Morgunblaðið - 31.08.1949, Qupperneq 10
10
rdORGUNBLAÐlÐ
Miðvikudagur 31. ágúst 1949
Eóiir gestir fró Knliforníu
NÝKOMIN eru til landsins, frá
Kaliforniu í Bandaríkjunum,
þau hjónin Skúli og Margrjet
Bjarnason.
Skúli er fæddur áí Eyrar-
bakka, sonur Gissurar Bjarna-
sonar frá Steinsmýri í Skafta-
fellssýslu, er síðar bjó að
Litla-Hrauni í Arnessýslu, og
konu hans, Sigríðar Sveins-
dóttur frá Valdalæk í Húna-
vatnssýslu.
Margrjet, kona Skúla, er
Oddgeirsdóttir, sjera Oddgeirs
Guðmundssonar prests í Vest-
mannaeyjum og konu hans,
Onnu Jónsdóttur prests í Arn-
arbæli.
Skúli ólst, sem fyrr segir,
upp á Eyrarbakka, til ferm-
ingaraldurs, en fluttist til
Reykjavíkur árið 1903. Var
hann þá um tveggja ára skeið
í Viðey, en fór þaðan til
Böðvars Böðvarssonar í Hafn-
arfirði og lærði hjá/ honum
bakaraiðn, sem hann hefur
jafnan stundað síðan.
Skúli kom aftur til Reykja-
víkur eftir þrjú ár og vann þá
í Björnsbakaríi um hálfs ann-
ars árs skeið, en þá gafst hon-
um langþráð tækifæri til þess
að komast „út fyrir pollinn“,
svo hann fluttist til Kaup-
mannahafnar.
í Kaupmannahöfn kynntist
hann sinni glæsilegu konu, og
munu þau þá þegar hafa rennt
hugum saman, þótt vegir þeirra
skildu aftur um all langt skeið
er Skúli hvarf aftur heim á
Frón eftir tæpra tveggja ára
dvöl ytra.
Er Skúli var heim kominn
fór hann aftur að vinna hjá
Böðvari bakara í Hafnarfirði,
en ekki mun honum hafa þótt
hilutskipti sitt viðunandi við
svo búið, því hann var, og er
stórhuga og langaði til að sjá
meira og fleira, enda fluttist
hann, ári síðar, til Winnipeg í
Kanada, en í Ameríku líkaði
honum vistin svo vel að hann
tók sjer þar bólfestu til fram-
búðar.
Fjórum árum eftir komu
Skúla til Winnipeg kom þang-
að einnig Margrjet Oddgeirs-
dóttir, og höfðu þau þá ekki
sjest í nærri sex ár. Urðu þar
hinir mestu fagnaðar fundir,
og ljetu þau „pússa“ sig saman
hið bráðasta.
Þau hjónin bjuggu síðan í
Winnipeg í tæp tíu ár og eign-
uðust þar tvo sonu, Oddgeir
og Harald, sem nú eru upp-
komnir menn, en ógiftir, og
búa þeir með foreldrum sínum
í Los Angeles.
Til Kaliforniu í Bandaríkj-
unum fluttist svo Skúli, ásamt
fjölskyldu sinni, fyrir röskum
tuttugu árum og unir þar svo
vel sínum hag að hann má
sig þaðan hvergi hræra.
Allan þann tíma sem Skúli
hefur búið í Lös Angeles hefur
hann unnið fyrir sama fyrir-
tækið, hið risavaxna bakarí
Van de Kamp-Holland Deuch
Bakeries. Bakarí þetta hefur
um 160 sölubúðir víðsvegar um
borgina og hjá því vinna yfir
3000 afgreiðslustúlkur.
Allar sölubúðir bakarís þessa
eru byggðar eins og hollenskar
millúr og allar afgreiðslustúlk-
Skúli Bjarnarson ogírú,
írá Los' Angeles
urnar klæðast hollenskum
þjóðbúningum.
Þá hafa hjer verið raktir
hinir helstu stökkstólpar í
lífi Skúla Bjarnasonar og
fjölskyldu hans, en mig langar
til þess að minnast aðeins á
,,manninn“ sjálfan áður en jeg
lýk máli mínu.
Mjer er ennþá í fersku
minni okkar fyrsti fundur. Er
jeg hafði sagt honum til nafns
míns, rakti hann ætt mína
miklu lengra aftur í tímann
en jeg hafði sjálfur kunnáttu
til og var ekki laust við að jeg
fyrirverði mig fyrir fáfræðina
á þessu sviði, en síðan jeg hefi
átt þess kost að kynnast Skúla
nánar hefi jeg komist að því
að fjölfróðustu ættfræðingar
hjer heima standa honum
harla lítið framar, enda er
varla svo að jeg hafi heyrt
nokurs íslendings getið — þar
með taldir Vestur-íslendingar
— sem Skúli ekki hefur kunn-
að að ,.skilgreina“ langt fram
í ættir.
Er jeg fyrst kynntist Skúla
var jeg við nám í Los Angeles
og kom oft á heimili hans, sem
alltaf stóð okkur íslendingun-
um opið, enda var þar oft glatt
á hjalla og jafnan veittu þau
hjónin af rausn mikilli.
Enginn Vestur-íslendingur,
að minnsta kosti ekki um þær
slóðir sem Skúli býr á, mun
hafa veitt íslenskum náms-
mönnum og öðrum sem þar
voru á ferð, eins margvíslega
hjálp eins og Skúli Bjarnason
og undantekningarlaust var
betur gert en um var beðið.
Mörgum islenskum náms-
manninum hefur Skúli hjálp-
að um stundarsakir, bæði með
peningalánum og annari greið-
vikni, enda er mjer ekki grun
laust um að hann eigi þar enn-
þá margan greiðann vangold-
inn, þótt aldrei sje á það
minnst.
Hjer heima á Islandi eiga
jþau hjónin margt kunningja
af yngri kynslóðinni, sem notið
hafa gestrisni þeirra og hjálp-
fýsi, enda mun varla hjá liða
að mikill fjöldi þeirra sæti nú
færis að sýna þeim hlýju sína
og vinarhug fyrir rausn þeirra
þar ytra.
Af eldra fólki landsins eiga
þau hjón mýmarga kunningja
og vini, sem þau hafa haft ó-
slitið brjefasamband við þessi
nærri 40 ár sem þau hafa dval-
ið erlendis, og er Ijósasta sönn
un þess hve miklum vinsæld-
um þau hafa átt að fagna og
eins (þess hve vinatryggðin
hefur reynst þeim haldgóð, að
nokkrir gamalkuningjar þeirra
buðu þeim hingað til landsins
þessu sinni, til sumardvalar.
Fremstur í fiokki vina Skúla
er Andrjes Andrjesson, klæð-
skerameistari, enda sá þeirra,
sem forgöngu átti með heim-
boðið og búa þau hjá honum
meðan þau dvelja hjer.
Það, sem hjer hefur verið
sagt um Skúla Bjainason, og
konu hans, er ekki nema brot
af því, sem jeg vildi sagt hafa
honum til hróss og ágætis, en
þar sem allur saiínleikurinín
gæti valdið því að lesandinn
hjeldi að Skúli hvíldi nú „sex
fet í jörð niður“ þá skal hjer
staðar numið að sinni, því hann
er enn í fullu fjöri sem ungling
ur á gelgjuskeiði þótt kominn
sje á sjötugsaldurinn. Hann
hefur líka sýnt það glæsilega
eftir komuna hingað, að þrátt
fyrir um eða yfir 9000 kíló-
metra ferð hingað frá Los
Angeles, að vísu í flugvjel, þá
hefur hann þegar ferðast hjer
nokkur þúsund kílómetra vega
lengd, bæði akandi, ríðandi og
fótgangandi, en var þó ekki
þjáðari en það, ex jeg sá hann
siðast, að hann hafði fjölda
annarra ferðalaga á prjónun
um.
Jeg býð svo Skúla og Mar
grjeti hjartanlega velkomin
hingað heim og vona að þau
njóti ferða-r þessarar í sem rík-
ustum mæli.
J. M- M.
LAGHENT
i og ábyggileg stúlka óskar
i eftir atvinnu, helst á ljós
i myndastofu við reduzer-
í ingar eða lita myndir. —
Í Til greina gæti komið
Í einhverskonar teikni
i vinna. Tilboð, merkt:
| „Atvinna — 144“, send-
Í ist Morgunblaðinu.
Lifðu fyrir sjáifan
Kennaraskólanemi
óskar eftir herbergi í vet
ur gegn kennslu. Æski-
legast sem næst skólan-
um. Tilboð sendist afgr.
Morgunblaðsins, merkt:
„1949 — 143“.
l"•ll""l""""l"""l""|",""""",""|""""",,",,•■
Kominn heim
Bergsveinn Ólafsson,
læknir.
•"i""""""i"ii"""""""""""""",,"""""""i«iia
^túfka
vön kjólasaum, óskast
sem fyrst. Sjerherbergi á
vinnustað getur fylgt. —
Upplýsingar í síma 3085
fiá klukkan 6—8 e. h.
liii""iilil""""»*<«ii*l"ii"i"""""""i"""""""""i
RÁÐSKONA
| Ung kona innan við þrí- I
i tugt óskar eftir ráðskonu |
| stöðu hjá einhleypum eða... I
| á fámennu' heimili. Þarf |
i að hafa með sjer tvö i
i börn. Tilboð óskast sent I
j áfgr. blaðsins fyrir 4. j
i september, merkt: „Ódýr !
i vinnukraftur — 147“.
I ALRÆÐISRÍKI „öreig-
anna“, Rússlandi, geta menn
sjeð myndir af Stalín og öðr-
um foringjum ,sem ná yfir heila
húsveggi. Svipuð myndakúnst
þekkist í öllum löndum austan
járntjaldsins. Hitler og Mússó-
líni höfðu líka dálæti af stór-
um myndum af sjálfum sjer.
Hvernig skyldi taka sig út
mynd af Brynjólfi Bjarnasyni.
sem þekti alla austuihlið Út-
vegsbankans t. d.? Hversu
margir íslendingar myndu
horfa á slíka mynd með helgi-
svip aðdáandans? Hversu marg
ir myndu ekki brosa, ef ekkert
væri að óttast? En í þessari
sýningarstarfsemi er falin mjög
sjerkennileg pólitísk hugsun,
sem margir íslendingar dá og
vegsama af misskilningi. Hugs-
unin er þessi: Hver þegn þjóð-
arinnar á að haga lífi sínu ein-
göngu eftir óskum heildarinn-
ar, hann á að hlýða orðalaust
þeim „foringjum“ heildarinn-
ar, sem með völdin fara. Heild-
in, sem átt er við, er ríkið eða
ríkjasamsteypan, sem þegninn
tilheyrir. „Foringjarnir“ eru
svo fyrirmynd fólksins í dag-
legu líferni, — þeir hugsa aldrei
um sig eða hag sinn, þeir
„fórna“ öllu fyrir þjóðina,
heildina, alþýðuna eða hvað
það er kallað í hverju landi.
Stalín og ríki „öreiganna“ er
eitt og hið sama. Hitler og ,,das
Vaterland“ runnu saman. Þeg-
ar Stalin dæmir, þá er það
dómur þjóðarinnar. Þegar Hitl-
er dæmdi, þá dæmdi allt Þýska
land. Þegar Stalín bítur haus-
inn af starfsfjelaga sinum, þá
liafa kommúnistar allra landa
dæmt þann hauslausa til end-
urtekinnar líflátningar fyrir
svik við heildina. Lifðu fyrir
heildina er hreint vinstri orð-
tak, vinstra megin við allt, sem
er heilbrigt og mannlegt.
Hjer á landi eru þrír stjórn-
málaflokkar, sem að meira eða
minna leyti bjóða fólkinu upp
á þessa vinstri-lífsskoðun.
Margir hafa fylgt þessu vegna
þess misskilnings, að þeir hafa
haldið að hjer væri á ferðinni
hin fullkomna fjelagshyggja.
Sjálfstæðisflokkurinn er
mjög frjálslyndur lýðræðis-
flokkur. Það er ekki hægt að
benda á eitt einasta atriði i
starfsemi og uppbyggingu þess
fiokks, sem ekki stenst gagn-
rýni fullkominnar og frjálsrar
íjelagshyggju og lýðræðis. —
Sjálfstæðisflokkurinn dylur
heldur ekki lífsskoðun sína, en
í fæstum orðum er hún þessi.
Lifðu fyrir sjálfan þig. — Skoð-
aðu þína eigin mynd, þekktu
sjálfan þig, hugsaðu og starf-
aðu samkvæmt þínu eigin eðli.
Vertu frjáls innan þess ramma,
sem frjálst Alþingi skapar með
iöggjöf, og þetta þing móta kjós
endur, eins og þeim kemur best
og telja rjettast.
Bóndinn ræktar jörð sína af
því að hann vill auka fram-
leiðslu sína og tekjur sínar.
Heimsveldi hans er jörðin hans
og hagsmunir hans. Þjóðin nýt-
ur svo góðs af hvötum og starfi
þessa bónda. Jeg tel spursmál,
hvort íslenskir bændur rækt-
uðu jarðir sínar, ef þeim væri
skipað að gera það í nafni rík-
isins og fyrir heildina. Það
hefur ómetanlegt gildi hjer fyr
ir þjóðfjelagið, að aflamaður-
inn á sinn hlut. — Jeg þekki
ungan menntamann og kenn-
ara, sem flýði þreyttur frá
skyldustörfum vetrarins, þar
sem hann var talinn vera að
skapa menningarverðmæti með
því að reyna að auðga sálarlíf
væntanlegra barnakennara þjóð
arinnar með sálfræðikennslu.
Hann fór upp í sveit og fór að
skrifa fyrir sjálfan sig, sjer til
afþreyingar og ánægju. Síðar
kom í ljós, að hann hafði skap-
að mikið bókmenntaverðmæti.
Þessi maður á eftir að auðga
þjóðina mikið ennþá, fyrst og
fremst vegna þess, að hann
hefur fundið hvers virði það
er, að þjóna sjálfum sjer og lifa
fyrir sjálfan sig.
Mörgum finnst kannske að
þessi lífsregla og stjórnmála-
skoðun sje allt of „einföld póli-
sík“. Mörgum finnst allt velta
á skipulagi og allskonar flóknu
umstangi. En reynslan mun
kenna okkur, að því meira
frelsi, sem þegnar þjóðarinnar
fá að njóta og því minni skipu-
i iagshöft, þeim mun betur vegn-
I ar okkur. Frjálst þjóðfjelag
1 frjálsra manndómsmanna mun
I skapa hina mestu samhjálp,
| mestu samúð og mest verð-
mæti.
G. Bj.
lil"l"lll""iiilillliil
l"""l""""""|l|||||||"l|||"llttH
Ibúðarskifti
i 5—6 herbergja íbúð ósk-
1 ast til leigu sem fyrst.
| Hef mjög góða 3ja her-
= bergja íbúð -til leágu í
| staðin. Þeir, sem kynnu
i að hafa áhuga fyrir þess-
I um skiptum gjöri svo vel
í og tilkynni það til Mbl.
i fyrir 2. september, merkt
! „1525 — 125“.
i"""""i""""""""""i"*i
AtGLVSIIMGAR
sem birtasl eiga í sunnudagsblaðinu
í sumar, skulu eftirieiðis vera komn-
ar fyrir kf. 6 á fösfudögum.
I JHwgnstMðMb
• •l"•"•"•M""l"""""l"l""""•"l""""r"•"•ll•"l"l