Morgunblaðið - 31.07.1948, Side 1

Morgunblaðið - 31.07.1948, Side 1
55 árgangur 179. tbl. — Laugardagur 31. júlí 1948. PrentsmiSJa MorgunblaSsLsS Danskar sundmeyjar á 0!ppíuleikununt. Dönsku sundmeyjarnar, sem taka þátt í Olympíul eikunum, sjást hjer á myndinni. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ing-e Beekenj Birthe Christofersen, Elvi Svendsen, Fritze Nathansen, Jytte Hansen. Greta Ondersen, Karen Margrethe Iíarup og Gunnvor Kraft. hurchill segir Attlee uð skommast sín Vill að Bretar stilli til friðar milli Hyderabad og Hindu^tan London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. í DAG varð mikil orðasenna milli Attlee forsætisráðherra Bret- lands og Winston Churchill. Var rætt um deilur ríkisins Hydera- bad á Indlandsskaga og Hindustan ríkis. Þetta var síðasta málið, sem rætt var af breska þinginu áður en þingmenn fóru 'i sumar- frí. Churchill hóf árás á stjórnina fyrir að líða það, að Hindustan gæti sett á samskonar samgöngubann á ríkið Hyderabad og Rúss- ar hafa sett á Berlín. Attlee tók næstur til máls og sagði, að Churchill gerði ekkert nema að rifast út í aðgerðir stjórnar- innar, en legði ekkert raunhæft til málanna. Reis Churchill þá upp og sagði, að Attlee ætti að skammast sín fyrir að segja þetta. Aldrei frá því stjórn verkamannaflokksins kom til valda hafa umræður verið með svo miklum persónulegum ásökunum. Ólympíuleikarnir: setti nýtt met í 800 m. hlmipi Haukur komst í milliriðil, en annars gekk okkar mönnum illa fyrsta daginn London í gærkvöldi. Einkaskeyti frá frjettaritara Morgunbl. Þorbirni Guðmundssyni. ÓGURLEGUR hiti var í London í dag og án efa háði það kepp- endum okkar Islendinga mikið. Fyrsti Islendingurinn sem keppti íyrir Islands hönd á þessum Olympíuleikum var Finnbjörn í 100 m. hlaupi. Hann náði mjög sæmilegu viðbragði, en auðsjeð var að hann gekk ekki heill til leiks, meiðslið í hnjenu frá því í vetur er langt frá þvi að vera gróið. Hann varð fimmti í sínum riðli á 11,1 sek. Bretar senda gull til Bandaríkjanna. LONDON. — Bretar hafa undan- farið neyðst til að selja allmikið gull til Bandaríkjanna. Stundum hafa sendingarnar numið 13 miljón ster- lingspunda virði af gulli á viku. Haukur annar í undanrás. í.sjqtta riðli mættust gaml- ir keppendur frá því í Reykja- vík í vor, þeir Haukur og Bailey. Bailey vann þennan rið il auðveldlega, hljóp á 10,5 ann ar varð svo Haukur á 11,0 sek. Þar með var Haukur búinn að vjnna sig upp í að hlaupa í milliriðli. Þar lenti hann með engum smákörlum, eða þeim LeBeach, Treloar og Cacoan, ebda urðu þeir allir á undan Hauk, sem náði mjög slæmu viðbragði og er hann þar með úr leik í 100 m. hlaupinu. Oskar setur nýtt ísl. met í 100 m. hlaupi. Óskar^hljóp 800 m. í þriðja riðli og varð þar fimmti á sama tíma og fjórði maður sem komst í úrslit, en Óskar ekki. Tími Óskars er nýtt ísl. met 1.55,4 sek., sem er afbragðs- góður árangur, þótt að hann dygði ekki í þetta sinn til sig- urs. Gamla metið var 1.55,7 sek. sett af honum sjálfum fyr ir hálfum mánuði síðan. Orn spjarar sig. Þegar Örn var tilkyntur sem keppandi í 100 m. hlaupi, var það ekki gert vegna þess að búist var við að hann kæm- ist lengra en í undanrás. Þarna Framh. á bls. 8. Nýlt met í loft- tlutningum Frankfurt í gær. BANDARÍSKI flugherinn sló enn met sitt í loftflutningum til Berlínar. Flutti hann í dag 1918 smálestir varnings til borg arinnar. Var það bæði matvæli, kol og aðrar nauðsynjar. Sam- tals voru ferðirnar í dag 323. —Reuter. Vonað að Dónárstefn- an gefi gott fordæmi Ellefu þjoSlr !ab þátt í henni. Belgrad í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. DÓNÁRRÁÐSTEFNA var opnuð í dag í Belgrad af utanríkis- ráðherra Júgóslava Simic. Ellefu þjóðir taka þátt í henni, meðal annars Rússar, sem senda Vishinsky, varautanríkisráðherra, þangað. Anna Pauker, utanríkisráðherra Rúmeníu situr fyrir hönd Rúmena og utanrikisráðherrar Ungverjalands og Tjekkó- slóvakíu eru og viðstaddir. Vesturveldin, Bretland, Frakkland c-g Bandaríkin sendu aftur á móti aðeins sjerfræðinganefndir, sem ekki hafa óskorað vald. Þykir för utanríkisráðherra komm- únistaríkjanna til Belgrad vera vottur um, að ef til vill sje í undirbúningi sættir við Tító. Blaðamenn, sem voru viðstaddir komu Vishinsky til borgarinnar segja og, að hann og Simic utanríkisráðherra Júgóslavíu hafi verið hinir kumpánlegustu hvor við annan. Ekki leitað á Vishinsky. Ráðstefnan er haldin í bygg- ingu Belgradháskóla og þegar fundurinn hófst. var flaggað fyrir framan háskólabygging- una með fánum allra þjóða, sem ráðstefnuna sækja. Auk þess var lögregluliði raðað fyrir framan innganginn og leitað að vopnum á öllum fundar- Framii. á bls. 8. *Hindustan beitir ofbeldi og yfirgangi. Churchill sagði í ræðu sinni, að Hindustan reyndi með of- beldi að ná yfirráðum bæði yfir Hyderabad og Kasmir. Nú síðast hefðu þeir sett á sam- göngubann við Hyderabad, en Hindustan á land alt kringum svo að þeir geta svelt íbúa Hy- derabad.. Þetta eru samskonar aðfarir eins og aðgerðir Rússa við Berlín, sagði Churchill. Þá benti hann á, að Hindustan hef ir auk þessa sent herlið inn á landssvæði Hyderabad, þar sem það hefði farið rænandi og ruplandi og brent niður heil þorp. Churchill sagði, að Bret- ar urðu að skeirast í leikinn og sjá til þess, að slíkt ofbeldi við- gengist ekki í Indlandi. Attlee segir, að Indverjar vilji ekki afskifti Breta. Næstur tók til máls Attlee forsætisráðherra. Sagði hann að þegar hefði verið ákveðið, að halda þjóðaratkvæðagréiðslu í Hyderbad um það, hvort þjóð in vildi sameinast Hindustan eða ekki. Deilan stæði aðeins um það, hvort Indverjar sjálfir eða Sameinuðu þjóðirnar sæju um atkvæðagreiðsluna, og hvorugur aðilinn myndi vilja, að Bretar skiftu sjer af því. Síðan hóf Attlee þungar ásak- anir á Churchill og sagði að hann gerði ekkert annað en gagnrýna gerðir stjórnarinnar i stað þess að hann hefði átt að henda á raunhæfa lausn í málinu. Þá stóð Churchill upp og sagði, að Attleee ætti að skamm ast sín fyrir þessi ummæli. Þarna hlýtur vitfirringur að ganga laus. LONDON. — Slökkviliðið í Essex var i síðasta mánuði kallað út 148 sinnum. Það var alltaf gabb.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.