Morgunblaðið - 27.01.1948, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 27- janúar 1948.
; 2
Slagsmál á aðalfundi
vörubílstjórafjelagsins
„Þróttur“
KOMMÚNISTAR og stuðningsmenn þeirra í vörubílstjórafje-
laginu Þróttur beittu brögðum er þeir urðu þess vísari að þeir
mytidu ekki ná meirihluta í stjórn fjelagsins, á aðalfundi þess
s, 1. sunnudag. Hleyptu þeir fundinum upp með því að koma
„Þjóðin öll mun mótmæla
flutningi Menntaskólans“
i
TUTTUGU og fjórir fyrverandi nemendur Lærða skólans og
Mentaskólans í Reykjavík, hafa sent Alþingi áskorun um að skóla-
húsið verði látið standa á sínum gamla stað við Lækjargötu og
skólinn verði þar áfram og hafln fái aukið landrými til sinna
nota. Segir ennfremur í áskoruninni að þjóðin öll muni mótmæla
evðileggingu hússins og flutningi skólans.
----------------«>
af stað handalögmálum.
Aðalfundur Þróttar var hald-
inn í samkomusal Mjólkurstöðv
arinnar og voru þar mættir 195
fjelagsmenn.
Óiætin byrja.
Fundurinn hófst með venju-
legum aðalfundarstörfum. Er
formaður hafði gefið skýrslu
tlm starfsemina á s. 1. ári hóf-
ust umræður um hana. Þá hófu
kommúnistar og stuðningsmenn
þeirra allskonar skrípalæti hróp
og köll og rjeðust að borði því
er stjórnin sat við og tóku hljóð
nema af því og æptu allskonar
sundurlausan áróður. Hvað eft-
ir annað voru þeir beðhir um
að hafa hljótt um sig, en það
bar ekki árangur. En þrátt fyr-
ir ólætin fór fram stjórnarkósn-
ing.
Handalögmálin. #
Það var við talningu atkvæða
fimmta manns í stjórn að komm
ar komu handaiögmálum af
stáð. Einn af stuðningsmönnum
híns nýkjörna formanns Einars
Ögmundssonar, en hann er
kommúnisti, tók hatt sem í
voru kjörseðlar fundarmanna,
er verið var að telja atfcvæðin
úr. Hljóp hann með hattinn út
í fundarsalinn og neitaði að af-
henda hann aftur. Þóttust nú
Btuðningsmenn Einars vera
mjög illir við hatt-manninn og
gengu fram í salinn og þóttust
ætia að taka hattinn af ,.fjel-
aga“ sínum. Tókust nú nokkr-
ar sviptingar og kjaftshögg.
Símað var til lögreglunnar og
hún beðin að skakka leikinn.
En skömmu eftir að lögreglunni
hafði verið gert aðvart, vöru
handalögmálin orðin það alvar-
leg, að gripið var til þess að
slíta fundi í skyr.di. Lögreglan
kom skömmu síðar. Eftir slags-
málin mátti sjá menn blóðuga
og' með áverka er þeir höfðu
hlotið í uppþotinu.
Lauk þessum aðalfundi svo
að fimti maður í stjórn var ekki
kosinn. En þær frjettir er bor-
ist þ.afa af kosningatölum við
kjör hans benda til þess að
stuðningsmenn lýðræðisflokk-
anna hefðu farið með sígur af
hólmi. — Þegar eftir þær upp-
lýsingar kemur framkoma
kommúnistá og stuðnings-
manna þeirra engum á óvart.
Um kosning formannsins og
þeirra fjögurra manna, sem
sætí eiga með honum í stjórn-
inni, mun ekkert vera athuga-
vért. Það kjör fór þannig, að
lýðrppðisflokkarnir fengu tvo
meðstjórnendur, þá Alfons
Oádsson og Jón Guðlaugsson.
Kommúnistar fengu formann-
inn, Einar Ögmundsson og
Sveinbjörn Guðlaugsson.
Ekki mun enn vera ákveðið
hvenjer kosning fimta manns í
stjórn fjelagsins fer fram. En
er að því kemur munu fylgis-
menn lýðræðisflofckanna mæta
l SLmdrungaröflum kommúnista,
1 með góðri fundarsókn.
r ...
Knldar í Ítalíu.
f?ÖM — Kuldaköst hafa gengið
f •ufli alla lalíu undanfarið og hef-
ír filíið snjór í Milar.o og jafn-
ve! Catalina á Sikiley.
<S>-------—------------------
Hlý hafnarlðg
fyrir Reykjavík
GUNNAR THORODDSEN
fiytur ásamt 6 þingmönnum
Reykjavíkur frumvarp til laga
um Reykjavíkurhöfn.
Frumvarp þetta var á dag-
skrá neðri deildar í gær og fór
fyrsti flm. nokkrum orðum um
það.
Sagði hann að með hinum al
mennu lögum um hafnargerðir
og lendingarbætur frá 1946,
hefði verið feld niður hin
gömlu hafnarlög fyrir Reykja-
vík.
Við framkvæmd nýju lag
anna hefði komið í ljós að feld
hefðu verið niður ákvæði úr
gömlu lögunum, sem væri nauð
synleg fyrir starfsemi hafnar-
innar.
Eru það einkum tvö atriði,
sem hafnarstjórnin telur vera
til óhagræðis fyrir Reykja-
víkurhöfn.
Fyrpa atriðið er afnám á-
kvæðisins um lögveð fyrir skipa
gjöldum. Er lagt til að þetta
ákvæði sje tekið upp. Hitt at-
riðið er 9 gr. almennu hafnar-
laganna, um skipagjöld og er
lagt til að þeirri grein verði
breytt til hagræðis fyrir Reykja
víkurhöfn.
Annars er frumvarp þetta
meginefni gömlu hafnarlag-
anna með nokkrum nýjum á-
kvæðum úr hinum almennu
hafnarlögum.
í greinargerð fyrir frumvarp
inu er bent á að Reykjavíkur-
höfn hafi nokkra sjerstöðu, m.
a. að því leyti, að framlög úr
ríkissjóði til hafnargerðar í
Reykjavík hafa verið mun minni
hlutfallslega en framlög til
hafnargerða annars staðar. —
Stofnkostnaðarreikningur Rvík-
urhafnar nemur nú ca 22,4 milj.
kr., þar af framlag úr ríkis-
sjóði á fyrstu árum hafnargerð-
arinnar kr. 400 þús., en ekkert
síðan.
Sigurður Kristjánsson kvaðst
yfirleitt vera á móti því að
sett væru sjerlög fyrir hinar
ýmsu hafnir. Hinsvegar skildi
hann að Reykjavíkurhöfn hefði
nokkra sjerstöðu, en vildi held-
ur að hinum almennu hafnar-
lögum yrði, bréytt þannig, að
sama árangri yrði náð og ætl-
ast er til með þessu frumvarpi.
Málinu var vísað til sjávar-
útvegsnefndar.
Snjórinn veldur Hew
York enn erfið-
leikum
New York í gærkv.
SKÖMMÚ eftir hádegi í dag
byrjaði enn að snjóa hjer í New
York, en veðurstofan hefur spá,ð
mildlli snjókomu.
Fríðasfar í París
FYRIR nokkru var haldin hin
árlega fegurðarsamkeppni milli
kvenna í París. Ungfrúrnar hjer
á myndinni sigruðu. Helene
Jacuier (til hægri) hlaut fyrstu
verðlaun, en hin fegurðardísin
heitir Christiane Suscosse.
Þrír fslendingar
sæmdir Sl. Olavs
orðunni
HAAKON VII. konungur
Noregs hefir sæmt þessa Islend
inga St. Olavs orðunni:
Borgarstjóra Reykjavíkur
Gunnar Thorodddsen, komman-
dörkross m<pð stjörnu.
Hafnarstjóra Reykjavíkur
Valgeir Bjcrnsson kommandör-
kross.
Flugvallastjóra, fyrv. lög-
reglustjóra í Reykjavík Agnar
Kofoed-Hansen, kommandör-
kross.
Boðsund skólanna
HIÐ fyrra af hinum árlegu boð-
sundum skólanna fer fram í
Sundhöll Reykjavíkur þriðju-
daginn 27. þ.m. — Keppt er í
bringusundi milli 20 manna
sveita. Hver einstaklingur synd-
ir eina umferð langsum eftir
lauginni (331/2 m.).
Undanfarin ár hefur sveit
Iðnskólans í Reykjávík unnið
þessa keppni og í fyrra vann
Iðnskólinn — til eignar — flagg
stöng þá, er vjelsmiðjan Hamar
h.f. í Reykjavík gaf til þessarar
keppni.
Á þriðjudaginn verður því
keppt um nýjan sundgrip, stór-
an og fagran fálka úr keramik.
Gefendur hans eru eigendur
Nýju-Blikksmiðjunnar, þeir
Haraldur Andrjesson og Einar
Pálsson.
í boðsundskepþninni munu
taka þátt sveitir frá þessura
skólum:
Iðnskóla Reykjavíkur, Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar, Gagn-
fræðask. Vesturbæjar, Mennta-
skólanum í Reykjavík, Verslur.-
arskóla íslands og Kennaraskóla
íslands.
Keppnin hefst kl. 20,30
Hollendingar og
Indoœsiumenn
hefja viðræður
London í gærkveldi.
STJÓRN Indonesíu hefur tek
ið tilboði nefndar Sameinuðu
þjóðanna um að hejfja stjórn-
málaviðræður við Hollendinga.
Segir í tilkynningu nefndarinn-
ar að viðræður þessar muni
líklega hefjast r.æstkomandi
miðvikudag. — Reuter.
Þingmenn lítt
hrifnir af ríkis-
rekstri
FRUNMVARP Hermanns
Guðmundssonar um að stofna
ullarverksmiðju ríkisins fjekk
heldur daufar undirtektir á Ál-
þingi í gær. Flm. fór nokkrum
orðum um þetta frumvarp sitt
og taldi hagkvæmt að láta rík-
ið reka slíka verksmiðju. Skúli
Guðmundsson sagði að sam-
vinnufjelögin hefðu nóg fjár-
magn til að kaupa vjelar, sem
gætu þvegið alla þá ull, sem
íslendingar framleiða. Stæði að
eins á fjárhagsráði með inn-
kaup á vjelum til ullarverk-
smiðjunnar „Gefjun" á Akur-
eyri.
Hallgrímur Benediktsson
gerði og athugasemdir við frum
varpið. Benti hann á, að margar
framkvæmdir kölluðu nú á fje
úr ríkissjóði, sem ekki væru
síður nauðsynlegar en þessi.
( í frv. er gert ráð fyrir að
ríkið taki 5—6 milj. kr. lán til
að reisa þessa ullarverksmiðju).
Hinsv. kvaðst hann vel skilja
þörfina á að auka ullarfram-
leiðsluna hjer og bnda þótt hann
tæki undir tilmæli Skúla Guð-
mundssonar um stækkun ullar-
verksmiðju á Akureyri, þá værí
það ekki nóg. Hjer í Reykja-
vík er 2 ullarverksmiðjur, og
a. m. k. önnur þeirra, „Ála-
foss“, sem er elsta ullarverk-
smiðjan á landinu, hefúr mik-
inn hug á að stækka verksmiðju
sína og þar með auka fram-
leiðsluna til muna. Ber vissu-
lega að stuðla að því. Þar að
auki hefur verksmiðjan „Ála-
foss“ sjerfræðing á að skipa,
sem er Pjetur Sigurjónsson, en
hann er eini maðurinn hjer-
lendis, sem hefur lagt stund á
þennan iðnað.
* Það var helst að skilja á
Skúla, að hann vildi gera sem
minnst úr þessum verksmiðjum
hjer sunnanlands.
Einar Olgeirsson tók einnig
til máls, og þótt undarlegt sje,
þá virtist hann ekkert sjer-
staklega hrifinn af þessu rík-
isrekstrarbrölti flokksbróður
síns.
Málið fór til iðnaðarnefndar.
Þriojci úibú Sæjðr-
bókasafnsinsopnað
í KleppshcHi
I DAG verður opnað þriðja útbú
bæjarbókasafnsins að Hlíðarenda
í Kleppsholti. Verður safnið op-
ið daglega frá kl. 6—7 e. h. og
bóknvörsluna annast Axel Guð-
mundsson. Eru þetta mikil þæg-
indi fyrir þá sem í Kieppsholti
og nágrenni búa að þurfa ekki
að gera sjer ferð í bæinn til bóka
lána.
Áskorun þessi er svohljóð-
andi:
Undirritaðir fyrverandi nem-.
er.dur Lærða skólans og Menta-
skólans í Reykjavík beina þeim
eindregnu tilmælum til háttvirts
Alþingis, að það veiti eigi sam-
þykki sitt til þess að mentaskóla
hald verði lagt niður í núverandi
húsakynnum skólans við Lækj-
aigötu.
Fram hafa komið þær tillög-
ur, að hið gamla skólahús yrði
rifið, en skólinn fluttur í útjað-
ar bæjarins. í þessu húsi hefur
skóli starfað í rúma öld. Þar
hafa margir ágætis kennarar int
af höndum lífsstarf sitt. Þar
hafa flestir forvígismenn ís~
lensku þjóðarinnar öðlast visku,
þroska og manndóm. Þar var
Alþingi endurreist. Þar var
þjóðfundurinn haldinn, og þar,
og hvergi nema þar, sat Jón
Sigurðsson öll sín þing í erfiðri
baráttu fyrir sjálfstæði Islend-
irga.
Húsið er dýrmætur helgidóm-
ur þjóðarinnar allrar, en þó
fyrst og fremst þeirra, sem þar
háfa kent og numið. — Þvt
munu stúdentar og þjóöin öll
rísa upp og mótmæla eyðilegg-
ingu skólahússins og flutningi
skólans þaöan.
Vjer leggjum því til að húsið’
verði ekki rifið, að skóli verði
þar áfram og hann fál mjög ank-
ið landrými til sinna nota.
Ólafur Lárusson prófesSor,
Þórður Eyjólfsson hæstarjettar-
dómari, Kristinn Ármannsson
yfirkennari, Jón Ásbjörnsson
hæstarjettardómari, Bogi Ólafs-
son yfirkennari, Einar Magnús-
son yfirkennari, Björn Þórðai-
son <Jr. juris, Sveinn Benedikts-
son framkv.stj., Auður Auðuns,
cand. juris, Ármann Kristins-
son stud. juris, Þorkell Jóhann-
esson prófessor, Sölvi Blöndal
fil. cand., Páll Pálsson cand,
juris, Sigurgeir Sigurðsson
biskup, Áslaug Benediktsson frú
Sveinn Víkingur biskupsritari,
Thyra Loftsson tannlæknir, Her
steinn Pálsson, ritstjóri, Nanna
Ólafsdóttir bankaritari, Stefán
Pjetursson ritstjóri, Gunnlaugur
Claessen dr. med., Jón Kjartans-
son sýslumaður, Símon Jóh.
Ágústsson prófessor, Ásmundur
Guðmundsson prófessor.
Brillsh Council gefur
skéla FJ.F. góðar
gjafir
SVO sem kunnugt er, hættir
British Council störfum hjer á
landi nú um mánaðamótin. Ný-
lega hefir B. C. geíið Myndlista-
skóla Fjel. ísl. frístundamálara
20 myndabækur. Fjalla þær aðal-
lega um enska list og listamenn.
Með myndum eftir marga fræg-
ustu listamönnum Englands. Er
þetta mikill og góður fcngur fyr-
ir nemendur í skola F.I.F., sem
erú nú um 100 talsina og um
leið er það vísir að bókasafni. Þá
hefur British Council einnig gef-
ið Fjelagi frístunáamálara fimm
litmyndir eftir fræga málara þá;
Gains Borugh, Blake Turner(
Cotman og Rcyno'ds.