Morgunblaðið - 31.07.1948, Blaðsíða 8
8
MORGUTSBLAÐIB
Barátta gegn kom-
jmúnislum í Burma
Rangoon í gær.
THAKIN NU forsætisráðh.
Burma hefur tilkynt, að stjórn
Burma ráðgeri að hefja alls-
herjarherferð gegn óaldarflokk
um kommúnista í landinu. —
Sagði hann, að nauðsynlegt
væri að koma á ró og reglu í
Burma. — Reuter.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 6.
þó saman um ,að allir sjeu á-
nægðir nema þeir, sem lifðu á
verslun á svörtum markaði, og
svo ef til vill bændurnir, sem
nú geta ekki lagt nær því eins
mikið á vöiur sínar og áður.
I Nýr
| PHILLIP8
| radíógrammófónn, til sölu.
| Uppl. í dag kl. 2—3 í síma
i 6037. —
s
Prenfaraverkfall í
Birmingham
London í gær.
PRENTARAR við Manchester-
útgáfu ýmsra Lundúnablaða
hafa krafist 20 shillinga kaup-
hækkunar á viku, og þar sem
ekki hefur verið fallist á kröfu
þeirra byrjuðu þeir verkfall í
Express, Daily Mail, Sunday
Express, Daily Mail, Sundey
Dispatch, Daily Herald og News
Chronicle munu því ekki koma
út í Norður-Englandi á morg-
un, en þetta mun ekkert hindra
útkomu blaða í London.
Svíar (ramleiða
brýstiloftsflugvjelar
FYRSTU þrýstiloftsflugvjelarn-
ar, sem Svíar framleiða eru senn
tilbúnar til reynsluflugs. Eru
það svonefndar Saab-29 orustu-
flugvjelar, smíðaðar hjá Saab
flugvjelaverksmiðjunum í Lin-
köping.
Flughraði þessara vjela á að
verða rúmlega 1000 km. á klst.
og í þeim eru ýmsar nýungar,
svo sem tæki, sem gera þeim
kleift að lenda á tiltölulega litl
um flugvöllum.
- Dónárráðstefnan
Framh. af bls. 1
mönnum, nema Vishinsky, sem
kom þjótandi í einkabíl sínum
á síðustu stundu.
Dóná verði samgönguleið
friðarins.
Simic utanríkisráðherra Jú-
góslafíu hjelt setningarræðu og
skoraði hann í henni á Austur-
Evrópuríkin með Rússlandi í
broddi fylkingar að stuðla að
því, að Dóná yrði samgöngu-
leið friðarins þar sem allar
þjóðir gætu flutt vörur sínar
til og frá sjálfum sjer og öðr-
um til blessunar. — Júgóslavar,
sagði hann, vona, að árangur
þessarar ráðstefnu sýni, að
hægt er að komast að samkomu-
lagi á alþjóðaráðstefnum.
Ellefu lönd þátttakendur.
Þessi lönd taka þátt í ráð-
stefnunni: Bretiand, Frakk-
land, Rússland, Bandaríkin,
Júgóslafía, Rúmenía, Ukraíná,
Ungverjaland, Tjekkóslóvakía,
Búlgaría og Austurríki, sem að
eins fær að hafa áheyrnarfull-
trúa.
Sprenglng í kola-
námu í Alabama
Birmingham, Alabama
í gær.
MIKIL sprenging varð hjer
í dag í Edgewater kolanámu
nærri Birmingham í Alabama,
Suður-Bandaríkjunum. Talið
var, að þrjátíu og tveir manns
hefðu farist. — Reute'r.
Þakjárn og timbur
eftirstöðvar af húsinu nr. 70 við Bergstaðastræti til sölu
og niðurrifs. Selst alt í einu lagi. — Tilboð óskast. —
Upplýsingar á staðnum kl. 4—6 í dag.
D A G S K R \
i verslunarmanna,
Laugardaginn 31.
/ TlVOLI (Á LEIKSVIÐIIW):
Kl. 17,00 Hátíðahöldin sett (Baldur Pálmason)
— 17,20 Óperettulög (Svanhvít Egilsdóttir og Kristján Kristjánsson)
— 17,40 Upplestur (Lárus Pálsson)
— 21,30 Harmoníkuleikur (Jan Moravek)
— 21,50 Flækingarnir (Spaugilegur trúðleikarar)
— 22,50 Hawaii-kvartett og Öskubuskur
— 23,10 Kabaret í 3 atriðum (Red Barbakoff o. fl.)
/ TÍVOLI (VEITINGAHÍISINU):
— 15,00 Sígild hljómlist
— 22,00—2 Dansleikur (5 manna hljómsveit J. Moravek’s)
Strætisvagnaferðir frá Lækjartorgi. — Skerjafjarðarvagn
á heilum og hálfum tímum. — Tívoli-vagn á korterunum.
Ailir I Tívoli um helgina
Laugardagur 31. julí 1948.
— ■ M — —
ulympíuleikarnir
Framh. af bls. 1
fjekk Orn kærkomið tækifæri
til að þjálfa sig undir keppn-
ina í tugþraut, hann stóð sig
ágætlega, varð 4 í sínum riðli,
en tíminn var raunar ekki neitt
sjerstakur eða 11,0 sek.
Sundfólkið óupp'iagt.
Sundfólkið okkar virtist ekki
vera upplagt að þessu sinni.
Ari byrjaði og varð fimmti í
sínum riðli. Synti vegalengd-
ina 100 m. á 61,6 sek. sem í
sjálfu sjer er ágætur tími, en
nægði ekki í þetta sinn. Anna
varð áttunda í sínum riðli,
synti 200 m. 3.19,9 mín. Þór-
dís einnig áttunda í sínum riðli
á 3,28,1 mín. Tímar þeirra eru
mjög slæmir og var auðsjeð
að þær voru miður sín af tauga
æsing.
Hörð keppni og spennandi.
Um þær íþróttagreinar sem
búið er að keppa í má segja
að keppni hafi verið ákaflega
hörð og spennandi. Almennt
er nú búist við að Patton verði
eini hvíti maðurinn, sem komi
til með að halda eitthvað í við
blökkumennina á 100 m. sprett
inum. 10 km. hlaupið er eitt
allra skemmtilegasta hlaup sem
jeg hefi sjeð. Styrkur Zapotek
er ótrúlegur og bar hann höf-
uð og herðar yfir alla keppi-
nauta sina. Franska stúlkan
sem vann kringlukastið kom
öllum á óvart og ríkti óhemju
gleði í herbúðum Frakka langt
fram á kvöld vegna þessa ó-
vænta sigurs.
Zapotek malaði eins
og vjel.
10 km. hlaupið:
I þessu hlaupi fengu áhorf-
endur að sjá Zapotek frá
Tjekkóslóvakíu hlaupa keppi-
nauta sína sundur og saman,
eins og það er orðað. Hlaupnir
eru 25 hringir á leikvanginum,
fyrst framan af reyndu Sví-
arnir Albertsson og Heimström
og Finninn Heino, sem á heims
metið í þessari vegalengd, að
fylga Zapotek eftir, en hraðinn
var of mikill fyrir þá og þegar
leiðin var rúmlega hálfnuð,
lenMist bilið á milli hlaupar-
anna og stórhlauparinn Heino
hætti algjörlega þegar 9 hring
ar voru eftir. Tími Zapoteks
er nýtt Olympiskt met. Þeir
sem horfðu á þetta hlaup telja
það vera eitt það skemtileg-
asta 10.000 metra hlaup, sem
nokru sinni hefur verið hlaup-
ið á Olympíuleikum. Zapotek
var eins og vjel, sem malar
hring eftir hring, áreynslu-
laust.
Úrslit: mín.
Zapotek, Tjekkóslóvakíu
29.59,6
Mimoun, Frakkland 30.47,4
Albertson, Svíþjóð 30.53,6
Dennolf, Svíþjóð
Stokken, Noregi
Evereckt, Belgíu
Paulsen, góðkunningi hjer
á landi, kom mest á óvart.
Hástökk:
Hástökkið kom öllum að ó-
vörum. Almennt var reiknað
með að Bandaríkjamenn myndu
sigra í þessari íþróttagrein, en
Astralíumaðurinn Winter
gerði sjer lítið fyrir og vann.
Það sem kom þó mest á óvart
var annað sæti kunningja okk-
ar, Paulsen frá Noregi, sem
keppti hjer í landskeppninni í
sumar.
Úrslit:
Winter, Ástralíu 1,98 m.
Paulsen, Noregi 1,95 —
Stanich, Bandar. 1,95 —
Edleman, Bandar.
Damitio, Frakkl.
Jackes, Kanada.
Kringlukast, konur:
Úrslit:
Ostermeyer, Frakkl. 41,92 m.
Gentile, Ítalíu 41.07 —
Mazcas, Frakklandi 40.19 —•
Marciniewicz, Póllandi
Haidegger, Ástralíu
Panhorst-Niebink, Hollandi.
3 Olympíusigurvegarar
á fyrsta degi.
Á fyrsta degi keppninnar var
ekki keppt í fleiri íþróttagrein
um til úrslita, hvorki í frjáls-
um íþróttum eða sundi.
Undanrásir fóru og fram í
dag í 3 hlaupum, eins og sagt
er frá annarsstaðar í blaðinu
og verður keppt til úrslita í
tveimur þeirra, en í einni ekkí
fyrr en á mánudag.
70 keppendur
í 100 m. hlaupi.
í 100 m. hlaupi voru kepp-
endur um 70, skipað niður í
12 riðla. Tveir fyrstu menn
komust í milliriðil, sem einn-
ig var hlaupinn í dag, en þrem
fyrstu mönnum úr þessum
milliriðlum verður skipað 1
svokallaðan semifinal, eða und-
anúrslitariðla og þrír fyrstu
menn úr hvorum þeirra loks í
úrslitin. í undanúrslitariðlá
voru: LaBeach, Panama, Trelö
ar, Ástralíu, Chacon, Kuba,
Ewell, Bandaríkjunum, Bailey,
Englandi, Curotta, Ástralíu,
Patton, Bandaríkjunum og Dill
ard, Bandaríkjunum. í 800 m.
hlaupinu komast í milliriðla
m. a. þeir Holst-Sörensen, Dan
mörku, Vade, Noregi, Bengt-
son, Svíþjóð, Chambers, Banda
ríkjunum, ^ Parlett, Englandi,
Ramsay, Ástralíu, Whitefield,
Bandaríkjunum og Hansenne,
Frakklandi. Milliriðillinn í 800
m. hlaupinu fer fram á morg-
un en úrslitin ekki fyrr en á
mánudag.
4 Olympíumet sett.
í 400 m; grindahlaupi setti
Svíinn Larsson nýtt Olympiskt
met í fyrri milliriðlinum, í
seinni milliriðlinum hljóp
Bandaríkjmaðurinn Cochrane
vegalengdina á sama tíma. —
Olympíumetið er því nú 51,9
sek. —
Þeir sem komast í úrslit í
þessu hlaupi eru þeir Larson
og Cochrane, ásamt Ault.,
Bandáríkjunum, White, Ceyl-
on, Cros, Frakklandi og Miss-
oni, Ítalíu.
Van Vliet, Hollandi, setti nýtt
Olympíumet í 200 m. bringu-
sundi á 2.57,4 mín. Þá synti
Bandaríkjamaðurinn W. Ris
100 m. frjáls aðferð á 57,4 sek.
Mest á óvart kom það þegar
Frakkinn Jany, sem talin er
hafa mestar sigurvonir á þess-
ari _vegalengd, varð annar í
milliriðlinum á eftir Banda-
ríkjamanninum Reith. Á morg
un verður skemtilegur keppn-
isdagur, sjerstaklega er áhugi
mikill fyrir úrslitum í 400 m.
grindahlaupi og 100 m. sundi
frjálsri aðferð.
----------------^
Rannscknarnefnd til Haiti 1
NEW YORK: — SameinuðU
Þjóðirnar hafa ákveðið að senda
nefnd manna til Haiti, til þess
að rannsaka hvernig hægt sje
að bæta efnahagsástandið í
landinu.