Morgunblaðið - 16.06.1949, Blaðsíða 16
fEPUISÚtLIT — FAXAFLÖI:
Suð-arjstan kaldi, síðan stinn-
ingskaidL Skýjað og sumsstað-
ÓIIUGUR I Þjóðviljanum yfir,
að Landsíög taka til Kommúiv
ista. Sjá grein á bls. 2.
ar Ttgnmg.
133. tbl. — Fimmtudagur 16. júní 1949.
lílilahöldin 1 J.júní fara fram Helecoplerllugvjel é Reykjavíkurfluvelli
á Lækjarforgi og Austurvelli
i
iokkur orð m fyrirkomuiag þjóðháfíðarinnar
Á MORGUN, þjóðhátíðardaginn. verður þess minnst um iand
alit, að Iiðin eru fimm ár frá stofnun hins íslenska lýðveldis.
t'fcilefni af afmæli þessu, verða hátíðahöld um land allt. Hjer
í—Reykjavík verða þau með svipuðum hætti og verið hefur á
midanförnum árum.
Þjóðhátíðanefnd átti i gær~&-
dag tal við blaðamenn, um fyr-
wkomulag hátíðahaldanna hjer
í Reykjavík, en það er Reykja-
víkurbær, sem gengst fyrir
þeím eins og að undanförnu.
É hátíðabúningi
Þess er að vænta að bærinn
verði í hátíðarbúningi á þjóð-
hátxðardaginn. Opinberar bj gg-
ingar við Austurvöll, svo sem
Alþingíshúsið og Landssíma-
trfistð verða skreyttar, svo og
Hótel Borg. Einnig verður fót
stallur minnisvarða Jóns Sig
urðssonar skreyttur. Umhverf
is hann verða fimm íslenskir
fánar. Hver þeirra táknar eitt
ár lýðveldisins. Um allan bæ
rnunu þeir. flagga, sem stöng
eiga og fána, og skipin verða
lán-um skreytt stafna á milli.
Þjóðhátíðarnefndin hefur lagt
mj.kla áherslu á skreytingu bæj
arins og er þess að vænta að
almenningur geri og sitt til að
betta megi vel takast.
Þjóðhátíðin.
Þjóðhátíðin hjer í Reykjavík
hefst með skrúðgöngu frá Há-
skólanum að Austurvelli. Þess
er vænst að reykvískur almenn
íngur svo og fjelög fjölmenni í
gönguna með fána sína. og að
foreidrar lofi börnum sínu/n að
taka þátt í henni. Þjóðhátíð-
arnefnd hefur sjerstaka fána
til sölu handa börnum við mjög
vægu verði, en skátar annast
EÖlu þeirra. — Gangan Leggur
stund.víslega af stað kl. 1 30.
Á Aosturvelli
Þegar gangan verður komin
á Austurvöll, hefst hátíðamessa
í Dómkirkjunni, sem biskup
landsins flytur. Verður hátöl-
urura væntanlega komið fyrir,
kvo mannfjöldinn á Aust irvelli
geti hl'ýtt á messu þessa. í lok
hermar mun Þorsteinn Hannes-
son. söngvari, syngja eitt eða
fleiri Iög. Forseti íslands dvelur
nú erlendis sem kunnugt er,
og munu því handhafar for-
setavaldsins, forseti Hæstarjett-
ar, forsætisráðherra, og forseti
Sameinaðs Alþingis leggja blóm
sveig að fótstalli minnisvarða
Jóns Sigurðssonar.
Fjallkonan verður að þessu
sinni Regina Þórðardóttir leik-
kona, Kún mun flytja stutt á-
varp, er Tómas Guðmundsson
hefur samið. Nefndinni hefur
vísc ekki kómið það snjallræði
til hugar, sem sjálfsagt þykir
við slíka athöfn sem þessa, að
láta fara fram samkeppm um
það, hver skuli á hverjum tíma
verða Fjallkonan. Þetta er at-
hugandi fyrir þjóðhátíðarnefnd.
I xtfca er ekki borið fram í þeim
tilgangi að vanmeta hæfileika
leikkonunnar, síður en svo.
Athöfninni á Austurvelli lýk-
ur með ávarpi forsætisráðherra
eða viðskiptamálaráðherra. þar
eð líklegt er talið, að forsætis-
ráðherra verði fjarverandi úr
bænum.
Hlje verður svo á hátíða-
höldunum fram til kl. 8 um
kvöldið, vegna 17. júní-móts
íþróttamanna.
Á Arnarhóíi
Kvöldskemmtunin verður á
Arnarhóli. Þar verður ýmislegt
til skemmtunar, svo sem söngur
Karlakórs Reykjavíkur og Tón-
listarkórsins og loks Þjóðkórs-
ins. Dr. Páll mun ekki stjórna
song hans, vegna fjarveru —
Guðmundur Ásbjörnsson for-
seti bæjarstjórnar, ávarpav sam
komuna í nafni Reykjavíkur-
bæjar. Einar Pálsson leikari les
upp ættjarðarkvæði og Guð-
mundur Jónsson söngvari syng-
ur einsöng. Að lokum verður
svo dansað. Gömlu dar.sarnir
verða stignir í Ingólfsstræti, en
hinir nýju á Lækjartorgi, en
aðrar samkomur verða ekki í
bænum þetta kvöld. Þjóðhá-
tíðardansleiknum lýkur kl. 2
um nóttina. Þess skal að iokum
getið að Jón snari gamanvl na-
og revýuhöfundur, hefur gert
gamanvísur, sem Alfreð And-
rjesson leikari mun fara með á
dansleikjunum.
Fiskasýningin
2600 manns höfðu sjeð fiska-
sýninguna í sýningarsal Ás-
mundar Sveinssonar í gær-
kvöldi. Þarna gefst mönnum
tækifæri á að sjá yfir 30 er-
lendar fiskategundir og marg-
ar íslenskar. Á sýningunni kl.
6 og 9 eru sýndar kvikmyndir
frá laxaklaki og fræðslukvik-
mynd um hornsílið.
Hjer sjest er lielecopterflugvjelin var reynd s.l. þriðiudag.
Flugvjelin er að taka sig upp á Eeykjavíkurflugvellinum. —
(Ljósm. Mbl. Ol. K. M.)
fíldrei meiri þögn
í Þjóðviljanum
Um hvað töluðu þeir Einar og Gottwaid
I GÆR afsakar ritstjóri Þjóð-
viljan þögn sína, um för Einars
Olgeirssonar til Tjekkóslóvak-
íu með því, að Morgunblaðið og
Alþýðublaðið hafi ekki sagt frá
ferðalagi þessa þingmanns til
Prag árið 1945!!! Og spyr, hvers
vegna þessi blöð hafi þagað þá,
um ferðalag Einars. Þá hafi
hann þó „meðal annars talað
við sjálfan höfuðpaurinn Gott-
wald“_ Ekkert hafi þó verið sagt
í blöðunum af samtali Einars og
Gottwalds, segir Þjóðviljinn. En
„ekki vitað að Einar og Gott-
wald hafi breyst mikið síðan“!
Þjóðviljanum til leiðbeining-
ar er rjett að taka þetta fram:
1. Ur því hann telur, að það
hafi merkilegast gerst í ferð
Einars 1945, að hann hafi talað
við Gottwald, þá er ekki síður
merkileg þessi heimsókn hans
í Prag, er hann situr fund með
Gottwald einræðisherra.
2. Vissi Einar Olgeirsson það
sumarið 1945, að Gottwald var
tilvonandi ,höfuðpaur‘ í TJekkó
slóvakíu? Það var þó ekki fyr
en í febrúar 1948, að hann
braust til valda og hneppti þjóð
sína í kúgunarfjötra.
3. Ef Einar Olgeirsson hefur
Klámmyndirnar voru ekki
teknar á Keflavíkurflugvelli
ÞESS hefur verið getið í blöðum undanfarið, að hjer í bænum
væru manna á meðal klámmyndir, sem teknar mundu vera á
Keflavíkurflugvellinum.
Rannsóknarlögreglan hefur nú rannsakað hvernig í þessu
máli liggur og hefur sannast, að myndirnar, sem voru í nönd-
um nokkurra manna hjer í bænum, voru ekki teknar hjer á
landi.
*
Höfðu íslenskir menn, sem voru við nám erlendis, náð þar í
myndir þessar og komið með þær hingað til lands.
(Frjettatilkynning frá dómsmálaráðuneytinu),
fengið að vita tteð sumarið 1945
hvað var í aðsigi í Tjekkósló-
vakíu, þá er ekkert líklegra, en
hann hafi ýmiskonar markverð
tíðindi að segja frá síðustu sam-
ræðum þeirra Gottwalds um
„hvað koma skal“.
4. Hversvegna skyldi Þjóð-
viljinn, frjettablað kommúnista
neita sjer um að flytja tíðindi,
af svo merkum viðræðum sem
þeim, er að öllum líkindum
hafa átt sjer stað milli Einars
Olgeirssonar og Gottwalds nú?
5. Sennilega er það rjett hjá
Þjóðviljanum, að hvorugur
þeirra Einars eða Gottwalds
hafi mikið breyst að lyndis-
einkunn eða hugarfari, þau 4
ár, sem liðin eru, síðan Einar
talaði við Gottwald í fyrrra
skiftið. Að öðru leyti en því, að
Gottwald er orðinn einræðis-
herra, með vopnavald Moskva-
stjórnarinnar á bak við sig, en
var ekki nema óbi'eyttur kom-
múnistaforsprakki, eins og Ein-
ar, er þeir töluðust við sum-
arið 1945.
Er Þjóðviljinn með þessari
vísbendingu um að þeir hafi lít-
ið breyst, að gefa það í skyn,
að það sem Gottvvald er orðinn,
fyrir stuðning Moskvravaldsins,
það hafi Einar hug á að verða?
Voru þeir að ráðgast um það
Gottwald og Einar, hvcrnig
Einar ætti að fá sömu aðstöðu
hjer, eins og Gottwald hefir
öðlast í landi sínu?
Þannig er og verður spurt,
uns hinn fyrrum hraðmælti
Einar kann aftur að fá málið.
Handavinnusýning
Húsmæðraskóians
opnuð í dag >
HIN ÁRLEGA handavinnu-
sýning Húsmæðraskóla Reykja
víkur verður opnuð kl. 10 f.h.
í dag- Verður hún opin aðeins
tvo daga, í dag og á morgun,
frá kl. 10 f. h. til kl. 10 e.h. —
Hún er haldin í húsakynnum
skólans, Sólvallagötu 12.
Þarna er sýndur allskonar
saumaskapur og vefnaður, er
nemendur hafa unnið í vetur.
Handavinnusýning þessa skóla
á undanförnum árum hefir vak:
ið mikla athygli bæjarbúa, því
þar hefir verið sýnd svo einkar
vönduð og falleg vinna.
Húsmæðraskólanum verður
sagt upp n. k. sunnudag þann
19. júní.
Ferðir SVR17. júní
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND skýrði
frá því í gær, að Strætísvagnar
Reykjavíkur, myndu legeja á-
herslu á, að reyna að halda uppi
sæmilegum samgöngum við út-
hverfi bæjarins á þjóðhátíðar-
daginn.
Vegna þess að Lækjartorg
verður annar aðalskemtistaður-
inn, að kvöldi þjóðhátíðardags-
ins, verður að loka allri um-
ferð um mikinn hluta Miðbæj-
arins. Strætisvagnar, sem aka
inn að Kleppi, Sogamýri og til
annara staða hjer fyrir utan
bæinn, munu hafa endastöð við
Smiðjustíginn. Skerjafjarðar-
og Seltjarnarnesvagnarnir
verða við Dómkirkjuna og Foss
vognsvagn við Búnaðarfjelags-
húsið. Ekki murí verða unnt að
halda neinum ferðum upp; hjer
innanbæjar frekar en verið
hefur.
BUENOS AIRES. Kommúnista
flokkur Argentínu sendi nýlega
kommúnistaflokki Bandaríkj-
anna samúðarskeyti vegna
, dóms þess, sem upp var kveð-
inn yfir leiðtogum hans.
Slúdenfar!
ÞEIR íslenskir stúaentar, sem
ætla að taka þátt 1 norræna
stúdentamótinu, ættu að kaupa
aðgöngumiða þegar í dag, þar
sem mótið hefst 18. júní. —
Má að vonum gera ráð fyrir
mikilli þátttöku.