Morgunblaðið - 20.06.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.1948, Blaðsíða 1
35. árganguj 144. tbl. — Sunnudagur 20. júní 1948. Isafoldarprentsmiðja h.ft li Svíakonungs Tugþúsundir Svía hylltu Gústaf konung:, er hann varð níræSur siðastliðinn miðvikutíajf. Kann sjest hjer ásamt Gústaf Adolf krón- prins, Sibyl'ii prinsessu og' hinum 'iveygja ára gamla Carl Gústaf prins. Hvernig verður íslenska landsíiðið skipað? ppr,iis er um LANDSKEPPNIN vi3 Norðmenn í frjálsum íþróttum fer fram um næstu helgi. VerGur þar alls keppt í 15 greinum. Eru keppend- lir frá hvoru landi tveir í hverri gréin. — Norðmennirnir koma sennilega hingað n.k. föstudag. — íslenska landsliðið hefir enn^* ekki verið ákveðið, en eftir þeim árangri, sem einstakir menn hafa náð hjer í sumar, má fara nærri um, hvemig það verður skipað. Er sennilegt, að það verði eitthvað á þessa leið: 100 m. hlaup: — Haukur Clausen, ÍR og Finnbjörn Þor- valdsson, ÍR. 200 m. hlaup: — Haukur Clausen, ÍR og Trausti Eyj- ólfsson, KR. 400 m. hlaup: — Revnir Sig- urðsson, ÍR og Magnús Jóns- son. KR. 800 m. hlaup: — Óskar Jóns son, ÍR og Pjetur Einarsson, ÍR. 1500 m. hlaup: — Óskar Jónsson, ÍR og Pjetur Einars- son, ÍR. 5000 .m. hlaup: — Þórður Þorgeirsson, KR og Stefán Gunnarsson, A. • 110 m. grindahlaup: — Kauk ur Clausen, ÍR og Skúlj Guð- mundsson, KR. Hástökk: — Skúli Guð- mundsson, KR og Sigurður Friðfinnsson, FH. Langstökk: — Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR og Halldór Lárusson, UK. Stangarstökk: — Torfi Bryn geirsson, KR og Bjarni Linnet, Á. — Spiótkast: Jóel Sigurðsson, ÍR og Adolf Óskarsson, BV. Kúluvarp: — Gunnar Huse- by, KR og Sigfús Sigurðsson, Selfossi. Kringlukast: — Ólafur Guð- mundsson, ÍR og Gunnar Huse- by, KR. 4X100 m. boðhlaup: — Finn björn Þorvaldsson, IR, Trausti Eyjólfsson, KR, Ásmundur Bjarnason, KR og Haukur Clausen,. ÍR. 1000 m. boðhlaup: — Finn- björn Þojrvaldsson, ÍR (100 m.), Framh. á bls. 8. ússar stöðva alla mann flutninga til Berlín sfendsngar ganga fyrir Noregskonung FuHf/úum okkar á Snorrgyiíoinni FULLTRUAR Islands á Snorrahátíðinni í Bergen fóru hjeðan flugleiðis í f.yrradag. Þeir eru Jón Pálmason forseti Sameinaðs Alþingis, Bjarni Ás- geirsson landbúnaðarráðherra, Guðmunaur Ásbjörnsson for- seti bæjarstjórrar Reykjavíkur, Óla.fur Lárusson rekfor Há- skóla Islands og Jónas J.ónsson formaður íslenska hluta Snorra nefndarinnar. Skúli Skúlason. frjettaritari Morgunblaðsins í Noregi símaði í fyrrakvöld um komu og mót- tökur fulltrúa íslendinga á þessa leið: Fulltrúar ísiendinga á Snorra hátíðina komu til Gardemoen- flugvallár við Osló um 4 leytið föstudag, eftir einstaklega góða ferð og einstakt útsýni óir vjel- inni, yfir Suður-Noreg. Hinrik Björnsson sendisveitarfulltrúi tók á móti fulltrúunum á flug- veilinum. í kvöld heldur norska ríkis- stjórnin fulltrúunum veislu á Grand Hotel og á morgun (laug ardag) tekur Hákon Noregs- konungur á móti Jóni Pálma- svni, Ásgeiri Asgeirssyni og Jónasi Jónssyni, en að því loknu verða fulltrúarnir gestir Fostér volds mentamálaráðherra í há- degisverði. Gísli Sveinsson sendiherra tekur á móti fulltrúunum heima hjá sjer síðari hluta laugardags og á laugardagskvöld heldur mentamálaráðuneytið kvöld- veislu fyrir fulltrúana. Á sunnu dag býður borgarstjórn Oslo í ferðalag um borgina og ná- grenni og síðan til hádegisverð- ar í Frogner. En á mánudags- morgun fara gestirnir méð Bergensjárnbrautinni til Berg- en. Kasmír nefndin kemur saman Genf í gær. KASMÍR-NEFND S. Þ. kem- ur saman hjer í Genf í dag til þess að ræða starfshætti og verkssvið nefndarinnar. í nefnd inni eiga sæti fulltrúar frá Argentínu, Belgíu, Kolumbíu, Tjekkóslóvakíu og Bandaríkj- unum. Nefndin kom og saman í gær til að ræða skipun fulltrúa og hefja undirbúning undir vænt- anlega þjóðaratkvæðagreiðslu í Kasmír. Sameiginlegar gagnráð- stafanir Vesturveldanna ----------------------- j Flugierðum til borgarinnar fjölgað ) ————— , Berlín í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reu.ter, FRÁ miðnætti síðustu nótt stöðvuðu Rússar alla mannflutninga frá Vestur-Þýskalandi til Berlínar. Ástæðan til banns þessa er seðlaskiptin, sem fram fara á hernámssvæði Vesturveldanna og vilja Rússar hindra, að fólk komist inn á rússneska hernáms- svæðið með gömlu seðlana, en þar munu engin seðlaskipti fara fram og gömlu seðlarnir gilda jafn sem áður. Umferðabann. þetta er mjög bagalegt fyrir hernámslið Vesturveldanna í Berlín. og eru Bretar nú að undirbúa mannflutninga til borgarinnar með flugvjelum. 10,000 bandarískir ar ti! nams Washington. SAMKVÆMT upplýsingum utariríkisráðuneytisins í Wash- ington, munu um 10,000 banda- rískir stúdentar næstu mánuði fara til erlendra landa til náms. Nokkur hluti þessara stúdenta leggáir af stað til Evrópu á fimmtudag með skipinu ,,Mar- ine Tiger“. Um 3,000 baridarískir stúdent ar stunduðu nám erlendis síð- astliðið ár, en fjöldi erlendra stúdenta ferðaðist til Banda- ríkjauna. Utanríkisráðuneytið banda- ríska á nú í samningum við 18 lönd um stúdentaskipti, en þeg- ar hafa verið undirritaðir samn ingar við Kína, Burma, Filips- eyjar og Grikkland. Agnes Sigurðsson heldur píanóhljóm- leika á Akureyri Akureyri, laugardag. AGNES SIGURÐSSON, ís- lenska listakonan frá Vestur- heimi, hjelt píanótónleika í gærkveldi í Nýja Bíó á Akur- eyri. Ljek hún verk eftir Beet- hoven, Mendelsohn, Chopin, Paganini, Lizst, Alteniz, Grana- das, Lequona, Debussy og Pro- kofieff. Fögnuður tilheyrenda var geysimikill, sem lýsti sjer í miklu lófataki hvað eftir ann- að Bárust henni blómvendir. Að lokum ljek hún aukalög. — Aðsókn var góð. — H. Vald. Sameiginlegar ráðstafanir. I dag komu saman á fund' yfirmenn hernámsstjórna Vest- urveldanna, Robertson, Clay og Noiret og ræddu þeir gagnráð- stafanir, sem Vesturveldin munu gera sameiginlega vegna umferðarstöðvunarinnar til Berlín. Mun bráðlega koma í ljós, hver árangurinn hefur orð ið af viðræðum þeirra. Taka ekkert mark á vegabrjcfum. Rússar hafa stöðvað eila flutninga inn á hernámssvæði sitt. Frá Helmstedt berast þær fregnir að herverðir hafi stöðv- að allar bifreiðaferðir inn á rússneska hernámssvæðið. Hofa þeir ekkert tillit tekið til þess, hvort menn hefðu lögleg og rjett undirrituð vegabrjef. Vöru flutningalestir á leið til Berlín fengu aftur á móti inngöngu en þær voru kyrrsettar inni á miðju hernámssvæði Rússa og hafa ekki enn komið til borg- arinnar. Frá Berlín en ekki til baka. Enn geta þeir, sem vilja, farið frá Berlín til Vestur-Þýska- lands, en til baka komast þeir ekki, þrátt fyrir lögleg vega- brjef. Flutningar með flugvjelum. Bretar munu hefja mann- flutninga með flugvjelum á morgun. Bandaríkjamenn hafa haldið uppi slíkum flugferðum síðastliðna tvo mánuði, en á næstunni verða þeir flutning- ar mjög auknir. x SamningaumleifanS? Brefa og íra. London í BRETAR OG ÍRAR ei vú í samningum um mat -•la- kaup, en ekki hefur enn i -kist að ~,á samkomulagi. E: etar vilja meðal annars kaupa k jöt, smjör og flesk frá írlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.