Morgunblaðið - 18.02.1948, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.02.1948, Blaðsíða 10
10 MORGZJISBLAÐIÐ Miðvikudagur 18. febrúar 19^8 KENJA KONA &n LJmee Wil icunó ÓSKABRUNNURINN Eftir Ida Moore« 19. koma til hugar að fara svona langt til þess að leita hans, ckki einu sinni Jóni gamla. Hann þurrkaði framan úr sjer tárin með handarbakinu. Sólin var að setjast, og nú var vatnið komið alveg upp að klettinum þar sem hann sat. Stebba fannst sjórinn aldreí hafa verið jafn ægilegur ásýndum og nú. Og nann tók eftir því, að það var farið að hvessa. Langt í burtu sá hann litlu fiskibátana halda í áttina til Iands. Fiskimennirnir komu snemma heim í dag. Það var ekki góðs viti. Hann ætlaði að reyna að komast upp á klettinn fyrir cfan, en hann náði rjett aðeins með fingurgómunum í brún- ina, og þar hjekk hann. Eftir stundarkorn var hann orðinn þreyttur í handleggj- unum og honum var Ijóst, að hann myndi brátt steypast niður í sjóinn fyrir neðan. Hann lokaði augunum. — Það myndi auðveldara að detta, ef hann hefði augun lokuð. Þá sá hann ekki ógnandi öldurnar fyrir neðan. Svo mundi hann allt í einu eftir Bergmáli. Hann opnaði augun og sneri höfðinu þannig að hann sá hilla undir berg- málsklettinn lengst í fjarska. Hann dró djúpt að sjer and- ann og kallaði í Bergmál. „Jeg er að drukkna, Bergmál. Komdu fljótt! Jeg get ekki haldið mjer uppi lengur". En hvinurinn í stoiminum var svo mikill, að rödd hans drukknaði. Hann heyrir ekki til mín, muldraði Stebbi með grátstafinn í kverkunum. En svo heyrði hann rödd Bergmáls endurtaka það sem hann hafði sagt. En hvað var þetta? Hann þóttist viss um, að Bergmál bætti við’, „Vertu hughraustur — jeg kem“. Stebbi vissi ekki, hve lengi hann hjekk þarna. En hann vildi ekki gefast upp, fyrr en í fulla hnefana, og hann ein- blíndi á bergmáisklettinn. Hann þóttist viss um að honum myndi berast hjálp þaðan. Allt í einu kom hann auga á einhverja dökka þúst, sem kom fljótandi í áttina til hans. Gat þetta verið bátur? Eftir dálitla stund sá hann, að þetta var risastór skel. Myndi hún ná til hans nógu snemma? Hann var nú orðinn dofinn í handleggjunum, og hlaut að þurfa að sleppa takinu eftir 11. dagur reyndu að skella allri skuld- inni á liðsforingja sína. Tim varð líka aðnjótandi samúðar vegna þess að Moll hafði hlaup ið frá honum. Aðrir höfðu mist vörur og skipð, en hann hafði mis mest, því að hann hafði mist konuna, og fyrir þetta varð hann að nokkurs konar píslarvætti í augum fólksins. Fjölda margar góðar konur buðust til þess að taka Jenny að sjer. En hann mátti ekki af henni sjá, því að nokkru leyti kom hún honum nú í stað móð ur sinnar, og vegna þess hvað hún var góð og blíð, saknaði hann Moll minna. Þau bjuggu áfram í litla hús inu og Tim fjekk frú Hollis til þess að hugsa um heimilið, sig og Jenny. Frú Hollis var ekkja og hún átti uppkomin börn og var hjá einum sona sinna í Hancook Street skamt frá Tim. Hún eldaði matinn fyrir þau, þreif til í húsinu, þvoði og hirti fötin þeirra, en Jenny heimtaði það að faðir sinn af- klæddi sig á kvöldin og klæddi sig á morgnana. Þetta fanst frú Hollis hneiksli. „Það er ekki fyrir þig að horfa á telpuna bera“., sagði hún við Tim. „Það er ekki sæmilegt og jeg tek það ekki í mál að vera hjerna ef þessu á að halda áfram“. En Tim var á móti þessu. Jenny var honum nú alt síðan hann misti Moll. Hún var svo góð og skemtileg. Ef hún vakn- aði á undan honum þá skreið hún upp í rúmið til hans og ]jek sjer að því að kitla hann með því að fitla við hárin í nefjnu á honum og strjúka á honum varirnar þangað til hann vaknaði með andfælum. Þá var henni skemt, en hann þóttist vera reiður og flengdi hana svo að hún þóttist fara að gráta, og þá varð hann að hugga hana aftur. Ep hvað sem þaut í nösun- um á frú Hollis, þá ljet hún aldrei verða af því að yfírgefa þau. Hún aumkaðist yfir Tim og henni þótti vænt um Jenny. II. Moll hafði aldrei farið í kirkju, en nú fanst Tim það skylda sín að ala Jenny upp í góðum siðum, svo að hann gerð ist meðlimur safnaðar Mr. Loomis. Hann fór með Jenny með sjer á guðsþjónusturnar, sem haldnar voru í þinghús- inu. Og svo kom hann Jenny í sunnudagaskólann. Það var vegna kirkjurækni sinnar að Tim fjekk írjet ;"r aí Moll. Það var einn sunnudag í októbermánuði. Veður var þá svo kalt að nauðsyn bar til þess að hita upp þinghúsið. Einn ofninn var í anddyrinu. Og undir miðri messu heyrði Tim cinhvern umgang í anddyrinu og fann steikarlykt. Og af því að siera Loomis hafði falið hon um sjerstaklega að hafa þarna eftirlit, fór hann fram í and- dyrið. Þar var þá kominn Haty Colson og var að steikja mið- degismat sinn yfir ofninum. Tfatv Colson var flækingur,, meinlcysismaður og einfaldur, gerði sjaldan neitt, en var þó vel liðinn. Hann gekk um kring og sagði hverjum sem heyra vildi söguna af því hvernig ein hver Spinny Coldthred hefði svikið sig, en enginn hafði heyrt þeiirrar stúlku getið, Hanjj var smáþjófóttur, en vegna þess að hann stal aldrei öðru en mat, sem menn hefði með fúsu geði gefið honum, þá tók enginn mark á því. Tim hefði orðið bálreiður, ef einhver annar hefði verið þarna að steikja sjer mat, en af því að þetta var Haty, þá áminti hann hann góðlátlega um það að hann mætti ekki gera þetta. Haty leit í skjálg til hans og sagði: „Jeg sá Moll Hager í Castine. Kannastu nokkuð við hana? Langar þig til að frjetta af henni?“ Þegar Bretar þóttust öruggir um það að verða, ekki fyrh neinum búsifjum af skipum höfðu þeir skilið eftir setulið í Castine undir forystu Gosselin hershöfðingja, en flutt flota sinn til Halifax. Þetta hafði Tim frjett, en ekki meira. Og nú komu nýjar frjettir. „Sástu hana?“ spurði hann. „Var jeg ekki að segja þjer það?“ sagði Haty og sneri steikinni og það hlakkaði í hon uh. „Jeg fór þangað af því að jeg átti dálítið erindi við hers- höfðingjann. Mjer kom það til hugar þegar jeg var í Belfast og þeir sögðu mjer hvað hann heitir. En jeg sagði engum frá því að jeg ætlaði á fund hans. Jeg fór bara til Castine og jeg veltist um í hlátri með sjálfum mjer út af því hvernig honum mundi verða við það, sem jeg ætlaði að segja honum“. Tim var óþolinmóður: „Hvað segirðu mjer af Moll?“ „Jeg sá hana ekki fyr en eftir að jeg hafði farið á fund hershöfðingjans“ sagði Haty gramur út af því að gripið skyldi fram í fyrir sjer. „Held urðu kanske að jeg hafi farið þangað til þess að finpa hers- höfðingjann. Já, jeg fór þangað og jeg fjekk þá til þess að fylgja mjer á fund hans ha-ha. Þeir ætluðu ekki að gera það fyrst, en jeg gat fengið þá til þess, ha-ha-ha. Og svo fóru þeir með mig til hans og jeg sagði: Eruð þjer Gosselin hers höfðingi? og hann segir — ha- ha — hann segir já og hvað get ieg gert fyrir yður. Það; sagði hann, ha-ha-ha. Og þá sagði jeg: Ef þú ert gæslingur- inn þá fari hún bölvuð gæsin, sem ungaði þjer út“. Nú veltist hann um af hlátri um stund. Svo tók hann steik- ina og velti henni milli handa sjer og beit svo í hana. Tim hló honum til samlætis og spurði: „Sástu Moll? „Já“. Tim þerraði varirnar á sjer með handarbakinu. „Hvernig leit hún út?“ spurði hann lágt. „Vel“, sagði Haty. „Hún leit vel út. Að vísu mundi sjera Loomis varla segja það. En jeg hefi aldrei sjeð hana jafn þokkalega til fara“. „Hvað var hún að gera?“ „Hún var áð fara ofan í bát“, sagði Haty. „Hún var bara að fara ofan í bát til þess að láta flytja sig um borð í stórt skip, sem æltaði að fara til Halifax“. Hann lauk við steikina sína og þerraði hendurnar á buxna- skálmunum. „Þá er þessu lok- ið“, sagði hann. „Þökk fyrir lánið á eldinum. Nú verð jeg að fara, því að jeg hefi mikið að gera“. m. Tim komu þessar frjettir ekki á óvart. Moll hafði sagt það í Hampden að hún ætlaði til Halifax. Þó var hann enn ekki vonlaus um það að hún mundi koma heim aftur. Því var ,það, þegar Amos Patten var sendur til Halifax til þess að ræða um skaðabætur fyrir það tjón, er Bretar höfðu gert í Bangor, að Tim fór til hans og bað hann blessaðan að fá ein hverjar frjettir af Moll. Amos lofaði Því. Hann kom heim aftur í des- ember — og hafði orðið lítið ágengt — en hann hafði þó frjettir að færa Tim. Meðan hann var í Halifáx frjettist það að herskipið Endimyon hefði ætlað að taka hleypiskútuna Pirnce of Neufchatel skamt frá Nantucket í október, en í þeirri orustu hefði Carruthers liðs- foringi fallið. En um Moll væri það að segja ,sagði Amos, að það væri best fyrir Tim að gleyma henni. „Það er langt síðan að hún gleymdi þjer“, sagði hann. „Jeg sá hana, Tim, og það er illa komið fyrir henni. Hún hefir gleymt þjer og hún hafði líka gleymt Carruthers áður en hún frjetti látið hans. Hún hafði þá krækt sjer í nýjan mann“. Tim spurði þá einskis frekar. En í mörg ár braut hann oft heilann um það hvað mundi hafa orðið af Moll, og hve djúpt hún hefði sokkið. En hann frjettl aldrei neitt af henni eft ir þetta. ÞRIÐJI KAFLI. Jenny varð æ hændari a'ð föður sínum eftir því sem ár- in liðu og hann varð einnig hændari að henni. En fyrstu árin varð hann oft að vera að heiman langdvölum. Hann varð þá að fela Jenny forsjá frú Hollis á meðan. Hann var þá í flutningum og meðal annars flutti hann prentsmiðjuna fyr- ir Reter Edes frá Augusta, yfir örgustu vegleysur. Þetta var fyrsta prentsmiðjan í Bangor, og þá var farið að gefa úr fyrsta blaðið þar, „Weekly Register“. Þegar stríðinu lauk hófust aftur samgöngur á ánni og þá lögðust landferðirnar niður. Þá fjekk hann atvinnu við það að aka timbri. Það var erfitt að stunda búskap þarna, enda var timbur aðalvarningurinn, sem þeir í Bangor höfðu að selja. Þegar skógarnir næst þorpinu höfðu verið upp höggnir, tóku menn sjer skóglönd lengra upp með ánni, og þá fjekk Tim nóg að gera fyrir sig og dráttar- uxana sína. Nýjar sögunarmyll ur voru settar á fót og bátar fluttu sagaða viðinn vestur á bóginn. Siglingar um ána fyr- ir neðan Bangor voru viðsjálar og T-im fjekk því vinnu við það að mæla dýpi og merkja sandrif og hættulega staði. — Afsaldð, en e kki vilduð þjer nú gera svo vel og lofa ihjér að standa hjer af mjer rigninguna. ★ Maður hafði lent í bílslysi og hlotið allmikinn áverka á höfði. Annar, sem horfði á, þeg ar slysið varð, var kallaður sm vitni í rannsókn málsins. Dómarinn spurði, hve stórt sár ið hefði verið, en vitnið átti erfitt með að gera grein fyrir því. — Var það á stærð við krónu pening? spurði dómarinn. — Nei, það var stærra. — Var það þá á stærð við tveggja-krónu-pening. — Nei, það var ekki svo stórt, sagði vitnið, ætli það hafj, ekki verið svipað og ein króna þrjátíu og fimm aurar. — Heyrið þjer frú mín góð, jeg fann stoppunál í súpunni. Matsölukonan: — En hvað það var gott, en þjer hafið þó ekki fundið tannburstann minn. Jeg týndi honum líka. ★ — Er það hjer, sem auglýst var eftir þjónustustúlku? — Já, en jeg er búin að ráða stúlku, sagði húsmóðirin. — Jæja, jeg bíð þá í einn mánuð og kem þá aftur. ★ — Það hefir verið leikið á yður, þetta er ekki málverk eft ir Rembrandt. Málverkið er ekki einu sinni 50 ára gamalt. — Mjer er alveg sama, hve gamalt það er bara að það sje eftir Rembrandt. ★ •— Hefir þú nokkru sinni orð ið þess vör, að maðurinn þinn liti konu hýru auga? — Já, einu sinni. — Hvað gerðir þú þá? — Jeg giftist honum. ★ — Ef þjer takið við gjald- kerastöðunni, fáið þjer 1700 krónur á mánuði. — Maður kemst nú ekki langt með 1700 krónur. — Það er heldur ekki mein- ingin, að þjer farið langt. AUGLÝSIIVG ER GULLS IGILD1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.