Morgunblaðið - 31.01.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.01.1948, Blaðsíða 1
35. árgangur 25. tljl. — Laugardagimi 31. janúar 1948. Isafoldarprentsmiðja h.f, MAHATMA GANDHIMYRTUR og 11 alra, iaiisr af London í gærkv. FLUGVJELAR þeirrar, sem lagði af stað frá London áleið is 'til Bermuda er enn saknað og er talin lítil von um að hún komi fram. Tutt.ugu og níu farþegar eru um borð og er einn þeirra Sir Arthur Cunn- ingham, sem stjórnaði loftherj um Breta í Lybíu og síðar í Ev rópu síðast. í styrjöldinm. — Reuter. Mew Deihi í gærkv. ÞÚSUNDIR manna standa fyrir utan hús það sem lík Gandhis liggur á börum sveip- að hvítum baðmullardúk, og veit andlit hans mót austri. Á morgun verður iikið flutt að ánni Jumna og er búist við að geysi mannfjöldi fylgi. Verða þar viðhafðir hinir margbrotnu jarðarfararsiðir Hindúa og lík- ami hins látna brendur. Ösk- unni verður síðan stráð yfir Jumnafljótið er það er heilagt í augum Indverja. — Reuter. Franska þingið sam- þykkir gjaídmiðils- frumvarpið París í gærkv. BÁÐAR DEILDIR franska þingsins hafa nú samþykkt frumvarpið um frjálsa verslun með gull og erlendan gjaldeyri (dollara) og innköllun 5000 franka seðla. — Reuter. Vefrar-Olymíu- leikamir VETRAR-ÓLYMPÍU- LEIKARNIR hófust í St. Moritz í Svlss í gær, og voru settir með hátíðlegri viðhöfn. Mesta athygli í sam- handi við leikana til þessa hefir vakið sú ákvörðun Alþjóða-Ólympíunefndar- innar að afnema íshockey sem Olympíuíþrótt, en deila reis upphaflega um þessa íþróttagrein vegna ágreinings milli tveggja íshockey sambanda í Bandaríkjunum, sem hæði vildu koma fram fyrir hönd lands síns á leikun- um. Sjá nánar um leikana á bls. 2. Gðiiii o§ Islii TVEIR INDVERSKIR leiðtogar, sem ötulast börðust fyrir sjálf- stæði Indlands, Pandit Nehru og Mahatma Gandhi, sem myrtur var í gær. London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BÚIST er við að Bretar samþykki stofnun öryggisherdeildar Gyð- inga og Araba til þess að halda við friði í landinu þegar þeir lara þaðan 15. maí. — Nýlendu- og utanríkisráðuneyti Breta og Sir Allan Cunningham, landstjóri Palestínu tóku þessa ákvörðun ef tir að tilkynning frá Palestínunefnd skýrði frá því að hún mýhdi styðja slíka hugmynd. Arabar hafa aftur á móti mótmælt þessu harðlega og hótað gagnráðstöfunum. Aðeins varnarlið. Brear hafa tekið það fram að slíkt lið myndi þó einungis brúkað sem varnarlið og til þess að halda reglu í landinu. Arabav hafa lýst því yfir að sjé þetta raunveruiega ákvörð- un bresku stjórnarinnar þá sje þetta brot á yfiriýstri stefnu hennar, þar sem hún hafi oft lýst því yfir að hún muni ekki skipta sjer af málefnum lands- ins þegar hún lári af yfirráð- úm þess. Loforð Breta einskisvirði. Segja þeir að stofnun Gyð- ingaherdeildar sje aðeins til þes að búa í haginn fyrir þeim áður en skiptingin fari fram. Loforð Breta gagnvart Aröbum er því ekkert annað en fagur- gali, sem ekki eigi við neitt raunverulegt að stvðjast. —----------------------- Skip irá Panama springur í ’off upp — 18 farasf París í gærkvöld. ÞRETTÁN menn björguðust af tankskipinu Panchito, 4015 tonn, frá Panama, sem sprakk í loft upp rjett fyrir utan Lori- ent í gær. Var þeim bjargað af franskri fiskiduggu. Skipsbrots menn skýrðu frá að 18 hefðu farist ív sprengingunni eða druknað og er það minna en ráð hafði verið fyrir gert í fyrstu. Var skipstjórinn meðal þeirra sem fórust. Sk,ipið var' á leið til Antwerpen. — Reuter. •<S> —------- Oístækisf ullur Hindui skaut hann til bana — Hfrsii vsknr óhug um heim allan ÞjéSarsorg I Indiandi New Delhi í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. MALIATMA MOHANDAS GANDHI, leiðtogi Brahmatrúarmanna og frelsishetja Indlands var myrtur klukkan 11,30 í morgun. j Banamaður hahs var ungur Hindúi, sem tilheyrir fámeitnum of • l stækisfullum trúarfiokki. Gandhi, sem var 79 ára að aldri, var j á leið í bænahús sitt til morgunbæna ásamt fylgdarliði sínu er i tilræðismaðurinn Naturan Vinjak rjeðist að honum og skaut f jór- I um skotum í brjóst hans. Gandhi ljest hálfum tíma síðar og las prestur fyrir honum bænir Hindúa. ALÞJÓÐARSORG Þúsuudir Indverja voru viðstaddir þegar tilræðið skeði og hóf mannfjöldinn þegar að syngja sorgarsöngva. Indverska þjóðin er sem þrumu lostin og allsstaðar í heiminum hefur atburður þessi vakið mikinn óhug. Fyrir viku síðan hafði Gandhi lokið föstu sinni til þess að koma á. friði í landinu og þá fanst honum sem æfilangt starf sitt, um frið og sjálfstæði lands síns hefði byrjað að bera árangur. Hafði hann þá sagt að sig langaði til þess að verða 125 ára til þess að sjá árangur starfs síns í þágu þjóðar sinnar og mannkynsins. Neliru hvetur til friðar Pandit Nehru, lærisveinn og samstarfsmaður Gand- his og forsætisráðherra Indlands, hefur ávarpað þjóðina í útvarp og beðið hana að fara að dæmi hins látna leiðtoga og stofna ekki til æsinga. Þjóðarsorg í 13 daga. í kvöld var lík Gandhis, klætt baðmullarhjúp, lagt á börur fyr- ir utan Birla House. — Nokkur hundruð manna tókst að brjótast gegnum hermanna og lögreglu- vörð til þess að sjá lík hins aldna leiðtoga í síðasta sinn. Öllum op- inberum byggingum, skemtistöð- um og slíku hefur verið lokað og stjórnin skipað 13 daga þjóð- arsorg og flögg skuli dregin í hálfa stöng. Fólkið stendur þegj- andi á götum borgarinnar eins og ráðþrota og margir grátandi. Enn verður ekki sjeð hvaða af- leiðingar þetta morð mikilmenn- isins og friðarpostulans kann að hafa á innanlandsmál Indlands. Ýmsir þjóðhöfðingjar votta Indverjum samúð sína. Truman Bandaríkjaforseti. Strax og frjettist um dauða Gandhis bárust ættingjum hans, þinginu og þjóðinni í heild fjölda samúðarskeyta frá leiðtogum þjóða, stjói’nmála- mönnum. Truman Bandaríkja- forseti komst þannig að orði, er hann minntist Gandhi. ,,Hann var ekki einungis veraldlegur leiðtogi fólksins heldur einnig andlegur leiðtogi þess. Þótt honum auðnaðist ekki að sjá árangur §tarfs síns í þágu þjóð- ar sinnar munu verk hans Framh. á bls. 8 TiHaga m sáffanefnd innan S.Þ. Lake Succes í gærkveldi. LEBANON hefur gert til- lögu um að stofnuð verði sátta- nefnd innan S. Þ. sem sje ó- pólitísk og vinni að því að kóma á sáttum í hinum ýmsu deilu- málum, sem upp kunna að koma meðal meðlima þingsins. Tillaga þessi hefur verið sett í nefnd sem mun ræða hana og gera tillögur um hana þegar þingið kemur saman næst. Oetrðir í Bombay Bombay í gærkveldi. BBYNVARÐAR bifreið- ar óku um götur Bombay í dag, eftir að til óeírða hafi komið í miðborginni, þar sem 11 fjellu og um 50 særðust. Óeirðir þessar, var sagt í tilkynningu, voru vegna miisskilnings um hvaða trúarflokki morðingi Gandhis til- heyrði. Algeru umferða- banni hefir verið komið á um miðbik borgarinnar og strætisvagnar og almenn- ings farartæki verið tekin af götunum eftir að mann- þyrpingin hafði gert til- raunir til þess að ráðast á þau. Herlið standa nú til- búin til þess að skakka leikinn ef til frekari upp- þota kemur. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.