Morgunblaðið - 18.03.1949, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. mars 1949.
MORGUyBLAÐlÐ
7
Innflutningsáætlunin í ár nemur g06 íbúðarhús verii
Samtals 417,5 miljónum kióna !byg98 á j,essu ári
FJÁRHAGSRÁÐ hefir lokið við
innflutningsáætlun fyrir j'fir-
standandi ár og er áætlað að flutt
verði til landsins á árinu fyrir
386.5 milljónir króna, en í fyrra
var innflutningurinn áætlaður
310 milljónir kr. Duldar greiðsl-
ur eru áætlaðar 90 millj. kr., en á
móti eru duldar tekjur á 59.0
milljónir og mismunur þar á
gjöldum og tekjum því 31.0 millj.
kr. Alls gerir áætlunin ráð fyrir
417.5 millj. kr., en í fyrra var
flutt inn fyrir 401.0 millj. kr.
Greinargerð fjárhagsráðs.
í greinargerð fjárhagsráðs fyr-
ir innflutningsáætluninni segir
m. a.:
„Innflutningsáætlun þessi fyr-
ir árið 1949 er gerð eftir sömu
grundvallarreglum og áætlun
síðastliðins árs að því leyti, að
hún er áætlun um innflutnings-
og gjaldeyrisþörf ársins. Hún seg
ir því ekki til um væntanlegar
leyfisveitingar, þ. e. útgefin inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi á ár
inu, því að inn á hana koma fram
lengingar leyfa frá síðastliðnu
ári, og á hinn bóginn færist
nokkuð af leyfisveitingum þessa
árs yfir til næsta árs.
Þegar áætlun er gerð um inn-
flutningsþörf, verður að styðjast
við almennar staðreyndir s. s.
fólksfjölda, gildandi skömmtun-
arreglur, báta og skipastól á veið
um, framleiðslumagn, fyrirfram
ákveðna fjárfestingu o. s. frv.
Þá hefur verið höfð hliðsjón
á méðalinnflutningsmagni s. 1. 5
ára samkvæmt verslunarskýrsl-
um hagstofunnar.
En mest hefur verið stuðst við
innflutningsáætlun ársins 1948 og
það, sem í ljós hefur komið við
framkvæmd hennar. Sú áætlun
var að vísu frumsmíð, en eins
. og sjá má hjer á eftir, stóðst hún
þó í meginatriðum, og samning
hennar og framkvæmd hefur því
orðið gagnlegur undirbúningur
þessa staiís.
Eftir þessum leiðum hefur tek-
ist að nokkru leyti að ákveða
magn innflutningsins, í stað þess
að í áætlun fyrra árs var að lang
mestu leyti áætlað verðið eitt.
í I. flokki áætlunarinnar eru
kornvörur allskonar, svo og fóð-
urvörur. Heildarupphæð þessa
flokks er nú 19.7,5 millj., en var
í fyrra 25.4 millj.
í II. flokki eru ávextir allir,
svo og laukur og kartöflur. Þess-
ar vörur er nú áætlað að flytja
„nn fyrir 4.6 millj. kr., en í fyrra
var áætlunin 5.9 millj.
í III. flokki er kaffi, te, kakó,
sykur og kryddvörur allskonar.
Áætlað er, að þessar vörur
verði nú fluttar inn fyrir kr. 8.4
millj. á móti 6.6 millj. 1948. —
Leyfi námu 1948 kr. 8.1 millj..
en gjaldeyrissala var kr. 6.8 millj.
IV. flokkur. Þar eru vefnaðar-
vörur allskonar, garn og tvinni,
og er innflutningur þeirra áætlað
ur kr. 34.0 millj. á móti kr. 20.0
millj. á upphaflegu áætiuninni
1948. Leyfi veitt í þessum flokki
1948 voru kr. 24.8 millj. og gjald-
eyrissala kr. 21.6 millj.
í V. flokki er skófatnaður áætl
aður fyrir kr. 5.4 roiilj. í stað
5.1 millj. í fyrra.
í VI. flokki eru byggingarvör-
ur allskonar, svo og smíðajárn o.
fl. Heildarinnflutningur í þessum
flokki er inú áætlaður 49.5 millj.,
en var áætlaður kr. 37.6 mijlj. í
fyrra. Leyfisveitingar á. árinu
1948 urðu kr. 55.5 miilj.og gjald
eyrissala 47,9 millj.
VII. flokkur. í þesáum flokki
eru kol, olíur og útgerðarvörur
Rítíegar áætlað til
rteytsluvara en I94S
og veiðarfæri yfirleitt að undan-
skildu efni til veiðarfæragerðar.
Er áætlað að þessar vörur verði
fluttar inn fyrir kr. 65.9 millj.
á móti 53.8 millj. í fyrra.
í VIII. flokki eru landbúnað-
arvjelar og ýmsar landbúnaðar-
vörur.
Heildaráætlun þessa flokks er
15.1 millj. kr. nú, en var s.l. ár
kr. 9.6 millj.
I IX. flokki eru skip, vjelar.
allskonar og varahlutir til þeirra, |
varahlutir í bifreiðar og hjólbarð |
ar. Þessi flokkur er nú áætlaður
alls kr. 63.7 millj., en var áætl-
aður kr. 64.3 millj. 1948. Leyfis-
veitingar í þessum flokki urðu
árið 1948 kr. 75.9 millj., en gjald-
eyrissala kr. 57,5 millj.
X. flokkur. Búsáhöld. — Smíða
tól. í þessum .flokki er áætlunin
6.1 millj., en var 1948 3.8 miilj.
Leyfisveitingar á f. ári urðu 6.5
millj., en gjaldeyrissala bank-
anna 5.0 millj.
XI. flokkur. í þessum flokki
teljast hráefni til allflestra iðn-
greina, þó ekki til vefnaðarvöru-,
timbur- nje járniðnaðar. Alls er
gert ráð fyrir, að inn verði flutt
hráefni til iðnaðar fyrir kr. 21.7
millj., en 16.2 í fyrra. Leyfis-
veitingar 1948 urðu kr. 26.9 millj.
en gjaldeyrissala bankanna 22,5
millj.
í XII. flokki eru hreinlætis-
og snyrtivörur, og er áætlunin
1949 kr. 1.6 millj., en vaf 2.0
millj. 1948.
XIII. flokkur. Pappír og papp-
írsvörur. I þessum flokki er allur
pappír og pappírsvörur að und-
anskildum pappír og pappa í
fiskumbúðir, svo og bækur og
timarit. Er innflutningur af þess-
um vörum áætlaður alls kr. 6.2
millj. í ár, en var áætlaður 4.8
millj. i fyrra. Leyfisveitingar
1948 urðu kr. 7.8 millj., og gjald-
eyrissala ársins 7.5 millj.
I XIV. fiokki eru hljóðfæri,
nótur og aðrar músikvörur, og
er heildaráætlunin 600.000 krón-
ur, en var árið 1948 kr. 250 þús.
Leyfisveitingar á árinu 1948 urðu
0.8 millj. og yfirfært var 0.6
millj.
I XV. flokki eru alls konar raf-
magnsvörur, raflagnaefni, raf-
magnsbúsáhöld og heimilisvjel-
ar, síma- og símstöðvarefni, svo
og efni til rafvirkjana og í raf-
veitur og radioflugþjónustu. Alls
er þessi flokkur áætlaður 45.5
millj. árið 1949, móti 20.5 millj.
á f. á Leyfisveitingar 1948 urðu
kr. 25.0 millj., og gjaldeyrissala
18.8 millj.
XVI. flokkur TJr, klukkur, úr-
smiðaefni og gull og silfur til
sniíða er nú áætlað 0.8 millj., en
j var áætlað 0.7 millj. á s. 1. ári. —
Leyfi voru veitt kr. 0.8 millj.,
og gjaldeyrissala kr. 0.6 millj.
XVII. flokkur. Undir þennan
flokk er talið: Tóbak, eidspýtur,
I áfengi, viðtæki og varahlutir, til-
búinn áburður og viðgerðarefni
o. þ. h. fyrir rikisútvarpið. Er
innflutningur í þessum flokki
alls áætlaður kr. 16.1 millj. en
var 1948 áætlaður kr. 12.0 millj.
Leyfisveitingar urðu alls 16;4
millj. í þessum flokki 1948, en
gjaldeyrissala kr, 14.4 millj.
I XVIII. flokki eru, ýmiskonar
vörur, sem ótaldar eru í flokk-
unum hjer að framan, svo sem
lyfjavörur, hjúkrunargögn, lækn
inga- og rannsóknartæki, kvik-
myndir, gléraúgu, vörur til sjer-
stakra framkvæmda, sem kynnu
að verða ákveðnar síðar á árinu
og þurfa gjaldeyri, ennfremur
smjör o. m. fl. En innfiutningur-
inn í þessum flokki áætlaður kr.
21.4 millj., og er það sama upp-
hæð og áætlað var á fyrra ári.
Leyfi i þessum flokki voru 1948
kr. 24.0 millj., en gjaldeyrissala
kr. 17.1 millj.
Duldar greiðslur. Auk gjald-
eyris- og innflutningsáætlunar
hefur svo verið gerð áætlun um
duldar greiðslur, bæði gjöld og
tekjur. Gjöldin eru áætluð 90
millj. kr. en tekjurnar 59 millj.
gjöld umfram tekjur þvi 31.0
millj. kr.
Kosningaaidurinn 23
ár í Danmörku
Einkaskeytí til Morgunblaðsins.
KAUPMANNAHÖFN, 17.
mars: — Samkomulag náðist
í gærkveldi milli lýðræðisflokk
anna í Danmörku um kosninga
aldurinn, en um það mál hafa
deilur staðið árum saman. -
Vinstri flokkurinn hefir hald-
ið fast við, að kosningaaldur-
inn ætti að vera 25 ár.
Samkomulag flokkanna er í
aðalatriðum þetta:
Störfum stjórnlaganefndar-
innar verði hraðað, þannig að
hægt verði að ganga frá breyt-
ingum á stjórnarskránni á Rík-
isþinginu 1949—1950.
Kosningaaldur til Ríkisþings
ins færist úr 25 í 23 ár.
23 ára kosningaaldur verði
tekin upp í bæjar- og sveita-
stjórnarkosningum nú þegar.
Hans Hedtoft forsætisráð-
herra hefir látið svo ummælt,
að væntanlega geti þingið geng
ið frá stjórnarskrárbreytingun-
um er það kemur fyrst saman
eftir 100 ára afmæli grundvall-
arlaganna. Samkomuiagið um
kosningaaldurinn hafi rutt að-
alhindruninni úr vegi. Gangi
þessi mál eftir áætlun verða
tvennar kosningar til Ríkis-
þingsins vorið 1950.
ftæða Gurmars Thoradto á Alþíngii 4 -p*
,.ÞAÐ ER lágmarkskrafa Reykjavíkurbæjar, að leyföar "VO*«ð4
byggingar 600 íbúða á þessu ári,“ sagði Gunnar Thoroddsen- A
Alþingi í gær i umræðunum um húsaleigulögin. Hrakti Gunnur
Th. með tölum og og útreikningum fullyrðingar Finns J-ónssonar
að Fjárhagsráð hefði gefið leyfi á s.l. ári fyrir öllum iteúð-
arhúsabyggingum, sem væru 130 fermetrar og minni.
„Dagbókin mín'
eftit Hargaret
u
lllagenguraðnáupp
, Jhorlak Vlking
Einkaskeyti til Morgisnblaðsins.
KAUPMANNAHÖFN 17. mars:
— Flakið af dönsku flugvjel-
inni „Torlak Viking“, sem fórst
á Eyrarsundi fyrir nökkru, var
hafið úr sjó í gær. Skrokkur
vjelarinnar er mikið skemdur
og allir spaðar beygðir.
Þegar unnið var að því að
hefja flugvjelina úr sjó fjell
ættingi eins spanska farþegans
í sjóinn og var nauðuglega
bjargað.
Þegar fara átti að draga flak
ið til lands slithúðu dráttar-
Vírar og flakið sökk_í sjó á,.ný,
áður en líkunum haíoi verið
náð úr því. Tilraunir til að
hefja flakið á ný byrjuðu í dag.
— Páll.
Synjað um 356 íbúðir '?----------------------------
Upplýsti Gunnar Thoroddsen árás var hrundið og •eins-ætt+t
að fjárhagsráð hefði veift leyfi. þingmenn að hrinda þessar.i A-
til að byggja 319 ibúðir í Rvík rás á eignarjett manna yfir hú*
en synjað leyfum fyrir 356 í-|um sínum. — Umræðum var
búðarhúsabyggingum. — Af frestað.
þessum 356 íbúðum sem synj-
að var um að byggja voru 89
stærri en 130 ferm. En þó er
það staðreynd að fjárhagsráð
hefir synjað um hátt á þriðja
hundrað byggingum innan við
130 ferm. á s. 1. ári.
Fjekk bara að byggja
kjallarann!
Upplýsti G. Thoroddsen, að
sótt hefði verið um leyfi til að
byggja tvö fjögra hæða íbúðar
hús, svipuð þeim, sem bærinn
hefir bygt undanfarin ár með
40 íbúðum hvert.
Fjárhagsráð synjaði um leyfj
fyrir öðru þessara húsa, en
leyfði byggíngu hins með því
skilyrði að ekki yrði bygt meir
en kjallarinn á árinu 1948!
Að sjálfsögðu taldi bærinn
sjer ekki fært að hefja fram-
kvæmdir á slíkum grundvelli.
Ef Fjárhágsráð hefir neitað
um fjárfestingarleyfi vegna1
þess, að menn hefðu ekki feng- J
ið lóðir hjá bænum, þá væri
það í algeru ósamræmi við
samning Fjárhagsráðs og
bæjarráðs. — Staðreyndin er
sú, að 8. mars 1948 gerðu fjár-
hagsráð að bærinn samkomu-
lag um að fyrst skyldi fjár-
hagsráð úthluta leyfum til í-
búðarhúsabygginga, en síðan
skyldi bærinn úthluta lóð-1
unum. — Fyrir þessu
er skriflegt samkomulag og get
ur F. J. sjeð það hvenær sem
hanp vill-
Taldi G. Th., þessa afgreiðslu
Fjárhagsráðs á umsóknum
Reykjavíkurbæjar síðasta ár
algerlega óviðunandi-
Samkv. útreikn. hagfræðings
bæjarins þá þyrfti í minsta
lagi að byggja 5—600 íbúðir
á þessu ári til að fullnægja
fólksfjölguninni. Fjárhagsráð
hefði aðeins veitt leyfi fyrir
319 íbúðarhúsabyggingum á S.
1. ári og uppi voru raddir um
að takmarka þessa tölu enn
frekar á þessu ári.
Slíkt væri algjörlega óviðun
andi, því að eins og ástandið
er í húsnæðismálunum í Reykja
vík, þá horfir til hreinna vand
ræða ef slík takmörkun yrði
gerð.
Árás á eignarjettinm
Sigurður Kristjánsson mínti
á þáð, að eiiiú sinni hefo'i átt
áð taka umráðárjettinn ýfir
jörðum af jarðeigendum. Þeirri
KOMIN er út hjá Bókfellsút-
gáfunni bók, sem gera'’3Tá
íyrir að hljóti miklar vinsæM-
ir yngri kynslóðarinnar,
en þó einkum litlu stúlknanna.
Þetta er „Dagbókin min“, eftir
iitlu kvíkmyndastjörnuna Mar-
garet O’Brien.
Margaret O’Brien hefir þeg-
ar hlotið heimsfrægð-íyrir-leik
sinn í kvikmyndum Og hafa að-
dáendur hennar um allan heim
tekið „Dagbókinni" með mikl-
um fögnuði. Margaret O’Brien
segir þar frá því, sem á dag-a
hennar hefur drifið. Hún segir
þar m. a. frá brúðunum sínum
og öðrum leikfjelögum -og
einnig frá því, þegar hún leik-
ur í kvikmyndum. í bókinni ern
margar myndir af henni óg
einnig fjöldi teikninga eftir
hana. Formála að bókinni skrif-
ar kvikmyndaleikarinn L.iottM
Barrymore.
Þrír tieiðursf jelapr
Þjóðræknis-
fjelagsins
Á NÝAFSTÖÐNU þingi Þjó>ð-
ræknisfjelags íslendinga í
urheimi, sem haldið var -4
Winnipeg um siðustu tnánað;*
mót, voru kjörnir þrir heiðurs
fjelagar: Dr. P. H. Thorlákssox*
yfirlæknir í Winnipeg, sem er
Kanadaþegn, Friðrik Hallgrhns
son, sem er sonur Reykjavíkur,
eins og segir í I.öghfrgj óg GúÁ
mundur Grímsson dómari, sen»
er Bandaríkjaþegn.
Stjóm Þjóðræknisfjelagssno
Á þjóðræknisþinginu var
kjörin ný stjórn og skipa hana
þessir menn: Síra Philip M.
Pjetursson forseti, T. -J. Oieson
varaforseti, J. J. Ríldfell skrif
ari, Ingibjörg Jónsson varaskrkl
ari, Grettir L. Jóhannson fje-
hirðir, Grettir Eggertsson vara
f jfchirðir, , Guðmann Leyy „jár
málaritari, Ánii G. Eggertsson
varafjármálaritari. Ólafur Pjel
útessoh skjalavörður og ésnÖúv-
„köðendur Steihdór Jaköhs„on
og J. T. Beck.