í gærdag komu aðeins tvö skip
og töldu menn víst að þar hafi
verið alda í gær.
í gær var verið að setja síld
í eitt flutningaskip, Ólaf Bjarna
son og var lokið við lestun skips
ins. Fjallfoss var ekki tilbúinn
í gær, en byrjað verður á að
setja síld í hann í dag. Sex síld-
veiðiskip losu,ðu farma sína til
geymslu á Framvellinum. Sam-
tals voru það um 4000 mál.
S.l. sólarhring hafa komið 8
skip með um 3700' mál síldar.
Skipin eru þessi: Súlan með 350
mál, Gunnbjörn 300, Hólmaborg
300, Ásbjörn 300. Björn Jóns-
son 800, Björgvir 400, Dagur
RE 800 og Gylfi 500.
Sandhi ællar til Pak-
istan
New Delhi í gær.
BANATILRÆÐIÐ við Gandhi í
gær hefur engin áhrif haft á
hann, eftir því sem kunnugir
skýra frá hjer í New Delhi, og
er hann staðráðinn í að halda
fast við þá fyrirætlun sína að
fara í heimsókn til Pakistan.
Hindúapiltur sá, sem talinn er
vera bendlaður við banatilræðið
er í gæsluvarðhaldi. — Reuter.
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið gefur enga ástæðu fyrir
birtingu ofangreindra skjala,
en frjettamenn álíta, að mikil-
vægar stjórnmálalegar ástæður
liggi á bak við, sjerstaklega þar
sem Bretar og Bandaríkjamenn
hafa dregið það við sig að birta
ýms af skjölum nasista, þar sem
Rússar myndu taka því illa.
Landamærin.
Meðal samninga Rússa og
Þjóðverja, sem bandaríska ut-
anríkisráðuneytið birti í dag,
er samkomulag, sem gert var
í_ ágúst 1939, og sem kveður
svo á, að norðurlandamæri Lett
Iands skuli skifta áhrifasvæð-
um Rússlands og Þýskalands.
I sama samningi er gert ráð
fyrir því, að stjómir Hitlers
og Stalins komi sjer saman um
framtíð PóIIands auk þess sem
Þjóðverjar fyrir sína hönd lýsa
því yfir, að þeir muni engin
stjórnmálaleg afskifti hafa af
Suðaustur Evrópu.
Litháen og Pólland,
I öðrum leynisamningi, sem
Rússar og, Þjóðverjar gerðu
með sjer í sambandi við vináttu
sáttmálann 1939, er ákveðið, að
Litháen skuli falla undir áhrifa
svæði Stalins, auk þess, sem
báðar þjóðir lofa því, að brjóta
á bak aftur alla mótstöðu Pól-
verja á sínu yfirráðasvæði.
Landvinningaáformin.
Meðal skjala þeirra, sem nú
hafa verið birt, eru og viðtöl
þau, sem Hitler átti við fulltrúa
Ítalíu og Japan, og sem að ein-
hverju leyti snert.a þýsk-rúss-
neska samvinnu. Er ljóst á sam
tölum þessum, að. utan Evrópu,
Frh. á bls. 9.