Morgunblaðið - 31.07.1948, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.07.1948, Qupperneq 2
2 MORGVNBL4Ð1B Laugardagui' 31. júlí 1948.] i nrm-* Eítirtektarverð vinarerð milli íslendinga og Dana Forsætisráðherrar þjóðanna um sam starf í nútíð og framtíð Á fimtudagskvöldið efndi Stefán Jóhann Saefánsson for- sætisráðherra til kvöldfagnaðar á Hótel Borg fyrir Hans Hed- toft forsætisráðherra Dana. Þar voru meðfcl gestanna þeir ís- lensku. ráðherrar. sem staddir eru í bænum, C. A. C. Brun, sendiherra Dana o. fl. Forsætisráðherrfcnn hjelt ræðu við þetta tækifæri, þar sem hann fagnaði hinum danska forsætisrácherra. Hann komst meðal annars að orði á þessa leið: ★ — Alls munu það vera þrír danskir forsætisráðherrar, sem hafa komið hingað til lands. Fyrstur þeirra var J. C. Christ- ensen, er hingað koma sumarið 1907 í fylgd með Friðrik VIII konungi. I þessari ferð hingað til lands flutti Friðrik konung- ur ræðu þá á Kolviðarhóli, sein mjög snerti hjörtu Islendinga, þegar hann talaði um bæði ríki sín. Sagt var að Christensen íorsætisráðherra hafi bent kon- ungi á, að hvað sem þjóðunum liði, þá væri ríkið eitt. Næsti forsætisráðherra Dana, sem hingað kom, var Th. Staun- ing árið 1924. Þá var samband Dana og íslendinga með öðr- íim hætti en áður hafði verið síðan sambandssáttmálinn var gerður 1918 til 25 ára. Það var vitað, að Stauning forsætisráð- herra hefði frá öndverðu gert sjer það ljóst, að í raun og veru væru ríkin tvö, hvað sem stjórn :nálasambandinu leið. ★ Th Stauning forsætisáðherra kom hingað í síðasta sinn árið 1930. Þá var í fylgd með honum 'rlans Hedtoft, er nýlega hafði tekið við formensku jafnaðar- :.nannaflokksins danska. Th Stauning bar innilega vináttu til íslensku þjóðarinnar. Hann skildi til fulls þjóðar- sál íslendinga. — Hinn mikli stjórnmálamaður og leiðtogi, hafði valið sjer eftirmann sinn, Hans Hedtoft. Og það var ósk hans, að samhugurinn til ís- lensku þjóðarinnar gengi að erfðum til eftirmanns hans. — Þetta tókst, því jeg efast um, að Islandi eigi nú betri og ein- lægari vin meðal dönsku þjóð- arinnar heldur en forsætisráð- herrann, Hans Hedtoft, sem staddur er hjer meðal vor. Síðar í ræðu sinni komst Ste- fán Jóhann Stefánsson að orði á þessa leið: Enda þótt stjórnmálasam- band sje ekki lengur milli Dan- merkur og Islands, þá eru þjóð- ir þessar ennþá tengdar þeim böndum, sem -vonandi aldreí rofna, og enginn Islendingur óskar eftir að nokkurn tíma slitni. Þetta eru tengsl vináttu, skyldleika — þetla eru hin nor- rænu ættartengsl. Hin fámenna þjóð okkar getur ekki lifað sjálfstæðu lífi, án þess að njóta samvinnu og samstarfs við aðr- ar þjóðir, en kærust er íslend- íngum samvinna við frændþjóð irnar á Norðurlöndum. Islenska þjóðin getur lítið í samfjelagi heimsþjóða. En vjer munum ávalt leitast við að halda uppi sambandi við menningu Dana, sem nátengd er menningu vcrri, enda var Kaupmannahöfn öldum saman andlegur höfuðstaður íslands. Að endingu þakkaði forsætis- ráðherrann Hans Hedtof og þjóð hans alla vináttu og ósk- aði Dönum heilja í framtíðinni. Hann kvaðst óska þess, að Dan- ir og íslendingar mættu ávallt skoða sig sem bræðraþjóðir. Síðar tók Hans Hedtoft for- sætisráðherra til máls og komst að orði á þessa leið: Fyrir níu árum kom jeg í fyrsta sinn til íslands. Þá sá jeg landið í sumarskrúða með græn • um, blómguðum fjallahlíðum. En jöklarnir risu hátt gegn himinbláma. Jeg sá græna, frjó- sama skógi prýdda dali og hafið blátt, en á þvi verða margir landsmenn að lifa mikinn hluta af lífi sínu. Jeg vissi að sjórinn var oft ægiþrunginn, en í þetta skipti var hann spegilsljettur. Um nætur ljómaði Esjan í öll- um litum. Þetta var svo fögur sjón, að slíkt mun fásjeð um gjörvallan heim. Þessu gleymi jeg áldrei. Jeg lærði líka að þekkja þjóð- ina, bæði í byggð og bæ. Jeg eignaðist vini og komst að raun um, að það er satt, sem sagt er, að sá sem nær vináttu íslendings á hana til æviloka. Jeg lærði að skilja hve aðdá- anlegur þróttur býr með þessari þjóð, sem barist hefur áfram gegnum aldirnar og tekist hefur að varðveita sjerkenni sín og sjerstöðu sem sjálfstæð menning arþjóð. Jeg hlakkaði til þess að koma hingað aftur, bjóst við að það gæti orðið innan skamms, þar sem jeg var kosinn í ráðgjafa- nefndina. En þetta fór á annan veg. Sjö ár liðu, uns jeg fjekk þessa ósk mína uppfyllta. En nú hef jeg líka getað fengið að koma hingað þrjú sumur í röð. ★ Margt hefur breyst frá þvi árið fyrir heimsstyrjöldina. — Hraðar framfarir hafa verið ein kenni íslensks þjóðlífs síðustu hálfa öld. Þjóðin er í eðli sínu framfaraþjóð. En hraðastar hafa framfarirnar orðið á síð- ustu árum. Vera kann að teflt hafi verið stundum á tæpt vað. En ekki er hægt að komast hjá að dást að hve mikið hefur hjer verið byggt bæði frá hendi hins opinbera og einstaklinga, tog- urunum nýju, farþega- og flutn- ingaskipunum, fiskistöðvunum og síðast en ekki síst loftflotan- um, sem notaður er bæði í inn- anlands og utanlandsflug. Það er dásamlegt hvað 130 þúsund þjóð getur komið í framkvæmd, ★ Umbætur hafa orðið á öðr- um sviðum, er einnig snerta Danmörku beinlínis. Stjórnmála sambandið er úti milli þjóð- anna — ísland er orðið sjálf- stætt lýðveldi. Þarflaust mun það yera fyrir mig að taka fram að endaþótt margir Danir mundu hafa viljað, að samband- ið við ísland hjeldist, mun varla nokkur Dani hafa óskað eftir því, að það stæði stundinni leng- ur, eftir að íslendingar álitu að það væri gagnstætt hagsmunum sinum að halda því áfram. Annað mál er svo það, eins og hver maður veit, að við Dan- ir hefðum kosið fremur, að ís- lendingar hefðu talið sjer fært, að stíga Iokaskrefið á öðrum tíma og undir öðrum kringum- stæðum en það var gert. En við vitum líka, að þið skiljið til- finningar okkar á þessu sviði og að íslenska þjóðin ætlaði ekki að sýna Dönum neina óvináttu. en beinlínis lýsti því yfir að þeim fjelli miður, hvernig á- statt var þegar sambandið var slitið. En þeir álitu að kringum- stæðurnar væru þannig að ekki væri hægt að draga sambands- slitin lengur. Á hinn bóginn ætti þetta mál að vera úr sögunni frá okkar hendi með tilliti til skeytis þess, sem Kristján konungur sendi til lýðveldishátíðarinnar á Þing- völlum. Þau ár, sem samgöngur voru rofnar milli landanna, frjettum við Danir lítið frá íslandi og af- stöðu íslands til Norðurlanda að undanteknum skilnaðarmálinu. — En þegar frjettasambandið hófst að nýju, fengum við að vita, hvernig hugir íslendinga hefðu verið til Dana og Norð- manna á þrengingarárum okk- ar. Og þið Ijetuð ekki staðar numið við hugrenningar einar, heldur sýnduð hug ykkar í verki með hinni sannaarlega höfðing- legu gjöf, er íslendingar sendu aðþrengdum Dönum sumarið 1945. Jeg vil nota tækifærið tit að þakka hana hjer. Við skul um ekki gleyma henni, hvorki gjöfinni sjálfri, eða þeim bróð- urhug er hún sýndi. Við skulum ekki heldur gleyma, hvernig þið tókuð þátt í gleöi okkar, er þjóð okkar varð frjáls 1945. Af því, sem jeg hef heyrt um það, skii jeg, að gleðin hefði naumast orðið innilegri, þó um hefði ver- ið að ræða frelsun ykkar eigin þjóðar. Slíkur vináttuvottur hit- ar manni um hjartaræturnar. — Jeg vil 'i þessu sambandi líka þakka íslendingum fyrir hlut- tekningu við fráfall okkar gamla konungs og þann heiður sem forseti íslands sýndi minningu hans. ★ Þegar nú ísland hefur fengið fullt sjálfstæði, er skapaður grundvöllur til þess, að innileg vinátta haldist milli þessara tveggja þjóða. Ekkert ætti oftar að geta komið af stað misskiln- ingi eða óánægju. Að vísu eru ekki enn öll vanda mál leyst. íslendingar hafa bor- ið fram óskir til Dana, með til liti til hinna fornu handrita. — Við Danir vitum, að hjer er um að ræða mikið tilfinningamál af hendi íslendinga. En jeg held einnig að þið skiljið, að hjer er um að ræða óvenjulegt mál, þar sem engin fordæmi eru fyrir. — Þetta útilokar í sjálfu sjer ekki að óvenjulegar kringumstæður i jettlæti óvenjulega lausn. En málefnið verður að rannsaka og yfirvega niður í kjölinn, áður en hægt er að leysa það. Eins og þið allir munu vita, skipaði þá- verandi forsætisráðherra Knud Kristensen nefnd manna í fyrra samkvæmt tillögu minni, til að vinna að lausn málsins. I nefnd- inni eru vísindamenn og stjórn- málamenn. Nefndin á ekki að kveða upp úrskurð í málinu, en hún á að koma fram með álit og gera tillögur til stjórnarinn- ar. Áður en nefnd þessi hefur lokið störfum, er ómögulegt að vita um úrslit þessa máls. En það er von mín og trú, að það muni verða leyst á þann hátt. sem báðir aðilar viðurkenna, að sje rjettlátur og sanngjarn. ★ Milli Danmerkur og íslands ætti ekki að vera neitt deilu- mál, sem eigi væri hægt að leysa í sált og samlyndi, eins og siður er með norrænum þjóðum.1 Jeg segi norrænum þjóðum, því eitt af því, sem Borgarstjóri þakkaði hinum danska forsætisráðherra fyrir heimsókn hans til Islands og höfuðborgar þess og alla þá góð vild, sem jafnan hefði mótað framkomu hans gagnvart ís- lendingum. Mjer þykir vænt um þetta land. Forsætisráðherra þakkaði hin vinsamlegu ummæli borgar- stjóra í sinn garð, Hann kvaðst enga dul draga á það, að sjer þætti vænt um ísland og ís- lensku þjóðina. Hann hefði eignast hjer marga vini í öll- um stjórnmálaflokkum. Hann kvað mælikvarða á ættjarðarást einstaklinga og þjóða, hvort þær gætu unt öðr- um þjóðum rjettlætis og sjálf- stæðis. Sú ættjarðarást, er væri í því einu fólgin að krefjast rjettar sinnar éigin þjóðar, en skella skolleyrum við rjetti allra annara væri á villigötum. En hjer á íslandi kvaðst hann fyrst og fremst hafa orðið var hinnar sönnu ættjarðarástar og þjóðernismetnaðar, trúnaðarins við Island og velvildar gagn- hefur vakið mesta eftirtekii mína hjer þau þrjú skifti, semi jeg hef komið hingað, er hinn; norræni andi, er hjer ríkir, þrátt fyrir fimm ára aðskilnað, frá öðrum Norðurlandaþjóðum. Um það leyti sem Island varð sjálfstætt lýðveldi, var nokkun uggur meðal Norðurlandaþjóðsí um það, að íslenska þjóðin mundi fjarlægjast. hið norræna menningarsamstarf. Þessi ótti hefur sýnt sig að vera ástæðu- laus. Og eftirtektarvert er það, að besti vinur norrænnar sam- vinnu á Islandi, íormaður Nor- ræna fjelagsins, er forsætisráð- herra íslands í dag. Að vísu eru íslendingar lítil þjóð. En við erum ekki heldur stórir á heimsmælikvarða. Gildi íslensku þjóðarinnar fer ekkl eftir höfðatölu, heldur eftir verðleikum. Þið hafið verið mik ill þáttur í norrænni menningu og eruð enn í dag, svo án ykk- ar yrðu Norðurlandaþjóðirnah fátækari. ★ Jeg beini þakklæti Danmerk- ur vináttu íslendinga til þín, Stefán Jóhann Stefánsson. Jeg bið þig að taka á móti okkar innilegu óskum um heill og frama Isiands og íslensku þjóðarinnar. vart öðrum þjóðum. Og jeg virði hana og hylli, sagði for- sætisráðherrann. Jeg mundi hafa verið stoltup af því, að konungur Danmerk- ur hefði jafnframt verið kon- ungur íslands. En jeg óska hinu, unga íslenska lýðveldi innilega til hamingju. Blóðböndin munu tengja íslensku og dönsku þjóð- til gagns fyrir menningu og ina stöðugt traustari böndum til gagns fyrir menningu og gagnkvæman skilning meðal hinna norrænu þjóða. Kveðja frá danska flotanum. Vedel, vice-aðmíráll danska( flotans flutti því næst stuttai ræðu og mintist starfa dansku flotans við strendur íslands og þakkaði ísiendingum þá aðstoð og samvinnu, sem þeir hefðu átt við hann. Bjarni Benediktsson utanríy is- og dómmálaráðherra þakk- aði aðmírálnum fyrir ræðu hans og bað hann að ílytja danska flotanum þakkir og kveðjur Islendinga fyrir þar? störf, er hann hefði unnið við! ísland. j Mjer þykir vænt um Island og íslensku þjóðina - segir Hans Hedtsfl forsælisráSherra. í MIÐDEGISVERÐI, sem bæjarstjórn Reykjavíkur hjelt Hans Hedtoft forsætisráðherra Dana að Hótel Borg í gær komst Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóri m. a. þannig að orði að meðan acji ísland ætti jafn áhrifaríka vini í Danmörku og Christmas Möller hefði verið og Hans Hedtoft væri nú og mundi verða, óhætt að treysta því að sambúð þessara tveggja frændþjóðai myndi verða góð og fara batnandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.