Morgunblaðið - 28.04.1948, Page 1
JANNA
isiands erSsndís .
- UTANRÍKISRÁDUNEYTIÐ
hefir- tilkynt, að eftirtöldum
mönnum hafi verið veitt við-
urkenning, sem i æðismerin Is-
lands eriendis:
í Aarhus: Olaf Lyngbye,
Clementstorv 17.
í Aalhorg: Niels Erik Christ-
ensen, Ved Stranden 7, Aal-
borg.
í I?ou!ogne snr Mer í Frakk-
landi: Robert Mcsset, 15, Rue
Charles Butor. Sími 1003, 1004,
1005.
í Marscille, Frakklandi: Alf
Jochumsen, 15—17 Rue Moliere
Símar D. 17-57, D. 76-14 og D.
39-38.
Glæsilepr sigur
De Gasperi
Róm í gærk’veldi.
1 ÚRSÍ/ITATÖLUR hjeðán úr
Rómaborg voru birtar í dag.
Alcide de Gasperi, forsætisráð
herra og foringi kristilega lýð
ræðisflokksins, hlaut 185,778
atkvæði, Togliatti, kommúnista
foringinn, hlaut 97,328 atkv.
og Sósíalistaflokkur Nennis
fjekk 57,020 atkv.
— Reuter.
George VI. Bretakommgur og Elizabeth drottning áttu 25 ára hjú-
skaparafmæli á mánudaginn var, eins og getið hefur verið í frjett-
um. Þessi mynd var tckin af konungshjónunum í tilefni brúðkaups-
afmælisius.
Breta vantar sjálfboðaliða.
ÞAÐ ER BÚIST við að breska
stjórnin muni reyna að fá alt
að 100 þúsund sjálfboðaliða til
þess að vinna við breskan iðn-
að í sumar. Verður fólk þetta
aðallega látið vinna við land-
búnaðarvinnu, námuvinnu og
baðmullarvinnu. — Reuter.
Kommúnisfar fá ekki úfvarp-
Úlvarpsráð samþykkir að annast sjálfl
dagsskrána.
KOMMÚNISTAR fá ekki að nota Ríkisútvarpið til áróð'urs fyrir
sig 1. maí, eins og þeir höfðu vonast eftir. Hafði stjórn Alþýðu-
sambands íslands farið fram á að fá að ráöa ræðumönnum þenna
dgg og dagskránni, en á fundi útvarpsráðs í gær var samþykt
svofeld ályktun varðandi útvarpsdagskrána 1. maí:
„Með því:
1) að kominn er í ljós svo alvarlegur ágreiningur
innan Alþýðusambands íslands um 1. maí, ekki hvað
sist um það, á livern hátt og al' hverjum dagsins skuli
minst í ríkisútvarpinu, að vonlaust má teljast að há-
tíðahöldin verði sameiginleg — og með því:
2) að í crindum þeim sem stjórn Alþýðusambands
íslands hefur lagt fyrir rikisútvarpið nieð fyrirhug-
aðan flutning fyrir augum 1. maí er áróður, sem ekki
samrýmist hlutleysisskyldu útvarpsins,
sjer útvarpsráð ekki fært að veita stjórn Alþýðu-
sambandsins nein sjerrjettindi til þess að minnast 1.
maí í útvarpinu og ákveður að annast sjálft að öllu
leyti dagskrána þennan dag.“
Ályktun þessi var samþykt með 3 atkvæðum gegn 1 (komm-
únistans). Einn útvarps-ráðsmaður. (Sigurður Bjarnason alþing-
ismaður) er fjarverandi úr bænum.
Bretar og Banda-
ríkjamenn semja
Washington í gærkv.
OPINBERAR fregnir hjer í
dag herma, að nýl. hafi komið
hingað fulltr. bresku stjórnarinn-
ar til þess að ræða við Fore-
stall, landvarnarmálaráðherra j
Bandaríkjanna, um sameigin-
lega baráttu Breta og Banda-
ríkjanna gegn Rússlandi, ef svo
færi að Rússar gerðu árás á
þá, einhversstaðar í" Evrópu.
Ennfremur hermdu fregnirnar
að samningur þessi hefði verið
undirritaður í dag,
— Reuter.
»
Gyðingar skipuleggja
- heri sína '
Tilldgur um alþjéðalðgreglu. j
Lake Success í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FULLTRÚI FRAKKA í vernda.rgæsluráði Sameinuðu Þjóðanna,
Garreau, bar í dag fram tillögu þess efnis, að 1000 manna al-
j þjóðaiögreglulið yrði sent til Jerúsalem, til þess að vernda börg-
i ina. Creech Jones, nýlendumálaráðherra Breta, sagði, að ekki
; myndi hægt að vernda Jerúsalem, nema því aðeins að vopnahlje
kæmist á í Palestinu. — Frá Tel Aviv herma fregnir, að Haganah,
varnarher Gyðinga, og hersveitir Irgun Zwai Leumi hafi sam-
einast undir eina herstjórn. Mun Haganah því taka þátt í bar-
•iögunum við Jaffa, þar sem her Irgun Zwai Leumis hefur banst
undanxarna þrjá daga. Frá Cairo herma frjettir, að í Arabaríkj-
nnum sje stríðsundirbúningur nú í algleymingi og sje ætlunin að
gera innrás í Palestínu þaðan er Bretar láta af umboðsstjórninni
15. maí n.k. Ennfremur að Egyptaland hafi sent her að landa-
mærum Palestínu og hyggi á innrás n.k. föstudag. — Þá hafa
ckki enn verið staðfestar fregnir um, að Abdullah, konungur Trans
jórdaníu, hafi sagt Palestínu stríð á hendur.
Samninganefnd fil
SKIPUÐ hefur verið nefnd til
viðræðna um viðskiftamál við
Dani. í nefndinni eiga sæti
Sveinn M. Sveinsson, forstjóri,
Finnur Jónsson alþingismaður,
Óli Vilhjálmsson forstjóri í
Kaupmannahöfn og sendiherra
íslands í Kaupmannahöfn, Jak-
ob Möller.
Þeir Sveinn M. Sveinsson og
Finnur Jónsson fara flugleiðis
í dag með flugvjel AOA til Kaup
mannahafnar.
Órói einnkennir
finnsk stjórnmál
Helsingfors í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
YAJO LEINO, finnski innanríkisráðherrann, flutti útvarpsræðu
hjer í dag. Leino, sem er kommúnisti, sagði m. a.: „Það er ein-
hver órói, sem hefur einkent finnsk stjórnmál undanfarið, og
gætir hans á öllum sviöum stjórnmálalífsins. Þessi órói og hið
óeðlilega ásiand, sem hann hefur í för rriéð sjer, er eitthvað ann-
að og meira en venjulegur forleikur almennra kosninga (en kosn-
ingar eiga að fara fram í Finnlandi í júlí n.k.). Það kunna ein-
hverjar óeirðir að vera í aðsigi.
Sosiali Demokrati, málgagn'®--------------------------------
sosial-demokrata hjer, skýrði Lögreglan á verði
frá því á sunnudaginn, að komm Þá var skýrt frá því hjer í
únistar hefðu haft á prjónunum
ráðagerðir um að steypa stjórn-
inni af stóli, meðan á samning-
unum við Rússland stóð. Leino
neitaði því, að nokkur fótur
væri fyrir þessari staðhæfingu
blaðsins.
dag, að lögreglan hefði í gær-
kvöldi verið á verði gagnvart
tilraunum ,,ofstækismanna“ til
þess að ná á sitt vald hernaðar-
vörumter Finnlandi ber að senda
til Rúsklands samkvæmt friðar-
sáttmálanum.
Lögregluliðið sje skipað
sjálfboðaliðum.
Verndargæsluráð S. Þ. hefir
nú til umræðu tillögu Garreau
um alþjóðalögregluliðið. í til.
lögunni segir, að lögregluliðið
skuli skipað sjálfboðaliðum og
ráði þjóðerni engu um það,
hverjir verði valdir í það —■
nema, að eins og nú standa sakir,
sje auðvitað ekki hægt að taka
sjálfboðaliða frá Palestínu. —•
Liðið skuli vera undir stjórn
eins manns, er valinn verði þeg
ar í stað. Sagði Garreau, að
Sameinuðu Þjóðirnar yrðu a.
m. k. að koma Jerusalem til
hjálpar, þó að ógerlegt rejmd-
ist fvrir þær að hjálpa Pale-
stínu í heild. — Sagði hann
ennfremur, að lið þetta yrði að
vera vel vopnum búið og bar
fram fyrirspurn um það, hvort
Bretar myndu ekki fáanlegir
til þess að láta því eftir eitt-
hvað af vopnum sínum, er þeir
hjeldu á brott úr Palestínu. —
Creech Jones svaraði því til,
að hann teldi það mjög senni-
legt.
Vilja bætta að berjast, en . . . .
Fulltrúar Araba og Gyðinga
tilkyntu varnargæsluráðinu í
dag, að herir þeirra myndu fús-
ir til þess að hætta bardögum
í Jerúsalem, en báðir settu slíka
afarkosti, að ósennilegt er að
nokkurt samkomulag náist. Og
þegar Garreau hafði hlýtt á
kröfur fulltrúanna, lýsti hann
því yfir, að hann væri ekki
mjög bjartsýnn á að samkomu-
lag næðist.
Samþykt að ræða tillögu
Bandaríkjanna.
Stjórnmálanefnd S. Þ. sam-
þykti í dag, að ræða tillögur
Bandaríkjanna um vopnahlje í
Palestínu. Var það samþykt með
38 atkv. gegn 7, en 7 fulltrú-
anna sátu hjá-