Morgunblaðið - 17.08.1949, Síða 1
,36. árgangur.
185. tbl. — Miðvikudaginn 17. ágúst 1949.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Saumakonur í verkfalli.
SAUMAKONUR í París, hinar frægu „medinettes“ gerðu verk-
fall í sumar til að krefjast hærri iauna. Komst þá allt í uppnám
í tískuheiminum í bili, því tískusýningar miklar stóðu fyrir
dyrum. Saumakonurnar voru samt í besta skapi og hjer á
myndinni sjest,- að þær hafa viljað halda góðu samkomulagi
við lögregluna, sem send var til að sjá um að allt færi fram
með röð og reglu á fjöldafundi, sem saumakonurnar hjeldu.
Grískir uppreisnar-
menn gjalda afhroð
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
AÞENA, 16. ágúst. —• Að undanförnu hafa grískir uppreistar-
rnenn goldið mikið afhroð á ýmsura stöðum í N-Grikklandi.
Uafa uppreistarmenn m. a. leitað sjer hælis á júgóslavneskri
grund, en nú er svo komið, að þeir fá ekki að hverfa þaðan
aftur, heldur eru þeir-afvopnaðir þar og kyrrsettir.
Flýðu til Júgóslavíu ®--------------------
Utvarpið í Aþenu skýrði frá
því í kvöld, að grískir skæru-
liðar, sem flúið hefðu til Júgó-
slavíu eftir ófarirnar við Kor-
orrta, hefði verið afvopnaðir þar
og' kyrrsettir. Var þess getið, að
heimildarmaður þessa væri
grískur liðsforingi, sem fengið
hefði upplýsingarnar hjá for-
ingja úr her Júgóslavíu.
Landamærum Júgóslavíu
lokað
í frjettinni sagði, að þetta
benti til þess, að júgóslavneska
stjórnin ætli raunar að halda
það loforð sitt að loka landa-
mærunum. Mundi hún þá um
leið meina flóttamönnunum,
sem leituðu hælis í landinu, að
hverfa aftur til Grikklands.
Útvarpið sagði ennfremur, að
hingað til hefði ekki skipt miklu ^
máli, hvort landamæri Júgó-
slavíu hefði verið lokuð eða
ekki, þar eð hernaðaraðgerðir
hefði einkum farið fram hand-
an albönsku landamæranna.
Mikill ósigur
Gríski herinn gaf ennfremur
út þá tilkynningu í dag, að upp
reistarmenn hefði misst 1400
manna, er þeir biðu ósigur fyr-
ir stjórnarhernum við Vitsi-
fjall -í N.-Grikklandi.
— Reuter.
Slys í verksmiðj
unni á Raufarhöfn
16 ára drengur missir
annan fótinn
RAUFARHÖFN, 16. ágúst.
— Það slys vildi til í síldar-
verksmiðiunni i dag, að 16 ára
piltur, Árni Svcinsson frá Ak-
ureyri, missti annan fótinn. -—
Festi hann í skrúfuflytjara,
sem klippti hann af neðan við
hnje.
Læknir frá Kópaskeri kom
og gerði að sárinu og síldarleit-
arflugvjel kom á Hraunhafna-
vatn, þar sem of hvasst var að
len,da á sjónum. Flutti hún
drenginn á Akureyrarspítala.
— Einar.
FRAMTÍÐ EVRÚPURÁÐSINS RÆDE
Tvær meginsfefnur:
Sterkt Evrópuþing
2) Ráðgefandi samkoma
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
STRASBOURG, 16. ágúst. — Ráðgjafarsamkoma Evrópuráðsins,
sem nú heldur fundi í Strasbourg, þingaði í dag um hlutverk og
valdsvið ráðgjafarsamkomunnar og kenndi margra grasa í skoð-
unum manna um þetta atriði. — Á fundi Evrópuráðsins í dag
tcku 14 ræðumenn til máls. Höfðu þeir hver sitt til málanna
að leggja, en þó virtist svo sem um tvær meginstefnur væri þar
að ræða.
Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins. —
WASHINGTON, 16. ágúst.
(Reuter): — Atvinnumála
ráðherra Bandaríkjanna,
skýrði frá því í dag, að lík-
ur væru til, að atvinnu-
leysi myndi nú fara mink-
andi og mætti gera ráð fyr-
ir, að um áramót væri ein
miljón manna, sem nú væri
atvinnulaus, hafa fengið
vinnu á ný. Sagði ráðherr-
anln þetta stafa af því, að
fyrirtæki hefðu á ný tekið
að panta vörur til birgða-
söfnunar, eftir að aftur-
kippur hafði komið í við-
skiftin í vor.
Talið er, að um 4 miljónir
manna sjeu nú atvinnulaus-
ir í Bandaríkjunúm, en þó
er tala vinnandi fólks í
Bandaríkjnum hærri en
hún hefir nokkru sinr, ver-
ið fyrr.
Horræn forsætisráðherra-
fundur áarhus
KAUPMANNAHÖFN, 16. ág.:
— Líklegt er, að forsætisráð-
herrar Norðurlandanna hittist
í Aarhus í byrjun september í
sambandi við ársþing Social-
demokrataflokksins, sem þar
hefst 4. september.
Tage Erlander forsætisráð-
herra Svíþjóðar hefur þegið boð
um að sækja fundinn og búist
er við að Ejnar Gerhardsen,
sæki fundinn. — NTB.
Kommúnistar rúm-
lega 200 km. Irá
Kanton
HONG KONG, 16. ágúst. —
Hersveitir kommúnista í Kína,
sem sækja að Kanton, eru nú
rúmlega 200 kílómetra frá
þeirri borg og sækja hratt fram.
Útlendingar í Kanton eru
þegar farnir að flýja frá borg-
inni og halda kaupsýslumenn
flestir til Hong Kong. Amerískt
olíufjelag hefur sent alla hvíta
starfsmenn sína burt frá borg-
inni.
Fleiri og fleiri stuðnings-
menn kínversku stjórnarinnar
flýja nú meginlandið og fara
til Formósa.
Frá byltingu Sýrlands.
DAMASKUS — Forsætisráðheri'a
stjómar þeirrar, sem Hami El-Xinn-
ovi kemur ó laggirnar í Sýrlandi
verður maður nokkur að nafni El-
Atasse.
^Tvær stefnur
Annars vegar voru þeir, sem
töl'du það vera takmarkið, að
Evrópuráðið yrði gert að raun-
verulegu Evrópuþingi. Á önd-
verðum meiði voru svo þeir,
sem megináherslu lögðu á af-
stöður hvers einstaks ríkis sem
þjóðar. Vildu þeir, að ráðið
fengi ekki meirl völd en það nú
þegar hefði fyrr en einhver sú
reynsla hefði fengist, er gæti
rjettlætt að vald þess yrði auk-
ið.
Tveir Norðurlandamenn tóku
til máls á fundinum. Voru það
Danirnir Thorkil Kristensen
fyrverandi ráðherra og Frode
Jakobsen. Hölluðust þeir nán-
ast að fyrri skoðuninni, að Ev-
rópuráðið yrði vísir að virku
Evrópuþingi.
. Ekki verður með neinni vissu
sagt um, hversu miklu fylgi
hvor þessara tveggja ólíku skoð
ana um framtíðarhlutverk Ev-
rópuráðsins á að fagna.
IMorðmenn gátu selt 15
smálestir meira af
saltfiski en þeir frmleiddu
þús.
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB.
BODÖ, 16. ágúst. — Norðmenn hefðu getað flutt út 15.000 smá-
lestir meira af saltfiski í ár fyrir gott verð, ef birgðir hefðu
verið fyrir hendi. Frá þessu er skýrt í blaðinu „Norlands
Framtid“ í dag og er Reidar Carlsen ráðherra borinn fyrir
frjettinni. <
Veiðar við Grænland gengu vel
ÞORSKVEIÐAR Norðmanna við Grænland hafa gengið einstak-
lega vel, segir í sama blaði og er reiknað með, að Norðmenn
fái um 5000 smálestir af saltfiski til flutnings frá Græn-
landsveiðunum.
Landhelgismálið * *
RÁÐHERRANN ræddi nokkuð landhelgismálið við frjettaritara
„Norlands Framtid“ og sagði, að það væri hið þýðingarmesta
mál fyrir Norðmenn, að fá úr því máli skorið hið allra
fyrsta, svo að viðunandi ástand fáist fyrir norska fiskimenn
á norskum fiskimiðum.
Þinghugmyndin studd
Andrje Philipe, franskur
þingmaður úr jafnaðarmanna-
flokknum mælti eindregið með
því, að stofnað yrði Evrópu-
þing. Hann benti á hið erfiða
ástand í heiminum í dag og
einkum á fjármálasviðinu og
lagði áherslu á í ræðu sinni, að
þær ráðstafanir, sem hinar
ýmsu þjóðir Evrópu hygðust
gera fyrir 1952, er Marshallað-
stoðin hættir, myndu leiða til
margskonar fjárhagsstefna, en
farsælast myndi, að taka upp
sameiginlega stefnu í fjármál-
um Evrópu, stefnu, sem meiri-
hluti Evrópuþjóða veldi og
gæti felt sig við.
Ovíst hvað verður
ofan á
Margir ræðumenn studdu ’
mál Andrje Philipe, þar á neð-
al dönsku ræðumennirnir,
Kris.tensen og Jakobsen. Aðrir
stjórnmálamenn, sem álits
njóta, svo sem Layton lávarður
studdu Philipe. En nokkrir töl-
uðu á móti honum og þar á
meðal talsmenn verkamanna-
flokksins breska.
Hvor stefnan verður ofan á,
ýFramh. a 2. siðu)