Morgunblaðið - 30.01.1948, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.01.1948, Blaðsíða 2
Föstudagur 30. janúar 1948« j 2 MORGVTSBLAÐIÐ ^Brennumennirnir“ voru dæmdir 9 í eins til úttu úru fungelsi Bómar yfir sjö þeirra voru þyngdir í Hæstarjetti Skaðbótagreiðslur nema hundruðum þúsunda í GÆRMORGUN var í Hæsta rjetti kveðinn upp dómur í máli þeirra manna, sem jafn- an hafa verið nefndir „brennu mennirnir“, en þeir eru átta. Hæstirjettur dæmdi þá Snorra Jónsson, heildsala, Nönnugötu 8, og Jóhannes Sæmund Pálsson, rafvirkja, Furubrekku, Staðarsveit, í 8 ára fangelsi hvorn. Sigurður Jónsson, kaupm., Þingholts- stræti 26, var dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi. Gísli Kristjánsson, .sjómaður, sem er þeirra yngst ur, um tvítugí, var dæmdui í þriggja ára íangelsi. Ástráður Proppé, Bárugötu 5, Akra- nesi, f jekk tveggja ára og sex mánaða fangelsi. Þórður Hall dórsson, frá Dagverðará, á Snæfellsnesi, nú til heimilis að Hrísateig 1, var dæmdur í eins árs og níu mánaða fangelsi, en þeir Baldur Þorgilsson, Grundarstíg 15B, hjer í bæ og Þorgils Hólmfreð Georgsson, bílstjóri, Háteigshverfi 1, voru dæmdir í eins árs fangelsi. Við dómsuppkvaðningu í hjer- aði fengu hinir seku þessa dóma. Snorri Jónsson og Jóhannes Pólsson se:c ára fangelsi, Astráð- ur Proppé og Sigurður Jónsson 3 ár og 6 mánuði. Gísli Kristjáns- son tveggja ára fangelsi,. Þórður Halldórsson 18 mánuði, Baldur Þorgilsson 15 mánuði og Þorgils H. Georgsson var dæmdur í eins árs fangelsi. Málskostnaðnr. Til verjenda sinna fyrir hæsta- rjetti voru hinir seku dæmdir til að greiða samtals kr. 24.500. Þá var þeim gert að greiða allan áfrýjunarkostnað, kr. 11 þús., greiði allir hinir ákærðu in solidum að 1/5 hluta, en þeir Snorri, Jóhannes, Sigurður, Gísli, Astráður og Þórður in solidum að 4/5 hlutum. Allir voru þeir sviptir kosninga rjetti og kjörgengi til opinberra starfa og annara almennra kosn- inga. Skaðabætur. Brennumennirnir voru dæmd- ir til þess að greiða vátrygginga- fjelögum samtals kr. 154.990 með 5—6% ársv. Þessar skaðabæt- ur skiptast þannig, að þeir Snorri Jónsson, Sæmundur PáJsson og Gísli Kristjánsson, greiði Sjóvá- tryggingafjelaginu kr. 21.936 með <j% ársvöxtum frá 25. jan. 1946 óg Almennum tryggingum kr. 5Í.600 ásamt. 6% ársvöxtum frá Í3. febr. 1946, til endurgreiðslu á skaðabótum og kostnaði vegna íkveikju í húsinu nr. 5 við Mið- Stræti. Þá voru þeir Sigurður Jónsson, Jóhannes Pálsson og Snorri Jónsson dæmdir til að greiða in solídum Sjóvátrygginga ájelaginu kr. 86.954 ásamt 6% árs- jyoxtum frá 6. apríl. Er það endur- greiðsla á skaðabótum og kostn- Jði vegna brennu á vörum í geymsluskúr við húsið Miðstræti f). Þá staðfesti Hæstirjettur á- kvæði hjeraðsdóms, um að Jó- hannes og Snorri greiði in solid- ■ým Sjóvátryggingafjelaginu kr. 470 ásamt 6 arsvoxtum fra 28. júni og er það endurgreiðsla á íjkaðabótum og kostnaði vegna fkveikju í geymsluskúr í Vonar- stræti 4. Þá var ákvæði hjeraðs- dóms um að Jóhannes greiði manni nokkrum kr. 440 sem öku- gjald staðfest. Loks var þeim Snorra, Jóhannesi, Sigurði Þórði fcalldórssyni og Þorgils Hólmfreð Georgssyni gert að greiða Bruna- bótafjelagi Islands kr. 42.590 in golidum. Málavextir. Eins og þegar hefir verið skýrt frá hjer í blaðinu, er þetta mál eitt hið umfangsmesta sem kom- ið hefir fyrir ^Hæstarjett. Sem dæmi má nefna það, að skjöl hjeraðsdóms eru um 380 vjelrit- aðar síður, en dómur Hæstarjett- ar 25 síður. Verður hjer aðeins stiklað á stóru í frásögn af þessum mál- um. Fyrst er það í febr. 1944-þá var kveikt í bátskrifli, Franc RE-159, sem Snorri Jónsson hafði eign- ast haustið 1943. Þennan bát hafði hann tryggt fyrir 75 þús. krónur, en Snorri hafði keypt bátinn fyr- ir 18 þús. krónur. Þegar eldurinn kom upp í bátn um varð í honum mikil spreng- ing. Ekki tókst Snorra að fá vátryggingarupphæðina greidda. Og vegna þess að Snorri varð slðar uppvist að því að láta kveikjaí húsum, þá bárust bönd- in a honum. Þetta hefir þó ekki fengist sannað og var honum þ'ví ekki dæmd refsing fyrir þetta. íkveikjan í Miðstræti 5. Þann 6. janúa'r 1945 ' keypti Snorri . Jónsson húsið Miðstræti 5, sem er stórt járnvarið timbur- hús. Húsið var vátryggt á kr. 252.800 ásamt útihúsi. í húsinu bjó fólk á öllum hæðum, alls rúmlega 20 manns. Snorri mun þegar seint á ár- inu 1945 hafa ákveðið að brenna húsið, í því skyni að afla bruna- bótanna. Ekki vildi hann fram- kvæma íkveikjuna sjálfur. Snorri hvatti mjög Sigurð Jónsson, Þing holtsstræti 26, til verksins, og bauð honum fyrst 10 þús. fyrir en síðar 15 þúsund. Sigurður neitaði að fremja þetta illvirki. I desember 1945 fer Snorri fram á það við Jóhanhes Sæmund Pálsson að hann kveiki í húsinu. Bauð Snorri Jóhannesi fyrst 10 þús. og síðar 20 þús. fyrir. í beinu framhaldi af þessu ræddu þeir Snorri og Jóhannes Sæmundur mjög rækilega um framkvæmd íkveikjunnar. Lagði Snorri á ráð- in um hvernig íkveikjunni skyldi hagað. En það var að fara inn í bólstraraverkstæði, sem .var í kjallara hússins. Jóhannes skyldi veita bólstrurunum vín, láta þá síðan fara út en kveikja síðan í viðarull og trjespónum sem þar voru. Jóhannes var mjög rag- ur við að hefja frarpkvæmdir og kom að máli við kunningja sinn, Gísla Kristjánsson, sjómann, sem þá var tæpra 18 ára. Bauð hann piltinum 6000 krónur fyrir að kveikja í húsinu. Aðfaranótt þess 20. janúar láta þeir Jóhannes og Gísli til skarar skríða. Þá komu þeir af dansleik í Sandgerði og voru undir áhrifum áfengis. Fóru þcir báðir upp að húsinu og hentu logandi eldspítu inn um glugga bólstraraverkstæðisins. Húsgagna bólstrararnir bjuggu báðir 1 kjallaranum og vöknuðu þeir von bráðar við reyk. Slökkviliðið kom skjótt á vettvang og rjeði niður- lögum eldsins. Vegna þess hversu þeim Gísla og Jóhannesi gekk „illa“ þá bauð Snorri Þórði Hall- dórssyni að brenna húsið gegn 50 þús. kr. þóknun. Þórður vildi hvergi nærri koma. Kveikt í skúrmim. Við Miðstræti 5, stóð geymslu- skúr, eins og áður er sagt. T hon- um voru vörur, sem vátryggðar voru fyrir 124 þús. kr. Þessar vörur hafði Snorri selt Sigurði Jónssyni, en auk þess átti Jó- hannes þar einnig vörur. Snorri hvatti Sigurð til þess að kveikja í skúrnum og fellst Sigurður á það. Hið sema gerði Jóhannes. Sigurður kveikti svo í- skúrnum að kvöldi 4. febrúar. Hafði hann þá helt olíu í rusl á gólfinu og bar síðan eld að. Það hefur og orðið upplýst að Jóhannes hafði beðið Gísla Kristjánsson að kveikja í skúrnum gegn borgun. Miklar skemdir Urðu á vörun- um íkveikjutilraunina. Vonarstrætisbruninn. A baklóð hússins Vonarstræti 4, er geymsluskúr sem geymdar voru vörur í senv Snorri Jóns- son átti hlutdeild í. Vörurnar voru vátrvggðar fyrir 170 þús. krónur. Jóhannes hefur játað að Snorri hafi lagt á ráðin um íkveikjuna, það hefur Snorri einnig játað. Að kvöldi þess 18. febr. 1946 kveikti Jóhannes í skúrnum, en slökkviliðinu tókst fljótlega að ráðá niðurlögum eldsins og var tjónið lítið. Fyrirætlanir um brennur. Ibúðarhúsið Baldursgata 12, sem er einlyft timburhús, keypti Snorri Jónsson árið 1945. Þar bjó kona með þrem börnum sínum. A öndverðu ári 1946 leitaðist Snorri við að fá þá Jóhannes Særaund Pálsson og Þórð Hall- dórsson til þess að kveikja í hús- inu og loíaði þeim fje í því skyni. Ekki varð neitt úr því að þetta illvirki yrði framkvæmt. Einnig höfðu þeir Jóhannes S. Pálsson og Þórður Halldórsson róðgert að brenna tvo sumarbú- staði. Annar þeirra var upp við Grafarholt, en hann vildi Þórður ekki brenna því í öðrum enda hans var tbúð. Þá keyptu þeir sumarbústað í Kringlumýri, sem átti að kveikja í. Settu þeir vör- ur, sem þeir áttu í bústaðinn, sumar þeirra höfðu þeir keypt af Snorra. Sigurður Jónsson tók að sjer að annast íkveikjuna gegn 11 þús. kióna þóknun. Þórður ber að Snorri hafi hvatt tii brenn unnar, en Snorri hefur borið á móti því. Ekkert varð úr því að sumarbústaðurinn yrði brendur, því rannsókn þessa máls var þá hafin. Fleiri brennur höfðu þeir Snorri Jónsson og Jóhannes á prjónunum. T. d. þá að kaupa hús í Grundarfirði og brenna það. Einnig voru fyrirætlanir um að taka á leigu vjelbát, fylla hann af vörum og sökkva honum. Að þessu stóðu Snorri, Jóhannes, Sig urður og Þórður. Akraness-bi ennan. Jóhannes S. Pálsson átti hug- myndina að því að flytja vörur í hús á Akranesi, vátryggja þær hátt en kveikja síðan í öllu sam- an. Um þetta átti hann tal«aúð Astráð Proppé, Bárugötu 15, Akranesi, en hann útvegaði hús- ið, sláturhús Bjarna Ólafssonar & Co. Jóhannes skýrði Snorra Jónssyni frá þessari íkveikjuhug- mynd og er sagt að Snorri „hafi talið hana mjög skynsamlega". Síðar fengu þeir Sigurð Jónsson í lið með sjer. Síðan voru vörur, sem þessir menn áttu, fluttar í Frh. á bls. 11. Erlendir skátar taka þátt í landsmóti skáta á Þing- völlum næsta sumar Á SUMRI komandi verður haldið Landsmót skáta á Þingvöllurrt og ijiunu sækja það skátar frá ýmsum löndum Evrópu. Undirbún- ingur að mótinu er þegar hafinn og hefur nú öllum skátadeild- um um landt allt verið tilkynnt um skipulag mótsins. Vernd barna og ung- menna — Ný úbvarslög GUNNAR Thoroddsen flytur í neðri deild frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 20 9. apríl 1947, um vernd barna og ungmenna, svohljóðandi: Um greiðslur fyrir börn og ungmenni á hælum þessum og öðrum hælum og stofnunum handa börnum og ungmennum, sem í 35. og 36. gr. getur, fer samkv. lögum nr. 78 1936. Þeg- ar leitað er samninga um vist á slíkum hælum, skal það gert í samráði við barnaverndarráð. í greinargerð segir m. a.: í núgildandi lögum um vernd barna og ungmenna er yfirleitt fylgt þeirri reglu að láta for- eldra eða forráðamenn þeirra barna, sem barnaverndarnefnd- ir eða barnaverndarráð verða að ráðstafa, bera sem minstar f jár- hagslegar byrðar af þeim ráð- stöfunum. Eru til þess þær eðli- legu ástæður, að þessir aðilar taka aldrei börn eða ungmenni af heimilum þeirra nema af mjög brýnni nauðsyn, og stund- um án samþykkis eða jafnvel gegn vilja aðstandenda þeirra. Þessar framkvæmdir eru ákaf- lega erfiðar og óvinsælar og mundu verða næstum ófram- kvæmanlegar í sumum tilfellum, ef þeim fylgdu miklar fjárhags- legar byrðar fyrir aðstandend- urna. Mestur kostnaður af slíkum ráðstöfunum er venjulega sá, þegar barni er komið fyrir til langdvalar á opinberu barna- hæli. Fer þá um greiðslu kostn- aðarins eftir lögum um ríkis- framfærslu sjúkra manna og ör- kumla, þ. e. að ríkissjóður greið- ir % kostnaðarins, en sveitar- eða bæjarsjóður y5 hluta, sbr., 37. gr. laganna. En um greiðslu kostnaðar við dvöl barns eða ungmennis á athugunarstöð eða upptökuheimili eru engin sjer- ákvæði í lögunum, og er því all- ur sá kostnaður endurkræfur frá lögskyldum ' framfærslu- manni þess, — Mun ákvæði um þetta hafa fallið niður af van- gá, og er frv. þetta flutt til að bæta úr því. ★ NÝ ÚTSVARSLÖG Ríkisstjórnin ber fram í efri deild frumvarp um útsvör. Aðalbreyting frá núgildandi lögum er sú að skiftíngu útsvar- anna milli heimilissveitar og at- vinnusveitar verði breytt þann- ig að aðallega verði lagt á hlut- aðeigandi menn í heimilissveit hans, en verði með vissum skil- yrðum hægt að leggja á menn útsvör í atvinnusveit þeirra. Mál þetta var á dagskrá í gær og fór forsætisráðherra um það nokkrum orðum. Nokkrir þingmenn gerðu at- hugasemdir við frumvarpíð en ráðherra svaraði . Málið fór síðan til allsherjar- nefndar. * Skátafjel. Reykjavíkur skýrði Morgunblaðinu frá þessu í gær- morgun. Verður mjög til alls vandað á mótinu, enda er talið víst að þátttaka íslenskra skáta verði mjög almenn. Um erlenda skáta er ekki vitað með vissu, en nokkrum Evrópulöndum hef- ur verið boðið að senda sveitir kvenskáta og drengja. Á Leirunum Mótsstaður verður á Leirun- um suður af Hvannagjá. Á aðal- samkomusvæðinu, Miðgarði, verða fánar þeirra þjóða, sem þátt taka í mótinu. Þar verður og aðalsýningarsvæði mótsins. Langeldarnir verða í Hvanna- gjá, sömuleiðis kirkjan. Á mótinu Á sýningunni fará fram hvers konar leikir og skátaíþróttir, en einnig verður lögð mikil áhersla á að auka þekkingu skátanna á landinu, kostum þess, sögu og fegurð. Svo og öllum greinum skátahreyfingarinnar. — Verður reynt að bregða ljósi yfir þróurt skátahreyfingarinnar á íslandl hin síðari ár. Þá mun fara fram í sambandi við almennar sýning- ar á aðalsvæðinu kynningarstarf semi fyrir skátahreyfinguna. Ep til l>ess ætlast að eýihverja daga mótsins geti allur almenningur komið þangað til þess að skemta sjer við að horfa á skátaleiki og annað. 40 meðlimir í Fjeiagi ísL myndiisiar- manna AÐALF UNDUR var haldinn í Fjelagi ísl. myndlistarmanna fimmtudaginn 22 ian. 1948. _ Formaður fjelagsins, Sígurjón Olafsson myndhöggvari, gaf skýrslu um starf fjelagsins á liðnu starfsári, m. a. um sýning- ar og þátttöku fjelagsins í sýn- ingu Nordisk Kunstforbund í Stokkhólmi á síðastliðnu vori. Fjelagið sendi 2 menn með sýn- ingu þessa, þá Jón Þorleifssora og Jón Engilberts, er einnig mættu á aðalfundi Nordisk Kunstforbunds. Tveir nýir fjelagar voru tekra ir í fjelagið, þeir málaramir Kristján Davíðsson og Kristinra Gunnsteinsson. Stjórn fjelagsins var endur- kosin: Sigurjón Ólafsson, for- maður, Jón Engilberts, ritari og Jón Þorleifsson, gjaldkeri. í sýn inganefnd voru kosnir 5 málar- ar og 1 myndhöggvari: Jóra Stefánsson, formaður, Jón Þor- leifsson, Kristín .Tónsdóttir, Sig urjón Ólafsson, Sveinn Þórarins son, Þorvaldur Skúlason. í fulltrúaráð Bandalags ísl. listamanna voru kosnir: Halldór Pjetursson, Jón Þorleif.sson. Kristín Jónsdóttir, Kjartara Guðjónsson, Nína Tryggva- dóttir. Fundurinn samþykkti að' halda árlegar samsýningar. I fjelaginu cru nú 40 meðlimir og var fundur þessi fjölsóttur;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.