Morgunblaðið - 30.12.1948, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 30. des 1948.
Útg.: H.í. Árvakur, Reykjavík.
Frarákv.stj. Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri ívar Guðmundsson
Aug-lýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Ásltriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
KINA
EFTIR að kommúnistaherinn braut á bak aftur varnir
Ohang Kai sjeks við Suchow, hefur sókn hans haldið áfram,
í áttina til Nanking. Ennfremur nálgast árásarherinn hina
gömlu borg keisaranna Peiping.
Stjórn Chiang Kai-sjeks er orðin völt í sessi. Hefur verið
talað um, að annar maður verði settur í forsæti Kuomin-
tangflokksins. Og reynt verði að koma á laggirnar sam-
steypustjórn, sem hefði stuðning þjóðarinnar.
í Kína, sem annarstaðar hafa kommúnistar runnið á það
lag að ná hylli bænda í bili, með því að afhenda þeim
jarðeignir, og láta þeim í tje vopn. Segja síðan við þá:
Notið þessi vopn, sem þið hafið fengið til þess að verja
eignir ykkar, Annað mál er svo það, hvernig Stalinistum
tekst að brjóta hina vopnuðu bændur til hlýðni við hið er-
lenda vald rússnesku kommúnistanna, og hvernig þeirri
viðureign lýkur, er þar að kemur. Kunnugir menn málefn-
um Kína fullyrða, að Kínverjar sjeu fyrst og fremst þjóð-
lega sinnaðir menn, sem fyrir hvern mun vilji komast hjá
cílum erlendum áhrifum, enda þótt þeir hafi hjer slegist
í íylgd með kommúnistum gegn stjórn landsins, sem eigi
hefur tekist að ná vinsældum.
Sem stendur er greinileg upplausn í flokki Chiang Kai-
sieks. Nokkrir herforingjar hans hafa lagt niður virka and-
stöðu gegn kommúnistaherjunum. Skipuleg herstaða þeirra
megin, er naumast fyrir hendi. Þó eru horfur á, að herstjórn
Chiang Kai-sjeks muni ætla sjer að búast til einbeittrar
varnar fyrir sunnan Yangtse-fljót í því skyni, að halda yfir-
ráðunum í Suður-Kína,' hvað sem verður um hina hluta
landsins.
★
Alt frá því Bandaríkjamenn áttu í styrjöldinni við Japan,
hefur Bandaríkjastjórnin stutt Chiang Kai-sjek með mikl-
um fjárframlögum og vopnasendingum. Talið er, að sú hjálp
mimi alls nema um þrem miljörðum dollara. í vandræðum
sínum hefur Chiang Kai-sjek nú, sem kunnugt er, sent konu
sína til Washington, til þess að hún reki þar erindi hans,
og stjórnar hans, og reyni að fá Bandaríkjastjórn til að
bæta enn við hina fjárhagslegu aðstoð við þjóðveldisher-
inn. En eins og forystumenn kínversku þjóðaiinnar eru
ósammála um það nú, hvernig þeir eigi að snúast við hin-
um aðsteðjandi erfiðleikum, eins er talið, að skiftar sjeu
skoðanir um það meðal stjórnmálamanna í Washingtqn,
hvernig Bandaríkin eigi að snúast við vandræðum Kínverja,
og styrkbeiðni Chiang Kai-sjeks.
★
Marshall utanríkisráðherra hefur lengi látið uppi efa-
semdir um það, að Kuomintang stjórnin í Kína sje fær um
það, að koma á fót friðsamri umbótastjórn í Kína. Auk
þess er á það að líta, að auðlindir Bandaríkjanna eru ekki
ótæmandi, en þau hafa skuldbundið sig til allmikilla fjár-
framlaga á þessu' ári, og þeim næstu, til endurreisnar Ev-
lópulanda. Auk þess hneigjast margir áhrifamenn Banda-
rikjanna að því, að þeim sje fullt eins holt, að beina aðstoð
smni ekki síður til Japana, og koma því til leiðar, að sú
þjóð, sem hefur meiri tæknilega mentun, og undirstöðu, en
Rínverjar geti sem fyrst komið framleiðslu sirrni í gott
horf, og orðið á þann hátt Bandaríkjaþjóðinni og öðrum
styrk stoð á viðskiftasviðinu.
En alt fyrir það þykir ólíklegt, að Bandaríkjamenn sleppi
hendinni með öllu af þjóðveldisstjórninni í Kína. Þó telja
megi líklegt, að stjórnarvöldin í Washington athugi vel allar
aðstæður í Kína, áður en miklum fjárframlögum verði
lialdið áfram, til Kuomintang-stjórnarinnar. Því fái komm-
xinistaherinn fullan sigur í bili yfir Kína, þá yrði það til
styrktar og uppörvunar fyrir skipulagðar 5. herdeildir
kommúnista í öðrum Asíulöndum, til þess að láta til skarar
skríða gegn löglegum stjórnum landanna.
Annað mál er svo það,_hversu hinir vopnuðu bændur Kína
verði auðsveipnir jyjnskyavaldinu, er fram í sækir
^ar:
XJíLuerji ábripa
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Skraut, sem
skemmt er
SUMIR húseigendur gerðu það
að gamni sínu, að setja mislitar
ljósaperur á trje í görðum sín-
um, eða fyrir framan hús um
jólin. Var þetta víða til feg-
urðarauka og vegfarendur
námu staðar til að horfa á
dýrðina. Það er algengt er-
lendis, að fólk skreyti þannig
hjá sjer I tilefni af jólunum og
það hefur sýnt sig, að jafnvel
hjer á íslandi er hægt að koma
þessu skrauti við úti, þótt ætla
mætti að veðurfar væri slíkt
hjer um háveturinn, að þess
væri lítill kostur.
En þetta skraut hefur ekki
fengið að vera í friði, fremur
en svo margt annað, sem gert
er í „sama tilgangi.
•
Strákar sprengja
perurnar
HÚSEIGANDI sagði mjer, að
hann hefði lýst upp hjá sjer
trje í garðinum sinum um jól-
in, sjálfum sjer til ánægju og
til þess að prýða. Hafði þetta
auðsjáanlega fallið mörgum í
geð, því fjöldi manns hefði
staðnæmst við garðinn til að
horfa á Ijósadýrðina. '
En svo hafi strákar komið
með barefli og brotið perurn-
ar á trjenu og þá fór gamanið
af.
Það er alveg furðuleg
skemmdafýkn hjá unglingum
þessa bæjar, að geta ekki einu
sinni sjeð jólaskraut manna i
friði.
•
Alvarleg aðvörun
LÖGREGLUSTJÓRI HEFUR
beint þeirri áskorun til al-
mennings, vegna íkveikjuæðis,
sem grípur unglinga um þetta
leyti árs, að gæta þess vel, að
ekki sje skilið eftir eldfimt
efni í portum og húsagörðum.
Til þess telst brjefarusl alls-
konar, spýtur og kassar og
fleira, sem þessir litlu íkveikju
vargar sækja í.
Það er ekki seinna vænna
en í dag að hreinsa til hjá sjer.
Ættu menn að taka vel í þessa
áskorun lögreglustjórans og
hjálpa þannig til að forða sjer
og öðrum frá yfirvofandi voða
og tjóni.
•
Dagatöl og
vasabaekur
MÖRG fyrirtæki halda enn
uppi þeim gamla og góða sið,
að senda viðskiptavinum sín-
um dagatöl, eða vasabækur.
Þykir mörgum fengur í að fá
þetta til að fylgjast með tím-
anum á nýja árinu, sem nú fer
í hönd.
Veggalmanökin, eða daga-
tölin er farið að senda út til
manna fyrir nokkru, en það
var kominn á sá siður á und-
anförnum árum, að þessar
góðu auglýsingar fyrirtækj-
anna og þarfi hlutur fyrir fólk
almennt, kom ekki fyr en eftir
dúk og disk, eða þegar nokkuð
var liðið á árið nýa.
En sami siður virðist eiga að
haldast með vasabækurnar, sem
eru hið þarfasta þing, einkum
þær, sem prentaðar eru í ýms-
ar gagnlegar upplýsingar, sem
að notum koma í daglega lífinu,
svo sem skrá um mál og vog
ýmsra landa, gengistafla, skrá
yfir söfn og opinberar stofn-
anir og svo framvegis.
•
Þörf á endurbót
ÞESSAR vasabækur eru flest-
ar eða allar prentaðar í sama
forminu og jafnvel eftir sömu
fyrirmynd. Eru þær flestar
eins að innihaldi, nema hvað
firma eða fjelagsnafni er breytt
eftir því. sem við á, á kápu.
Ekkert er við því að segja.
En hitt er satt, að það er bráð-
um kominn tími til að endur-
bæta þessar bækur, sem hafa
verið eins núna um margra
ára skeið.
Það er vafalaust of seint, að
gera breytingar fyrir næsta
ár, úr því sem komið er, þar
sem búið mun vera að prenta
bækurnar. En væri það ekki
athugandi fyrir útgefendur, að
endurskoða efni vasabókanna
og bæta inn í ýmsum þarfleg-
um upplýsingum, sem menn
hafa not fyrir í daglega lífinu.
Og svo, að koma bökum þess
um út nógu snemma, helst
þannig að þær sjeu komnar í
hendur þeirra, sem þær eiga
að fá, ekki síðar en á gamlárs-
dag og helst um jólin. Slík
bók er enda prýðileg jólagjöf.
•
Skemmtileg
dagbók
FYRIR jólin sendi eitthvað fyr
irtæki Víkverja skemmtilega
dagbók. Því miður var ekki
getið um nafn útgefanda og
veit jeg því ekki hverjum á
að þakka, en það er gert hjer
með og vona jeg, að viðkom-
andi sjái þessi orð.
Það er góður og skemmti-
legur siður, sem margir halda
árum saman, að skrifa dag-
bók. En þá er gott að hafa til
þess sjerstaka bók með daga-
tali. Til skemmtunar f ylgja
málshættir hverjum degi, sem
Sigurður Skúlason hefur val-
ið í þessa nýju bók.
Þetta fannst mjer góð ,,jóla-
gjöf“, hvort sem mjer endist
nú þol til að skrifa í hana dag-
lega, það sem fyrir ber, eða
ekki.
MEÐAL ANNARA ORÐA . . .
Mlkill nótlamannaslraumur III HMtgkong
Frá frjettaritara Reuters.
IIONGKONG — Enn á ný ligg
ur flóttamannastraumurinn til
Hongkong. Kínverjar flykkj-
ast nú þangað undan fram-
sókn kommúnistaherjanna í
norðurhluta -landsins, alveg
eins og þeir flúðu undan Jap-
önum 1937 og 1938. Hvert ein-
asta skip og fjöldi flugvjela,
sem þangað koma daglega,
færa nýja flóttamenn.
En það er munur á flótta-
fólkinu í dag og hinu, sem til
Hongkong kom 1938.
• •
EFNAÐ FÓLK
FLÓTTAFÓLKIÐ, sem innrás
Japana orsakaði, kom allsstað-
ar að úr Kína og meðal þess
voru þúsundir af alslausu
fólki. Þeir. sem í dag flýja, eru
flestir hverjir efnaðir menn
og minniháttar embættismenn
frá Shanghia, Tientsin og Nan-
king.
Áhrifanna af þessu aðflutta
efnafólki er þegar farið að
gæta í Hongkong. Verðlagið
i hefur hækkað að undanförnu
{og húsnæðisvandræðin eru ó-
j skapleg. Sagt er, að milljóna-
mæringur frá Shanghai hafi
borgað 110,000 Hongkong-
dollara (tæplega 7,000 sterl-
j ingspund) fyrir að fá að flytja
' inn í íbúð. Er mælt að hann
hafi greitt þessa upphæð fús-
lega.
ÖLDIN ÖNNUR
í DAG er svo komið, að rifist
er um íbúðirnar, sem fólk til
skamms tíma ekki vildi líta
við, ýmist vegna þess að þær
þóttu of dýrar eða þá alls ekki
hæfir mannabústaðir. Allar
íbúðir hafa jafnvel þegar yer-
ið pantaðar fyrirfram í hús-
um, sem enn er ekki lokið
smíði á, eða jafnvel ekki er
byrjað að reisa.
Flóttafólkig hefur ennfrem-
ur haft það í för með sjer, að
umfangsmikil svarta markaðs
verslun er á ný byrjuð með
þær vörur, sem skortur er á.
Fyrsta flokks sígarettur eru
seldar fyrir þvínær tvöfait hið
lögboðna verð, og mjólk og
smjer er selt fyrir 100—200
prósent hærra verð en löglegt
er. Fullyrt er, að nýlendu-
stjórnin hafi hagnast vel á hin
um breyttu aðstæðum, sem
auðvitað bitna fyrst og fremst
á borgurunum.
• •
BROTTFLUTNINGUR
SVO einkennilega vill til, að
enda þótt Hongkong megi nú
teljast einna öruggasti staður-
inn í Kína og flóttafólkið haldi
áfram að koma þangað, hafa
sumir tekið þann kost að
flytja frá nýlendunni. Hjer er
fyrst og fremst um að ræða fá-
tæka Kínverja, sem eru að
flytja sig til Canton og sveit-
anna í kring, þar sem fram-
færslukostnaðurinn er mun
iægri.
• •
..EKKERT AÐ
ÓTTAST“
FLESTIR útlendingar og Kín-
verjar í Hongkong munu líta
svo á, að enda þótt kommún-
istum kunni að takast að
leggja undir sig Kína, muni
Hongkong lúta áfram breskri
stjórn, og því verði ekkert að
óttast.
Stjórnarvöldin líta þó öðr-
um augum á málið. Þau hafa
að vísu ekki látið um of á því
bera, en frjettamenn eru sam-
mála um, að framtíðin valdi
Hongkongstjórn talsverðum
áhyggjum. Stjórnin gerir sjer
það ljóst, að ef borgarastyrj-
öldin berst til Suður-Kína,
getur orðið geysierfitt að afla
matvæla, þar sem allur matur
í Hongkong er aðfluttur.
Ánægður með viðræður
Washington í gærkv.
ROBERT Lovett, núverandi
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagði hjer í dag, að við-
ræðum um Norður-Atlantshafs
bandalag miðaði mjög vel á-
fram. Þeim mun sennilega ljuka
innan tveggja mánaða.
— Reuter.