Morgunblaðið - 05.01.1949, Side 8

Morgunblaðið - 05.01.1949, Side 8
8 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. janúar 1949 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj. Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. íslendingar og utanríkis- mál kommúnista TJNDANFARNAR vikur hafa borist fregnir um það, hvað eftir annað, að íslendingum muni verða boðin þátttaka í væntanlegu varnarbandalagi vestrænu þjóðanna. Er bví tal- ið líklegt, að svo verði, þó engin slík boð eða orðsending rnuni vera komin til íslenskra stjórnarvalda. Allir, sem gert hafa sjer grein fyrir meginrás heimsvið- burðanna á síðastliðnu ári, vitá á því glögg skil, hver er að- öragandinn að stofnun hins væntanlega varnarbandalags. Að forráðamenn hinna vestrænu lýðræðisríkja hafa, á síðast- liðnu ári, komist að þeirri niðurstöðu, að helsta, líklegasta, ef ekki beinlínis einasta leiðin, til þess að forða heiminum frá ómælanlegu böli nýrrar styrjaldar, er það. að hver sá árásaraðili, sem hyggst að beita vopnavaldi, gegn hinum \ estrænu ríkjum, sjái það, og skilji í tíma, að lýðfrjálsar þjóðir vestan Járntjalds verða ekki gleyptar í einum munn- fcita, kostnaðar og fyrirhafnarlítið, eins og þau ríki í austan- verðri Evrópu, sem hvert af öðru hafa „hrokkið ofan í“ hina ]• ommúnistisku einræðishít. Þegar að því kann að koma, að íslenska þjóðin verði kvödd til þess, fyrir sitt leyti, að taka afstöðu til hins væntanlega bandalags, er. á að forða heiminum frá nýju styrjaldarböli, þá liggur það í hlutarins eðli, að afstaða okkar miðast við það, sem best getur trygt frelsi okkar, sjálfstæði og alla framtíðarvelgengni. En ekki verður úr þessu skorið til hlítar fyrri en vitað verður, hvernig hinu væntanlega bandalagz verður háttað og þá ekki síst hvaða skyldur þeim verða ilagðar á herðar, sem þar verða þátttakendur. Engum manni, hvorki innlendum nje erlendum, getur blandast hugur um, að þátttaka íslands í bandalagi þjóða, sem miðar að því, að koma í veg fyrir styrjöld, mun verða með óðrum hætti, en þátttaka herbúinna stórþjóða. En það raskar ekki þeim sjálfsagða hlut, að mikið liggur við, að íslendingar ræði þetta mál með stillingu og æsinga- laust, svo það verði trygt sem best, að hin íslensku sjónar- mjð fái að njóta sín, í þeim umræðum og ákvörðunum. ★ rar: XJíLi/erji áLripa ÚR DAGLEGA LÍFINU Ný vísindagrein SKÖMTUNARFRÆÐI er spá- ný vísindagrein, sem allir aurfa áð kunna nokkur skil á. En það er talsvert nám, að komast vel niður í þessum nýja lærdómi og það þarf meira en meðal skussa til þess, að verða sæmilega vel að sjer á þessu sviði. Þó þútið sje dag eftir dag í útvarpi "og dagblöðin sjeu full af auglýsingum og skýringum á skömtunarfræðunum, eru margir fitlu nær. Það er ekki auðvelt að muna hvenær menn eiga að taka með sjer L-3, eða K.-2. Hvenær reiturinn, sem nota á úíþað og það skiftið er á nýja skömtunarseðlinum, eða hvenær hann er úr gömlu bók inni frá í fyrra. Eitt er nauðsynlegt NU ERIJ menn svo sem ekkert að efast um, að skömtun nauð- synja, sje bráðnauðsynleg og enda tilgangslaust að velta því fyrir sjer. En hitt má orða, að reynt sje að gera þetta skömt- unarkerfi eitthvað auðveldara -en það &r nú. Hversvegna má ekki gefa út nýja skömtunarbók á hverju ári í stað þess, að láta þá gömlu vera með í það óendanlega. — Það fer að vera erfitt að átta sig á þessari skriffinsku allri saman og það fer heldur ekki hjá því, að fólk glati þessum gömlu plöggum. Og hvað á þá að gera?- Svelta ,eða ganga klæðlaus- ari, en flestir verða, þótt þeir eigi og k.unni að nota allan þenna aragrúa af reitum? • Gagnlausir skömtunarmiðar AÐ ÞESSU sinni leiði jeg hjá mjer, að birta þær umkvart- anir allar, sem komið hafa fram í sambandi við skömtun- ina, þótt margar sjeu rjettmæt ar og skömtunin þurfi lagfær- ingar við. Einu atriði er þó ekki hægt að ganga alveg framhjá og það eru gömlu skómiðarnir, sem nú eru orðnir ónýtir. Fjöldi.manns, sem ekki fjekk við sitt hæfi á fæturna af þeirri einföldu ástæðu, að það var ekki til, geymdi þessa miða í þeirri von, að þeir gætu notað þá einnig eftir áramótin. Skómiðar og fatnaðarmiðar hafa verið í gildi ár eftir ár, þar til nú. Að vísu koma nýir skómiðar í staðinn, en þeim, sem afskift ir urðu á síðasta ári og fengu ekkert við sitt hæfi út á skó- miðana, finst eins og þeir hafi verið snuðaðir. Og má enda til sannsvegar færa. • Skrá yfir ný símanúmer H. B. SKRIFAR: — „Vík- verji sæll: Gleðilegt ár og þökk fyrir margt þarflegt á hinu liðna. Nú vildi jeg biðja þig að biðja blessaðan bæjarsímstjór- ann að auglýsa í blöðum bæj- arins hin nýju símanúmer frá 80-000 og uppúr, sem bætgt hafa við upp á síðkastið. Menn geti þá klippt þetta úr blöðunum og lagt í símaskrána. Sparað sjer ergelsi, stúlkunum í nr. 1000 mikið óþarfa arg og bölvað símastjórninni örlítið minna. Þinn einl. H. B“. • Þörf ábending ÞETTA VAR þörf ábending hjá H. B. Það hafa bætst við 2000 ný símanúmer. Þótt ekki sje komið í samband við þau öll ennþá, þá mun. ákveðið hverj- ir fá númerin og á næstu vík- um og mánuðum komast þessi nýju númer í samband við bæj arkerfið. Hvort, sem það er nú heppi- legt að birta um þetta auglýs- ingar í blöðum, eða ekki, þá er hitt víst, að ekki verður kom ist hjá að gefa út aukaskrá, eins og stundum hefir verið gert áður. Það þarf að gera fyr en síð- ar. — • Önnur góð tillaga í BRJEFI FRÁ G. er drepið á annað atriði, sem stundum hefir verið minst á hjer, en aldrei fengist lagfæring á. Góð vísa er aldrei of oft kveðin og hjer er því brjefið frá G: „Þeir bæjarbúar sem oft gera sjer það til dægrastytt- ingar að fara í bíó, munu án efa vera sammála um þau ó- þægindi sem óstundvísi fjölda kvikmyndahúsgesta veldur í byrjun sýningar. Jeg geri ráð fyrir að mikill meirihluti þess fólks, sem sækir kvikmyndahúsin, myndu vera eigendur húsanna þakk- látir fyrir umbætur í þessum efnum. Heppilegt fyrirkomulag „VILDI JEG í því sambandi benda á fyrirkomulag sem tíðk ast e.rlendis og myndi eflaust henta hjer, en það er að það fólk sem kemur eftir að sýning hefst, verði látið bíða þangað til frjetta- eða aukamynd er lokið, en að þá sje kveikt og þeim sem komu of seint gert kleift að komast í sæti sín án þess að troða öðrum gestum um tær eða spilla skemtun þeirra“. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . Þegar Truman vinnur embættiseið sinn En við höfum það sameiginlegt með hinum fólksfleiri og öflugri þjóðum, að meðal okkar er flokkur manna, sem miðar afstöðu sína til hins væntanlega varnarbandalags út frá alt öðru en hagsmunum þjóðar sinnar. Með öllum vest- rænum lýðræðisþjóðum starfa nú deildir kommúnistaflokks- ins. Hefur þeim öllum, sem kunnugt er, verið falið það verk- efni, að reyna eftir fremsta megni, að spilla fyrir öllum sam- tökum lýðræðisþjóðanna, og gera þau tortryggileg eftir því sem þeir framast geta. Samkvæmt þeim fyrirmælurrf? sem þessar deildir hinna ciþjóðlegu samtaka kommúnista hafa fengið, er þeim uppá- lagt að kalla allar varnarráðstafanir lýðræðisþjóðanna stríðs æsingar. En reyna jafnframt að læða þeirri skoðun inn hjá almenningi að frá því ríki, sem gleypt hefur hverja þjóðina af annari, á síðustu árum, sje engra árása eða ófriðar að vaenta. Þessu friðar- og flærðar tali svaraði breski verkamanna- flokkurinn fyrir nokkru, með rökstuddu áliti, þar sem sýnt er fram á, að ófriðarhættan í heiminum í dag stafar frá yfirráðamönnunum í Moskvu og engum öðrum. Svo vakandi er skilningur íslensku þjóðarinnar orðinn á st&rfi og stefnu kommúnista, bæði alþjóðasamtaka þeirra o« hinnar íslensku flokksdeildar, að velílestir íslendingar skilja, að þann dag, sem kommúnistar marka stefnu lands- manna í utanríkismálum, á íslenskt sjálfstæði skammt eftir olifað. Það er eindreginn vilji íslendinga að halda vinfengi og samvinnu við hin vestrænu lýðræðisríki. Jafnvel þeir reykvískir mentamenn, sem skemst eru komnir í skilningi á eðli og starfi hins alþjóðlega kommúnisma, samþyktu skveðna yfirlýsirigu um þann vilja sinn, á stúdentafund- inum á sunnudaginn. En kommúnistar sem fundinn sá.tu töldu sjer þann kost yænstari, að hallagt að sömu skoðun, i þann svipinn. TRUMAN forseti mun vinna embættiseið sinn 20. þessa mánaðar. Þegar hann vinnur eiðinn, tekur hann formlega við æðsta embætti Bandaríkj- anna. Hann tekur við þessu embætti shmkvæmt yfirlýstri ósk þjóðar sinnar, en hann var kjörinn varaforseti 1944 og tók við forsetastarfinu eftir lát Franklin D. Roosevelts í apríl 1945. — Þegar Truman sór embættis eið sinn. sem varaforseti í janúar 1945, var friður enn ekki kominn á, og athöfnin fór því fram með minni hátíðar- blæ en siður hefir verið í Bandaríkjunum. Athöfnin fór fram á suðursvölum Hvíta hússins, og tiltölulega fáir voru viðstaddir. Sömu sögu er að segja af því þá er Truman tók við embætti eftir Roosevelt forseta. Bandaríkjamenn voru að vonum daprir eftir lát þessa mikla forseta, en nauðsynlegt var að Truman ynni embættis- eiðinn eins skjótt og mögulegt væri. Sama dag sem Roosevelt ljest, var Truman kvaddur frá skrifstofu sinni til Hvíta húss- íns, og þar vann hann eið sinn; að viðstöddurn örfáurn embætt-, ismönrium. • • GLÆSILEG IIÁTÍÖAHÖLD í AR verða naiwaauiain í sam- bandi við embættistöku Tru- mans forseta hinsvegar hin glæsilegustu. Þarna verða skrúðgöngur og ýmiskonar sýn ingar, og stjórnmálaerjurnar verða lagðar á hilluna að minsta kosti um stundarsakir, svo að þjóðin geti öll samein- ast um að fagna forsetanum. A friðartímum er mikið um að vera í Washington þegar forsetinn vinnur embættiseið sinn. Fólk streymir til borgar- innar í járnbrautum, bifreiðum og flugvjelum. Mikið er um opinber veisluhöld í borginni, og í ár verður auk þess mikil hljómleikahátíð. Þar koma meðal annars fram þekt sýmp- honíuhljómsveit, frægar dans- hljómsveitir, operusöngvarar og „stjörnur" úr leikhúsum, kvikmyndum og útvarpi. • • 1.000.000 MANNS HÁTÍÐAHÖLDIN hefjast að þessu sinni. er Alben W. Barkley varaforseti ekur til forsetans í Blair-húsi, en þar býr hann meðan viðgerð fer fram á Hvíta húsinu. Þaðan munu þeir aka saman til Capitol Hill, en á leiðinni þangað er áætlað að úm 1.000.000 manns hylli þá á Penrisýlvania Avenué. — Skömrím fyrir hádegi ganga forseti og varaforseti upp á pall þann, sem reistur hefir verið fyrir framan þinghöllina og þar sem þeir sverja embætt iseiða sína. Viðstaddir verða háttsettir embættismenn,' er- lendir sendiherrar, hershöfð- ingjar og flotaforingjar og konur þeirra. • • 5 STUNDA SKRÚÐGANGA EFTIR að Truman og Barkley hafa svarið embættiseiðana, flytur forsetinn ræðu, sem út- varpað verður um öll Banda- ríkin. Að því loknu ekur hann heim til sín ásamt konu sinni, en þar snæða þau hádegisverð ásamt örfáum nánustu vinum sínum. Að borðhaldinu loknu tekur Truman sjer stöðu á sjerstök- um palli, sem reistur ^efir verið fyrir framan Hvíta hús- ið, og þaðan horfir hann á skrúðgönguna, sem haldin er til heiðurs honum. Áætlað er að skrúðgangan standi yfir í fimm klukkustundir, en í henni munu taka þátt fulltrúar frá hinum 48 fylkjum Bandaríkj- anna. Flugsýning fer fram samtímis skrúðgöngunni. Hátíðahöldunum lýkur með dansleik, sem varaforsetinn venjul. er viðstaddur. Um 6,000 mánns hefir verið boðið á dans leik þennan, én samfara hon- urn fer frám mikil flugelda- sýning.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.