Morgunblaðið - 31.07.1948, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.07.1948, Blaðsíða 10
10 MORGVW9LA91& Laugardagur 31. júlí 1948. KENJA KONA (Cftir ÍJen ÚJitlia má 142. dagur ERFÐASKRÁ FRÚ EVERED Jeg undirrituð, Jenny Hager Poster Evered, í borginni Bang or í Penobscot fylki í Maine- ríki, lýsi því hjer með yfir alls gáð og með fullri skynsemi, að þetta er erfðaskrá mín og sein- asti vilji: 1. Manninn minn, John Eve- red, arfleiði jeg að silfurbúnu reyrpriki, sem geymt er í drag kistu í herberginu mínu. Þetta reyrprik er gjöf til mín frá Ep- hraim Poster, sem jeg hjelt við, syni fyrra mannsins míns og einkavini John Evereds. Jeg brást Ephraim til þess að gift- ast John Evered og hann var svo heimskur að hann vildi ekki leggja neinn trúnað á að- varanir Ephraims. 2. Son minn, Dan Evered, arfleiði jeg að málverkinu, sem Mr. Hardy máláði af mjer, svo að hann geti gleymt því hvern- ig jeg var útlits seinustu daga ævinnar. 3. Annan son minn, William Evered, arfleiði jeg að einum dolar, til þess að rifja það upp fyrir honum, að hann neitaði að verða við seinustu bóninni, sem jeg bað hann, að drepa svikahrappana bræður sína, ef hann ætti þess kost. 4. Synir mínir, Thomas og Matthew, sem sviku mig og land sitt, fá ekkert, nema fullvissu um það að jeg hat- aði bá fram í dauðann. 5. Levi Spree arfleiði jeg að fimm þúsund dollurum og skal hann þá ekki framar eiga neina kröfu í bú mitt. 6. Andrew Lebbeus arfleiði jeg að fimm þúsund dollurum í viðurkenningarskyni fyrir það að birta síðasta vilja minn opinberlega í blaði sínu ,,Star“. 7 Altar aðrar eigur mínar, fastar og lausar, þar á meðal húsið þar sem jeg hefi leyft manni mínum og sonum að vera, allar aðrar fasteignir, skip og hlutabrjef, svo og pen- inga og útistandandi skuídir, og hvað sem nöfnum tjáir að nefna og jeg hefi átt, gef jeg dóttur minni Molly, sem fædd- ist flóðanóttina 1846 í vændis- kvennahúsi Lenu Tempest, þar sem faðir hennar, sjera Lin- coln Pittridge, gekkst við fað- erni hennar fáum stundum eft- ir að hún fæddist, en hann hafði verið elskhugi minn í heilt ár. Molly á ennþá heima í þessu húsi. Fyrir þessari srf- leiðslu set jeg ekki annað skil- yrði en það, að Molly leggi fram fje til Veglegs minnis- varða yfir mig, þegar hinum góðu borgurum í Bangor þyk- ir tími til kominn að reisa hann. 8. Jeg fel Levi Spree að sjá um að öllum skilyrðum í þess- ari arfleiðsluskrá minni verði fullnægt. Og jeg fel honum að sjá um að arfleiðsluskráin sje birt á áberandi stað í blaðinu „Star“ eins fljótt og hægt er eftir jarðarför mína. Undir þetta rita jeg nafn mitt eigin hendi í viðurvist votta og set innsigli mitt þar undir. Jenny Hager Poster Evered. Dan stóð aftan við föður sinn á meðan hann las þetta, studdi höndinni á öxl hans og las líka. Hvorugur hreyfði sig langa lengi eins og þeir væru að lesa skjalið hvað eftir annað. Að lokum gekk Dan til sætis síns og svo hjeldu þeir áfram að borða. En þeir borðuðu með hægð og semingi. Þegar máltíðinni var lokið þögðu þeir enn um hríð, en litu svo hver á annan. John sagði: „Dan, við verðum að fara til borgarinnar“. „Við skulum verða samferða og ganga“, sagði Dan. „Góða veðrið mun hressa okkur“. Svo lögðu þeir af stað, hinn stóri maður og sonur hans, sem var enn stærri. Dan hugsaði meira um föður sinn heldur en um húsið, sem þeir voru nú að skilja við. Ha*nn hugsaði meira um föður sinn en sjálfan sig og langaði til að geta sagt eitt- hvað honum til huggunar. Þegar þeir komu út á veginn sneri John sjer við og leit heim að húsinu. Dan staðnæmdist líka og horfði á föður sinn. John mælti lágt: „Þetta hefir verið heimili þitt Dan frá barnæsku. Þú hefir aldrei átt annað heim- ili“. Dan skildi undir eins hvað faðir hans átti við. Hann tók um handlegg hans og mælti: „Pabbi, þeta hús var í raun- inni aldrei heimili okkar drengjanna. Heimili okkar — já, það var aðeins þú, og verð- ur altaf“. John hóf upp höfuðið og leit á son sinn og brosti barnalega af innilegum feginleik. Þeir litu ekki framar á hús- ið, en hjeldu niður Main Street í áttina til miðborgarinnar. Veðrið var yndislegt og þeir voru að tala um það. Og þeir töluðu um hvernig stríðið drógst á langinn og hvort Grant hershöfðingja mundi takast að vinna fullnaðarsigur á þessu sumri. Og svo töluðu þeir' um seinasta brjefið frá Will. Hann hafði skrifað þeim 22. mars og var þá staddur í herbúðum skammt frá Culpeper. Hann sagði að Grant hershöfðingi væri væntanlegur þangað dag- inn eftir og ætlaði að hafa her búðir sínar þar. Þá var kalt, sagði hann, og mikill snjór yf- ir alt. Hann hafði þá ekki enn fengið brjefið frá Dan, þar sem honum var skýrt frá því að móðir þeirra hefði samþykt að þeir Tom og Mat mætti koma heim. Þeir mintust á þetta, og John sagði: „Ef Will kemst í kynni við Grant hreshöfðingja, þá er jeg viss um að hann fær heimfar- arleyfi fyrir drengina. Mig langar til að sjá þá“. A miðri leið mættu þeir Veazie hershöfðingja. Hann kom akandi í vagni. Þegar hann sá þá skipaði hann öku- manni að nema staðar. Svo steig hann út úr vagninum, gekk til þeirra feðga og heils- aði.þeim með handabandi. Svo ræskti hann sig. „Gott veður í dag“, sagði hann. „Já, ágætt“, svaraði John. „Það hefði árað bærilega fyr ir skógarhöggið núna, nógur snjór í vetur og svo þetta góða veður — ef við hefðum haft nokkrum mönnum á að skipa“. „Já, það er enginn efi á því“, sagði John. Hershöfðinginn snýtti sjer. „Heyrið þið — akið með mjer til borgarinnar“, sagði hann, „Dan, þú mátt ekki reyna svona mikið á fótinn“. Svo kall- aði hann til ekilsins: „Snúðu vagnium við“. John hikaði við og svo þáði hann boðið. Og svo komu þeir akandi inn í borgina í vagni hershöfðingjans, og það var eins og sigurför. Hvað eftir ánn að urðu þeir að nema staðar vegna manna, sem vildu tala við þá. Það var Georg Thatc- her, Amos Aoberts, einn af stóru kaupsýslumönnunum, sjera Enoch Pond prófessor í guðfræði, Brown læknir og George Pickering bankastjóri, kaupsýslumaður, skipaeigandi og einn af stofnendum Ham- mond Street kirkjunnar. Það var sjerstök samúð í kveðjum þeirra allra og allir tóku þeir fast og innilega í hendur þeirra feðganna. Allir töluðu þeir um góða. veðrið, verslunarhorfur og stríðið. Allir drógu þeir tal- ið á langinn, án þess að segja neitt markvert, en það var eins og þeim fyndist að þeir gæti ekki skilið við þá feðga. Dan komst við og hugsaði sem svo: Þeim þykir öllum sómi að því að láta sjá sig með okkur. Guð blessi þá. 3 \ Trjesmiðir og f verkamenn óskast strax. I Þorsteinn F. Einarsson 5 ÍHoltsgötu 37. Sími 2163 i \ ....................... ■■ | FORD | Tilboð óskast í Ford 1 1936. Til sýnis í dag kl. 1 5—7 á Vitatorgi. £ i nniiiwiiiiiiiiiMiiiHuiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiimiiiiiiiiiniai «nraiSIIIIIMIMIIIIIMMIimiMIMIIIIIIIMIIIMIIItllllMMIIira i I Tökum bækur til hand- gyllingar. ARNARFELL H.F. £ Bókbandsstofa Borgartúni 8 i i_______________________í Svört og hvít Austurlenskt ævintýrL 20. Hún spurði hann hversvegna hann hefði komið til Ðo- mora og hann sagði henni frá föður sínum og bræðrum og að hann hefði farið út í víða veröld til að leita að örinni, sem fcann hefði skotið. Hún hlustaði með athygli á hann og þegar hann hafði lokið máli sínu sagði hún: Jæja, þannig hefur þú þá komið til Sigurrósar systur minnar. Jeg gæti nú, — ef jeg vildi, — látið varpa bjer í fangelsi. En ekki get jeg látið drepa þig, því að það getur aðeins einn. Og þó jeg ljeti þig í fangelsi, myndi Sigurrós sleppa þjer úr fangelsinu á morgun, og hversvegna ætti jeg þá að vera að kvelja þig til einskis gagns. Nei, en jeg vil aðvara þig. Akmeð var í vandræðum. Hann fann hve göfugmannlega Fagurrós kom fram við hann og hvað það yrði illa gert af honum að drepa besta vin hennar, en þá hugsaði hann aftur til Sigurrósar og yndisleik hennar, svo að hann fann, að hann gæti aldrei annað en hlýðnast fyrirskipun hennar og gert allt, sem hún bæði hann um. Það virtist svo sem svarta drottningin finndi, um hvað hann væri að hugsa, því að hún spurði: Veistu, hver er sá eini, sem hefur vald til að drepa þig? Nei, svaraði Akmeð. Það er bróðír þinn, — Fírus. En jeg mun aldrei leyfa, að hann leggi hendur á þig. Hinsvegar veit jeg, að Sigurrós hefur heimtað af þjer, að þú drepir vin minn. En veistu, hver sá vinur minn er? Það hefur hún ekki sagt þjer. Besti vinur minn, sem þú átt að drepa er enginn annar en Fírus. Það er Fírus, bróðir þinn, sem þú átt að drepa. Akmeð var sem þrumu lostinn og gat ekki mælt orð af vörum, en Fagurrós tók vingjarnlega í hönd hans og mælti:: Ó, það eru hin illu örlög, sem hafa tengt hamingju ykkar bræðranna eða óhamingju, deilunni milli okkar systranna. Nú er jeg hrygg, vegna þess, að Fírus hefur horfið þrátt fyrir hjálpina, sem jeg gat veitt honum. Jeg veit ekkert hvar hann er nú. En jeg veit, að þegar Sigurrós systir mín hefur skipað þjer að drepa besta vin minn, þá er það hann, sem hún meinar. En ef hún kemst að því, að þú veist, að það er bróðir þinn, sem þú átt að myrða, þá mun mikil ógæfa * Skoti kom inn í apótek í Ab- erdeen og sagðist vilja fá eina tóma flösku. Apótekarinn rjetti honum flöskuna og sagði, að þetta kost aði þrjú pence, en, bætti hann við. Ef þú kaupir eitthvað í flöskuna, þá færðu flöskuna ó- keypis. — Jæja, sagði Skotinn, kann ski jeg fái þá tappa í hana. ★ Jón hafði veríð rekinn og hann fór til framkvæmdastjór- ans til að mótmæla þe'ssu. — Hversvegna er jeg rek- inn? Jeg veit ekki til þess, að jeg hafi nokkuð gert. — Það er einmitt þessvegna, sem þú ert rekinn. ★ Nýi vjelamaðurinn, sem svissneskur uppfinriingamaður gerði nýlega, er sagður gera alt, sem honum er skipað að gera. Talið er að giftir menn áliti þetta enga nýutig. ★ Skrifstofustjórinn: Ætlið þjeT nokkuð að gera á isunnu- dagskvöld ungfrú Aðalbjörg? Hún (býst við að hann ætli að bjóða sjer út): Neinei. Hann: Jeg vona þá, að þjer getið mætt tímanlega á mánu- dagsmorgun. 1 w» é h i I* ★ Búðarmaðurinn bendir á röð af kjúklingum: Viljið þjer þennan kjúkling? Frúin: Nei. Búðarmaðurinn: En þennan? Frúin: Nei. Búðarmaðurinn: En þessi þarna? Frúin: Nei. Búðarmaðurinn: Viljið þjer ekki segja mjer, hvenær jeg er heitur og hvenær jeg er kaldur. ★ Þegar prestirrinn kom í heimsókn til Jones á sunnudegi einum kom Villi litli til dyra. — Pabbi er ekki heima, sagði drengurinn. Hann fór yf- ir í golfklúbbinn. Brúnin á prestinum þyngd- ist við þetta, svo að Villi flýtti sjer að útskýra: — Nei, nei. Hann ætlaði ekki að spila golf á sunnudegi. Hann fór aðeins til að fá sjer sopa og spila póker. ★ Rakarinn: Hvaða álit hafið þje'r á barnaránunum i Grikk- landi? Sá sem er verið að raka: Sömu skoðun óg þjer. — En hvernig vitið þjer, hvaða skoðun jeg hef? — Jeg veit það ekki. En þjer eruð með rakhnífinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.