Morgunblaðið - 24.07.1949, Qupperneq 12
viS virkjun
llfeoðslýsingar m fuilgerðar
Á FUNDI í bæjarráði Reykjavíkur, er haldinn var s. 1.
Éostudag, var rætt um viðbótarvirkjunina við Sogsorku-
verið og samþykkti bæjarráð þá svohljóðandi ályVrtun eftir
tillögu rafmagnsstjóra:
Að sækja til ríkisstjómarinnar um virkjunarleyfi á íra-
É£i>sjí-'Og--Kistufossi í einni virkjun.
Að láta sem fyrst fara fram útboð á vjelum og rafbúnaði
tMkvæmt framlagðri lýsingu, á þann hátt, að sent verði
til þeirra firma í Norðurálfu og Ameríku, sem Sogsvirkj-
Unin hefir haft samband við, bæði beint og fyrir milli-
pöngu ísl. sendiráða.
Vegragerð og brúarsmíði.
í sambandi við afgreiðslu
•náls þessa, lá og fyrir fundí
tnejafráðs brjef frá rafmagns-
stjóra, varðandi undirbúnings-
vinnu er hefja skal í sumar að
virkjun þessari.
í brjefinu skýrir rafmagns-
stjori~frá þeim vegalagningum
sern nauðsynlegar eru, en það
eitt er allumfangsmikið verk og
t*Tic; -er"nauðsynlegt að byggja
brú yfir Sogið og verður hún
fyrir ofan írafoss.
Kemann varði víta-
ipfrauíleikKRvsð
Yaaderengen
KINS og Morgunblaðið skýrði
ft'ár í gær tapaði KR fyrsta leik
sínum í Noregi við Vaalereng-
en á föstudagskvöldið. — Nú
hefur blaðinu borist skeyti frá
Gumiari Akselson um leik
þennan, og fer það hjer á eftir:
Oslo, 23. júlí: — Vaalereng-
en vann KR í gærkvöldi með
1:0 eftir góðan leik_ Bestu
wenn í KR-liðinu voru fram-
hcrjarnir, Ari Gíslason, Hörð-
ur Óskarsson og Ríkarður Jóns
son. ‘ásamt Óla B. Jónssyni,
tom allir ljeku mjög vel. —
Einnig var leikur Ólafs Hann-
essonar góður, er líða tók á
leikinn.
Vörnin var aftur á móti ekki
eins góð, að undanteknum Her
manni Hermannssyni, sem
varði m.a. vítaspyrnu.
KR-liðið átti fleiri markskot
og tækfæri tl að skora, en Vaal
erengen Ijek betur út á vellin-
um og leikur liðsins var yfirleitt
tekniskari. — Akselson.
ur sent bæjarráði áskorun um
að það láti efna til samkeppni
um útlit og umhverfi Tjarn-
arinnar.
Þessi áskorun fjelagsins var
lögð fram á fundi bæjarráðs er
haldinn var s. 1. föstudag Vís-
aði það máli þessu til bæjar-
verkfræðings og forstjóra skipu
] fndar. til undirbúnings.
2000 manns í Tivoli
i fyrrakvöld
UM 2000 manns horfðu í fyrra-
kvöld á loftfimleikasnillingana
dönsku Maggy og Marco sýna
listir sínar í skemmtigarðmum
Tivoli, en þau eru nýlega kom-
in til landsins ög munu sýna
listir sínar í skemmtigarðinum.
Ahorfendum þótti mikið til
dirfsku þeirra beggja koma
enda sýna þau ótrúlega 'eikni
oft á tíðum og dirfsku. Það vakti
ekki hvað síst hrifningu er
Marco stóð á höfði á stálstrengn
um, sem strengdur ^r upp í 15
m. hátt mastur.
Aðsókn að Tivoli hefur verið
mjög góð í sumar og er tala
gestanna nú komin upp í 60
þúsund.
Freslur í samkeppni
veiífur
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt
að framlengja frestinn til að
skila úrlausnunum í samkepni
um sumarhús við Rauðavatn,
til 11. september næstkomandi.
Húsameistarafjelag íslands
hafði óskað eftir að fá frestinn
framlengdan og þótti bæjarráði
rjett að verða við þeirri ósk
húsameistaranna.
ÞAÐ hefur ekki verið á hverj-
um degi í sumar, sem hægt hef
ur verið að taka ljósmyndir af
fólki í sjóbaði. En í vikunni
sem leið náði ljósmyndari Mbl.
mynd af þessum hnokka, þar
sem hann er að reyna sjóinn og
sólskinið.
Nýjasía nýtt — Bílabarl
NÝJASTA NÝTT í Ameríku er „bílabarinn“. Bílstjórar aka
inn í bás við veitingahúsið, þrýsta á hnapp og panta mat, sem er
íennt út til þeirra. Bílstjóri og farþegar þurfa ekki einu sinni
að fara út úr bílnum til að fá sjer matarbita. Þessi bílabar er
i Los Angeles. "
ARMANNSSTULK-
URNAR SÝNA FIM-
LEIKA í TIV0LI
ÁRMANNSSTÚLKURNAR ,em
fara á Lingiaden-hátíðahöldin
í Stokkhólmi, halda sýningu í
Tivoli í kvöld kl. 9 undir stjórn
Guðrúnar Nielssen.
Stúlkurnar munu sýna þarna
það sama og þær sýna ytra, en
Guðrún Nielsen hefir samið
flestar æfingarnar sjálf.
Flokkurinn sýndi í íþróttahús
inu við Hálogaland s.l. mánudag
Var þar húsfyllir og undirtekt-
ir áhorfenda mjög góðar. Höfðu
ýmsir orð á því á eftir, að betri
kvennaleikfimi hafi ekki sjest
hjer á landi. Það þarf því ekki
að draga í efa að þeir verða
margir sem leggja leið sína í
Tivoli í kvöld.
Bærinn slyrkir
slúdenlamófið
MEÐ öllum greiddum atkvæð-
um bæjarráðsmanna samþykti
bæjarráð á fundi sínum síðast-
liðinn föstudag. að veita 12 þús.
kr. styrk til norræna stúdenta-
mótsins, er haldið var hjer í
bænum í júnímánuði s.l.
Svo sem kunnugt er þótti
öllum er þátt tóku í móti þessu
það takast alveg sjerstaklega
vel, enda allt gert til að gera
gestum dvölina hjer sem á-
nægjulegasta og var mótið án
efa íslenskum stúdentum til
mikils sóma.
Þjóðháfíð Vesl-
mannaeyja verður
5. og 6. ágúsi
VESTMANNAEYJUM 23. júlí:
— Þjóðhátíð Vestmannaeyja
verður haldin föstudaginn og
laugardaginn 5. og 6. ágúst n.k.
Hátíðin verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Til
skemmtunar verða ræðuhöid,
söngur, keppni í frjálsum íþrótt
um, bjargsig, knattsyrna, hand-
knattleikur og dans á tveimur
pöllum. Þá verður og flugelda-
sýning.
Knattspyrnufjelagið Týr sjer
um hátíðina að þessu sinni. —
Bj. Guðm.
Rætt um sorpeyðing-
arstöðina í bæjar-
raði
Á FUNDI sínum síðastl. föstu-
dag ræddi bæjarráð um nefnd-
arálit vegna sorpeyðingastöðv-
arinnar, sem getið hefur verið
hjer í blaðinu.
Nefndin, sem fjallaði um
málið leggur til að stöðinni
verði ætlaður staður inn við
sandnám bæjarns við Elliða-
árvog. Bæjarráð samþykkti að
fá tillögu samvinnunefndar um
skipulagsmál um staðsetningu
stöðvarinnar.
REYKJAVÍKURBRJEF_e rjs
bla*úðu 7.
1Huseby setur
siandsmet í
kringlukasti
Finnbjöra á nýjum
mettímaílðOm.
MEISTARAMÓT Reykjavíkur
í frjálsum íþróttum hjelt áfram
í gær. Gunnar Huseby setti þar,
nýtt íslandsmet r kringlukasti,
kastaði 45,62 m., en fyrra metið
sem hann átti sjálfur var 45,4Ö
m. Með vinstir hendi kastaðí
hann 28,56 m., eða 74.28 m.
1 með báðum höndum, sem er
nýtt beggja-handa-met. i
| 110 m. grindahlaup vann
• Örn Clausen, IR, á mettíman^
um, 15,2 sek.
Haukur Clausen, ÍR, hljóp
100 m. á 10,6 sek. í undanrás
(íslenska mettímanum), Finn-«
björn Þorvaldsson, ÍR, og Guð.
undur Lárusson, Á, á 10,8 og
Hörður Haraldsson ,Á, á 10,9.
í úrslitunum hljóp Finn"*
björn á 10,5 sek., sem er
1/10 betra en íslandsmetið,
Haukur á 10,6, Guðmundur
á 10,7 og Hörður á 11.0. —«
Meðvindur var einhver, ers
hvort hann var of mikill var
blaðinu ekki kunnugt.
Vegna þess hve blaðið fer
snemma í prentun á laugar-*
dögum getur það ekki að þessu
sinni birt nánari fregnir af mót'
inu.
Sulfusykur
SKÖMMTUNARYFIRVÖLD-.
IN tilkyntu í gær, að auka«
skammtur af sykri yrði veitt«
ur til sultugerðar.
Miðarnir Skammtur 8 og 9,
gilda hvor um sig fyrir 500 gr.
af sultusykri.