Morgunblaðið - 19.06.1948, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.06.1948, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 19. júní 1948. Hafnfirðingar fjöl- snennlu til 17. júní hátíðahafdanna 17. JÚNÍ hátíðahöldin í Hafn- arfirði hófust kl. 2 e. h. með því að fram fór boðhlaup milli knattspyrnumanna íþróttafjel- aganna FH og Haukar, en enda- mörk hlaupsins voru fyrir fram an Ráðhúsið Úrslit hlaupsins urðu þau að knattspyrnumenn FH báru sigur úr bítum, varð tími þeirra 2.20,9 mín., en tími Hauka varð 2.22,0 mín. Að boðhlaupinu loknu hófst skrúðganga frá Ráðhúsinu að sýslumannstúninu, þar sem aðal hátíðahöldin fóru fram. Fremst í skrúðgöngunni mátti sjá fána iþróttafjelagar.na og stjettar fjelaga bæjarins, og í broddi hennar gekk lúðrasveitin Svan ur frá Reykjavík, og fylking skáta. A sýslumannstúninu setti formaður þjóðhátíðardagsnefnd arinnar, hátíðina, með ræðu. Aðrar ræður er þar voru flutt- ar flutti bæiarstjóinn Eiríkur Pálsson, og Sigurður Einarsson dósent. Kristján Kristjánsson söng einsöng, og karlakórinn Þrestir söng nokkur lög. Lúðra- sveitin Svanur !jek milli skemti atriðanna. Auk framangreindra skemmti atriða fóru fram þarna á túninu tveir handknattleikskappleikir, og áttust við meistaraflokkar karla og kvenna frá FH og Hauk um Úrslit kvennaflokksins urðu þau að Haukar sigruðu eftir jafnan leik með 1 marki gegn engu, en í karlaflokki sigraði FH mjög auðveldlega og glæsi- lega með 13 mörkum gegn 6. Um kvöldið var dansað í Góð templarahúsinu og Alþýðuhús- inu, og sýndu Hsfnfirðingar þar hug sinn til dansskemmtana, þar sem Góðtemolarahúsið var allan tíman vfirfullt af fólki dansandi gömlu dansana, en Alþýðuhúsið var tómt fram til 11 e. h. og aldrei biettskipað. Annars var bátttaka Hafn- firðinga í hátíðahöldunum hin glæsilegasta, til þess tíma er dansinn*skvldi hafinn, en þá var eins og menn fyrirfvndust ekki. | Skilrúms- borð | tilvalin fyrir síldveiðiskip, | þykt IV2", sem ný til sölu. i Upplýsingar í-síma 5127. Sfúdenfar úlskrifaðir úr Verslunarskól- anum Á ÞJÓÐHÁl ÍÐADAGINN út skrifaði Verslunarskólinn 10 stúdenta. Var betta í fjórða sinn sem skólinn útskrifar stúdenta og hefur nú alls útskrifað 42. í 5. og 6. bekk lærdómsdeild- ar stundaðu ails 27 nám í vetur, þar af 10 í 6 bekk og stóðust þeir allir stúdentspróf. Einn þeirra fjekk 1. ág. einkunn 7,67 en hæst er gefið átta. Það var Högni Böðvarsson hjeðan úr Reykjavík. Aðrir fengu fyrstu einkunn nema einn er hlaut aðra. Stúdentarnir eru þessir: Egill Skúli Ingibergsson, Vestmanna- eyjum, 1. eink Björgvin Torfa- son, Vestmannaeyjum, 1. eink. Hallvarður Valgeirsson, Reykja vík, 2. eink. Jakob Magnússon, Reykjavík, 1 eink. Kristinn Ó. Guðmundsson, Vestmannaeyj- um, 1. eink. Kristján Flygering, Rvík, 1. eink Richard Richards son, Rvík., 1. eink og Þórir Guðnason, Rvík., 1. eink. Er stúdentunum hafði verið afhent skírteini sín voru þeir ásamt öðrum gestum í boði á heimili Vilhjálms Þ. Gíslason ar. fsuna fegrun - Axel Thorarensen Frfimh. af bls. 5 staðarákvarðanir væru gerðar til þess, að geta gefið til kynna, á næstu flugstöð, ef eitthvað bæri út af. Flugþjónustan er orðin mjög örugg, og flugvjelin hefur altaf stöðugt samband við einhverja flugstöð, sagði Axel. — Nei, starf loftsiglingamannanna á flugvjelunum byggist á því, að velja fljótustu og öruggustu leiðina á milli landa. Sv. Þ. í GÆR barst Gunnari Thor- oddsen borgarstjóra, formanni undirbúningsstjórnar hins ný- stoínaða fjelags til fegrunar bæjarins, brjef og fylgdu því 500 krónur. Brjefið er svohljóðandi: „Um leið og þakkir okkar eru yður færðar herra borgarstjóri, fyrir framkvæmdir yðar til að fega Reykjavík og eins með hinu nýstofnaða fjelagi, óskum við að þessi litla upphæð verði vísi að verðlaunasjóði fjelags- ins, til að veita þeim einstakl- ingi, sem sýnir besta og smekk- legasta umgengni við hús sitt.“ Undir brjefinu stóð: Ónefnd. — Þýskaland Framh. af bls. 1. hafa verið í umferð og of litlar vörur verið til, svo að ríkis- markið hefur verið hjerumbil verðlaust. Við'skipti hafa að mestu leyti íarið fram, sem vöruskiptaverslun. Ætlunin með seðlaskiptunum er að gera mark ið einhvers virði. í stuttu máli að mynda gjaldmiðil, er námu- mennirnir í Ruhr vilja vinna kol fyrir og þýskir bændur vilja selja vörur sínar fyrir. — Meðal annara orða Framh. af bls. 8. — en í fyrravetur var verðið 140 mörk. Pundið af ósviknu kaffi kost- aði einu sinni 450—500 mörk, en nú kostar það 250 mörk. Sigarettur, sem eru ein aðal svartamarkaðsvaran, hafa ekki fallið í verði. Þær kosta eftir sem áður 6 mörk stk. Athyglisverðast er, að marg ir þeirra, sem áður lifðu á því að selja á svörtum markaði, eru nú að leita sjer að atvinnu — öru^gt tákn um það að einhver breyting hefir orðið á. - Palestína Framh. af bJs. 1. þykkt hefði verið af Araba- bandalaginu að engin stefnu- breyting skyldi gerð af Araba hálfu í Palesíínumálinu. Þeir myndu ekki samþykkja skift- ingu landsins nje stofnun Israel. Þeir kærðu sig ekki um fram- lengingu á vopnahljeinu og ef ekki næðist samkomulag áður en það væri útrunnið, litu þeir svo á að eina lausn málsins væri að hefja bardaga á ný. Verkfallshófun Maf- sveina og veifinga- þjóna. MATSVEINA- og veitinga- þjónafjelag Islands, hefur sagt upp samningum við Eimskip og Ríkisskip, frá og með 23. þ. m. Hefur fjelagið gert margvís- legar kröfur um hækkað kaup og aukin fríðindi og hótar verk- falli ef eigi er að þeim gengið. Framkvæmdarstjóri Vinnu- veitendafjel. íslands, skýrði Mbl. frá nokkrum kröfunum. Matsveinn á Selfossi hefði 425 í grunnkaup á mánuði, en krafan væri að kaupið hækkaði í kr. 700. Matsveinar á Fjall- fossi og Reykjafossi hefðu kr. 500 í grunnkaup en krefðust 700 kr. kaups. Yfirmatsveinar á Brúarfossi og Esju hefðu 775 kr. á mán., en krafan er að kaup þetta hækki í kr. 815. Aðstoð- armatsveinar hafa 316 kr. á mánuði í grunnkaup, en krafist er, að það hækki í kr. 500. Þá er farið fram á, að sum- arleyfin verði lengri en orlofs- lögin segja til um. Vinnutím- inn verði styttur, yfirvinnukaup hækkað og matsveinar fái 10% í þjónustugjald af- því, sem þeir framreiða fyrir skipshafn- irnar. Auk þess er krafist, að nýir samningar verði gerðir fyr ir bryta, en þeir hafa sjerstaka samn'inga við skipaútgerðirnar. Viðræðu-fur.dur var haldinn um þetta mál í gær, þar sem aðilar ræddust við. Síðan var málið afhent sáttasemjara og byrja sáttaumleitanir í dag. Sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjartarson sr ekki heima og hefur varamaður hans Valdi- mar Stefánsson sakadómari þetta mál með höndum. lýjar bækur Nóatún, Fögur er foldin Dimmur hlátur. Sendum heim. íjtlgafrU Aðalstræti 18. Sími 1653. AU GLT SIN G ER GULLS IGILDI — Þjóðháfíðin Framh. af bls. 9. Bjarna Böðvarssonar Ijek fyrir dansinum, en hljómsveitarnall- urinn var á miðju Lækjartorgi og var hann vei skreyttur. Sem aðrar skemmtanir dags- ins fóru dansleikirnir vel fram. Sagði lögreglustjóri Mbl. í gær, að drykkjuskapur hefði verið mjög lítill og hegðan fólks góð. Dansleiknum lauk klukkan tvö um nóttina. Þar með var þjóðhátíðinni í Reykjavík, glæsilegustu hátíð ársins lokið og fór fólk heim í háttinn þreytt eftir dansinn með endurminningar um ánægjulegan dag. Framh. af bls. 5. Telur hann sig hafa átt besta vini hjer á landi og hefur enn lifandi áhuga á því er hjer ger- ist, enda hefur hann þrisvar komið hingað í kynnisför eftir að hann ljet af skipstjórn. Þrátt fyrir það, að Aasberg varð fyrir talsvert alvarlegu veikindaáfalli é. síðastliönu ári og læknar hans hugðu honum ekki líf, hefur hann nú alveg náð sjer aftur og er nú hinn hressasti. Getur engan grunað, er sjer hann, að hjer sje á ferð- inni svo aldraður maður. Alla daga tekur hann sjer langar göngur og sje hann hættur að ganga frá Hellerup til Kaup- mannahafnar, sem er röskur tveggja tíma gangur, þá er það alveg nýverið. Eins og jeg gat um hefur danska konungsfjölskyldan haft mestu mætur á Aasberg síðan hann flutti hana til Grænlands árið 1921. — Var konungsarfi jafnan síðan tíður gestur á heimili Aasbergs. Hefur hann í engu breytt hitterni sínu eftir að hann tók við konungdómi, og er þeim er þetta ritar kunn- ugt um, að Hans hátign neytti hádegisverðar, með Aasberg og fjölskyldu hans, á heimili Aas- bergs fyrir nokkrum vikum síð- an. Sýnir þetta vel innræfi og tryggð jöfurs, sem margur mætti læra af. Aasberg hei’ur verið sæmdur ýmsum heiðursmerkjum, m.a. Kommandörkrossi Dannegrogs- orðunnar 2. gr., stórriddara- krossi Fálkaorúunnar, Komm- andörkrossi sænsku Vasaorð- unnar (svo sem áður gecur). Síðast, en ekki síst, má nefna „Medaillen for æde Daad“. Er það heiðursmerlíi honum hjart- fólgnast, og má með sanni segja, að hann hafi vel til þess unnið, þar sem hann hefur per- sónulega bjargað 8 manns frá drukknun um c'agana. Má í því sambandi minnast þess er hann kastaði sjer í fjóinn á Bíldudal og bjargaði tveim mönnum frá drukknun. Vinir Aasbergs hjer senda honum í dag hlýjar óskir og ein- lægustu vonir um friðsælt æfi- kvöld. Ó. J. IIIIIIIIIIIMIIIII|II||||||||||||||||||||||I|||||, ,l|||l|lllll|,llllll| 5 > 2ja herbergja íbúð t óskast, innan Hringbraut- I ar, má vera í kjallara. | Tvent fullorðið í heimili. f Húshjálp getur komið til | greina. — Tilboð merkt: I ..Húshjálp — 59“ sendist 1 Morgunbl. fyrir l..ágúst. I I iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiifiiii X4 & & A Effir Raberf Slorm f 'iO:J siUiLJ i hs -g-a«.am! how'5 AIV »OD M 577U F’ULUNG N’OUÍ? / CMIH-TN'uTf OUT C’P im ( 'r'.flmS í JU5.T KA/rlf vouk predicaaænt! \ mw cMt', help m. wúere:- I NCFD IT /V«39T— IN TU£ LOVE OEPAGrWcHT ! IVE 60T A\AFFtASE ON MV MIND, BJT NO ONEU HAVt MEl eOMETHlNð WR0N6* on thisman'é earth WHEN A VME TURNÓ VOU DOWN! THl£ A JOKE1 EON? X-9: Bing, það ert þú. Hvað segirðu annars bróðir sæll? Bing: En þú? Þú ert enn að leika þjer að eldinum. Hvað á jeg að hjálpa þjer með? X-9: Þú getur ekki hjálpað mjer, þar sem jeg þyrfti mest á hjálp að halda — í ástamálunum. Mig langar til að gifta mig, en engin vill mig. Bing: Nú? Heimurinn hlýtur að hafa snúist við, ef stúlkurnar eru farnar að hryggbrjóta þig. Jeg held, að þú sjert að gera að gamni þínu. X-9: Nei, það er sárt, jeg hef orðið fyrir tvennum vonbrigðum. Þessar konúr valda því á endanum, að "jeg geng í útlendingahersveit. MWM «á3S*'SS kftS ttí, ... I:ú-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.