Morgunblaðið - 22.05.1948, Page 1
óo. argangur
120. tbl. — Laugardagur 22. maí 1948.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Aðsfaða Gyðinga í Jerú
saiem vonlaus
Iler ,Transjordan liefur sig nú mjög: í framtni í orustnnum um
Palesitínu. Á myndinni sjest Abdullah, konuugiii' Trahsjordan, í
heimsókn hjá hersvcitiim sínum.
Útgáfustarfsemi þjöð-
nýtt í Tjekkóslóvakíu
Frá frjettaritara vorum í Prag.
NÚ ER SVO komið í Tjekkóslóvakíu, að ríkið — þ.e.s. kommún-
istafiokkurinn — hefur umráð yfir nær allri útgáfustarfsemi í
landinu. Samþykkt hafa verið ný lög um þjóðnýtingu allra prent-
smiðja, sem hafa 50 manns og þar yfir í þjónustu sinni. Lög
þessi ná einnig til allra myndamótagerða og sterotype-gerða. —
Með lögum þessum fær ríkið umráð yfir 254 prentsmiðjum, sem
hafa-samtals 15,229 manns í þjónustu sinni. Minni prentsmiðjur,
sem Lögin ná ckki til, eru 510 að tölu með 5617 starfsmenn.
FLEIRA EN «>-
ÚTGÁFUFJELÖG
Með lögum j.essum um þjóð-
nýtiirgu prentsmiðja fær rikið
umráð yfir fleiru en úígáfufje-
lögum. Og auk þess voru út-
gáfufyrirtæki eitt það fyrsta,
sem kommúnistar hreinsuðu til
í eftir feörúar-byltingu sína
PRENTARAR RÁÐA
YFIR ÚTGEFENDUM
Vefkalýðssamtökin, en komm
únistar ráða yfir jieim, hafa
vald -yfir öllum starfsmönnum
prentismiðjanna. Innanríkisráðu-
neytið, en þar cru kommúnistar
einnig einráðir, hefur yfirum-
sjón með öllum dagblaðapappír.
Þá er efnnig mælt svo fyrir í
hinum nýju lögum, áð préntar-
arnir skuli ekki einasta sjá um
það, áð útgefandinn háfi fengið
leyfi til útgáfunnar frá yfir-
völdunum, heidur einnig, að
hann hafi fengið leyfi til þess
frá rjettum sðilum, áð nota
pappfr sinn(!).
ríkjasambandsins
Washington í gær.
DR. Alberto Comargo frá
Columbíu hefur verfð kosinn
aðalritari sambands Ameríku-
ríkjanna sem stofnað var efitr
Bogotaráðstefnuna. Var þetta
gert á fyrsta fundi fulltrúaráðs-
ing. Á fundinum var starf Bog-
otaráðstefnunnar athugað og
skipaðar sex nefndir til þess að
fjalla um hin ýmsu störf sam-
bandsins.
Veitt lausn.
WASHINGTON — Truman
Bandaríkjaforseti hefur veitt
Foster aðstoðar-verslunarmálaráð
herra: lausn frá starfi til þess að
gerast aðstoðarmaður Harrimans
fulltrua Marshallhjálpárinnar í
Evrópu. f
Þoldu ekki sann-
leikann
Prág í gær.
TJEKKNESKA stjórnin hef-
ur nú rekið breska blaðamann-
inn Cárl Robson úr lári_di végná
skrífa hans. Nasistar ráku Rob-
son úr Þýskalandi árið 1936 og
árið 1938 var hann rekinn úr
Spáni. Tjekkneska stjórnin
sagði að hann væfi rekinn af
pólitískum ástæðum, en hann
mun hafa sagt sannleikáhn Um
starfsemi hennar. ’
Þýskum málverkum
skilað
' WashingtOn 1 gær.
NÚ eru 54 málverk af þeim
«202 sem fundust í salfcámunum
í Þýskalandi eftir -stríðið og
flutt voru til Bándáríkjanna, á
leið -til Þýskalánds áftur. Hin
sem eftir eru vferða til sýnis í
Bandaríkjunum um stuttan
tíma- en verða því næst flutt
líka til Þýskalánds. Málverk
þessi eru eftir marga áf fræg-
ustu málurum ^veraldarinnar og
hafa til skamms tíma verið til
sýnis í Metropolitan safninu í
New York þar sem yfir ein
miljón manna skoðaði þau. All-
ur ágóði af sýningurrf málverk-
anna rennúr til stuðnings barna
á hernámshluta Bandaríkjanna
í Þýskalandi.
Banna eyðilegging-
ársfarfsemi
kommúnista
Washington í gær.
FULUTRÚADEILD Banda-
ríkjaþings samþykti s.l. mið-
vikudag frumvarp sem stefnir
að útrýmingu spellvirkjastarf-
semi kommúnista í Bandaríkj-
unum. Voru 319 með, en 58 á
móti.
Andmælendur frumvarpsins
hjeldu því fram að það væri
brot á stjórnmálalegu frelsi
Bandaríkjanna að samþykkja
slíkt frumvavp er meðmælend-
ur sögðu að írumvarpinu væri
ekki stefnt gegn kommúnista-
flokknum sem slíkum, heldur
aðeins eyðileggingarsfarfsemi
kommúnista: Frumvarpið verð-
ur að ganga í gegnum- öldunga-
deildina til þess að verða lög.
Óska Kínverjum
heilla
Washington í gær.
BÆÐI Truman fhrseti og
Marshall utanríkisráðherra hafa
sent Chiang Kai-Shek, hinum
nýkjörna forseta Kína, og Li
Tsjung-Jen varaforseta, árnað-
aróskir í sambándi við kosning-
arnar. Hafa þeir einnig óskað
þjóðinni í heild til heilla og von
ast. til að hún megi sem fyrst
vinna bug á þeim erfiðleikum
sgm hún á við að stríða.
Lán handa Japan
Washingtori í gær.
TRUMAN forsétl hefur sent
brjef til forseta fulltrúadeild-
arinnar þar sem’hann fer fram
á að þingið veiti Japan, Koreu
og Ryukyu eyjunum 150 milj.
dollára til þess að reisa við fjár-
hag þeirra.
Bernadotte greifi tekur
aðsjer aðsemja
um sættir
______ \
Arabar reiðir
Bandaríkjunum
Jerúsalem í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ALL-HARÐIR bardagar geisa nú um gamla borgarhlutann
í Jerúsalem og er almennt talið að Arabar sjeu um það bil
að sigra. Fregnir í kvöld hafa verið mjög óljósar sökum þess
að allt símasamband er svo til slitið. Egyptskar flugvjelar
hafa gert loftárás á nokkrar olíulindir, og mikið ber á bresk-
um og amerískum flugvjelum af nýustu gerð i liði Gyðinga.
Þá er einnig vitað um að bandarískir og kanadískir flug-
menn, margir mjög frægir úr stríðinu, hafi gengið í her
Gyðinga.
Þingi breska verka-
mannaflokksins
lokið
London í gærkvöldi.
Þingi breska verkamannaflokks-
ins, sem staðið hefur yfir und-
anfarið, lauk í dag og hjelt
Bevan, heilbrigðismálaráðherra,
ræðu við það tækifæri. — Kvað
hann húsbyggingamál Breta
betur skipulögð en annarsstað-
ar í heiminum og mestu erfið-
leikanna um garð gengna. Á
þinginu voru gerðar nokkrar
samþykktir viðvíkjandi stefnu
núverandi stjórnar og var yfir-
gnæfandi meirihluti þingfulltrúa
fylgjarjdi þeirri stefnu.
— Reuter.
Úfvegsbændafjelag
Keflavíkur ræðir
síldveiðarnar
Á FUNDI, sem haldinn var í
Útvegsbændafjelagi Keflavíkur
20. mai, var eftirfarandi sam-
þykt gerð;
Fundur haldinn í Útvegs-
bændafjelagi Keflavíkur fimtu
daginn 20. maí 1948, telur ekki
möguleika á því, að búa skip til
síldveiða, nema að nú þegar
verði ákveðið fast verð á sum-
arsíld í bræðslu og salt.
Ennfremur telur fundurinn
alveg óvióunandi, eftir þrjár
mislukkaðár síldarvertíðir og
ljelega vetrarvertíð, að tap síld-
arverksmiðjanna af vinslu vetr
arsíldarinnar, Verði látið hafa
áhrif á sumarverðið.
^Bernadotte greifi sáttasemjari.
Bernadotte greifi, sá sem
samdi um uppgjöf Þjóðverja
fyrir Bandamönnum árið 1945,
hefur verið beðinn að taka að
sjer málamiðlun milli Gyðinga
og Araba og hefur hann tekið
það að sjer. Hann mun taka
formlega við starfinu næstkom-
andi þriðjudag en fljúga áleiðis
til Palestínu á fimmtudaginn.
Arabar reiðir Bandaríkja-
mönnum.
Arabar eru nú mjög gramir
Bandaríkjamönnum fyrir að við
urkenna hið nýstofnaða ríki
Gyðinga, Israel, og hafa leið-
togar þeirra látið í ljósi þá skoð
un að þetta kunni að valda því
að bandarískir og breskir Gyð-
ingar hafi betri tök á að láta
trúbræðrum sínum í Palestínu
í tje næg vopn og peninga. Til
orða hefur einnig komið að'þeir
kynnu að stofna sjálfboðaher,
skipaðan allt að einni milljón
manna og senda hann til þess
að verja hið nýstofnaða ríki.
Búast þeir við að Gyðingum
veitist ljett að birgja her þenn-
an bæði vopnum og klæðum.
Arabar hafa látið í ljósí andúð
sína á aðgerðum Bandaríkjanna
á margan hátt og sumstaðar
safnast fyrir utan sendiráð
þeirra í Arabaríkjunum og bor-
ið fram mótmæli.
Munu berjast til síðasla
manns.
Síðustu fregnir í gærkveldi
hermdu að hersveitir frá Trans-
Jordan hjeldu uppi ákafleg i
stórskotahríð á gamla borga; -
hlutann í Jerúsalem en Gyðim -
ar svöruðu á sama hátt! Fles*-
ir telja að engin von sje um að
blóðbað þetta endi fyrr en hver
Gyðingur í gamla borgarhlutan-
um sje fallinn, þar sem líklegt
iér að þeir berjist til síðasta
manns.