Morgunblaðið - 05.01.1949, Síða 14

Morgunblaðið - 05.01.1949, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. janúar 1949 U ftjórann til að drekka, svo að vínið rann niður skegg hans og gkvettist í augu hans. „Jæja, úr því við höfum lok- - -*ð öllum formsatriðum“, shgði Fíouge. „Er best að við snúum' okkur að spurningunum. — 'Hvaðan komuð þjer, senior?" En Don Francisko var ákveð ■ in.n í því að þegja. Rouge leit á varðmennina. Þeir tóku 'hægt upp hnífa sína. Annar f>eirra ljet hníf sinn strjúkast cftir vanga Don Francisko og „skar nokkur hár úr skeggi >ians. Spánverjinn starði á hár- »n, sem dutttu á gólfið og svita -*<erlur runnu niður enni hans. „Jeg var að spyrja yður, spurningar, senior“, sagði Jtouge mjúkum rómi. Spánverjinn starði á blik- andi hnífsblöðin og hraeðslan varð dyggðinni yfirsterkari. „Frá Port Royal“, muldraði +)ann. „Landar yðar eru kurt- eisari í framkomu en þjer“. Rouge gretti sig. Bandalag Spánverja og Eng 4endinga var henni ekki að . skapi. Hún vissi líka, að flest- =.*)■ Englendingar voru henni .sammála um það. Alt frá byrj un ófriðarins árið 1688, höfðu allir enskir hermenn og sjó- »nenn orðið að sætta sig við |»að, að verða bandamenn þeirr. ar þjóðar, sem þeir hötuðu frem ur öllum öðrum. Og þegar Eng iendingar fóru gegn Frökkum. áttu ensku foringjarnir oft fult í fangi með að hindra það, að rnenn þeirra gengju fyrst að Spánverjunum dauðum, áður en þeir sneru sjer að Frökk- unum. „Þá er jeg betri Englending ur en þeir“, svaraði Rouge, „því að jeg mundi helst hafa kosið að taka á móti yður með skambyssuskothríð um leið og þjer siglduð hjer inn á víkina“. „Þá mundi hafa farið fyrir yður eins og fór fyrir stall- bróður yðar, ljóshærða sjóræn ingjanum, sem Neilson skip- stjóri tók höndum. Yfirvöldin mundu láta hengja yður tafar- laust“. Rouge rauk á fætur og nam staðar fyrir framan Spánverj- ann. „Var hann ljóshærður?“ sagði hún. „Lýsið honum betur fyrir mjer. Var hann með gullið hár niður á herðar og andlit, eins og sjávarguðinn. sem stig inn ér til jarðar?“ „Þjer ýkið auðvitað“, sagði fípánverjinn, ,en annars stend- ur lýsingin heima“. „Heyrðuð þjer nafn hans? — IJjet hann Christopher? Eða Cristobal? eða Kit?“ Spánverjinn leit á hana. — Hann skynjaði í hvílíkri geðs hræringu hún var. Svo brosti hann ánægður. „Já, einmitt“, sagði hann. „Það var nafnið“. Rouge fanst hún alt í einu »missa allan mátt. Hún settist ^niður. „Voruð þjer vottur að því, að hann var hengdur?“ spurði hún lágri röddu. .„Nei, því miður“, sagði Spánverjinn. „Hann átti að mæta fyrir rjettinum sama dag og við sigldum á buft. Það var sagt, að einhver ensk hefð 47. dagur arfrú ætti að vitna á móti hon um. Hún hafði orðið fyrir sví- virðingum af hans hálfu. Það var varla nokkur vafi á því, hver útkoman mundi verða“. Rouge var rokin á fætur afíur. ,.Rosalind“, hrevtti hún út úr sjer. „Auðvitað hefir það; verið Rosalind Parish. Hepni er trúandi til als, skækjunni þeirrf arna“. • „Jú, það var einroitt nafn- ið“, sagði Don Francisko. — „Seniora Parish. Þjer eruð auðsjáanlega kunnugar heldra fólkinu í Port Roval41, Rouge gaf varðmönnunum bendingu með handleggnum. „Takið hann burt“, sagði hún. Þegar Spánverjinn var far- inn úr káetunni, sat Rouge hreyfingarlaus við borðið og starði í gaupnir sjer. — Hún fann. hvernig tárin þrýstust undan augnalokum hennar og og loksins gafst hún upp, kast- aði sjer fram á borðið og fór að gráta. Þegar við hittumst síðast, hugsaði hún, ljet jeg skjóta á hann í þeim tilgangi að drepa hann. Hvers vegna græt jeg hann þá núna? Hún varð að fá næði til að hugsa. Hún varð að gera sjer ljóst, hvernig á þessu stóð. En henni gekk illa að hugsa. Hún sá Kit fyrir sjer þar sem hann hefði gengið upp á hengingarpallinn, Ijós- hærður, hnarreistUr og stoltið lýsandi úr hverri hreyfingu hans. Hann óttaðist ekkert. — Ekki dauðann frekar en annað. Hún sá böðulinn fyrir sjer ganga til hans og kaðalinn í höndum hans.... Hún gat ekki hugsað lengra. Hún gat ekki hugsað sjer Kit hanga í lausu lofti niður úr kaðlinum. Hún þrýsti hnúun- um að augum sjer til að sjá ekki meira. Hún fleygði sjer fram á eikarborðið og grjet há- stöfum. En þá datt hej^t ann- að í hug, sem henni enn þungbærara. „Það var jeg sem gerði það að verkum, að Seaflower var ekki bardagafært“, hvíslaði hún. „Neilson hefði aldrei get- að sigrað Kit í jöfnum leik. En jeg.....ó, guð minn, jeg ..“. Hún starði stórum, grænum augum fram fyrir sig. Hún sá alla atburðina fyrir sjer aftur, Skip hennar sjálfrar logandi •stafna á milli, og skipverja hennar, þar sem þeir skutu logandi eldkúlum að Sea- flower. Það var hraustlega leikið af hennar mönnum, en það hafði éinnig bundið enda á líf Kits Gerardo. Það hefði veíiíð sama, þó að hún sjálf hefði hjálpað böðlinum að binda kaðalinn um háls hans. Ef Seaflower hefði sloppið við síðustu skothríðina frá hennar skipi, hefði Kit getað sigrað Neilson. Vissulega hefði hann þá borið sigur úr býtum. Það var henni að kenna, hvernig komið var. Hún sjálf, Jane Golphin hafði drepið manninn, sero hún elskaði. Já, drepið hann. Og hvers j vegna? Vegna þess, að hann hafði kveikt í húsi hennar, enda þótt hann vissi ekki að hún átti það. Og vegna þess að hann hafði eyðilagt ekrur hennar samkvæmt fyrirskipun um frá stjórn lands síns í op- inberri herferð. Húsið var sannarlega ekki þess virði. að Kit ætti skilið að láta lífið fyrir það. Hvað var ein sykur ekra, eða tíu þúsund sykur- ekrur samanborið við einn koss af vörum hans? „Vegna þessara smámuna", hvíslaði hún, „elti jeg hann yfir höfin með haturshug til þess að ráða niðurlögum hans. Ó, Kit .... elsku Kit.......“. ÍRödd hennar kafnaði í grát- (hviðunum og hún barði hnef- • unum í borðið í sífelli. Hún grjet lengi vel, þangað Itil henni fanst táralindir sín- j ar vera þornaðar. Þegar hún I loksins ætlaði að standa á fæt- ur, fann hún sjer til mikillar undrunar, að hún hafði ekki krafta til að stíga í fæturna. Hún gat hvorki hrært legg nje ‘lið. Hún, sem hafði altaf stært sig af því að þekkja ekki kven legan veikleika hjá sjálfri sjer. Henni varð það nú ljósara en nokkru sinni áður, að hún var kona, gædd kvenlegum tilfinn ingum og hún gat fyllilega við- urkent með sjálfri sjer, það, sem hún hafði að vísu lengi vitað, en ekki viljað kannast við, að hún elskaði Kit Gerardo af öllu sínu hjarta. Hún sat hreyfingarlaus í myrkrinu og starði í gaupnir sjer, Hugsanir hennar fóru enn á rás. „Jeg fer aftur til Port Royal“, sagði hún við sjálfa sig. „Jeg leita Rosalind Parish uppi og drep hana“. Hún stóð upp og gekk út á þilfarið. „Venda“, sagði hún við manninn, sem stóð við stýrið. Maðurinn starði á hana og gapti af undrun. „Venda skip- inu?“ sagði hann. „Já“, sagði hún. „Við förum aftur til Port Royal“. Maðurinn starði enn á hana nokkra stund og ypti síðan öxl- um. Svro lagði hann lófana upp að munninum og kallaði: — „Reiðubúnir að venda“. Skipverjarnir þustu hver á sinn stað. Stýrimaðurinn sneri hjólinu á hljeborða. „Betur á hljeborða“, kallaði hann og skipið snerist við. Stundu seinna sigldi það út úr víkinni. Þau fengu meðvind alla leið- ina og eftir þrjá daga lagðist skipið inn á litla vík í nánd við Port Royal. Rouge skipaði svo fyrir, að þeir skyldu bíða sín þar, þangað til hún kæmi aftur. Ef hún væri ekki kom- in aftur að fjórum dögum liðn- um, skyldu þeir sigla á burt án hennar. I Síðla dags,. þennan sama da- reið lafði Jane Golphin inn í Port Royal. Hún var klædd glæsilegum reiðbúningi. Fólk, sem mætti henni, heilsaði henni undrandi. Alla langaði til að vita, hvers vegna hún hafði farið svo skyndilega og hvar hún hafði verið þgnnan síðasta hálfan mánuð. í leit að gulli eftir M. PICKTHAAi 52 " ’ sem eldur hafði logað en var nú dauður og rjett hjá nokk- uð af brenni. Og Leifur starði á þetta allt, athugull og viðbúinn. Innan úr tjaldinu heyrðust stöðugt stunur og kvein. Hljóð, sem hann hafði svo oft heyrt frá vörum deyjandi manna. Um tuttugu skrefum fyrir aftan stóð Villi náfölur í fram- an og hjá honum báðir hestarnir, Blesi og Brandur. Farið ekki þangað, sagði Villi. Jeg veit, að þetta er annarhvor þeirra .... og þetta er gildra. Þeir bíða eftir yður. Snúið þjer við áður en það er orðið of seint. Stundarkorn hikaði Leifur. Ef þetta væri nú gildra? Ef þeir biðu hans inni í tjaldinu með byssumar tilbúnar? Og þó, — hann gat ekki þolað þessi vein. Þau gengu gegnum merg og bein og hrópuðu á hjálp. Hann hikaði ekki leng- ur. Læknirinn kom upp í honum. Hann varð að fara og hjálpa þessum þjáða manni. — Bíddu nú við, Villi, sagði hann hörkulega og gekk rekleitt að tjaldinu. Ef nokkuð kemur fyrir, þá hika jeg ekki við að hleypa öllum skotunum af. Innan stundar var hann kominn alyeg að tjaldinu. Og hann lyfti skörinni upp. Ef þessi sem inni var hafði illt í huga, þá fór hann óvar- lega að, því hann lá þar grafkyrr, eins og skotspjald. Hann hreyfði sig ekki, svo að Leifur færði sig varlega innar i tjaldið. Hann sá, að maðurinn var rænulaus, og að það var Brown. Leifur staðnæmdist og leit á óvin sinn, sem var nú undir \ ald hans lagður. Hjerna lá hann þá þjófurinn Brown, sem hafði stolið leyndarmáli hans og hafði ætlað að myrða hann. — Hefði jeg vitað, að það varst þú, sagði Leifur bitur- lega, þá hugsa jeg ekki, að jeg hefði komið að tjaldinu. Þá hefðirðu mátt veina, þangað til hrafnarnir hirtu þig. Þú hefðir ekki átt betra skilið. Hann færði sig út úr tjald- inu, sneri svo enn einu sinni við á hjálparvana mann- skepnuna. -<tótl?up — —Jæja, þar gleipti jeg flibba- hnappinn minn. Þctta er senni lega í fyrsta sinn, sem jeg veit, hvar hans er að leita. ★ Vitur hundur Maður einn í Lancasthire í Englandi á hund, sem hjálpar honum við heimilisstörfin og vekur hann altaf á morgnana. Áður en maðurinn fer að sofa á kvöldin, setur hann vatn í pott á rafmagnsplötu. Á ákveðn um tíma á morgnana ýtir hund urinn með loppunni á takkann og kveikir á plötunni. Þegar vatriið byrjar að sjóða fer hann inn til húsbónda síns og vekur hann. ★ Það var mánaðarfrí í skólan- um. Pjetur og Jonni í 11 ára H.. hoppuðu af kæti. en svo þegar þeir mættu Sigga, sem var í 11 ára J, var hann með ólundarsvip. — Hvað gengur eiginlega að þjer, spurðu þeir undrandi, finst þjer ekki gaman, að það skulí vera mánaðarfrí í dag? — Nei, sagði Siggi önugur, kennarinn okkar er veikur, svo að jeg átti frí hvort sem var. ★ Svertinginn Sambo sat fyrir utan kofann sinn og var að borða melónu, þegar nágranni hans, Bimbo, kom hlaupandi og hrópaði: — Sambó, það var krókódíll að enda við að gleipa konuna þína. Hm, umlaði í Sambo, og hann hjelt áfram að borða. — Fíflið þitt, hrópaði Bimbó, heyrirðu ekki, hvað jeg er að segja þjer. Það át krókódíll konuna þína. Og þú virðist als ekkj neitt sorgbitinn. Sambo leit nú upp og sagði ofur rólega: — Bíddu bara svolítið, þang að til jeg er búirin með mel- ónuna mína, þá skaltu fá að sjá sorg í lagi. m fjOWTVR GETIIR ÞAB e>Jl RWERF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.