Morgunblaðið - 09.09.1948, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 9. sept. 1948.
Fijtnbjörn varð ís-
iándsmeisiari i
KR vann 4x100 og 4x400
ffl. boðhlayp
SÍÐASTLIÐINN sunnudag
fór fram keppni í fimmtarþraut
mt istaramótsins i frjálsum i-
þróttum. íslandsmeistari 1948
varð Finnbjörn Þorvaldsson iR
Hahn hlaut 2957 stig, sem er
aðeins einu stigi ljelegri árang-
ur ;en Islandsmetið, sem hann
setti í þeirri grein 1946.
Annar í þrautinni var Sveinn
Bjöinsson, KR, ineð 2455 stig,
3 punnar Sigurðsson, KR, með
2443 stig og 4. PjetUr Einarsson
lR,; með 2421 stig.
A frek Finnhjörns í einstök-
un> greinum þrautarinnar voru
ser^ hjer segir: Langstökk 6,90,
spjötkast 51,04, 200. m. hlaup
22,Í7, kringlukast 28,36 og 1500
m„'hlaup 5.05,8.
t’innbjörn náði bestum ár-
angri í þremur greinum, lang-
töl>ki, 200 m. hl. og spjótkasti,
er.ú kringlukasti kastaði Gunn
ar (Sigurðsson lengst, 40,82 m.,
og í 1500 m. hlaupi varð Pjetur
Einarsson fyrstur á 4.21,2-
Á laugardaginn fór fram
ktppni í 4x100 m. og 4x400 m.
boðhlaupi. KR. varð Islands-
meistari i þeim báðum. 4x100
m. vann A-sveit fjelagsins á
43,6 sek. Sveit Ármanns var
önnur á 44,2, lR þriðja á 44,4
og B-sveit KR 4. á 46,7. Islands
meístarar KR eru: Ásmundur
Bjarnason, Sigurður Bjömsson,
Magnús Jónsson og Trausti Eyj
ólfsson.
4x400 m. vann KR á 2.27,4
sek., sem er aðeins 8/10 sek. frá
Islandsmeti því er ÍR setti í
fyrra. ÍR átti aðra sveit á 3.30,4
min- B-sveit KR varð þriðja á
3.33,4 og sveit Ármanns 4. á
3.43,6. — Islandsmeistarar KR
eru: Páll Halldórsson, Sigurður
Björnsson, Sveinn Björnsson og
Magnús Jónsson. — Sigurður
Bjömsson, sem ennþá er
„drengur“, var með þessum
sigrum þrefaldur Islandsmeist
ar|
þá er aðeins eftir að keppa i
tvéimur greinum meistaramóts
in:, tugþraut og 4x1500 m. boð
hl< upi.
N irSmenn unnu
Finna í knatt-
spyrnu 2:0
Sí 5ASTLIÐINN sunnudag fór
ín m landskeppni í knáttspyrnu
mi li Finna og Norðmanna í
Os ó. Norðmenn báru sigur úr
bý Um með 2:0.
Yöllurinn var mjög blautur
ogfvont að leika og rigning var
m<þri hluta síðara hálfleiks. —
Áliprfendur voru 26 þúsund.
lforðmennirnir áttu mun
meira í leiknum, en ljeku þó
alls ekki vel. Samleikurinn varj
ónákvæmur og skotin frekar
ljeleg.
Wang-Sörénsen, sem Ijek mið-
framherj'a, \setti bæði mörkin.
Það fyrra er 2 mín. voru aí
fyrra hálfleik, e!n hið síðára í
byrjun síðari hálfleiks. — G.A.
Siprvegarinn í Maraþonhlaupinu.
Argentínumaðurinn Cabrora (233) sigurvegarinn í Marabonhlaupi
Ólympíuleikanna, fer fram úr Belgíumanninum Gailly, sem kom
fvrstur inn á Wembley-leikvanginn, en var þá svo máttfarinn að
hann mátti sig vart .hræra. Bretinn Richard fór einnig frarn úr
Gailly, sem kom þriðji í mark.
210 nemendur hjá
Axel Andrjessyni
á ísafirði
AXEL ANDRJESSON, sendi
kennari ISI, er fyrir nokkru
kominn frá Isafirði, þar sem
hann dvaldi rúman mánuð og
kendi knattspyrnu og hand-
knattleik. Axel lætur mjög vel
yfir verunni á ísafirði og kvað
áhuga hafa þar verið mjög mik-
inn. Alls voru nemendur hans
210, þar af 78 stúlkur í hand-
knattleik. Kenndi hann þar
kerfi sitt og voru nemendur
hans allt frá 5 ára aldri.
Á meðan Axel dvaldi á Isa-
firði fóru þar fram ýmsir kapp-
leikir og sýningar á Axelskerf-
inu.
Meistaraflokkur Víkings fór
þangað og keppti tvo leikí. Vann
Víkingur annan méð 3:2, en Is-
firðingar hinn með 3:1.
Knattspyrnumót Vestfjarða í
III. flokk fór fram 23.—25. júlí.
Þátttakendur voru Hörður og
Vestri á ísafirði og íþróttafjel.
Höfrungur, Þingeyri. Hörður
vann Vestra með 5:1, Vestri
vann Höfrung með 4:0. Hörð-
ur vann Höfrung með 9:0 og
varð því Vestfjarðameistari
1948.
Þá fóru flokkar frá ísafirði
og kepptu við ýms önnur f jelög
á Vestf jörðum og m. a. fór Axel
með 65 yngstu nemendur sína
til Súgandafjarðar í mjög á-
nægjulega ferð.
Einnig sýndu nemendur hans
kerfi hans á ísafirði við mik-
inn fögnuð áhorfenda. Er eng-
unnið íþróttalífinu á Isafirði
inn vafi á því að Axel hefir
mikið gagn.
iþróltakeppni Aftur-
eldingar og Drengs
UM síðustu helgi fór fram hið
árlega iþróttamót Aftureiding-
ar og Drengs. Afturelding bar
sigur úr býtum með 56 stigum
gegn 10.
100 m hlaup vann Halldór
Lárusson á 11,4 sek., en ann-
av var Tómas Lárusson á sama
tima. Langstökk vann Halldór,
stökk 6,58 m og einnig hástökk,
þar sem hann setti nýtt hjeraðs
met, .1,75 m.
Ásbjörn Sigurjónsson vann
kúluvarp með 12,88, Halld. Lár
usson kringlukast með 31,40,
Magnús Lárussön spjótkast
með 41,95 og Ásgeir Bjarnason
3000 m hlaup á 10.56,0.
Stigahæsti maður mótsins
var Halldór Lárusson. Hann
hlaut 20 stig og vann 61 eignar
bikar, sem Ólafur Thors hafði
gefið 61 kepni í þessu móti. —
Tómas Lárusson var næststiga-
hæstur með 12 s6g.
Kynna sjer árangur
Marshaliaðstoð-
arinnar
Washington.
TVEIR bandarískir þingmenn
lögðu síðastliðinn sunnudag af
stað til Evrópu, til þess að
kynna sjer árangur Marshall-
aðstoðarinnar í álfunni. Þing-
menn þessir eru báðir úr flokki
republikana og munu meðal
annars ferðast um Þýskaland,
Austurríki, Ítalíu, Belgíu, Hol-
land, Frakklánd og England.
Als munu þeir verða um fjór
ar vikur í þessu ferðalagi.
—Reuter.
KAGNAK JÓNSSGN
bac-starjettarlögmaður. \
Laugavegi 3. Sími 7753. \
Logfræðistörf eisrna- \
w . «msýsl«-
Verður Sandskeppsii við Finna
ALÞJÓÐAÞINGI handknatt
leikssambar.dsins er nýlokið
Þingið var haldið í París. Full
trúar voru mættir frá öllum
Norðurlöndum nema íslandi og
Finnlandi. Á þinginu var ákveð
ið að heimsmeistarakeppni í
útihandknattleik skuli fara
fram annað hvert ár (einu
sinni á milli hverra Olympíu-
leika og svo á leikunum sjálf-
um.
Gjald til Alþjóðasambands-
ins var hækkað úr 2 sterlings-
pundum upp í 4 pund.
Aukaþing í París.
Ákveðið var að kalla saman
aukaþing sem á að koma sam-
an í París 2. og 3. okt. Fyrir
þinginu liggur A) Að ákveða
Heimsmeistarakeppni kvenna í
úti-handknattleik. B) Að á-
kveða heimsrneistarakeppni í
innanhússhandknattleik karla.
Einnig liggur fyrir beiðni frá
Noregi að mega keppa milli-
ríkjaleik með 7 manna liði utan
húss. Finnlandi hefur áður ver
ið veitt slíkt leyfi. ísland mun
einnig fara fram á að fá slíkt
leyfi, þar sem ekkert húsnæði
er hjer til nógu stórt fyrir slíka
keppni.
Landskeppni við Finna.
Síðastliðið sumar fóru fram
brjefaskriftir milli Handknatt-
leiksráðs Reykjavíkur og Hand
knattleikssambands Finnlands.
og var ákveðið að milliríkja-
keppni skyldi fara fram hjer
í Reykjavík um miðjan maí s.l.
og annar leikur í Helsingíors
um 'miðjan júní. Vegna sam-
gönguörðugleika gat ekki orð-
ið af þessum leikjum, en í vet-
ur mun verða unnið að því að
képpnin geti farið fram að vori.
— Svíþjóð hefur boðist til að
halda heimsmeistarakeppni í
innanhússhandknattleik 1949
og mún þingið í París (2 og 3ja
okt) taka afstöðu til boðs Sví-
þjóðar.
17. þjóðir í Alþjóðasanibandinu
Þjóðir þær sem eru í Alþjóða
sambandinu eru þessar: Belgía,
Danmörk, Finnland, Frakkland
Holland, ísland, Luxemburg,
Noregur, Pólland, Portúgal,
Rúmenía, Svíþjóð, Sviss,
Spánn, Tjekkóslóvakía, Ung-
verjaland, Austurriki,
Beiðni Þýskalands um upp-
töku í Alþjóðasambandið var
vísað frá með þeim forsendum
að bíða bæri eftir að friðar-
samningarnir yrðu undirritað-
ir.
Svíar heimsmeistarar.
í heimsmeistarakeppninni í
úti-handknattleik karla, varð
Svíþjóð nr. 1, Danmörk nr. 2
og Sviss nr. 3.
Svíar unnu Finna 26:0, Pól-
land 19:4, Sviss 8:4 og Dan-
mörku 11:4.
Danir unnu Holland 15:5,
Frakkland 17:4 og töpuðu fyrir
Svíum 4:11.
Sviss vann Austurríkj 12:10,
Frakkland'21:4 og tapaði fyrir
Svíum 4:8.
Danmörk vann Norðurlanda
keppnina x handknattleik
kvenna, sigraoi Svía í úrslita-
leiknum, 2:1. Svíþjóð varð nr.
2, Noregur 3 og Finnland 4.
Nýr srtiábaruaskóEi í
Laugarneshverfi
í RÁÐI er, að nýr smábarna-
skóli starfi hjer í Laugarnes-'
hverfinu í vetur á vegum ung-
frú Ásu Jónsdóttur, uppeldis- (
fræðings. Kemur það sjer vel,^
því að skortur hefur jafnan ver-;
ið tilfinnanlegur á slíkum stofn-.
unum hjer sem víðar.
Þess má einnig vænta, að ung(
frú Ása sje færari um að hafa
þessi störf með höndum en al-
mennt gerist, þar sem hún hefur.
notið meiri menntunar en títt
er meðal kennara. Hún hefur, að
loknu námi í Kennaraskólanum,
stundað nám í uppeldisvísindum
og sálarfræði í Bandar'ikjunum
í fjögur ár og lokið magister-,'
prófi í þeim greinum. Það má.
einnig teljast til nýmæla, að,
ungfrúin mun gera nákvæmar
athuganir á námshæfn! barn-
anna og greindarþroska, og mun
það geta orðið bæði foreldrum
og kennurum að liði síðar meir,
er í barnaskólana kemur.
Við, sem í barnaskólunum
störfum, hyggjum gott til byrj-
endaskólanna, með því að við
þekkjum vel muninn á því að
fá börnin vel undirbúin í skól-
ana og hinu, að þau komi með
öllu ólæs. Að vísu er það svo,
að sum heimili eru þess um-
komin að búa börnin undir
barnaskólana og gera það, en
hin munu miklu fleiri, sem ekki
hafa ástæður til þess ,og er þá
mikið undir því komið, að smá-
barnaskólarnir sjeu sem viðast
og færir um að leysa kennsluna
sem best af höndum. Ber því að
fagna því,. er nýir og svo vel
menntir liðsmenn bætast í þann
hóp.
Skólinn verður í rúmgóðu og
hentugu húsnæði á Laugateig
39 og tnun starfa á báðum dags-
helmingum, en það kemur mörg-
um heimilum betur.
Gunnar Guðmundsson.
Þingmannaráðslefna
breska heims-
veldisins
London í gær.
TALIÐ er nú líklegt, að þing-
mannaráðstefna breska heims-
veldisins komi saman í London
11. október n. k. Ráðstefnuna
munu meðal annara sitja for-
sætisráðherrar Kanada, Nýja
Sjálands, Indlands, Pakistan og
Ceylon.
Ráðstefnan á að fjalla um
horvarnir og •efnahagsmál
bresku heimsveldislandanna.
—Reuter.
IIIIIMIIII >MIIIlillIIIII<1II111f IIM1111111111111II1111ll<I(llllll
j Sriíyrf kauS cg snili- |
| ur, veislufflaíur |
SÍLD CG FISKUR I
■ IIIIIIIIIIIMIM..