Morgunblaðið - 31.07.1948, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.07.1948, Qupperneq 6
e MOJt G 11 NBLAÐ 10 Laugardagur 31. júlí 1948- IIUnpgiutMtofrÍb Útg.: H.f. Axvakur, Reykjavlk. Framkvjrtj.: Sigfúa Jónsson. j7' Rltstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: Ivar Guðmundsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsaos. - - Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla; * Austurstræti 8. — Sími 1600, Askriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlands, f iausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lcsbók. kr. 12,00 utanlands. Húsnæðismál höfuðborgarbúa í FRUMRÆÐU sinni á bæjarstjómarfundinum á miðviku- daginn um hinar 32 bæjaribúðir í Lönguhlíð, benti Gunnar Thoroddsen borgarst jóri sjerstaklega á nauðsyn þess að tekin yrði upp flokkun á íbúðum eftir gæðum. Þær mörgu íbúðir, sem byggðar hafa verið hjer í Reykja- vík á síðustu árum eru mjög misjafnlega vandaðar, margar fyrsta flokks íbúðir, traustar og varanlegar með öllum þæg- indum, aðrar Ijelegar, lekar og óvandaðar. Þegar íbúðir þessar ganga kaupum og sölum er kaupverð þeirra oftast miðað við herbergjafjölda eða rúmmetra án tillits til þess, hversu vel þær eru gerðar. Með þessu eru kaupendur íbúða oft blekktir til að kaupa hið ljelegasta húsnæði við okurverði. Borgarstjóri benti á nauðsyn þess að koma á fastri flokk- un og mati á íbúðum eftir ákveðnum reglum fagmanna, en slíkt tíðkast víða erlendis. Hjer fara slík möt helst fram í sambandi við veðdeildarlán Landsbankans og hafa þá oft jafnstórar íbúðir, byggðar á sama tíma, verið metnar við mjög ólíku verði. En þau möt eru aðeins til afnota fyrir bankann, en ekki almenningi kunn. Með því að taka upp slíka flokkun eða gæðamat eins og borgarstjóri benti á, gætu kaupendur íbúða jafnan átt að- gang að því og væru þar með tryggðir gegn því að vera blektir með óvönduðum og sviknum íbúðum. Borgarstjóri ræddi á þessum sama bæjarstjórnarfundi um hinn mikla byggingarkostnað þessara nýju bæjarhúsa, sem mörgum yxi mjög í augum, sem vonlegt væri. Hann skýrði frá því að húsameistari bæjarins mundi bráðlega birta skýrslu um allan gang bygginganna og kostnað við þær. Er það vel farið eftir allan þær ósvífnu getsakir, sem bæði Tíminn og Þjóðviljinn hafa haldið uppi út úr þessu máli. En borgarstjóri benti á tvö atriði í því, sem þegar á þessu stigi málsins væri rjett að hafa í huga þegar dæmt væri um byggingarkostnaðinn. Annað er það að Lönguhlíðarhúsin eru óvenjulega vönduð að öllum frágangi og þægindum. En í öðru lagi væri athugandi að þótt hjer væri talað um tveggja og þriggja herbergja íbúðir, þá væru þær ekki sambærilegar við íbúðir með sömu herbergjatölu, t .d. í verkamannabú- stöðunum. Þriggja herbergja íbúð í verkamannabústöðun- um nýju væri 69 fermetrar, en tveggja herbergja íbúð i bæj- arhúsunum væru 84 fermetrar. En þrátt fyrir þetta er auðvitað ljóst að þessar íbúðar- byggingar bæjarins eru of dýrar og of lengi í smíðum tiJ þess að veruleg bót verði ráðin á hinum miklu húsnæðis- vandræðum með framhaldsbyggingu slíkra. íbúða. Borgarstjóri taldi því að grípa yrði til annara ráða og skýrði frá því að hann hefði að undanförnu haft til athug- unar aðra leið í þessu máli, þar sem sameinuð væri annars ■ yegar forganga og framlög bæjarins og hinsvegar framtak og vinna einstaklinganna. Um þetta kvaðst borgarstjóri hafa haft samráð við sjerfróða menn og vænti hann þess að geta áður en mjög langt liði skýrt frá þessum tillögum opinber- lega. Þegar litið er á byggingarframkvæmdir hjer í bænum síðustu árin, verður það Ijóst að iangsamlega mestur hluti hinna nýju íbúða er reistur af borgurunum sjálfum. Til lausn ar á húsnæðisvandamálunum hefur framtak einstaklingsins yerið langsamlega drýgsta átakið. Vitanlega er nauðsynlegt að svo verði áfram og að sem best sje hlynnt að einstaklings- framtakinu í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins. En kommúnistar voru ekki myrkir í máli á síðasta bæj- arstjómarfundi um sína stefnu í þessum málum. Þeir kröfð- .ust þess að einstaklingum væri bannað að byggja íbúðir. Sjgfús Annes sagði: Einkaframtakið verður að víkja! Steinþór Guðmundsson bætti við: Framkvæmdirnar verða áð takast úr höndum einstaklinganna! Þe$si stefna þeirra fjelaga væri dálagleg lausn á húsnæð- isvandræðunum ef hún væri framkvæmd. \Jikuerji Áripar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Samkomuhús og skólar FYRIR nokkru var að því vikið hjer í þessum dálkum, hvort ekki væri heppilegra i sveitum landsins, að byggja saman skóla og samkomuhús, en að byggja tvær byggingar sjerstaklega í sömu sveit. Vinur minn úr Kjósinni, sem vel er kunnugur þessum málum fullyrðir við mig, að þessi uppá- stunga sje bygð á herfilegum misskilningi. Kjósaringurinn, vinur minn, hefur sagt mjer frá reynslunni af þessum málum í sinni sveit. Þar hafa innanhjeraðsmenn komið upp myndarlegu sam- komuhúsi, sem þeir nefna „Fje lagsgarð“, sem er til sóma fyrir hjeraðið, en skóli er í byggingu. Er fróðlegt að heyra hvernig þeim Kjósaringum hefur tekist að koma sjer upp samkomuhúsi. Um það segir hann á þessa leið: • Bygging’ Fjelagsgarðs FORSAGA málsins er löng. — Fyrir 14 árum var kosin 10 manna nefnd innan U. M. F. Drengur, til þess að undirbúa og afla fjár til byggingar fjelags- heimilis í Kjósinni. Var þá með- al annars rætt um að byggja sameiginlega samkomuhús og skóla, og öllum var Ijóst, að hvorttveggja var nauðsynlegt, ef fullnægja ætti kröfum og þörfum fólksins, og til þess að fólkið þyrfti ekki af þeim sök- um að flýja sveitina. Var leitað til margra aðila, sem byggt höfðu og notað slíkar sambygg- ingar, og bar öllum saman um, að það væri mjög óheppilegt, það tvent þyrfti að vera alger- lega sundurskilið. • Fjelagsheimili sveitarinnar VAR því horfið frá því ráði, og hafist handa um byggingu sam- komuhúss, sem skyldi vera fje- lagsheimili fyrir alla sveitina, fyrir hverskonar íþróttir og f je lagsstarfsemi alla. Ungmenna- fjelagið átti þá í byggingarsjóði 20 þúsund krónur, en nóg aí áhuga, þreki og bjartsýni, og vísan stuðning allra hreppsbúa. og það voru sterkar stoðir, sem dugðu vel. • Sameiginleg átök ÞEGAR byrjunarsjóður var þrotinn, þá var leitað til fje- lagsmanna og hreppsbúa allra, hvað þeir vildu eða gætu lagt af mörkum í peningum. Söfnuðust þá þegar 30 þúsund krónur. — Kvenfjelag sveitarinnar kom með 10 þús. kr. og hreppsfje- lagið 10 þús. kr. Þegar þetta fje þraut, þá voru boðin út skuldabrjef, 60 þús. kr., og seld- ust þau þegar innan sveitar. (Ca. 3 hektara lands gáfu Egg- ert Kristjánsson og Egill Vil- hjálmsson undir hús og aðrar framkvæmdir). Loks fengust 15 þús. kr. úr íþróttasjóði rikisins. Einnig hafa Ungmennaf jelaginu og fjelagsheimilinu borist fje til ýmissa sjóðmyndana um 40 þús. kr. (t.d. skrúðgarðssjóðs og hljóðfærasjóðs o. fl.). Hefur það fje verið notað að mestu til byggingarinnar sem lán. Auk þessa var mikið unnið í sjálf- boðavinnu. Skólinn er næsta sporið HÚSIÐ hefur til þessa kostað 250 þús. kr., en eftir er að múr- húða það að utan, ásamt nokkru fleiru, og er áætlað, að það muni kosta um 300 þúsund kr. fuli- frágengið. Er ætlunin að fram- kvæma það í sumar. Á húsinu hvíla um 75 þús. kr. Öll vinna, néma rafmagnslagning og mið- . stöðvar, var framkvæmd af inn- ' ansveitarmönnum, þar á meðal i teikning. Ýmsar framkvæmdir j eru hafnar í sambandi við fje- ! lagsheimilið, til nota og prýði, jt. d. íþróttavallagerð og skrúð-. -garðs, og sundlaug er takmark, sem vonandi er ekki langt und- an. Næsta sporið í þráðum menn ingarmálum er þegar stigið að nokkru, með skólabyggingu. Því takmarkið er öll alþýðu- menntun, fjelagslíf og skemmt- anir innan hjeraðs. Það er df júgt spor í þá átt að gera íslenskar sveitir byggilegar.“ Myndarlegt átak ÞAÐ DYLST engum, sem þessar línur Kjósaringsins lesa, að þeir Kjósar-menn hafa gert hj.er myndarlegt átak. Það er ljóst, að sveitirnar þurfa að hafa fje- lagsleg þægindi eins og frekast eru tök á til að halda fólkinu við landbúnaðinn. Er gott til þess að vita, að viða í sveitum landsins eru á- hugamenn, sem leggja fram vinnu og tíma ti lað stuðla að þessu, eins og þeir Kjósaringar hafa nú gert. Röng þýðing ENGLENDINGURINN, sem grein var birt eftir í einu dag- blaði bæjarins og sem bar yfir- skriftina: að Reykjavík væri ó- þrifalegasti bær í heimi segir mjer að orðið, sem hann notaði hafi verið rangt þýtt. Hann hefði í grein, sinni sagt, að Reykjavík væri ,,untidy“, en þao er vitanlega ekki hægt að leggja út óþrifalegur, heldur óreglu- legur, eða skeytingarlaus um út- lit sitt. Það hlaut líka að vera. MEÐAL ANNARA ORÐA Góður árangur peningaskiftanna í Vestur-Þýskalandi. Eftir KEITH GARNER, frjettaritara Reuters. Diisseldorf í júlí. VESTUR ÞYSKALAND hef- ur á rúmlega einum mánuði tekið geysimiklum umskiftum. Þessf hluti af Þýskalandi hefur á um 30 dögum breyst úr hálf- sveltu fjárhagslegu fátækra- hverfi, sem bygði tilveru sína að mestu leyti á svörtum mark- aði, 1 land, þar sem lífsafkoma borgaranna er næstum því sambærileg lífsafkomu Eng- lendinga. Þessi breyting, sem þegar kom í ljós fyrsta daginn eftir að Bretar og Bandaríkjamenn gengust fyrir peningaskiftum í Vestur-Þýskalandi verð- ur greinilegri með hverj- um deginum, sem líður. Ruhr og Rínarlönd eru því nær ó- þekkjanleg frá því sem þau voru fyrir mánuði síðan. • • TVÖ ÞÚSUND HJTAEININGAR Fyrir mánuði lifðu íbúarnir í Ruhr á matarskamti, sem nam mestur um 2,000 hitaeiningum á dag. Engin matvæli fengust án skömtunarseðla — og enda þótt menn hefðu seðla milli handanna, var það engin trygg ing fyrir því að matvæli værí að fá í verslunum. Mánuðum saman hafði kjöt verið ófáanlegt. Feitmetisskamt urinn var sama og enginn og að eins sáralítið grænmeti var á markaðnum. Egg og ávextir sá ust aldrei, nema fólk þá.legði það á sig að fara upp í sveit og reyna að fá bændurna til að selja sjer ögn af þessari dýr mætu vöru. • • ENGAR VÖRUR FÁANLEGAR Bændurnir, sem vissu að peningaskifti áttu að fara fram, höfðu vikum saman neitað að láta af hendi afurðir nema í boði væri gull og silfurskart- gripir. Því nær ömögulegt var einnig að fá klæðnað, búsáhöld og varahluti í bifreiðar, rit- vjelar eða reiðhjól, nema fyrir ótrúlega hátt svarta markaðs verð. Ein föt kostuðu 8000 rík- ismörk (þá um 200 sterlings- pund), og eitt einasta bíldekk kostaði ekki minna en 2000 mörk. Eftir að peningaskiftin höfðu farið fram, birtust allar þess- ar vörur skyndilega í verslun- unum • • MIKIL BREYT- ING. Nú er hægt að kaupa græn- meti sköndunarlaust og fyrir aðeins lítið eitt hærra verð en fyrir stríð. Egg er vandalaust að fá fyrir um 15 pfenniga stykkið. Samkvæmt skipun yfirvald- ana eru algengustu matvæla- tegundir ennþá skamtaðar, en enginn verslunarmaður virðist hirða um að taka skömtunar- seðla fyrir kartöflur og sagt er að brauð sje fáanlegt skömtun- arseðlalaust fyrir aðeins lítið eitt hærra verð en ef seðlar eru látnir fyrir það. Fatnaður, sem fyrir peninga- skiftin var aðeins hægt að fá með sjerstöku leyfi yfirvald- anna — og ekki einu sinni alltaf enda þótt leyfið væri fyrir hendi — er nú til sýnis og sölu í verslunum gegn skömtunar- seðlum. • • RÍNARVÍN Rínarvín, sem fyrir peninga skiftin kostuðu að minsta kosti 100 ríkismörk á svörtum mark- aði, er nú til sölu í verslunum fyrir fimm til sex ríkismörk, og þýskt kampavín, með sama vörumerkinu og var á kampa- víninu, sem von Ribbentrop einu sinni seldi, kostar sjö rík- ismörk. Af ofangreindu má sjá, að peningaskiftin í Vestur-Þýska- landi hafa þegar borið þann ár- angur, sem vesturveldin höfðu gert sjer vonir um. Peninga- skiftin kunna að vísu um skeið að hafa nokkuð atvinnuleysi í för með sjer, en flestum kemur Framh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.