Morgunblaðið - 07.07.1949, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.07.1949, Blaðsíða 11
Fimratudagur 7. júlí 1949. MORGUNBLAÐIÐ 11 Sigurjén Sigurðsson Hinningarorð I DAG verður til moldar borjnn jarð- Heskur Hkami Sigurjóns Sigurðssonar trjesmíðameistara. Hann er tæddur að Holtakoti í Biskupstungum 30. júní 1869. Sonur hjónanna Sigurðar Guðmundssonar, sem lengi var bóndi að Gröf i Mosfellssveit, og k.,nu hcns Guðrúnar Þorláksdóttur. Sigurjón var starfsmaðu: mikill meðan þrek og kraftar leyfðu. Ung- ur lærði hann trjesbíði Ijjá Þorkeli Snikkara. Gerðist hann þá umsvifa- mikill húsasmiður hjer í Bcykjavík Um og eftir aldamótin. Meðal húsa, Sem hann sá um smíði á má nefna: Lækjargata 12 og 10, húsið s°m eyði- lagðist af eldi einmitt á þeirn stundu er hann skildi við þetta líf. Fleiri hús, 6em hann smíðaði má nefnda svo sem: Þórshamar, Vonarstræti 8 og 12, alt á sínum tima mjög glæsileg og myndarleg hús, ásamt mörgum fleiri húsum. Sumarhús myndarlegt reisti liann sjer, sem hann kallað’ Neðri- dal. Var þar alt með þeim myndar- skap sem honum var lagið, bæði um jarðrækt og annað. En bæði sá staður og heimili hans, bar vott um ástúð þá og umhyggju, sem hann bar fyrir sinni mikilhæfu eiginkonu; sem bar það þunga hlutskifti að vera fötluð, Seinnihluta æfi sinnar. Eftir að þrek hans til stærri átaka Vai' tekið að dvína, starfaði hann i mörg ár við fasteignamat Reykjavik- Ur, og var það lengi til húsa hjá hon- Um. Á bestu starfsárum sinum vann hann mjög að uppbyggingu Iðnaðar mannafjelagsins. Hann var einn af stofnendum h.f. Völundur, og var i stjórn þess til dauðadags. Ei.inig var hann einn af stofnendum Fiskiveiða- hlutafjelagsins Island, og einnig Sparisjóðs Reykjavíkur. Árið 1932 urðu þau hjómn fyrir þeirri þungu sorg að missa uppkomna Ikjördóttur sína, Helgu, sem þau unnu bæði mjög mikið. Þó að ellin væri farin að færast mjög yfir hann, þá fylgdist rann vel með málum þeim, sem efst voru á baugi með þjóð vorri, alt fram á síðasta dag. Og alltaf sama þýða og elskulega viðbótið, svo við sem fylgd nmst með honum, sannfærðumst um að „fögur sál er ávalt ung undir silfurhærum“. Rausn, myndarskapur og astúðlegt viðmót prýddi heimili hans, Og vin- irnir, sem heimsóttu hann á áttatiu 'ára afmælinu hans, tiltölulega kát- ann og hressann, þó rúmJ ggjandi væri, munu ekki hafa húist við, að hann ætti eJcki eftir nema þrjá hjer- yistardaga. En það er nú ávalt svo að við álítum að dauðinn hljoti altaf að vera svo langt i burtu fra okkur, þetta eina skref, sem áreiðanlegt er að við eigum öll eftir að stiga. Eftir að hunn misti sína ástriku og mikilhæfu eiginkonu og hfsföru naut, Elínu Jónatansdóttur, fyrir tæp iim fjórum árum síðan, og sjónin Var að mestu horfin og þrtkið var tekið að bila, þá var hann svo ham- ingjusamur að fá að njóta fórnfúsrar og ástríkrar umhyggju systurdóttur sinnar, sem reyndist honum hest þeg- ar mest á ló. Hún dvaldi hja honum síðustu stundirnar og lijelt í hendi hans þegar hin mikla stund, viðskiln- aðarstundin við þetta líf rarm upp. Sömu ástúðar og umhyggju hafði kona hans orðið aðnjótandi, hjá frænku hans, í veikindum sínum og þjáningum þeim, sem hún ' arð að liða áður en hún var kölluð hjeðan. Hin umhyggjusama frænka hans L Franihald á bls. 12. reiðafirði os Tími Við Breiðafjörð. í NÆR 20 ár hefur minkurinn lifað vilJtur á íslandi, og ekk- ert sem gert hefur verið, megn- að að hefta útbreiðslu hans. í þrjá daga hefui Tíminn skrifað um mink, tbl. 116—118, og telur sjerfræðingur blaðsins sig geta útrýmt honum á nokkr um árum, og byggir þá stað- hæfingu á eigin afrekum. Hann segist hafa drepið innan við 500 minka, mest 180 á einu ári. Hann er launaður embættis- maður í þessu skyni, ferðast hvert þangað, sem mest verður minks vart, og því helst veiði von, og hefur hvorttveggja, ein- stæða sjerþekkingu og fullkomn ustu tækni, sem sjerfræðin þekkir besta, og árangurinn var 180 minkar yfir árið, sem senni lega er innan við 1% af við- komu villiminksins. Orsök villiminksins. Frá því að minkur var fluttur inn og þar til í stríðsbyrjun, var ekkert eftirlit haft með vörslu minka, þeir haldnir á ýmsan hátt af kunnáttulausum mönnum, og sluppu víða. Þá varð til sá villiminkastofn, sem aldrei hefur tekist að vinna bug á og teksfr aldrei, t. d. er sann- að, að 1932 sluppu 8 minkar úr búrum og náðust ekki aftur, ein þessara hjóna ættu forfalla- laust rúmlega eitt hundrað mill jón afkomendur á þessu ári. Utbreiðsla villiminksins. Tíminn segir að villiminkur sje nú um allt Suður- og Vest- urland. Heyrst hefur um mink í Ólafsfirði, Mývatnssveit og víðar á Norðurlandi. Eitt dag- blaðanna gat þess nýlega, að uglan væri versti óvinur villi- minksins á Austurlandi, svo þar er hann til líka. Merkur bóndi úr Borgarfirði segir mjer, að þá er snjór var fallinn á Arn- arvatnsheiði í göngum síðast- liðið haust, hafi minkaslóðir legið þar með lækjum og vötn- um. Carl Carlsen, nú sjerfróður meindýraeyðir, segir í viðtali við dagbl. Vísir fyrir rúmu ári, þá nýkominn úr einni af hin- um fengsælu veiðiförum, að hann telji villiminkinn skifta þúsundum á svæðinu frá Hafn- arfirði austur í Ölfus. Að þessu athuguðu geta menn sjeð, að hjer er ekki um að- eins fá dýr að ræða, heldur geysi mikla hjörð, enda álit flestra sem reynt hafa að kynna sjer þessi mál, að stofninn muni nú ekki innan við 10 þús. Ef reiknað er með þeirri tölu, er viðkoman um 20 þús. hvolpar á ári, og hefur því meindýraeyði lánast að veiða innan við einn af hundraði við- komunnar. Það verður því að segjast, að sú fullyrðing sje næsta hæpin, að honum muni takast að gjör- eyða villiminknum á fáum ár- um, ef ekki beinlinis sögð í annarlegum tilgangi, að minsta kosti verður hún hæpin, ef hann byggir hana á eigin af- rekum. Eða halda menn að síð- 'asta prósentið verði sjerfræð- ingnum auðunnið, þegar fyrsta' prósentið kostaði hann heilt ár? Fyrir íslendinga, sem þekkja Arnarvatnsheiði, hvað þá Þing- vallahraun eða hraunin á Reykjanesskaganum, þar sem \ villiminkurinn hefur nú lifað ódræpur í nær 20 ár, er svona staðhæfing ótrúleg frá hendi sjerfræðings. Yfirleitt má segja, að þessi minkaskrif Tímans hafi borið áberandi keim af meinlega dönskum hugmyndum um ís- lenskar aðstæður, enda mun sjerfræðin þaðan ættuð. Hvað heldur villiminknum í skefjum? Margir munu spyrja, hvort stofninn verði 20 þús. mink- um fleiri um þetta leyti næsta ár. Því vil jeg svara neitandi. Fjölgun stofnsins verður aðeins fyrir nýtt landnám, en á þeim svæðum, sem minkur er búinn að lifa villtur I fleiri ár, hefur hann löngu náð þeirri útbreiðslu sem aðstæður leyfa og fellur því árlega sem viðkomunni nemur, þó að sjálfsögðu geti það verið breytilegt frá ári til árs. Náttúran hefur sínar leið- ir til að ná þessu marki, og heldur að sjálfsögðu jafnvægi meðal þeirra, sem annara dýra- tegunda. Eða hvað væru nú margar mýs á íslandi, ef þær yrðu ekki fyrir neinum van- höldum nema af hendi kattar- ins? Það virðist því eiga eins langt í land að áhrifa meindýraeyðis fari að gæta verulega í örlögum villiminksins, að minsta kosti þegar maður athugar þá stað- reynd, að hann náði ekki ein- um einasta mink með sinni tækni í þeim 68 af 70 Breiða- fjaiiðareyjum, þar sem deili um mink var að finna, en mátti þess í stað gera nýja reisu í Atvinnumálaráðuneytið og sækjá sjer hund, að ráði ósjer- fróðra manna, sem notað hafa þá aðferð með nokkrum ár- angri, þar sem hagar til að minkurinn verður grafinn út. Tjón af völdum minka. Óttinn við það, að minkur- inn muni gjöreyða öllu fuglalífi við Breiðafjörð, er sem betur fer ekki á sterkum rökum reist ur. Hjer syðra, þar sem mink- ur er að staðaldri í varplönd- um, er eyðingin ekki algjörri en svo, að æðarvarp mun nú svipað og áður var. Sú staðhæfing sjerfræðings- ins, að þeir sem stunda minka- búskap sjeu á móti eyðingu villiminksins, er ekki svara verð. En hitt er satt, að margir þeirra þekkja þetta dýr svo að þeir vita, að það verður aldrei hægt, enda hafa engra hags- muna að gæta í sambandi við það að staðhæfa slíkt gegn betri vitund. Þeir harma það ekki síður en aðrir, að minkurinn er orðinn viltur og veldur tjóni, og það svo tilfinnanlegu í sum- um tilfellum, að ekkert virðist rjettlátara en menn fái það bætt. En það munu finnast aðrir menn, sem ekki kæra sig um að útrýma villimink, þeir sem lært hafa að veiða hann og telja hann orðið til hlunninda, enda hver minkur um 200 kr. virði, og má segja, að þar fái minkagaldurinn hæfilegan endi. Loðdýrabúið í Stykkishólmi. Þar sem Tíminn segir, að minkurinn í Breiðafjarðareyj- um, sje kominn úr loðadýrabú- inu í Stykkishólmi, þá skal vik- ið að því nokkrum orðum. Þetta er eina loðdýrabúið á landinu, sem haldið hefur silf- urrefastofni sínum óskertum yfir stríðsárin, þrátt fyrir allar ofsóknir sem yfir þennan at- vinnuveg hafa dunið, auk þess mátt óstutt taka á sig hinn gíf- urlega framleiðslukostnað, með lokaða markaði og fyrirstríðs- verð á framleiðslunni, þegar eitthvað hefur selst. Þeir sem annan atvinnurekst- ur stunda, geta spurt sjálfa sig hvar þeirra búskapur stæði nú eftir 10 ár, hefðu þeir orðið að sæta sömu kjörum. Fram til ársins 1947, var að- eins silfurrefur á þessu búi, en það ár var ráðist í að bjarga einnig nokkrum verðmætum minkaafbrigðum, því þá horfði til þess, að sá búskapur myndi með öllu leggjast niður vegna ofstækis minkagaldursmanna. Tveim árum áður en þessir minkar komu vestur, hafði orð- ið vart við villimink á Skóg- arströnd, um sama leyti fór að bera á, að rauðmagi væri jet- inn í netum í Breiðafjarðareyj- um, sem síðar sannast að er gert af mink. Sjerfræðingurinn segir, að minkurinn ferðist 50 km. á dag (Jörundur kaldi kom honum í 100 mílur), en þaðan sem hann slapp fyrir nær 20 árum og til Breiðafjarðar, er um 200 km. Samkv. þessari kenningu getur minkur, sem býr með konu og börnum suður í Mýrasýslu, sótt sjer í matinn norður í Breiða- fjarðareyjar, og svo á hann ekki að geta verið kominn þang að annars staðar frá en úr loð- dýrabúinu í Stykkishólmi. Þetta er - að sjálfsögðu alger danska fyrir þá, sem eitthvað þekkja mink. En það er með þetta eins og annað í þessum meinlegu sjerfræðiskrifum Tímans, þar rekur sig hvað á annars horn. Sú fullyrðing Tímans, að hundar hlaupi út og inn um minkabúrin í Stykkishólmi, hæf ir Tímanum, en það skal við- urkennt, að síðastliðinn vetur voru nokkrir minkar og búr flutt vestur í Stykkishólm, en vegna snjóa og óhagstæðrar veðráttu, sem eflaust fleiri hafa kynnst, reyndist ekki unnt þá þegar, að ganga frá girð- ingu lögum samkv. En haldi sjerfræðingurinn að þeir hafi sloppið, þá vill svo vel til að þeir eru gráhvítir að lit, og því jafnvel þekkjanlegir fyrir hann, og vona jeg að hann sendi þá heim til föðurhúsanna, rekist hann á slíkan mink. En minkaplágan í Breiða- fjarðareyjum á ekki rætur sín- ar að rekja til loðdýrabúsins í Stykkishólmi, heldur þeirrar útbreiðslu villiminksins, sem ekki skilur frekar eftir þe.nnan landshluta en aðra, þegar að þeim kemur, og ekki verður fyrir byggt, þótt hörmúlegt sje. Onýt Tímasprengja. Þess skal að lokum getið, aO Framsóknarflokkurinn stendur ekki óskiptur í minkagaldrin- um frekar en öðru, því enginn hefur barist af næmari kkiln- ingi og meiri drengskap gegn hamförum minkagaldursmanna á undangengnum þingum en einmitt búnaðarmálastjórinn, þótt nú hafi tekist að setja þau lög, sem duga munu til þess ai> minkaeldi verður bannað. Vifilsstöðum 3. júní ’49. Leifur Jónasson frá Öxney. r áframhaldandi bairátfa gep kcmmum í Kíng CANTON, 6. júlí — Chiang Kai Shek marskálkur, Li Tsung Jen forseti og aðrir leiÖtogar kínversku stjórnarinnar lýstu 4 dag á ný yfir þeirri ákvörðun sinni að halda áfram barátt* unni gegn herjum kommúnista. — Reuter. Vann OlympíumeistafM og setfi Ewóptsme! PARÍS, 2. júli: — Franski-su.ml maðurinn Rena Pirollej setti nýtt Evrópume't i 200 m bak- sundi á móti í Marsaille í geer- Timi hans var 2:24,2 mm. — Fyrra metið á vegalengdinni var 2:25,4 min- og átti Georges Vallerey það. I þessari keppni sigraðí Pirolley Amerík uma nniri n Alan Stack, sem varð Olympíu meistari í 100 m. baksundi. Tími Stacks var 2:25,1. ámtarlegur bústað^r LONDON: — Breski þingmrið urinn, William Denis KendalL, sem er gráhærður piparsveinn, hár á vöxt, hefir setzt að u«i borð í skemmtisnekkju, sem liggur fyrir festum á miðri Themsá í námunda við þing- húsið. Hann býr í sal búnum slag- hörpu og bókaskápum og hefet þarna við ásamt háseta sínum Bill Sharman. Snekkjan gtrjgur fyrir 300 hestafla diesel-vjel. Sjálfur er Kendall í senn sk i ps t j ór i, sigli ngafræðingur, vjelstjóri og loftskeytamaður á skipinu- — Reuter. Nýr sendiherra ísraeSs í París PARÍS, 5. júlí — Maurice Fish- er, hinn nýi sendiherra Israels- ríkis í Frakklandi gekk í dag á fund Auriols Frakklandsíorseta og afhenti honum skilríki sín. •—Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.