Morgunblaðið - 18.12.1948, Síða 4

Morgunblaðið - 18.12.1948, Síða 4
I 4 MORGUTS BL 4ÐIÐ Laugardagur 18. des. 1948- Gjafir hinna verulega vandláfu: Babbit eftir Sinelair Lewis Frægasta skáldverk Ameríu. Bæði bindin innb. 52,00. Langt út ■ iöndin Úrval íslenskra ferðasagna eftir yfir 30 þjóðfræga Islendinga. I bandi aðeins. kr. 46,00. Glöggt er gests augað Ferðasögur fjölda frægra erlendra manna, sem ferðast hafa um Island. Verð í bandi kr. 46,00. Beethoven ægifögur bók eftir Roman Rolland handa tmglingum. Verð i bandi kr. 20,00. ’ennincjar- prœ&ólaóamban d ja^í ^y4^aíútóa(a: &j, i *ur ocj n itjl ÁLFABÓKIM Álfasögur — Álfaljóð T Stefán Jónsson rithöfundur valdi efnið. Myndir eru eftir Halldór Pjetursson. I þessa fallegu barna- — 9g unglingabók hefur Stef án Jónsson valið vinsæl- ustu álfasögurnar og ævin týrin, sem sögð hafa verið börnum á Islandi á liðn- úm öldum. Einnig eru með kunnustu ljóðin, sem Skáldin hafa ort um huldu fólk og álfa. . Þessi bók verður góður fengur hverju íslensku bami eins og efni hennar fiefir verið vinsælt hjá éldri kynslóðum. og marg ir munu hafa ánægju af '> áð rifja upp með börnum Þetta er þjóðlegasta barnabókin sínum álfasögurnar, sem |)eim voru sagðar í æsku. Jólabók íslenskra barna í ár. ■J Brjef: Ufsýnisfurn á EskihliS Brjef frá Fjelagi íslenzkra atvinnuflugmanna. NÝLEGA BIRTIST í Morgun- blaðinu grein um byggingu út- sýnisturns á Oskjuhlíð. Viljum við gera eftirfarandi athuga- semdir við þá tillögu. Fyrst viljum við taka það franiað aðra eins fjarstæðu þykjumst við ekki hafa heyrt í langa tíð. Bresku hernaðar- yfirvöldin bentu, á sínum tíma, rjettilega á, að slíkur turn yrði hættulegur flugi í grend við Reykjavíkurflugvöll, og fenftu því ráðið að turninn var ekki reistur. Það hefði mátt halda að hver einasti heilvita mað- ur sæi rökin fyrir þessu, en nú virðist eins og sumir menn telji að með brottför Breta sje lokið flugi við þennan flug- völl ■— eða ef til vill halda þeir að við íslendingar sjáum betur en aðrir í ljelegu skygni svo að af blessuðum turninum stafi okkur engin hætta. Því lík rökvísi. Þessi fyrirhugaði turn, sem ekki aðeins á að vera hærri en Landakotsturninn, heldur á einnig að standa á hærri stað, myndi verða nákvæmlega í umferðahring flugvjela við Reykjavíkurflugvöll, og það sem er enn verra, hann myndi standa mjög nærri þeirri leið sem flugyjelar stýra frá radió- miðunarstöðinni á Alftanesi til Reykjavíkur, eftir að hafa lækkað sig niður úr skýjum, eða þegar þær nálgast Reykja- vík í slæmu skygni. Turninn á því að standa á versta hugs- anlegum stað, og yrði þess valdandi að flugvjelar myndu neyðast til að lenda á Keflavíkurflugvelli í hvert skipti sem skyggnið takmark- aðist, sem ekki er svo sjald- gæft hjer á íslandi. Hjer skal á það bent, að hin stóru erlendu flugfjelög hliðra sjer við að nota Reykjavíkur- flugvöll, og það ekki 'sökum smæðar hans — hann er feyki- lega nógu stór fyrir þær milli- landa flugvjelar sem alment eru í notkun nú — heldur vegna þess að þeim Öskjuhlíð of há og of nálægt flugvellinum. Sjálfsagt stafar minni hætta af Öskjuhlíð fyrir íslenska flugmenn sem eru þaulkunnir Reykjavíkurflug- velli — þ. e. a. s. á meðan að enginn turn er á henni. Einnig skal á það bent, að Reykvíkingar hafa alveg prýði legan útsýnisturn, Landakots- turninn, sem ávalt hefir verið opinn fyrir almenning. Þeir virðast þó litt kunna að meta hann. Er ekki mjög líklegt að eins færi um hinn nýja Babels- turn? Fjelag okkar befir lengi bar- ist fyrir að loftskcyíastengurn- ar á Melunum yrðu teknar nið- ur, enda er ekki lengur þörf fyrir þær, en það er farið að verða auðsjeð að þær hverfa ekki fyr en einhver flugvjelin reltur þær um koll. Fjelagið mun því beita sjer af alefli gegn byggingu þessa fyrirhug- 1 aða „hámenningar“-turns, svo ekki þurfi sömu aðferð' til að losna við hann. Ef einhver skyldi virða okk- ur til bleyði, þessi mótmæli okkar, viljum við segja hin-: um sama, að okkur er trúað fyrir fleiri mannslífum en okk- ar eigin. F.h. Fjelags íslenskra atvinnu- flugmanna, Þorsteinn Jónsson. Bðrnabækur Draupnisúfgáfunnar DRAUPNISÚTGÁFAN gefur út nokkrar barna- og unglinga- bækur nú fyrjr jólin cins og að undanfÖrnu. Þær eru þessar: . Jeg er sjómaður, sautján ára, sa.ga handa drengjum og ung- lingum eftir Arne Skougenr þýdd af Andrjesi Kristjánssvni. Aðalsöguhetjan er norskur ung. lingspiltur, sem ræðst í sigl- ingar fjórtán árá gamall og er í siglingum í þrjú ár samfleytt án þess að koma heim. Hann fer víða, ratar í ýmis ævintýri og öðlast reynslu og þroska — Þetta er vel sögð saga, skcmti- leg og spennandi án þess að hafa á sjer nokkurn reyfara- eða „hasar“-brag. Smyglararnir í skerjagarðin- um er unglipgasaga eftir Jón Björnsson rithöfund. Hún ger- ist í Noregi. Ungur piltur er ranglega grunaður um smygl, handtekinn og varpað í fang- elsi. Honum tekst að flýja og hefst þá barátta hans fyrir því að sanna sakleysi sitt. Á hann að lokum drýgstan þáttinn í að Ijósta upp um harðsnúinn flokk smyglara, og sannast þá um leið sakleysi ha*ns sjálfs. Þetta er spennandi saga, þar sem góður málstaður hefur sigur að lokum. Sagan af honum Sólstaf er falleg og hugþekk bók handa litlu börnunum, þýdd af Frey- steini Gunnarssyni skólastjóra, Bókin er öll prentuð í mörg- um litum, bæði myndir, og lesT mál, og er hún tvímælalaust með allra fegurstu barnabókum hjer hafa verið prentaðar. Músaferðin, bók handa litl- um börnum, kemur nú út öðru sinni. Hún kom fyrst út fyrir síðustu jól, en seldist þá upp á skömmum tíma og varð mjög vinsæl. Þetta er skemmtileg saga, prýdd ánægjulegum myndum. Freysteinn Gunnars- son íslenskaði. Prinsessan og flónið. — Þetta eru nokkur skosk ævintýri, prýdd vel gerðum myndum, þýdd af Sigríði Ingimarsdóttur. Skotar-eiga mikinn fjársjóð æv- intýra og þjóðsagna, og eru sögurnar í þessari bók teknar úr vönduðu úrvrfii skoskra æv- intýra. London í gær. SIR Stafíord Cripps skýrði frá því í neðri málstofu breska þingsins í dSg, að hernám Þýskalands hefði kostað Breta 537 miljón sterlingspund frá ófriðarlokum til 31. mars í ár. ■— Reuter. þykir ■sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.