Morgunblaðið - 09.09.1948, Blaðsíða 1
16 síður
15. árgangui
212. tbl. — Fimmtudagur 9. septomber 1948.
PrentsmiðJ* MorgunblaðsífUI
■*
Júlíssia sver hollustueiðlnn
Mynd af hinni hátíðlegu stund í Nieuwe Kerk í Amsterdam s.l.
mánudag er Júlíana drottning sór hollustueið að stjórnarskrá
lands síns. Við hlið drottningarinnar er Bernhard prins, eigin-
rr.aður drottningarinnar.
Rússar rifja upp Tftó-málið li! þess að
aðvara Póiverja
Moskva í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
YFIRLÝSING var gefin út í dag í Rússlandi varðandi óhlýðni
Tito við Kominform. Er yfirlýsing þessi mjög harðorð. Tito
nefndur þar svikari og sagt, að hann kúgi meirihluta júgó-
slavneska kommúnistaflokksins til hlýðni við sig.
Auðvaldssinni.
I yfirlýsingunni segir, að
Tító sje stöðugt að nálgast
heimsveldis og auðvaldsstefn-
ur ríkjanna fyrir vestan og að
hann sje orðinn andvígur þjóð-
nýtingu. Hafi hann í flestu svik
ið hinn kommúnistiska mál-
stað.
Júgóslövum ber að losa sig
við Tito.
Þá segír áfram í yfirlýsing-
unni, að Tito og fylgismenn
hans sjeu í miklum minnihluta
í júgóslðvneska kommúnista-
flokknum en hafi svælt öll völd
undir sig með ofbeldi. Með því,
segir áfram, hefur Tító sagt
allri júgóslavnesku þjóðinni
stríð á hendur og henni ber að
losa sig við hann.
Aðvörun.
Stjórnmálafrjettaritarar telja
að Rússar hafi gefið yfirlýsingu
þessa út til þess að vara Gomul
ka fyrrum ritara kommúnista-
flokksins pólska við að fara
sömu leiðir og Tító. Gomulka
var vikið úr pólska kommún-
istaflokknum fyrir skömmu.
æður
| úmks xljalílar-
K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ
danska gaf í dag út tilkynn-
ingu um að skjaldarmerki Dan-
‘merkur skuli breytt. Verður ís-
lenski fálkinn tekinn út.
«|jar
mm
HERLOGREGLA Gyðinga
gerði aðfatanótt þriðjudags
árás á hernaðafbækistöðvar
Stern flokksins, nálægt Tel Av-
iv og handtók 15 háttsetta með-
limi Stern flokksins, sumir telja
þá yfirforingja flokksins. — í
kvöld var gefin út tilkynning
frá skrifstofu Stern flokksins í
Tel Aviv, þar sem sagt var, að
mótmæli hefðu verið lögð fram
við forsætisráðherra Gyðinga-
ríkisins, David Ben Gurien.
ÁtSlee að komast á fætur
London í gærkvöldi.
ATTLEE, forsætisráðherra
Bretlands, sem undanfarið hef-
ur legið rúmfastur á sjúkra-
húsi, vegna veikinda í fótum
er nú að batna eftir fótaað-
gerðina og mun hann taka ti!
starfa snemma í næstu viku.
Loforð svikið — 19 lög-
reglumenn handteknir
Berlín í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter,
ENGINN frekari árangur hefur náðst í viðræðum foringja
hernámsveldanna í Berlín. Er talið að nokkru valdi aðgerðir
Rússa, þegar þeir tóku nýlega fasta 19 lögreglumenn frá her-
námssvæðum Vesturveldanna, sem voru á leið frá ráðhúsi borg-
arinnar til franska hernámshlutans. Hernámsstjórar Vesturveld-
anna hafa sent skýrslu um viðræðurnar til ríkisstjórna sinna og
er ekki vitað enn, hvort reynt verði að halda viðræðunum áfram
í Berlín, eða hvort aftur skuli taka upp viðræður í Moskva.
preisgjufiugrjelar
London í gær.
SCOTLAND YARD, breska
leynilögreglan rannsakar nú
dularfullt hvarf fjögurra
breskra Beaufighter sprengju-
flugvjela. Flugvjelar þessar
voru gamlar höfðu verið not-
aðar í styrjöldinni og voru seld
ar bresku flugvjelafjelagi, sem
síðar séldi þær ókunnum mönn
um ,sem kváðust vera fulltrúar
bandarísks kvikmyndafjelags.
Eftir það er ekkert vitað um
flugvjelar þessar en getgátur
eru uppi um að mennirnir hafi
verið Gyðingar, sem síðan hafi
flogið þeim til Palestínu. Scot-
land Yard á samvinnu við leyni
lögreglur landanna á megin-
landinu í þessu máli. — Reuter.
Erfitt um
mvndnní
stjóruur
Verður elni lil nýrra kosninga!
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ILLA GENGUR með stjórnarmyndun í Frakklandi síðan
þriggja daga ráðuneyti Schumans sagði af sjer. Virðist ólíklegt
að nokkur grundvöllur fáist til stjórnarsamvinnu milli kaþólska
flokksins og sósíalista. Auriel forseti fór í dag fram á það við
Herriot forseta þingsins að hann reyndi stjórnarmyndun. en
Herriot treysti sjer ekki til þess.
Finnst hann of gamalh
"^iíússar stuðluðu að
skríislátunum.
Það sem einna mestu hefur
valdið, að lítill árangur hefur
náðst í viðræðunum undan-
farið má rekja til atburða síð-
ustu daga, þegar flokkur komm
únista hefur óhindrað getað
komið í veg fyrir fundi borg-
arstjórnar og rússneskir lög-
reglumenn jafnvel hjálpað til
við skrílslætin við ráðhús borg-
arinnar.
Rússar svíkja gefin loforð.
Handtóku Rússar í gær 19 þýska
lögreglumenn, sem höfðu haf-
ist við í ráðhúsinu, en voru á
^ leiðinni til franska hernáms-
jsvæðisins, samkvæmt sjerstöku
loforði Rússa um að þeir skyldu
fá frjálsa yfirferð um rússneska
hernámssvæðið. Hafa Rú.ssar
þannig svikið gefin loforð.
Franska hernámsstjórnin áleit
í fyrstu, að handtaka þessarra
lögreglumanna hefði verið af
misgáningi, en þegar leið fram
á daginn kom það í ljós, að það
var samkvæmt fyrirskipun
rússneskra hernámsvalda. Þeg-
ar það vitnaðist ákvað franska
hernámsstjórnin þegar að senda
kröftug mótmæli til Rússa út
af handtökunum og hinum
sviknu loforðum.
Vilja fleiri fundi í Moskva
Moskva í gær.
Búist er við því, að sendi-
herrar Vesturveldanna fari
fram á það við rússneska ut-
anríkisráðuneytið á morgun,
að þeir fái að eiga viðræður
við Molotov einhvem næstu
daga um Berlínarvaldamálið.
—Reuter.
Herriot sagðist ekki treysta
sjer til stjórnarmyndunar sök-
um aldurs, en hann er hátt á
áttræðisaldri. Einnig sagðist
hann þurfa að sitja í forsæti
þingsins, ef svo skyldi fara að
til þingrofa kæmi.
Seint í dag bað Frakklands-
forseti einn af foringjum radí-
kalaflokksins að reyna stjórn-
armyndun og f jellst hann á það.
Skyldi honum takast stjórnar-
myndunin er gert ráð fyrir, að
meginverkefni þeirrar stjórnar
verði að fá þingið rofið og efna
til nýrra kosninga i landinu.
SHANGHAI — Kínverska stjórnin.
fyrirskipaði fyrir skömmu, a8 kaup
skyldi hækka um 95%. Verkamenn.
sögðu þetta of litla hækkun, og
vinnuveitendur óttuðust, að þeir gætu
ekki fengið nógu mikið af seðlum í
bönkum, til þess að greiða starfs-
fólkinu kaup. Á svarta markaðinum
er einn bandarískur doliar keyptm
fyrir 11,500,000 kínverska dollara.