Morgunblaðið - 27.01.1948, Side 6

Morgunblaðið - 27.01.1948, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 27- janúar 1948. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árn. Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskxiftargjáld kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Byggingasjóður sveit- anna EFTIR UMRÆÐURNAR, sem urðu á Alþingi um framlög til ríkissjóðs til byggingarsjóðs sveitanna, liggur það ljóst fyrir. samkvæmt upplýsingum tveggja ráðherra, f jármálaráðherra og atvinnumálaráðherra, að ríkissjóður hefur þegar greitt sjóðnum hið lögboðna framlag sitt. Hinsvegar hefur ekki ennþá tekist að afla þess lánsfjár, sem sjóðnum skyldi aflað samkvæmt lögunum. Ríkissjóður hefur þannig fyrir sitt leyti staðið við skuld- bindingar þær, sem hann tók á sig með lögunum um land- nám, endurbyggingar og nýbýli í sveitum. Hin almenna láns- f járkreppa, sem einkennt hefur f jármálalíf þjóðarinnar 1947, hefur hinsvegar leitt til þess að ekki hefur tekist að afla þess lánsfjár í þessu skyni, sem lögin gerðu ráð fyrir. En byggingarsjóðurinn er þrátt fyrir það tekinn til starfa og fjöldi bænda hefur notfært sjer hin hagstæðu lánskjör hans. Tímamenn hafa reynt að gera þessi mál að ádeiluefni á Sjálfstæðisflokkinn. En það hefur tekist illa. Bændur vita að það var fyrir frumkvæði og forystu þeirrar stjórnar, sem Sjálfstæðismenn veittu forystu, sem fyrrnefnd lög voru sett Vegna setningar þeirra hafa lánsstofnunum landbúnaðarins nú verið greiddar 5 miljónir króna til aðkallandi fram- kvæmda í sveitum landsins. Sjálfstæðismenn vita vel að landbúnaðurinn þarf á miklu meira fjármagni að halda til þessara nauðsynlegu framkvæmda. Og þeir munu halda á- fram að vinna að vinna að því að tryggja bændum 'þetta íjármagn. En þess er vert að minnast í þessu sambandi, að 'það er ekki landbúnaðinn einan, sem skortir um þessar mundir fjármagn til framkvæmda. Því fer þessvegna svo fjarri að drátturinn á lánsframlög- unum til lánastofnana bænda sje alveg sjerstakt fyrirbrigði, sem sanni illvilja í garð bændastjettarinnar. Aðalatriðið í þessu máli er að bændum hafa þegar verið trygð veruleg framlög úr ríkissjóði til byggingar- og rækt- unarframkvæmda og að því mun verða unnið í samræmi við gefin fyrirheit að útvega það lánsfje, sem enn hefur ekki tekist að afla. Innflutningur S.I.S. TlMINN HEFUR undanfarið látið sjer tíðrætt um versl- unarmálin. Eina leið hans til þess að tryggja almenningi í landinu hagkvæma verslun er að skömmtunarseðlarnir verði látnir gilda sem innkaupaheimild fyrir vörum. Á það hefur áður verið bent hjer í blaðinu, hversu ólík- ieg þessi leið sje til þess að ná þessu marki og það er óþarfi að endurtaka rökin fyrir því að sinni. En í sambandi við umkvartanir Timans yfir því misrjetti, sem kaupfjelögin hafi orðið fyrir í skiptingu innflutningsins væri fróðlegt að fá fulla vitneskju um hvernig hlutföllin eru milli innflutnings kaupfjelaganna, þ. e. Sambands íslenskra samvinnufjelaga, og kaupmannaverslunarinnar. Fyrir nokkrum dögum birtist í Tímanum skýrsla um inn- flutning vjeladeildar S. 1. S. á árinu 1947 á ýmsum vjelum, m. a. landbúnaðarvjelum og bifreiðum. Af henni er auðsætt, að kaupfjelögin eru langstærsti inn- ílytjand' slíkra vjela, enda berum orðum sagt í greininni sjálfii. Þau eru ennfremur meðal stærstu innflytjendá á bifreiðum, fluttu á árinu 1947 inn á sjöunda hundrað bifreiða. Á þessu sviði innflutningsverslunarinnar hafa kaupfjelög- in þannig áreiðanlega ekki setið við óæðra borð en aðrir, nema síður sje. En hversvegna kemur Tíminn ekki hreint til dyranna og birtir skýrslu urn heildarinnflutning S. 1. S., þannig að rangindin, sem hann segir að það hafi verið beitt, sjáist svart á hvítu? Ekkert ætti að vera auðveldara en að fá slíka skýrslu. Hversv \ í má hún ekki koma fram í dagsljósið eins og skýrsla vjeiade-iidarinnar? \Jihverji ólrij^c ar: UR DAGLEGA LIFINU Furðulegt kæruleysi. ÓSKEMTILEGT er að heyra hvernig skautafólkið hefir far- ið að ráði sínu í Hljómskála- garðinum í vetur, að eyðileggja þar trjáplöntur fyrir þúsundir króna. — Og það er ekki pen- ingaverðmætið sjálft, sem mönnum gremst, að tapast hef ir, heldur framkoma skauta- fólksins og þar tjón, sem feg- urð bæjarins verður fyrir með þe'ssari skemdarstarfsemi. Hljómskálabletturinn er einn fegursti staðurinn í bænum á sumrin og þar hefir verið unn- ið mikið og þarft verk til ynd- isauka fyrir bæjarbúa,- Nú er mikið af því unnið fyrir gíg. • Krafist betri um- gengni. ÞAÐ VÆRI sannarlega hart, ef grípa þyrfti 'til þess úrræð- is, að_banna bæjarbúum að leika sjer á skautum á Tjörninni, þá tihölulega fáu daga vetrarins, sem hana leggur. — En það verður ekki sjeð annað en að það sje nauðsynlegt til þess að veria nýgræðinginn í Hljóm- skálagarðinum, því hann ex meira virði en skautaferðir nokkra daga vetrarins. Best væri að skautafólkið sæi sóma sinn í því, að ganga svo um í Hljómskálagarðinum, að þar væri ekkert eyðilagt. — Þá gæti þessi blettur orðið bæj- arbúum til ánægju, bæði vet- ur og sumar. — Að því ber að stefna. • Nýr Tjarnarhólmi. BÆJARYFIRVÖLDIN hafa ákveðið, að láta gera nýjan hólmi í Tjörnina. — Er það gert til þess fyrst og fremst að hæna fieiri fugla á Tjörnina. Bæjarbúar munu fagna þess- ari ráðstöfun, þótt ekki geti hún talist stórvægileg. — Með hverju ári sem liðið hef ir, hefir fuglunum fjölgað á Tjörninni. — Góðir menn, eins og t. d. Jón heitinn Pálsson, bankagjaldkeri, unnu að því af áhuga og manngæsku, að fugla líf yrði auðugra á T.jörninni. • Tjörnin ómetanleg. FERÐAMENN, sem koma hingað til Reykjavíkur, bæði innlendir og útlendir, hafa jafnan farið fögrum orðum um Tjörnina og öllum Reykvíking- um þykir vænt um hana. — Erlendir ferðalangar . hafa bent á, að Tjörnin yki svo á fc-gurð bæjarins, að höfuðstað- urinn' yrði ekki nema svipur hjá sjón, ef hún væri horfin. — Reykjavík hefir verið líkt við víðfrægustu borgir í Svisslandi og víðar erlendis, þar sem fag- urt bykir, einmitt vegna Tjarn arinnar. — Hún er eins og gim- steinn, eða fagurt men. • Gæti verið ennþá fegri. EN TJÖRNIN okkar gæti orð ið jafnvel ennþá fegurri blett- ur, ef meira væri fyrir hana gert. — í þurkatíð á sumrum þykir mönnum stundum vafa- samur fegurðarauki að henni. Þegar hún er full .af grænu slýi og óþefinn af rotnandi vatnsgróðri og fúlu vatni legg- ' <r um miðbæinn. Borgarstjórinn okkar, Gunn- ar Thoroddsen, bar einu sinni fram tillögu um það á meðan hann var bæjarfulltrúi að botn Tjarnarinnar yrði að einhverju leyti steyptur og hún hreinsuð. —Borgarstjórinn hefir ábyggi- lega smekk fyrir þessu og á- huga á málint* ennþá. — Bæj- arbuar fylgja honum að málum. • Fallegir kvenhattar. KVENFÓLKIÐ okkar er að verða heimsfrægt fyrir fríðleik sinn. — Kvikmyndahetjur og aðrir herrar utan frá hinum stóra heimi, keppast um að syngja þeim lof og prís, — Þeir vitna um þetta í víðlesnum blöð um í útlandinu og sverja, að þeir hefðu léngur gist gamla Fróir, ef þeim hefði verið ljóst, hve undursamlegt kvenfólkið er á íslandi. Stundum kemur það að mjer, að halda að kvenhattarnir eigi einhvern þátt í þessu fríðleiks- orði, sem komið ’fer á íslenskt kvenfólk. — Það er meira úr- valið, lagið og litirnir, hæðin og breiddin, síddin og sauma- skapurinn. — Já, mikið er hatt- arans pund! • En höttunum er bölvað. EN ÞEGAR Reykvíkingar koma í kvikmyndahúsin dugar hattarans list ekki lengur. — Þá eru hinir fögru kvenhattar, sem keyptir voru fyrir síðasta eyririnn og svitadropann, for- dæmdir, hátt og í hljóði. — Og þeir, sem verða að engu á bak. við tveggja hæða kvenhatt í reykvísku kvikmyndahúsi, sjá ekki lengur fegurð þeirra nje eigendanna. Þá óska menn sjer, að allar konur gengju með skýluklúta að höfuðfati og myndu jafnvel ekki fárast yfir, þótt þær væru sköll óttar, blessaðar. Það er eiginlega undarlegt, að ekki skuli hafa verið stofn- aður ,,andkvenhattaklúbbur“ í Reykiavík, eða að karlmennirn ir skuli vera þær rolur, að gera ekki einhverjar ráðstafanir gegn þessum kvenhattaófögnuði í kvikmyndahúsunum. Það mætti til dæmis mótmæla með því, að .allir karlmenn í bænum gerðu sjer að skyldu, að mæta í kvikmyndahúsum með pípuhatta og taka þá ekki ofan á meðan á sýningunni stendur. Það gæti kannske sýnt kven fólkinu hvernig þær fara með samborgara sína. — 'í I MEÐAL ANNARA ORÐA Eftir G. J. A. j-----------------------------------------------------------* Stærsti stjörnukíkir heimsins Þegar stærsti stjörnukík- ir heimsins verður í ár tek inn í notkun í Bandaríkj- unum, munu mcnn geta sjeð tíu sinnum lengra út í himingeimihn en nokkurn- tíma áður. I MAI eða júní í ár verður að öllum líkindum tekinn í notk un í B'andaríkjunum stærsti stjörnukíkir heimsins. Saga þessa sjónauka, sem byrjað var að undirbúa smíði að 1927, er það merkileg, að hún er vel þess virði, að íslenskir blaðles- endur kynnist henni að nokkru. Fyrir skömmu síðan birti banda riska blaðið Collier’s alllanga grein um stjörnukíki þennan, og h'.er eru nokkrar glefsur úr henni. • • TÍU SINNUM LENGRA Þegar ldkirinn, sem er í eigu California Institute of Techno- logy. verður tekinn í notkun, munu menn geta sjeð tíu sinn- um lengra út í himingeiminn en nokkru sinni áður. Ef við hugsum okkur himingeiminn. sem bandaríska borg, getum við í dag með bestu stjörnu- kíkjum okkar sjeð það, sem er að gerast á næsta götuhorni. En nú munum ýið geta fylgst með atburðunum í mílu fjar- lægð — ef til vill um alla borg ina. Þc"ar kíkinum verður beint út í himinhvolfið, munu stjörnu fræðingarnir sjá, hjjað skeði á tungljnu fyrir einni og hálfri sekúndu siðan, á sólinni fyrir átta mínútum síðan og á Pluto sem er í 4.000 milj. mílna fjar- lægð^ fyrir um það bil sex klukkustundum. • • FYRIR BILJÓNUM ÁRA Fvrir biljónum ára síðan sendi stjarna langt í burtu frá sjer Ijósgeisla út í himingeim- inn. Jörðin og sólarkerfið okk- ar var þá að öllum líkindum ekki tií. Geislinn þaut áfram með IS.9.000 mílna hraða á sek. Snreneing skapaði sólina og stjörnukerfi hennar. Það kóln- aði smámsaman. Líf myndaðist. Eftir miljónir ára var menn- ingin komin á það stig. sem hún gr á í dag. Stjörnukíkirinn var fundinn upp. Geislinn hjelt enn áfram ferð sinni. • • KÍKIRINN TILBÚINN S+'prnukíkirar stækkuðu og fullkomnuðust. Og þegar ljós- geisljnn, gem hóf ferð sína fyr- ir biljónum ára síðan og í margra triljóna mílna fjarlægð, nær til jarðarinnar, verður stærsti spegill heimsins tilbú- inn á Palomar-fjalli í Cali- forníu. Ljósgeislinn mun falla á hann, endurvarpast nokkur fet og loks koma fram á Ijós- mynd hjá vísindamönnunum. • • SPEGILLINN Við smíði risasjónaukans á Palomar-fjalli var það spegill- in, rcm olli mestum erfiðleik- um. Þvermál hans er 200 þuml ungar, og þetta er langsamlega stærsti spegill í heimi. Vírindamennirnir, sem smíð uðu hann, þurftu að leysa ó- teljandi þrautir. Á tímabili leit til dæmis út fyrir, að hann mundi verða að kólna í níu ár, ef hann ætti að verða galla- laus. Með tilraunum tókst vís- indamönnunum þó að minhka þetta tímabil niður í eitt ár. Það var ekki fyr en 1936, að lokið var við að steypa þennan risaspegil. Hann vóg þá um' 20 tonn. Til þess að fullgera hann, þurfti að fægja hann í mörg ár, en er því var lokið, var hann um 15. tonn á þyngd, tvejpgja feta þykkur út við Frh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.